Morgunblaðið - 28.06.1960, Page 24
Landlœknir Dana
Sjá samtal á bls. 13.
143. tbl. — Þriðjudagfur 28. júní 1960
Járniðnaðurinn
Sjá bls. 6.
Márus Júlíusson.
Alfreð Þórðarson.
Brœðslusíldaraflinn
kominn yfir 100,000 mál
Ekki færri en 225 skip á sildarvertiðinni
í GÆRKVÖLDI birti Fiskifélag
Islands fyrstu veiðiskýrslu sína
á þessari síldarvertíð. Segir þar
að bræðslusíldaraflinn sé nú þeg-
ar orðinn 112,301 mál, en fryst
síld og ísvarin síld sem flutt hef-
ur verið á markað erlendis alls
Tveir menn drukknuðu
er bát hvolfdi á Hagavatni á Snœfellsnesi
LAUST eftir miðnætti aðfara
nótt sunnudags varð það slys
á Hagavatni í Staðarsveit, að
litlum bát hvolfdi og drukkn-
uðu tveir menn, Alfreð Þórð-
arson, eigandi verksmiðjunn-
ar Fáfnis, og Márus Júlíusson,
sem hafði trésmíðavinnustofu
á Laugavegi 17. Þriðji maður-
inn, sem í bátnum var, Héð-
inn Elintínusson, vélsmiður,
bjargaðist. Sýndi hann hið
mesta þrek við að reyna að
bjarga öðrum félaga sínum.
Mbl. átti í gær tal við Héðin.
Sagði hann að þeir félagamir
þrír hefðu farið vestur á laugar-
dag, ásamt 13 ára gömlum syni
Alfreðs og bandarískum tengda-
syni hans. Vom þeir að athuga
aðstæður á Haga, en þeir voru í
hugieiðingum um að kaupa jörð-
ina, sem er í eyði frá í vor, og
stunda þarna silungarækt. Höfðu
þeir verið að reyna að veiða á
stöng síðdegis á laugardag, en
um kvöldið fóru þeir Alfreð og
Márus út á Hagavatnið á litlum
bát, og ætluðu að freista þess að
leggja net. Skömmu seinna kom
Héðinn þeim til hjálpar.
1 bússum og úlpum
Allhvasst var af suðvestri og er
þeir félagar voru að snúa bátn-
um um 40—50 m frá landi, kom
alda og hvolfdi honum. Þeir fé-
lagar voru allir mikið klæddir, í
úlpum og bússum og Alfreð ekki
syndur. Sagði Héðinn, sem er
ungur maður og vel syndur, fé-
lögum sínum að halda sér í bát-
inn, sem þá var á réttum kili,
meðan hann synti í land og
reyndi að létta af sér fötunum.
En hann var ekki kominn nema
nokkra metra er báturinn sökk.
Reiknar hann með að þeir félag-
arnir hafi reynt að komast upp
í hann, en sá ekki þegar þetta
gerðist.
Sá Héðinn að Aifreð var að
síga í vatnið og henti til hans ár.
Sumarferð Varðar
um landnám
Skallagríms
HIN árlega sumarferð Lands-
málafélagsins Varðar verður
farin næstkomandi sunnudag,
3. júlí. Að þessu sinni verður
farið í Borgarfjörð og vestur
á Mýrar.
Svo sem kunnugt er, hafa
skemmtiferðir Varðar notið mik-
illa vinsælda á undanförnum ár-
um. Hafa þessar ferðir verið
mjög eftirsóttar og verið fjöl-
mennustu ferðalög sumarsins. —
Varðarförin er orðin hjá fjölda
fólks fastur liður á hverju sumri.
Fólk á hinar ánægjulegustu end-
urminningar frá fyrri ferðum fé-
lagsins, svo sem ferðum um sögu-
staði Njálu, vestursveitir Ámes-
sýslu og í Fljótshlíðina, en þang-
að var farið síðastliðið sumar. —
Það munu því margir hugsa gott
til þessarar ferðar, sem nú verð-
ur farin um landánm Skalla-
grims.
Lagt verður af stað frá Reykja-
vík kl. 8 á sunnudag og ekið sem
leið liggur um Mosfellsheiði á
Þingvöll og staðnæmzt hjá
Hvannagjá. Síðan verður farið
um Uxahryggi og Lundarreykja-
dal, vestur yfir Mýrar að Hítar-
dal. Þar verður staðnæmzt,
snæddur miðdegisverður og stað-
urinn skoðaður. Þaðan verður
ekið til baka að sögustaðnum
Borg og hann skoðaður. Þá verð-
ur haldið til Reykjavíkur fyrir
Hafnarfjall um Hvalfjörð.
í förinni verður kunnur leið-
sögumaður. Þá verður ferðalagið
kvikmyndað.
Farmiðar eru seldir í Sjálf-
stæðishúsinu (uppi) og kosta kr.
225.00, en innifaiið í verðinu er
bæði hádegis- og kvöldverður.
Tókst honum nú að komast úr
úlpunni, vatnsbuxunum og stíg-
vélunum. 1 því öllu hafði maður
nóg með sjálfan sig, sagði Héð-
inn. En er hann leit aftur á Al-
freð var hann horfinn. Márus var
þá á sundi.
Fann Alfreð — Márus horfinn
Vatnið var mjög gruggugt og
sást ekkert, en Héðinn reyndi að
leita að Alfreð þar sem hann
hafði síðast séð hann og rak
loks í hann fótinn. Synti hann
að landi með Alfreð. En er hann
var kominn í land og leit við, var
Márus horfinn. Byrjaði hann þá
að reyna lífgunartilraunir á Al-
freð, en tilgangslaust var að leita
að Márusi í gruggugu vatninu,
þar eð ekki var vitað hvar hann
sökk.
Er þeir sonur Alfreðs og
tengdasonur, sem voru í landi,
sáu bátnum hvolfa, óku þeir á
jeppabíl að Tungu. Kom bóndinn
í Tungu ásamt fleirum á vett-
vang og skömmu seinna prestur-
inn á Staðarstað, sira Þorgrímur
Sigurðsson, og loks læknirinn í
Stykkishólmi. Reyndust allar lífg
unartilraunir, sem gerðar voru á
Alfreð, árangurslausar.
Lík Márusar fannst
Gerð var leit að Márusi í vatn-
inu, og fannst lík hans á floti
eftir alllanga stund. Fóru þeir
Héðinn, drengurinn og Banda-
ríkjamaðurinn heim að Staðar-
stað og voru komnir þangað um
kl. 5.30 um morguninn, og síðan
til Reykjavíkur. Líkin voru sótt
á sunnudag.
Alfreð Þórðarson lætur eftir
sig konu og 7 börn, það yngsta
8 ára. Hann bjó á Grjótagötu 14
í Reykjavík.
Márus Júlíusson, trésmíða-
meistari, lætur eftir sig konu og
4 börn, það yngsta 8 ára. Hann
bjó á Laugavegi 17 í Reykjavík,
en var ættaður úr Staðarsveit.
1783 tunnur. Á aflaskýrslunni er
að finna 108 skip, sem eru nú
með yfir 500 mála afla.
í skýrslu Fiskifélagsins segir*
svo:
„Margir bátar voru komnir á
síldarmiðin norðanlands um og
fyrir miðjan júní, en fyrsta síld-
in veiddist aðfaranótt 17. júní.
Fyrri hluta sl. viku var lítil veiði,
en afli glæddist um miðja vik-
una og var nokkur veiði til viku-
loka. Aðalveiðisvæðið var við
Kolbeinsey.
Þorri þeirra skipa, sem fara
til síldveiða að þessu sinni eru
nú komin norður og er búist við,
að tala veiðiskipanna verði svip-
uð og í fyna, en þá fóru 225 skip
til veiða.
Afla^agnið sl. laugardagskvöld
kl. 12 á miðnætti var sem hér
segir: Töluraar í sviga eru frá
fyrra ári á sama tíma):
í bræðslu 112.301 mál (27.479).
f frystingu 949 uppm. tunnur.
Útflutt ísað 834 uppm. tunnur.
Samtals 114084 mál og tunnur.
148 skip voru búin að fá ein-
hvern afla í vikulokin, þar af
108 skip aflað 500 mál og tunn-
ur eða meira“.
Á bls. 3 er birt skýrsla um
afla einstakra skipa, þeirra sem
fengið hafa yfir 500 mál og tunn-
ur. —
Red Boys í kvöld
f KVÖLD keppa Red Boys þriðja
leik sinn hér í Reykjavík og fer
leikurinn fram á Melavellinum
og hefst kl. 20.30. — Red Boys
mæta að þessu sinni liði, sem
skipað er leikmönnum frá Þrótti,
Val og Fram
Nýr Víðirll. kominn
til landsins
SANDGERÐI, 26. júní. — Til
Sandgerðis kom í gærkvöldi, um
kl. 8,30, eitt glæsilegasta fley, er
hér hefur sézt. Þetta er vélskipið
Víðir II. Eigandi er hinn vel-
Fjölmenni í Heiðmörk
þrátt fyrir kalsaveður
ÞRÁTT fyrir kalsa, sunnanveður
og regnþung ský, var
fjölmenni saman komið í Heið-
mörk á sunnudaginn, er Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur minnt
ist þar 10 ára starfs í mörkinni.
Á nokkrum stöðum í mörkinni
blöktu fánar við hún, en á þeim
stað, sem fyrsta barrtréð var
gróðursett fyrir 10 árum, Vígslu-
flöt, var útisamkonan haldin.
Ræðumenn töluðu úr ræðustól,
sem skreyttur var birkivafning-
um. Karlakórinn Fóstbræður
söng undir stjórn síns gamla
stjórnanda, Jóns Halldórssonar,
og Lúðrasveit Reykjavíkur lék.
Hákon Guðmundsson, ritari
Skógræktarfélags fslands, stjóm
aði útisamkomunni. Fyrstur
ræðumanna var Gunnar Thorodd
sen, fjármálaráðherra, þá frú
Auður Auðuns borgarstjóri, síð-
an Hákon Bjarnason skógræktar-
stjóri, próf. Sigurður Nordal og
að lokum Guðmundur Marteins-
son.
Fjölluðu ræðurnar um Heið-
mörk, skógræktina, þátt hinna
dugandi sjálfboðaliða þar, vax-
andi aðsókn bæjarbúa í þetta
fallega og friðsæla land. Brugð-
ið upp skýrum myndum af þeim
stakkaskiptum, sem orðið hafa á
öllu gróðurfari í mörkinni sðan
hún var friðuð. Um Heiðmörk
sjálfa talaði Sigurður Nordal, en
fáir munu hafa komið eins víða
þar um mörkina og hann. Að
lokum var brugðið upp mynd af
því 10 ára starfi, sem að baki
liggur í Heiðmörk.
Þótt skúrir gerði meðan á athöfn
inni stóð, braust sólin fram úr
skýjaþykkninu áður en hátíð-
inni lauk. Var fallegt að horfa
yfir Heiðmörk er nú skautar sínu
fegursta sumarskrúði.
Gizkað var á að útihátíðar-
gestir myndu vera um 1000 tals-
ins.
Nokkrum gestum bauð Skóg-
ræktarfélagið síðan til kaffi-
drykkju í Sjálfstæðishúsinu og
þar flutti aðalræðuna Hákon
Guðmundsson, hæstaréttarritari.
þekkti útgerðarmaður, Gfiðmund
ur Jónsson, Rafnkelsstöðum,
Garði, og skipstjóri Eggert Gísla-
son, Garði, sem verið hefur afla-
kóngur á síldveiðum og þorsk-
veiðum og er landskunnur.
Við þetta skip eru bundnar
miklar vonir, ekki aðeins eiganda
og áhafnar, heldur og einnig íbúa
hér á Suðurnesjum og sjálfsagt
fleiri. Nú hefur Eggert loks feng-
ið skip, sem segja má að „sé hon-
um samboðið".
M.b. Víðir II, GK 275 er 150
lesta stáiskip, byggt í Noregi hjá
Gravdals Skibsbyggeri, Sunde,
Noregi. Umboðsmenn eru L.f.Ú.
f skipinu er 400 hestafla Wich-
mann vél. Það er búið öllum nýj-
ustu tækjum, svo sem hinu nýja
Simrad-asdic og einnig hinu
eldra. Dekka-radar eg yfirleitt
öllum fullkomnustu tækjum, sem
nú eru sett í okkar fiskibáta. Þá
er Víðir II og búinn kraftblökk
og hefur vélknúinn léttbát, sem
notaður er til aðstoðar við síld-
veiðar.
Víðir II fer til síldveiða í kvöld,
sunnudag.
Sandgerðingar og Garðbúar
óska Guðmundi og Eggerti til
hamingju með bátinn og skipverj
um hans. — Axel.