Morgunblaðið - 11.12.1960, Qupperneq 2
2
MORCVWBLAÐttí
sunnuaagur n. aes. 1960
Vegna jólaanna hættir Þjóðleikhúsið sýningum i nokkra daga
og verður síðasta sýning fyrir jól á Engill horfðu heim í kv.
Leikurinn hefur nú verið sýndur 19 sinnum við góða að-
sókn og hefur vakið mikla athygli sem vönduð sýning og
sterkt og áhrifaríkt efni. — Myndin er af Gunnari Eyjólfs-
syni og Jóhönnu Norðfjörð í hlutverkum sínum.
Einn sjómanrasamn-
ingur gildi um allt land
BLAÐINU barst í gær eftirfar-
andi frétt frá sjómannasamtök-
unum innan Alþýðusambands
íslands.
í fiskveiðisamningum er gerð
ir voru í ársbyrjun 1959, var
ákvæði um, að skipuð yrði 6—
10 manna nefnd af samnings-
aðilum, til þess að reyna að
ná samkomulagi um bátakjara-
samninga, þannig að gerður
yrði einn samningur fyrir land-
ið ailt, en eins og kunnugt er,
hafa samningar verið nær því
jafn margir og útgerðarstaðir og
þá einnig mjög mismunandi.
Hin sameiginlega nefnd hefur
nú lokið störfum og var undir-
ritað 7. des sl. samkomulag það
er hér fer á eftir:
„Sameiginleg nefnd sjómanna
samtakanna innan ASÍ og Lands
sambands ísl. útvegsmanna, sem
skipuð var samkvæmt ákvörðun
7. gr. fiskverðssamings dags. 3.
janúar 1959, hefir í störfum sín-
um komizt að eftirfarandi nið-
urstöðum:
Miklar símaframkvæmdir í
Stykkishólmi og Grundarfirði
STYKKISHÓLMI, 10. des. —
Á vegum Landsima íslarrds er
oú unnið að þvi að grafa síma-
strengi 1 jöro hér og í Grafamesi.
Hófst verk þetta fyrir um mán-
uði og mun standa fram yfir jól
eða lengur. í Stykkishólmi verð-
uu: nú grafið um mest allt kaup-
túnið og fjölgar línum til not-
enda að mun. Áður en þetta verk
hófst var svo áskipað eð ekki
var hægt að bæta fleiri símum
inn á kerfið, en nokkrar síma-
pantanir hafa legið fyrir. Línun-
um fjölgar að mun og mun þessi
aukning að óbreyttu nægja í
Kom með
11 minku
AÐSPURÐUR sagði fréttarit-1
ari Mbl. í Stykkishólmi í gær,1
að útlit væri fyrir, að ekki
yrðu færri minkar unnir
Skógarstrandarhreppi í ár en
í fyrra. Fréttaritarinn sagði:i
f Skögarstrandarhreppi, í
eyjunum og á landi, voru unn
in á annað hundrað dýr á sl.
ári, en það sem af er þessu
ári hafa verið unnin nálægt
100 dýr, flest í haust og vetur
gagnstætt því sem verið hef-
ur.
í vor sem leið var gerð ræki
leg leit að minki i hreppnum.
En svo lítið urðu menn þá var
ir við mink, að talið var að
honum hefði að mestu verið
útrýmt á þessum slóðum. En
með haustinu fór æ meira að
bera á dýrinu, og síðan hefir
mikill minkur komið úr fjöll-
um og víðar að. Oddvitinn a
Skógarströnd, Vilhjálmur Ög-
mundsson, hefir tjáð mér að
ekki séu nema nokkrir daga
síðan ein skyttan, Þórður
Indriðason, kom með 11 dýr,
sem hann hefir unnið í haust
Sjálfur kveðst Vilhjálmur
hafa allra síðustu daga unnið
fjögur dýr.
Þá sagði fréttaritarinn að
lokum, að annar staðar í sýsl-
unni sé mun minna um mink
en í fyrra. Síðan byrjað var
að eyða minknum hefir dún-
tekja aukizt verulega í eyjun-
>um, það hafa þeir t. d. sagt
.mér i Brokey.
'mörg ár. Jarðgröftur er mjög erf
' iður hér í kauptúninu en það
stendur svo að segja allt á klöpp.
I hverri götu verður að vinna
verkið að mestu leyti með loft-
pressum og sprengja skuiðina
fyrir jarðstrengina og eru nú
tvær pressur í gangi og gera
ekki betur en að hafa rétt und-
an.
Heimar Snæfells verkstjóri hjá
Landssímanum hefur yfirstjóm
þessa verks með höndum á báð-
um stöðum, en nú eft;r helgina
koma svo aðrir menn sem
tengja notendasímana.
1 Grafarnesi er greftrinum
langt komið, en þar eins og hér,
hefur frostið tafið framkvæmd-
ir. Eru þessar umsvifamikiu
simaframkvæmdir mikil bót fyr-
ir alla símaþjónustuna hér og í
Grafarnesi. í Stykkishólmi var
síminn grafinn fyrst í jörð 1945,
en hafði þá áður verið lagður
á staurum eins og víða annars
staðar. Þetta er í fyrsta sinn,
sem sími er grafinn í jörð i
Grafarnesi.
★
Lítið hefur frétzt um rjúpu
hér á Snæfellsnesi í haust og
munu skyttur fáar sem engar
hafa haft. Sama var og í fyrra
Hér um slóðir linnir vart fyrir
spurnum um það hvort ekki sé
farið að veiða rjúpur, Það er
eins og allir viiji þær á jóla
boröið.
Prestur skipaður
á Eskifirði
í NÝJUM Lögbirtingi er skýrt
frá því að kirkjumálaráðherra
hafi sltipað Jón Hnefil Aðal-
steinsson cand theol., prest í
Eskif j arðarprestakalli.
Kanditatinn vérður væntan-
lega vígður í Dómkirkjunni á
sunnudaginn kemur.
Framholdsaðal-
fundur LÍÚ
AÐALFUNDUR Landssam
bands íslenzkra útvegsmanna.i
sem frestað var 17. nóvember
sl., kemur saman á ný á morg
un. Hefst fundurinn kl. fimm'
síðdegis í Tjarnarkaffi —J
Munu þá nefndir, sem kosnar,
voru á fundinum í nóvember,
skila álitum.
J0 &'<0i010 ''& T0'0 ’0‘*0'0
Jólafundur Húsmœðra-
félagsins á þriðjudaginn
ÞRIÐJUDAGINN 13. þ.m. heldur
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
hinn árlega jólafund félagsins i
Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30 síðdeg-
is.
Á fundinum segir Vilborg
Björnsdóttir, húsmæðrakennari,
frá ýmsu skemmtilegu um
Dagskrá Aljpingis
Efri deild: — 1. Atvinna við sigling-
ar, frv. —- 1. umr. — 2. Söluskattur,
frv. — 2. umr. Ef leyft verður. — 3.
Héttindi og skyldur hjóna, frv. — 2.
umr.
Neðri deild: — 1. Fræðslumyndasafn
ríkisins, frv. — Frh. 2. umr. — 2. Varð
skip landsins, frv. — 1. umr. Ef deildin
leyfir. — 3. Matreiðslumenn á skipum,
frv. — 1. umr. — 4. Sjúkrahúsalög,
frv. — 1. umr. Ef deildin leyfir.
hvernig húsæður geta á einfald-
an og um leið hátíðlegan hátt
létt sér undirbúning jólanna, svo
sem bakstur og mafcartilbúning og
ýmiskonar vinnubrögð í sam-
bandi við hann.
Sýndar verða ódýrar, heima-
unnar jólagjafir fyrir börn. Hinn
vinsæli forstj. Blóma og ávaxta,
Hendrik Berndsen, sýnir blóma
skreytingar, séra Jón Thoraren-
sen talar um jólin og barnakór
syngur. Á fundinum gefst reyk-
vískum húsmæðrum kostur á að
sjá dúkuð og skreytt borð.
í>á verða til sölu nýjar upp-
skriftir af hverskyns mat, kökum
og ábætisréttum. Allt ann-að fá
konur endurgjaldslaust og eru
velkomnar á meðian húsrúm leyf-
ir.
Við athugun á ýmsum gögn-
um, sem nefndin hefir viðað að
sér, svo sem kjarasamningum
velflestra félaga, skiptareikning-
um báta fyrir vetrarvertíð 1960
úr verstöðvum sem hér segir:
Vestmannaeyjum, Grindavík,
Keflavík, Reykjavík, Hafnar-
firði, Grafarnesi, Patreksfirði,
ísafirði, Akranesi, Neskaupstað,
Fáskrúðsfirði og Hornafirði,
hefir nefndin komizt að raun
um, að þrátt fyrir mjög mis-
munandi aðferðir við að finna
út kaup sjómanna, starfandi á
vélbátum á vetrarvertíð, að litlu
munar í útkomu heildartekna
miðað við hlutfallstölu hvers
manns, hvort heldur sem miðað
er við skiptaverðmæti eða heild
ar verðmæti (brúttósöluverð)
af afla.
Telur nefndin því, með hlið-
sjón af þessum gögnum, sem
liggja hjá sjómannasamtökunum
innan ASÍ og Landssambands
ísl. útvegsmanna, að ekki sé
ástæða til að vera með hina
mörgu mismunandi samninga í
hinum ýmsu verstöðvum, og
leggur til að stefnt verði að
því í komandi kjarasamningum,
að gerður verði aðeins einn
bátakjarasamningur, sem gildi
fyrir landið allt.
Reykjavík, 7. des. 1960
F. h. L.Í.Ú.
Margeir Jónsson
Þorvaldur Ólafsson
Kristinn Pálsson
Ágúst Flygenring
Júlíus Þórðarson.
F .h. Sjómannasamtakanna
innan A. S. 1.
Tryggvi Helgason
Sigfinnur Karlsson
Jón Sigurðsson '
Ólafur Björnsson
Sigurður Kristjánsson
Gísli Þ. Sigurðsson.“
Að loknu starfi hinnar sam-
eiginlegu nefndar, héií nefnd-
arhluti sjómannasamtakanna
fundi og vann að þvi að gera
drög að frumvarpi að heildar-
samningi, sem gerður verði í
því formi, að sjómenn hafi
ákveðinn hundraðshluta af
heildaraflaverði, frítt fæði,
ákveðna þóknun mánaðarlega
vegna sjófataslits og mánaðar-
lega hlutatryggingu.
Er með þessu stefnt að því, að
horfið sé frá, að sjómenn taki
þátt í útgerðarkostnaði skips,
eins og verið hefur víða og
einnig að því stefnt, að sjómönn
um sé reiknað sama verð fyrir
hluti sína og útgerðarmenn fá
á hverjum tíma.
Samningsfrumvarp þetta hef-
ur nú verið sent öllum samnings
aðildarfélögum innan Alþýðu-
sambandsins, til athugunar og
umsagnar, og leggur nefndin
áherzlu á að svör félaganna ber-
ist það fljótt, að samningsvið-
ræður við L.Í.'Ú. geti hafizt ekki
siðar en 16.—18. þ. m.
Þá er vitað að L.Í.Ú. heldur
framhaldsaðalfund sinn á morg-
un, þann 12. þ. m., og að
áherzla er á það lögð af hálfu
útgerðarmanna, að samningsvið-
ræður byrji sem allra fyrst.
Ákveðið er, að af hálfu sjó-
mannasamtakanna verði 10
manna nefnd, er fari með samn-
ingsviðræður og verði nefndin
skipuð sem hér segir:
Einn fulltrúi frá Alþýðusam-
bandi íslands, þrír fyrir Sjó-
mannasamband íslands, einn fyr
ir Breiðafjarðarfélögin, einn fyr-
ir Alþýðusamband Vestfjarða,
einn fyrir Alþýðusamband Norð
urlands, einn fyrir Alþýðusam-
band Austurlands og tveir fyrir
félögin í Vestmannaeyjum.
Úrslit að
Hálogalandi
í KVÖLD fara fram að Háloga-
landi úrslit í Reykjavíkurmót-
inu í handknattleik. Fara þar
fram þrir leikir — allt meistara-
flokksleikir og er ekki að efa að
úrslitanna í m.fl. karla er beðið
með mikilli eftirvæntingu.
Fyrsti leikurinn er milli KR
og Ármanns i mfl. kvenna. KR
hefur þegar tryggt sigur sin«.
Hafa þær 3 efcjg íimfram Ár-
ínann svo að úrslit þessa leiks
breyta engu um úrslit. Hitt er
víst að KR stúlkurnar munu
hafa fullan hug á að vinna —
og jafnvíst er að Ármannsstúlk-
urnar mundu hafa gaman af því
ef þær ynnu Rcykjavíkurmeist.
arana í þessum leik.
Þá mætast Þróttur og Ármann
í m.fl. karla og loks ÍR og Fram
í úrslitaleik Hvorugt liðanna hef
ur tapað leik en markahluttfall
Fram er heldur hagstæðara, svo
að jafntefli nægir Fram til sig-
us. En jafntefli eru ólíklegustu
úrslitin. Spurningin er aðeins
hvort félagið hreppir titilinn eft
irsótta.
NA /5 hnútar \
/ S V 50 hnútor
K Snfókoma * 06 i \f S/eúrír K Þrumur -X KMoM ZS Hitotki!
H Hmt
L£jLrngtm
SKILIN sem sjást á kortinu
fyrir SV land, bárust inn yfir
landið um átta-leytið í gær-
morgun, en lægðín SV í hafi
fylgdi hratt á eftir. Var búizt
við að hún færi yfir í dag og
síðan mundi kólna með SV-
átt. Klukkan 8 í gærmorgun
var hlýjast á Dalatanga, 8 stig.
Veðurútlit: Sv-land til Vest-
fjarða, SV-mið til Vestfj.miða,
vaxandi suðaustanátt, hvass-
viðri og rigning f nótt, en suð-
vestan stinningskaldi og skúr-
ir eða slydda á morgun. N-
land til Austfj. N-mið til NA-
miða: Sunnan stinningskaldi
og léttskýjað 1 kvöld, en all-
hvass sunnan og skýjað með
morgninum, léttir til aftur á
morgun. SA-land, Austfj.mið
og SA-mið: Sunnan átt, hvasst
ínótt Og rigning.