Morgunblaðið - 11.12.1960, Side 5
Sunnudagur 11. des. 1960
MORGUNBLAÐIÐ
5
I
UM daginn kom út skáldsaga
eftir tvítuga stúlku. Hún mun
vera yagsti kvenmaður í ís-
landssö ?unni, sem lagt hefur
út í þaí stór- eða smáræði að
gefa út frumsamda bók. Okk-
ur þótti hlýða að reyna að
veiða höfundinn svolítið.
★
— Þú heitir Jóhanna Kristj-
jánsdóttir?
— Já.
— Af hverju ertu þá að
kalla þig Hönnu Kristjánsdótt
ur, þegar þú gefur út bók?
— Vesalings skáldið ræður
ekkt öllu. Mundu eftir útgef-
endunum! Sumir vildu dul-
nefni ,aðrir fullt og rétt nafn.
Útkoman varð þessl, — er það
ekki kallað að fara bil
beggja?
— Ha, jú, ég held það.
— Góði, reyndu ekki að
vera neyðarlegur, þér fer það
ekki.
— Hvernig datt þér í hug
að fara að skrifa bók? Ertu
með dillu eða knúði þig þetta
fræga innra afl, sem þú varðst
að hlýða?
— No, so so, sleppum því
Iagsi, en satt bezt að segja, þá
var eiginmaður minn að
skrifa leikrit, og í sumar, þeg-
ar hann var að leggja síðustu
hönd á verkið, þá var hann
tæpast viðmælandi.
— Var hann svona asskoti
fúll?
—Hann vildi auðvitað fá að
vera í friði fyrir konu og börn
um.
— Ertu múltímamma?
— Xveggja barna móðir.
Tveggja og hálfs árs telpa og
tæplega átta mánaða strákur.
—Sko ykkur. En heyrðu,
hvaða verk var Jökull að
leggja þessa siðustu hönd á?
— Eeikritið Pókók.
— Er það sýningarhæft?
— Ef þú og þinir líkar tíma
að kaupa miða.
— Ég er alltaf blankur. En
ég skil ekki samhengið, þurft-
ir þú endilega að fara að
skrifa, þótt karlinn væri í
fýlu?
— Já, eitthvað varð ég að
gera.
— Nú, en börnin? I>ú ert
vonandi ekki svo moderne
mutter, að þú vanrækir þau?
— Láttu ekki svona og
skam dig. Heldurðu að mað-
ur geti ekki eytt fristundum
sinum í það, sem mann lang-
ar til?
— Jú, því miður. Kom and-
inn yfir þig eða hvað?
— Æ, ég byrjaði að krota
niður, þegar ég var sjö ára.
— O, ég skil, — ungt sjeni!
— Vertu ekki að stríða mér.
Ég tók þetta voða alvarlega,
skrifaði mörg kiló af sögum
í bláar stilabækur og nú
skaltu heyra: Það komu tvær
sögur eftir mig í Ljósberan-
um og hananú!
— Voru það gamaldags
dýrasögiir?
— Nei, hva, það voru sögur
um góðar stúlkur, sem lásu
fallegar bænir. — Svo kom ég
átta ára í útvarpið og las sögu
um gamlan kall með sitt hár.
— Þú ert stuttklippt?
— Nema hvað.
— Nú jæja, hvenær byrjað-
ir þú að skrifa söguna?
— f vor. Á kvöldin, þeg-
ar börnin voru sofnuð.
— Var ekki Jökull afbrýði-
samur?
— Nei, þvert á móti, hann
var hrifinn.
— Af þér eins og vant er?
— Já, og sögunni líka.
— Hvernig gátu þessar
tvennar hrifningar samrýmzt?
— Það varðar þig ekkert
um.
— Það er talað um það, að
þú náir samtalsblæ unga fólks
ins vel. Hvar hefurðu lært að
koma honum á pappír?
— Nú, bara með þvi að um-
gangast ungt fólk.
— Aldrei heimsækirðu mig.
+ + 0 0 0 +
,.......
Móðirin hefur staðið son sinn
að ósannsögli: — Hvernig fer
fyrir dregjum, sem segja ósatt?
— Þeir komast í bíó fyrir hálft
verð.
Auðugur maður (sem komizt
hafði áfram af eigin rammleik):
—- Já, ég byrjaði sem berfættur
drengur.
Kunningi: — Og ekki fæddist
ég heldur með sokka á fótunum.
Jón er að segja frá veiðiferS og
— Þú ert ekkert ungur. Ég
fer á Ellefu.
— Ég er ekkert gamall.
Einn, sem skrifar um þig, er
svo gamall, að hann heldur að
ungt fólk noti ekki sögnina
„að ræða“. Finnst þér hann
ekki gamall?
— Dáldið svo, en það er
ekki von hann fylgist með.
Hann kemur aldrei á Ellefu.
Annars er hann ágætur gagn-
rýnandi.
— Hefurðu lifandi persónur
að fordæmum? (Þarna kom
ábyrgðarfulli gagnrýnandinn
upp í mér).
— Engar sérstakar, en kann
ske hef ég tekið slatta úr
ýmsum kunnugum með í dæm
ið. Það verður hver og einn
að meta sjálfur.
— Ætlarðu að halda áfram
að skrifa skáldsögur?
— Nei, það held ég ckki.
Annars hef ég ekkert hugsað
um það, en ég er sennilega
ekki eins frjó og Guðrún frá
Lundi.
— Er það ekki satt, að þú
sért yngsta skáldkona, sem
fram hefur komið á ísa köldu
láði?
— Á prenti held ég.
— Hvernig er að eiga skáld
fyrir mann? Er hann ekki allt
af að pumpa þig og notar það
svo í sögmnum? Er það ekki
óttalegt frat?
— Ne-hei, karl minn. Mér
hefði aldrei dotfið í hug að
byrja á þessu, ef Jökull hefði
ekki verið rithöfundur.
— Ekki þekktir þú hann sjö
ára.
— Nei, en ég meina að gefa
út.
— Ef þú hefur ekki lifandi
fyrirmyndir, hvaðan þekkir
þú persónurnar þá svona lygi
lega vel?
— Eigin fantasíur.
— Er ekki erfitt að eiga
viðtal við blaðamann?
— Ákaflega.
— Af hverju?
— Þú ert svo leiðinlegur,
og þó, þeir eru flestir verri á
Ellefu.
— Er það nú orðbragð. En
segðu mér eitt: Eru svona
kerlingar til eins og móðir
Þorkels í sögunni?
— Já, það úir og grúir af
þeim.
— Oj bara. Er það satt, að
bókin gangi vel út?
— Hún ryðst út.
— Ég er ekki hissa á því.
Jæja, bless.
— Bless.
kemur með tvær fílstennur.
— Þennan fíl skaut ég á nátt-
fötunum.
— Hvernig í ósköpunum hefur
hann komizt í þau.
ÁHEIT og GJAFIR
Gjöf til Þingvallaklrkju. — Hjónin
Aslaug og Helgi Sivertsen hafa gefið
Þingvallakirkju vandaðan silfurkaleik,
ásamt tólf samstæðum sérbikurum.
Hef ég veitt þessum gripum viðtöku
og vil hér með fyrir hönd kirkjunnar
þakka gefendum þessa fögru gjöf.
Heykjavík, 7. des. 19S0.
. Sigurbjörn Einarsson.
Ég vildi feginn verða að ljósum degl,
en vera stundum myrk og þögul nótt,
þá væri ég leiðarljós á þinum vegi,
þig lyki‘ ég faðmi þá þú svæfir rótt.
Svo undur dauðtrúr ég þér skyldi
reynast,
og o‘ní gröf ég með þér færi seinast.
Páll Ólafsson:
Ég vildi feginn —
Gefin voru saman í hjónaband
í gær af síra Jóni Thorarensen,
Sæunn Eiríksdóttir, skrifsto^ji-
stúlka, Stýrimannastíg 15 og
Leifur Vilhelmsson, símvirki,
Mávahlíð 21. Heimili ungu hjón-
anna er að Stýrimannastíg 15.
í dag verða gefin samah í
hjónaband í New Jersey, ungfrú
Sesselja Erla Jóhannsdóttir og
Roger Thoresen. — Heimilisfang
þeirra er 64 Troll Lane, Lake
Telemark, New Jersey.
Nýlega voru gefin saman í
Bandaríkjunum, ungfrú Jónína
Þórisdóttir Long og Rayan Mar-
cov Heimili þeirra er, 1825 Ann
st., Dubugue, Iowa, ÚSA.
r'ZCuvL,
2HII3
OHH
■SENDIBILASTQÐIN I
r
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýraru að auglýsa
í Morgunblaðinu en í öðrum
blöðum. —
Flugfarmiði
til sölu er flugfarmiði Rvík
—Kaupm.höfn—Rvik. —
Fæst með afslætti Uppl. í
síma 23020.
Kjólföt
smooking ofl. til sölu. —
Tækifærisverð. Uppl. í sím
um 17245 og 13376
Skemmtikvöld
í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 8,30.
Sextett Berta Möller spilar.
Berti og Gissur syngja.
U.T.-deildin G E F N
Drengjavesti
(soðin ull) á 2ja—14 ára. — Litegta.
Verð kr. 195,00 til 245,00. — Gamalt verð.
(Smásala) Laugavegi 81.
Knattspyrnufélagið
VÍKIINiGIJR
Aðalfundur félagsins verður haldinn í dag kl. 2 e.h. í
félagsheimilinu.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Önnur mál
Stjórnin.
Konur í Styrktarfélagi vangefinna halda jólabazar í
Hagaskólanum við Hagatorg (sunnan Neskirkju)
í dag, 11. des. — Bazarinn hefst kl. 3 e.h.
— Þar verða til sölu fjölmargir munir hentugir til
jólagjafa. — Borðskreytingar, jólakörfur, sætindi,
laufabrauð, leikföng og margs konar varningur annar.
Allt sem inn kemur rennur til dagheimilis í Reykja-
vík fyrir vangefin börn.
Sýnishorn muna sem seldir verða á bazarnum eru
til sýnis um helgina í glugga verzlunarinnar Hlín,
Skólavörðustíg 18. —
Styrktarfélag vangefinna.
Níðsterkt
Gulnar ekki
Þornar á ör-
skammri stund
PLASTLAKK
Beykiparkett
Eikarparkett
Korkparkett
Linoleum-gólfdúk
Hvers konar vegg-
og loftklæðingu
EGILL m\W
Klapparstíg 26
Sími 14310.