Morgunblaðið - 11.12.1960, Page 10
10
MOFCTH\P,T 4 ÐIÐ
Sunnudagur 11. des. 1960
65 ára i dag:
Þorvaldur Stephensen
OFAN götuna í útlendri borg,
]>ar sem mig hefur nýlega borið
að landi, kemur maður, mikjíl
að vallarsýn, hár og gildur. Það
ber margt nýstárlegt fyrir augu,
þegar skyggnzt er upp eftir fram
andi borgarstrætum, sem opnast
út til þeirra kynjaheima, sem
mann grunar að ókennd borg
geymi að baki síns undirfurðu-
lega yfirbragðs. En maðurinn,
sem hér kemur skálmandi, dreg-
ur þó að sér alla athygli. Hann
fyllir strætið. Hann sópar ósjálf-
rátt frá augum áhorfandans bíl-
um og sporvögnum og hestum
með hlemmstóra hófa. Ekki gerir
hann það vegna vaxtar síns, sem
þó er töluverður, þvers og langs
ummáls. Ekki heldur vegna asa
í fasi né neinna sérkennilegra til-
burða. Hann gengur háttbundn-
um, settum skrefum, þögull, lít-
ur hvorki til hægri né vinstri.
Hann dregur að sér athygli sakir
þess, hvernig hann er og ber sig
á götunni. Og víst kenni ég mann
inn, hafði séð hann á götum
Reykjavíkur, og hver komst hjá
því að veita honum athygli þar?
Litla Austurstræti fékk alltaf ein
hvern blæ af heimsborg, þegar
hann bar fyrir augu. Og hann
gengur aldrei neina götu eins og
aðrir menn.
Hver er hann, þessi jaki, rauð
hærður, réttnefjaður, mikilúðug-
ur, samanrekinn? Aflraunamað-
ur? Víkingur frá níundu öld, villt
ur inn í þá tuttugustu og búinn
upp á hennar vísu. Sæfari frá
15. öld, landkönnuður, garpur í
þúsund ævintýrum á fjarlægum
höfum og löndum? Enskur lá-
varður frá 18. öld.
Nei, hann er íslendingur, ótíma
bundinn, og þó nútímamaður,
klassiskur, íslenzkur höfðingi,
sem gæti skipað hvaða stétt ís-
lenzka sem vera skal, og væri þó
aldrei annað en það, sem hann
er: Þorvaldur Stephensen.
Nafnið segir til ætternis. Hann
er sonur Helgu Þorvaldsdóttur,
læknis á ísafirði, Jónssonar, og
séra Páls Stephensen í Vatns-
firði og Holti í önundarfirði Stef
ánssonar Stephensens, prests á
sömu stöðum, Péturssonar Step-
hensen, prests síðast á Ólafsvöll
um,Stefánssonar amtmanns á
Hvítárvöllum.
Það er sem sagt mikið af bláu
blóði í þessum stóra manni. Og
hann ber mörg einkenni þess
lundarfars og skapgerðar, sem
höfðingja prýðir og sæmir hverj-
um göfugum manni. Hann er
drengskaparmaður mikill, tröll-
tryggur, djarfur í framgöngu
hvar sem er, sjálfstæður í skoðun
um og fer jafnan sína leið eftir
því sem honum þykir sjálfum
réttast horfa, hvað sem aðrir
kunna að gera eða segja. Hann
metur gæði þessa heims og er
umsýslumaður að eðlisfari,
kann vel mannforráðum, mildur
á fé og veitull. En það hefur
hann lært af Prédikara Saló-
mons, sem hann kann utan bók-
ar að kalla, eins og margt annað
í helgum ritningum, að þau ver-
aldargæði, sem flestir sækjast
mest eftir, eru ,aumasti hégómi
og eftirsókn eftir vindi“. Hann
horfir jafrian hátt þar sem hann
gengur götu sína, höfði hærri en
þorrinn. Hann horfir yfir það,
sem er lágt, og gegnum margt,
sem virðist hátt í mannlífinu, án
alls yfirlætis, en með jafnaðar-
geði þess manns, sem hefur farið
skyggnum augum um leikborð
lífsins, þekkir bæði brögðin og
reglurnar í skákinni og metur
ekki leikendur alltjent eftir
taflstöðu.
Hinir mörgu vinir Þorvalds
Stephensen óska honum heilla á
afmælisdegi. Þeir vita það, að
hann ber sig svo sem hann gerir
á götu lífsins, að hann er mann-
gildismaður.
S.
Vegg-mosaik
Símynstrað, sérstaklega fallegt litaúrval.
Takmarkaðar birgðir.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Borgartúni 7
Gólfdúkur
linoleum, brezkur, fyrirliggjandi.
Takmarkaðar birgðir.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Borgartúni 7
bbbbbbbbbbbbbt'obbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
Harðplastplötur
á eldhúsborð í fjölbreyttu litaúrvali.
Simi 55697
ggingavörur h.f. Lougove9 i/ð
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
.b
Halla og Davíð Þór í góðum félagsskap.
„Þrjú vegabréf", ferða-
bók Höllu og Hal Linkers
KQMIN er út ferðabók, sem er
að því leyti sérstæð, að hún fjall
ar um ferðir þeirrar konu ís-
lenzkrar, sem víðast hefir farið
og flest lönd séð, Höllu Guð-
mundsdóttir Linker. Hefir hún
skráð þessar ferðaminningar með
manni sínum( ameríska kvik-
myndatökumanninum Hall
Linker.
Linkers-hjónin hafa heimsótt
70 lönd og hefir sonur þeirra
Davíð Þór, oftast verið i fylgd
með þeim. Segir bókin frá ferð-
um þeirra um nokkur þessara
landa, til dæmis heimsókn þeirra
til Kongó, Pakistan, Japan, Fil-
ippseyja, Hong Kong, ísrael, Eng
lands, Egyptalands, Sovétríkj-
anna, Grikklands, Spánar, Portú
gals, Lapplands og margra fleiri
að ógleymdu íslandi. Leitast þau
við að kynnast hinu sérkennileg-
asta í fari allra þjóða.
Bókin nefnist Þrjú vegabréf"
og prýdd fjölda mynda. Útgef-
andi er Bókfellsútgáfan h.f.
BÓKAFORLAG Odds Björnsson
ar á Akureyri gefur nú út tvær
barna- og unglingabækur eftir
Ármann Kr. Einarsson. Eru það
bækurnar Ljáðu mér vængi og
Ævintýri í sveitinni. Sú fyrr-
nefnda er áttunda unglingabók-
in í bókaflokknum um þau Árna
og Rúnu í Hraunkoti.
Árna-bækurnar hafa notið
mikilla vinsælda, eins og kunn-
ugt er. Sérhver Árna-bókanna
er sjálfstæð saga, en persónur
og að nokkru leyti atburðarás-
in, tengja þær þó saman. —•
Þessi nýja bók er prýdd fjölda
ágætra mynda, sem skýra efnið,
og hefir Halldór Pétursson teikn
að þær. — Ljáðu mér vængi er
192 bls.
Hin bókin, Ævintýri í sveit-
inni, er saga fyrir börn á aldr-
inum 8—12 ára. Var hún lesin
fyrri nokkru sem framhaldssaga
í útvarpstíma barnanna á sunnu
dögum.
Nýstárlegt er það við bók
þessa, að myndirnar, sem hana
prýða og eru eftir Halldór Pét-
ursson, ná yfir heila opnu, en
slíkt er alger nýjung í barna-
bókum hérlendis. Sá kostur er
við teikningar þessar, að börn-
in eiga þá betur með að átta sig
á efninu og fylgjast með at-
burðarásinni. — Bókin er 126
bls.
Ármann Kr. Einarsson hefir
nú gefið út í allt þrjár skáld-
sögur, smásagnasafn og 13
barna- og unglingabækur. Þá
hafa 3 bækur verið þýddar eftir
hann á norsku og 2 á dönsku.
Samkvœmishandbók
KOMIN er út samkvæmishand-
bók, er nefnist „C
kenndir ýmsir sa
Eru þar
' úeikir,
„Þoi sem hóir hóloi“
Ný bók Helgu Jónasdóttur
SVO heitir ný bók sem Leiftur
sendi á markaðinn í gær. Eru
það bernskuminningar Helgu
Jónasardóttur frá Hólabaki og
skiptist bókin í Í3 sjálfstæða
kafla. Hún er 9 arkir á stærð
og prentuð á góan pappír. —
Framan á bókinni er litmynd
af Vatnsdalshólum eftir Gunnar
Rúnar. Mynd höfundar fylgir
einnig.
Þetta er fyrsta bók Helgu, en
áður hefir hún skrifað ýmsar
greinar í blöð og tímarit, og er
því enginn viðvangingur.
töfrabrögð, spáð í spil og drauma
ráðningar.
í formála að bókinni segir m.
a.: „Bæði í Evrópu og Ameríku
hefur það orðið æ vinsælla á
seinustu árum, þá er fóll: kem-
ur saman, að fara í leiki. Það er
vonandi að við íslendingar séum
ekki eftirbátar nágranna okkar
hvað leikgleði snertir, en mun-
urinn er sá, að þó aðrar þjóðir
eigi handhægar stórar bækur,
sem hægt er að sækja í fjölda
leikja, er sáralítið til af þeim á
íslenzku. — Nú getur staðið svo
á, að lítið getur orðið úr skemmt
uninni af því enginn í hópnum
kann hentuga leiki, eða hefur
æfingu i að stjórna þeim. — Úr
því er þessari bók ætlað að bæta
að nokkru. Reyn. hefur verið að
velja sýnishorn af sem flestum
tegundum leikja, töfrabrögðum
og öðrum gamansömum brell-
Tvær bækur eftir
r
Armann Kr.
Einarsson
„Nútíminn", nýtt blað,
er Stórstúkan gefur út
um. Og þar sem flestir hafa á-
huga á að skyggnast inn í fram
tíðina, er einnig sýnt, hvernig
spá má í spil og ráða drauma.
— Þessi bók er fyrst og fremst
NÝTT blað hóf fyrir nokkru^
göngu sína hér í Reykjavík. Nefn
ist það „Nútiminn" og mun koma'
út hálfsmánaðarlega. Útgefandi
þess er Stórstúka íslands, en rit-
stjóri og ábyrgðarmaður er Gunn
ar Dal.
Á forsíðu blaðsins svara nokkr
ir þjóðkunnir menn spurning-
unni: Teljið þér að ástandið í
áfengismálum þjóðarinnar myndi
batna, ef leyfð yrði sala á sterk-
um bjór. Aðalritstjórnargreinin
nefnist: Skrúfað fyrir kranann.
Steingerður Guðmundsdóttir rit-
ar leikhúsgagnrýni, sarrital er við
Guðmund Jóhannsson um Bláa
bandið og AA-samtökin. Síða er
fyrir unga fólkið. Þá eru greinar
er nefnast. Hvernig er ég við
skál , Svarti listinn og Þrjátíu
og fimm millión'ino eytt í veizlu-
höld.
ætluð fullorðnu fólki og ungling
um, þó börn ættu einnig að geta
haft af henni ánægju".
KASSAR — ÖSKJUR
BÚÐIRV
--------- <
Laufásv 4. S 13492 y