Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 13
Vy Þriðjudagur 18. okt. 1960 MORCUN BL AÐIÐ 13 Stafar mesta ófriöar- hættan frá Kína? Opinskáar stríðsyfirlýsingar í mélgognum kínverskra kommunisla New York, 11. okt. MARGIR lesenda Morgunblaðs- ins hafa vafalaust lesið skáld- sögu Nevil Shute, „On The Beaoh“, sem út kom fyrir nokkr um árum og vakti mikla athygli víðu um heim. Skáldsaga þessi gerist á árinu 1962 og næstu 2-3 árin þar á eftir. Greinir hún frá því að árið 1962 hefst styrjöld milli Rússa annarsvegar og vest rænna lýðræðisþjóða hinsvegar. Það eru þó ekki stórveldin, sem hefja hernaðaraðgerðirnar. Al- banía kastar fyrstu sprengjunni yfir Ítalíu. Síðan er varpað sprengjum yfir ísrael, og Egypt ar varpa kjarnorkusprengjum á London og washington úr rússn- eskum flugvélum. Þar með er styrjöld hafin milli lýðræðisþjóð anna og Rússa. Þeirri styrjöld lýkur á 37 dögum með gereyð- ingu á norðurhveii jarðar. En í svipaðan mund hefst kjarnorkustyrjöld milli Kínverja og Rússa í Asíu. Hefja Kínverjar hana. Beita báðir aðilar kobalt- sprengjum. Ekki er vitað, hve lengi þau átök standa. En þau standa stutt og niðurstaðan ér hin sama og í Evrópu og Norð- ur-Amerku: öllu lífi er gereytt í Asíu. - Helrykið berzt suffur yfir Eftir þessi fimbulátök er á- standið þannig, að mannlíf er að eins í suðurhluta Afríku, Suður- Ameríku og Ástralíu. En örlög þess hafa einnig verið ákveðin. Helrykið berst smám saman yfir suðurhvel jarðar. Andrúmsloftið þar verður svo geislavirkt að ekkert mannsbarn fær þar lífi unað, þótt engin styrjaldarátök fari þar fram. Vísindamennirnir segja fólk- inu þetta fyrirfram. Nevil Shute lýsir viðbúnaði þess. Hann lýsir einnig könnunarferðum kafbáta, sem Ástralíustjórn sendir til Norður-Ameríku til þess að kanna ástandið þar. Sumstaðar eru borgirnar í rústum, annars staðar standa þær lítt skemmdar. En öllu lífi hefur verið eitt. Sama sagan hefur gerzt í Evrópu. Helrykið færist síðan smám saman suður yfir Afríku, Suður- Ameríku og Ástralíu. Enginn get ur flúð undan því, af þeirri ein- földu ástæðu að það er enginn staður öruggur í öllum heimin- um. Samt er eins og fólkið geti ekki trúað þessu. Það heldur á- fram að búa sig undir veturinn, jafnvel næsta sumar. Veikin er komin, samt sem áður þarf unga konan í Melbourne að fá garð- stólinn, sem maðurinn hennar ætlaði að kaupa handa henni. Og ameríski kafbátaforinginn, sem heldur úr höfn með veika skips höfn til þess eins að sökkva skipi sínu segist vera að fara heim til Norður-Ameriku til þess að hitta fjölskyldu sína. En rás viðburðanna hnígur ó- Stöðvandi að ósi -sínum. Helryk styrjaldarátakanna á Norður- hveli jarðar og í Asíu eyðir einn ig öllu lífi á suðurhvelinu. Þann- ig gerast „Ragnarök" í skáldsögu Nevil Shute á sjöunda áratug hinnar 20. aldar. Hugmyndaflug effa raunsæi? Hér er vitanlega um að ræða skáldsögu og hugmyndaflug rit- höfundar, sem skyggnist fram í tímann, óbundinn af staðreynd- um og raunveruleika. En þessi bók og hin dapurlega spá hennar kom mér í huga í gærkvöldi þeg ar forsætisráðherra Sovétríkj- anna lýsti því yfir, að heimurinn hefði „færst nær styrjöld" vegna þess að allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna ákvað að ræða af- vopnunarmálið í nefnd, eins og þingsköp mæla fyrir, en ekki fyrst og fremst á sjálfu þinginu, eins og Krúsjeff lagði til. Getur þaff virkilega fært mannkynið „nær styrjöld", aff þessu þýffingarmiklu mál fái meðferff í nefnd eins og önnur mál? Undanfarin ár hafa afvopn unarmálin jafnan veriff rædd í pólitísku nefndinni, en þar eiga allar 99 núverandi meff- limaþjóffir fulltrúa. Aff lok- inni meðferff þar koma tillög- ur síðan til kasta sjálfs þings ins. Krúsjeff vildi eins og áður er sagt ekki láta vísa afvopnunar- tillögum hans og annarra til nefndarinnar heldur láta ræða þær eingöngu á sjálfu þinginu. En er það nú líklegt að hin stærstu og viðkvæmustu deilu- mál séu líklegust til þess að leys ast á slíkum vettvangi? Það er mjög ólíklegt. Reynslan sannar einmitt, að til þess að komast að jákvæðri niðurstöðu þarf ekki aðallega langar og harðar opinberar umræður held- ur þrautseigt starf, unnið af hæft eftirlit með henni. Síðast í sumar gengu þeir út af fundi í Genf þegar að því var komið að lagðar væru fyrir þá ákveðnar tillögur um afvopnun. Áhugi Krúsjeffs fyrir afvopnun nú er því að öllum líkindum meiri í orði en á borði, enda þótt von- Mao Tse Tung. — Munar ekkert um 300 milljónir mannslífa.I Sigurð Bjarnason lægni og einlægri viðleitni til þess að leysa vandann. Og vandinn, sem við er að etja í vígbúnaðarmálunum um þess- ar mundir er hrikalegur. Til þess að skilja það, þarf ekki að hafa lýsingu Nevil Shute á þriðju heimsstyrjöldinni fyrir augum. Það er nægilegt að líta um öxl til Hirosima og Nagsaki. Gengu út í Genf Á það hefur réttilega verið bent, að Rússar hafa undanfarin ár eyðilagt hverja tilraunina á fætur annarri, sem gerð hefur verið til þess að ná samkomulagi um allsherjarafvopnun og raun- andi sé að úr kunni að rætast. En ekki var hann friðsamlegur á svipinn þegar hann flutti enn einn reiðilestur sinn á allsherj- arþinginu um þessi mál í gær og hafði í frammi ógnanir, ef ekki yrði farið að tillögum hans. En hann er nú að leggja af stað heim til Moskvu. Gera menn sér vonir um friðsamlegra yfirbragð allsherjarþingsins á næstunni. Þáttur Kína Innganga Sovét-Kína í Samein uðu þjóðirnar hefur verið rædd á flestum þingum samtakanna undanfarin ár. En niðurstaðan hefur jafnan orðið sú, að fellt hefur verið að taka það mál á dagskrá- Að þessu sinni féllu at- kvæði þannig, að 42 atkvæði voru á móti, 34 með og 22 sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. ís- land var meðal þeirra rikja, sem sátu hjá. Vitanlega má segja að Sam- einuðu þjóðirnar geti ekki talist alheimssamtök meðan 600 millj. Kínverja standa utan þeirra. Það er hinsvegar öllum kunnugt að kínverska kommúnistastjórnin hefur sýnt Sameinuðu þjóðunum margvíslegan fjandskap og fyr- irlitningu, jafnvel efnt til styrj- aldar gegn þeim og brotið á marga vegu gegn stofnskrá þeirra. Þrátt fyrir allt þetta hlýtur aff því aff koma aff Peking- stjórnin verði viffurkennd, sem fulltrúi Kína í staff For- mósustjórnar Shiang Kai Shjeks. Ástæffa þess er ein- faldlega sú, aff án þátttöku kommúníska Kína í Samtök- um Sameinuðu þjóðanna eru t.d. allir samningar um af- vopnun á þeirra vegum gagns litlir. Eftir er aff vísu að sjá, hvort kínverskir kommúnist- ar hafa nokkurn áhuga fyrir afvopnun. Margt bendir til þess aff þeir hafi þaff ekki. „Byltingarstyrjöld“ Þannig birti t.d. „Rauða Stjarn an“, tímarit miðstjórnar kín- verskra kommúnistaflokksins 16. apríl sl. grein, þar sem m. a. var rætt um komandi byltingar í þjóðfélögum og ríkjum „auð- valdsins“. Var þar m.a. komizt að orði á þessa leið: „Byltingin þýffir, aff hin kúgaffa stétt beitir byltingar- ofbeldi. Hún þýðir byltingar- styrjöM“. í þea» 1 sömu grein er ekk- ert fariCj. ; launkofa með það, að þessi yltingarstyrjöld“ geti þýtt heimsstyrjöld. Frá Kína hafa einnig borizt fréttir um það með einstökum mönnum sem þangað hafa farið í heimsókn, að leiðtogar komm- únista þar teldu Kínverja hafa meiri möguleika til þess en nokkra aðra þjóð að þola og lifa af styrjöld, sem háð væri með vetnissprengjum. Þeir segðu sem svo: Geta misst 300 milljónir manna!! Viff Kínverjar erum 600 milljónir. Ef við misstum 300 milljónir manna í slíkri styrj öld ættum við 300 milljónir manna eftir, værum Iangsam- lega stærsta og öflugasta þjóð heimsins og gætum haldiff á- fram að leggja hnöttinn undir kommúnismann. Nú hefur annaff opinbert málgagn kínverskra kommún- ista, ,Rauffi Fáninn“ lýst því yfir, aff þeir óttist ekki vetnis sprengjustyrjöld, vegna þess „aff á rústum hinnar dauðu heimsveldisstefnu munu hin- ar sigrandi þjóðir fljótlega hyggja þjóðfélagskerfi og menningu þúsund sinnum fullkomnari en auðvaldsskipu lagið, og fagra framtíð sér til handa“. „Fögur framtíð“ Ef þetta er það, sem inni fyr- ir býr hjá kínverskum kommún- istum þá stafar heimsfriðnum vissulega geigvænieg hætta frá þeim og stjórn þeirra. Þeir eru ekki hræddir við kjarnorku- styrjöld af því að þeir hafa betri efni á því en nokkur önnur þjóð að missa hundruð mdlljóna manna. Á rústum slíkrar styrj- aldar muni hægt að byggja „fagra framtíð" til handa þeim, sem eftir lifa! Þessi hugsunarháttur gefur innsýn í slíkan myrkvið að mann legt auga meiðist við að horfa inn í hann. En það er einmitt slíkt taumlaust ofstæki, sem er höfuðeinkenni sannra kommún- ista. Hætt er við því, að skerfur þeirra manna, sem þannig hugsa, til afvopnunar og friðarmála verði ekki giftusamlegur. En þrátt fyrir alla tortryggni milli þjóða er þó ekkert nauð- synlega í dag en víðtækar og skjótar ráðstafanir til samninga um raunhæfa afvopnun. Alla mögleika verður að kanna. Sagan sýnir að vígbúnaðar- kapphlaup getur aldrei staðið til lengdar án þess að leiða til styrj- alda. Ef svo færi að þessu sinni kynni sú skelfilega mynd, sem Nevil Shute dregur upp í bók sinni, sem ég minntist á hér að framan, að reynast sönn fyrr en varir. S. Bj. Frumvört) NOKKUR frumvörp, sem iegið hafa fyrir liðnum þingum en eigi orðið útrædd. voru að nýju borin fram á Alþ. sl. föstudag. Meðal þeirra voru frumvörp um Listasafn ríkisins, fræðsiumynda safn ríkisins og um breyting á lögunum um áburðarrerksmiðju. Aðeins frumvarpið uni fræðslu- myndasafn er smávægþega breytt. — Frumrarp um úthluí- un listamannalauna, sem einnig er endurflutt, er rakið annars staðar í blaðinu. Öll eru frum- vörp þessi stjórnarfrumvörp. Síld og smokkur AKUREYRI, 14. okt. — Vel hef- ur veiðzt af síldinni hér í Eyja- firði. Mb. Ester kom í dag með 600 tunnur og í gær var hún með 5—600 mál. Síldin hefur verið fryst og soðin niður, en frysti- húsin geta aðeins tekið við tak- mörkuðum afla svo megnið fer nú til bræðslu í Krossanesi. — Smokkveiðin hefur líka verið með afbrigðum góð. Níels Jóns- son frá Hauganesi fékk 43 tunn- ur í 5 veiðiferðum og þykir það afbragð. Venjulega hefur aflinn hjá bátunum verið þetta 5—17 tunn-ur í veiðiför. — St. E. Sig. 51 ferð vikulega innanlands í sumar en flugferðum fœkkar í vefur VETRARÁÆTLUN Flugfélags íslands í innanlandsflugi gekk í gildi um síðustu mánaðamót og vetraráætlun millilandaflugsins tekur gildi 1. nóv. Sumaráætlan- ir félagsins, sem gilt hafa frá 1. apríl fyrir millilandaflugið og frá 1. maí fyrir innanlandsflugið gengu mjög að óskum. í sumar voru farnar tíu ferðir á viku frá Reykjavík til útlanda yfir mesta annatímann, en ferð- um fækkár nokkuð úr því kemur fram í september. Til staða inn- anlands voru farnar fimmtíu og ein ferð á viku frá Reykjavík, en auk þess voru ferðir milli ann- arra staða, svo sem Vestmanna- eyja og Hellu, Akureyrar og flug valla á Norður- og Austurlandi o.s.frv. Innanlandsflug Samkv. vetraráætlun innan- landsflugs Flugfélags fslands verða tíu ferðir á viku til Akur- eyrar, sjö til Vestmannaeyja, fjórar til ísafjarðar og þrjár ferð ir á viku , til Egilsstaða. Tvær ferðir I viku verða til Horna- fjarðar, Húsavíkur og Sauðár- króks. Ein ferð í viku verður til Fagurhólsmýrar, Flateyrar, Pat- reksfjarðar, Kirkjubæjarklaust- urs, Siglufjarðar og Þingeyrar. í sambandi við ferðir til Siglu fjarðar er vert að taka fram, að enda þótt ekki sé flogið þangað nema á mánudögum eru ferðir aðra daga miðaðar við ferðir flóabátsins Drangs til Siglufjarð- ar, Ólafsfjarðar og annarra hafna, sem hann hefir viðkomu á. Þannig eru t.d. þriðjudags- ferðir til Sauðárkróks miðaðar við að farþegar geti komizt sam- dægurs til Siglufjarðar, en Drang ur fer frá Sauðárkróki laust eft- ir komu flugvélarinnar þangað. Á miðvikudögum fer flugvél ekki frá Akureyri fyrr en eftir komu flóabátsins og sama gildir um seinni ferð frá Akureyri á laugardögum. Dakotaflugvélar fljúga nú tU ísafjarðar og leysa Katalínaflug- vélarnar þar af hólmi. Á undan- förnum árum hefir verið komið við á Hólmavík einu sinni í viku á leið til ísafjarðar, en þar sem flugvöllur á Hólmavik er ekki nægjanlega stór fyrir Dakota- flugvélar leggst flug þangað nú niður. Katalínuflugvél mun í vet- ur halda uppi flugi til Patreks- fjarðar, Flateyrar, Siglufjarðar og Þingeyrar. Millilandaflug Millilandaflugi Flugfélagsins mun í vetur hagað líkt og í fyrra vetur, þannig að flugvélar félags ins fara ekki fram og aftur sam dægurs, heldur eru næturlangt ytra og koma heim laust eftir miðjan dag. Reynsla hefir sýnt, að þetta er rnjög hagkvæmt fyr- irkomulag. Samkv. vetraráætlun milli- landaflugs, sem gengur í gildi 1. nóv., v^rða ferðir frá Reykjavík til Kaupmannahafnar á mánudög um, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum, til Glasgow á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, til Osló og Ham.borg ar á laugard. Eftir að sumará- ætlun lýkur verður ekki flogið beint til London, en farþegar þangað fara um Glasgow. Þá verður flugleiðin Reykjavík- Oslo-Khöfn-Hamborg á laugar- dögum flogin af DC4 í nokkrar vikur eða fram í miðjan janúar 1961. Að öðru leyti munu Visc- ount skrúfuþotur félagsins ann- ast millilandaflugið svo sem ver- ið hefir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.