Morgunblaðið - 11.12.1960, Side 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 11. des. 1960
Utg.: H.f. Arvakur RevkjavlS.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar= Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arm Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innaniands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÓLÁNSMENN
A RIÐ 1955 beittu kommún-
istar sér fyrir stórfelld-
um pólitískum verkföllum á
íslandi. Þáverandi ríkisstjórn
hafði tekizt að skapa jafn-
vægi í íslenzkum efnahags-
málum, halda uppi miklum
framkvæmdum og þrótt-
miklu atvinnulífi og auka
traust og álit þjóðarinnar út
á við.
Kommúnistar töldu þessa
Lausbeizlað óargadýr
Það hefur verið sagt með
sanni, að vinstri stjórnin
hafi hleypt- verðbólgunni
lausbeizlaðri eins og óarga-
dýri á almenning í landinu.
Það kom í hlut núverandi
ríkisstjórnar að hemja þetta
villidýr að nýju, stöðva hina
stöðugu verðbólguþróun, við-
urkenna þær staðreyndir,
sem við blöstu í íslenzku
UTAN UR HEIMI
áöherrar Kennetíys
þroun hina háskasamlegustu.
Fylgi þeirra hafði farið
þverrandi með þjóðinni við
hverjar kosningar. Þeir töldu
hina almennu velmegun, sem
ríkti meðal þjóðarinnar, erf-
iðan þröskuld á vegi niður-
rifsiðju þeirra.
Árangurinn af hinum póli-
tísku verkföllum kommún-
ista, sem sumir af leiðtog-
um Framsóknarflokksins
studdu, varð sá, að kaupgjald
hækkaði á árinu 1955 að
meðaltali um rúmlega 20%.
Þar með var jafnvægisstefn-
an brotin niður. Stórfellt
kapphlaup hófst milli kaup-
gjalds og verðlags og upp úr
næstu áramótum varð að
gera víðtækar ráðstafanir til
þess að tryggja áframhald-
andi rekstur atvinnutækj-
anna, sem voru nú rekin
með verulegum halla.
Engin kjarabót
Þessi pólitísku verkföll
Framsóknarmanna og komm
únista árið 1955 voru upp-
haf hinnar óheillavænlegu
verðbólguskriðu, sem hélt
áfram að falla með vaxandi
hraða meðan vinstri stjórnin
fór með völd í landinu. í
upphafi valdaferils síns
sýndi vinstri stjórnin þó, að
henni var ljóst, hve ábyrgð-
arlaus hin pólitísku verkföll
höfðu verið veturinn 1955. —
Hún hikaði ekki við að taka
verulegan hluta þeirrar kaup
hækkunar, sem þá hafði ver-
ið knúð fram af launþegum
aftur.
Þar með var það við-
urkennt, að í henni hefði
engin kjarahót verið fólg-
in til handa launþegum í
landinu.
Síðan brast vinstri stjórn-
ína allan kjark og möguleika
til þess að hafa taumhald á
þeirri verðbólgu, sem flokk-
ar hennar höfðu leitt yfir
þjóðina. Frumkvöðlar hinna
pólitísku verkfalla voru
þannig miklir ólánsmenn.
Af hinum ábyrgðarlausu ó-
lánsverkum þeirra er þjóð-
in ennþá að súpa seyðið. —
efnahagslífi. En afleiðingar
verðbólgustefnu vinstri stjórn
arinnar var stórfellt gengis-
hrun. íslenzka krónan var
margfallin áður en núver-
andi ríkisstjórn tók við völd-
um, áður en skráningu henn-
ar var breytt á pappírnum.
Núverandi ríkisstjórn átti
ekki um neinn kost annan að
velja en að horfast í augu
við það sem raunverulega
hafði gerzt. Vinstri stjórnin
hafði hins vegar alltaf reynt
að hliðra sér hjá að horfast
í augu við staðreyndirnar.
Hún lét sér nægja að leggja
stöðugt á nýja skatta og tolla
á þjóðina til þess að halda
útflutningsframleiðslunni í
gangi. í ráðstöfunum hennar
fólst engin varanleg lækn-
ing á þeim sjúkdómi, sem
lamaði þjóðarlíkamann. Þess
vegna fór sem fór. Þess
vegna varð sú ríkisstjórn
vinstri flokkanna, sem svo
miklu hafði lofað, undir þeirri
verðbólguskriðu, sem komm
únistar og Framsóknarmenn
höfðu sjálfir hrundið af stað.
Á örlagastundu
Það sem nú skiptir mestu
máli er að þjóðin líti raun-
sætt á hag sinn, þjappi sér
saman um þá viðreisnar-
stefnu, sem núverandi ríkis-
stjórn hefur mótað. Því ber
ekki að neita að margvís-
legir erfiðleikar eru á veg-
inum. Aflabrestur og verð-
fall á heimsmörkuðum hafa
skapað íslenzkri útflutnings-
framleiðslu mikil vandkvæði.
En þjóð, sem byggir afkomu
sína og utanríkisverzlun að
mestu á sjávarútvegi getur
búizt við að mæta slíkum
erfiðleikum. Og slíkir erfið-
leikar hafa oft mætt íslenzku
þjóðinni. En hún hefur sigr-
azt á þeim.
Eins mun fara nú, ef
þjóðin aðeins hikar ekki
á örlagastundu. Hún má
ekki láta ólánsmönnunum
frá 1955 takast að leiða
nýtt hrun yfir sig.
JOHN F. Kennedy, hinn ný-
kjörni forseti Bandaríkjanna, hef
ur þegar útnefnt nokkra ráð-
herr'a í væntanlega ríkisstjórn,
sem tekur við völdum í Banda-
ríkjunum 20. .janúar n. k.
En eitt mesta vandamál Kenn-
edys er að velja utanríkisróð-
herra til að taka við af Herter.
Einna mestar líkur eru á að fyr-
ir valinu verði J. William Ful-
bright öldungardeildarþingmað-
ur frá Arkansas, formaður utan
ríkismálanefndar öldungadeild-
arinnar, sem er þekktur víða um
heim vegna námsstyrkja og
stúdentaskiptastofnunar, er hann
átti frumkvæði að. En ástæðan
fyrir því að ákvörðun hefur enn
ekki verið tekin varðandi Ful-
bright er sú að hann er helzt til
hlynntur kynþátta-aðskilnaði. —
Kom það meðal annars fram er
mest gekk á í Little Rock í heima
ríki hans. Gerði Fulbright þá
ekkert til að koma í veg fyrir á-
rekstra.
Annar ,sem kom til greina í
embætti utanríkisráðherra, var
Robert Lovett, 65 ára oankastjóri
frá New York og republikam.
Kennedy hefur rætt við Lovett
um að taka sæti í væntaulegri
ríkisstjórn, annaðhvort sem ut-
anríkis- eða varnarmálaráðherra.
Að þeim viðræðum sagði Kenn-
edy að Lovett hefði dregið sig i
hlé frá störfum í þágu ríkisins.
En Lovett var varnarmálaráð-
herra í forsetatíð Harry Trurn-
ans. Einn af ráðgjöfum Kenned-
ys lét svo um mælt að hann
vildi óska þess að til væru þrír
Lovettar, svo unrft yrði að skipa
þá fjármála-, varnarmála- og ut-
anríkisráðherra.
Fimm menn hafa þegar verið
skipaðir í ráðherraembætti. l>eir
eru:
★
Abraham Alexander Ribicoff,
sem verður heilbrigðis- og
kennslumálaráðherra. Ribicoff
varð einna fyrstur til að styðja
Kennedy sem forsetaefni demó-
krata. Lét Kennedy þá svo um
mælt, að ef hann
yrði kosinn, gæti
Ribicoff valið
sér embætti í rík
isstjórninni. Tal
ið var að Ribi-
coff yrði sak-
sóknari ríkisins.
En hann taldi ó-
heppilegt að kaþ
óiskur förseti og
saksóknari, sem væri Gyðin ,ur
stjórnuðu baráttunni fyrir jafn-
rétti kynþáttanna í Bandaríkjun-
um. Ribicoff átti sæti í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings í fjögur
ár, en var árið 1954 kosinn nkis-
stjóri Connecticut og hefur gegnt
því embætti síðan. Hann er ein-
dreginn fylgismaður stefnu
Kennedys varðandi ellilaun,
sjúkratryggingar o. fl. Ribicoff
er fimmtugur.
★
Luther Hartwell Hodges verð-
ur verzlunarmálaráðherra. Faðir
hans var fátækur smábóndi og
kostaði Hodges sig sjálfur til há-
skólanáms. Eftir það vann hann
í 17 ár við stór-
fyrirtækið Mars-
hall Fields & Co.
og varð varafor-
maður í stjórn
þess. Árið 1952
bauð hann sig
fram og var kos-
inn aðstoðar rík-
isstjóri Norður-
Karolínuríkis. —
Tveimur árum síðar lézt William
Umstead ríkisstjóri og tók þá
Hodges við. Hann hefur unnið
sleitulaust að því að auka iðnað
í ríkinu, og frá því 1954 hefur
fjárfesting aukizt um 1.000 mill-
jónir dollára. Hodges er 62 ára.
★
David Elliott Bell verður fjár-
hagsmálaráðherra. — Hann er
minnst þekktur þeirra er Kenne-
dy hefir valið til þessa. Bell er frá
Norður-Dakota, en stundaði nám
í hagfræði við
Pomona háskól-
ann í Kaliforníu.
Meistaragráðu í
hagf ræði t ó k
hann við Har-
vard háskóla í
Boston árið 1941
og stundaði þar
k e n n s1u um
tíma. — Hann _ ,
gegndi herþjónustu í þrjú ar i
síðustu heimsstyrjöld, en fékk að
henni lokinni starf við fjárhags-
málaráðuneytið. Eftir að Eisen-
hower tók við forsetaembætti,
sneri Bell aftur til Harvard og
varð jafnframt fjárhagslegur
ráðunautur ríkisstjórnar Pakist-
an. Bell er 41 ars.
★
Gerhard Mennen Williams verð
ur aðstoðarutanríkismálaráð-
herra og mun fara með málefni
Afríku. Hann hefur verið ríkis-
stjóri Michigan í sex kjörtíma-
bil, en bauð sig ekki fram aftur
að þessu sinni og
lætur af því em-
bætti 1. janúar
n.k. í Bandaríkj-
unum g e n g u r
hann undir nafn
inu „ S o a p ý “
Williams, og staf
ar það af því að
hann er einn að-
aleigandi fyrir-
21. umferð ensku deildarkeppninnar
fór fram í gær og urðu úrslit leikj-
anna þessi:
1. deild
Arsenal — Bolton 5:1
Birmingham — Everton 2:4
Burnley Leieester 3:2
Cardiff — Chelsea 2:1
Fulham — Manchester U 4:4
Manchester City — Wolverhampton 2:4
Newcastle — West. Ham. 5:5
N. Forest — Aston Villa 2:0
Preston — Tottenham 0:1
Sheffield W. — Blackburn 5:4
W.B.A. — Blackpool 3:1
2. deild
Brighton — Sunderland 1:2
Bristol Hovers — Stoke 1:0
Derby — Sheffield U. 2:0
Ipswich — Plymouth 3:1
Leeds — Portsmouth 0:0
Leyton Orient — Charlton 1:1
Liverpool — Swansea 4:0
Middlesbrough — Huddersfield 2:1
Rotherham — Luton 5:2
Scunthorpe — Norwich 2:1
Southampton — Lincoln 2:3
Að 21. umferð lokinni er staðan
þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin)
Jólavarningur
til Meistaravíkur
Sólfaxi fór í gærmorgun síð-
ustu ferð sína fyrir jól til Meist
aravíkur á Grænlandi. Var flug-
vélin hlaðin jólavarningi, svo
sem ávöxtum og öðru slíku. Einn
ig hafði hún meðferðis 3 metra
hátt jólatré, sem er gjöf til íbúa
Meistaravíkur frá Flugfélagi ís-
lands. Hefur flugfélagið sent
þeim slíka jólagjöf með síðustu
ferðinni fyrir jól undanfarin ár.
Með flugvélinni voru og níu far-
þegar, en til baka mun hún flytja
30 farþega, sem ætla að vera
komnir heim fyrir jól
tækis þess er framleiðir Mennen
raksápur og snyrtivörur m.m.
Williams er lögfræðingur að
mennt og stundaði nám við
Princeton háskóla og lagadeild
Michiganháskóla. Hann hefur
lengi barizt fyrir rétti blökku-
manna, en hefur lítil afskipti
haft af utanríkismálum. Hann
hefur þó kynnt sér nokkuð mál
Afríkuþjóða og ferðaðist um
mörg ríki Afríki" -*”rir tveim ár-
um. Williams er -*'J ára.
★ m
Stewart Udall verður innan-
ríkismálaráðherra. Hann hefur
verið þingmaður
Arizonaríkis í
fulltrúa deild
Bandaríkjaþings
frá því árið 1954
og fengið þ a ð
orð á sig að
vera frjálslynd-
ur í skoðunum.
Udall er fylgj-
andi þjóðnýtingu
orkuvera og verndun náttúruauð
linda lándsins, og hefur sýnt mál-
efnum Indíána sérstakan skilnig.
★
Dean Acheson, sem var utan-
ríkisráðherra 1949—53, er nú tal
inn líklegastur til að verða sendi
herra Bandaríkjanna hjá Atlants
hafsbandalaginu.
Robert Kennedy, bróðir forset-
ans, sem hafði umsjón með kosn-
ingabaráttunni, er talinn líkleg-
ur saksóknari ríkisins og George
McGovern, fulltrúadeildarþing.
maður frá Suður-Dakota, einna
líklegastur sem landbúnaðarmáia
ráðherra.
Tottenhani 21 . 18 2 1 68:25 38
Evertan 21 13 4 4 54:33 30
Wolverhampton 21 13 4 4 55:40 30
Sheffield W. 20 12 4 4 37:24 28
Burnley 20 13 1 6 58:37 27
N. Forest 21 5 4 12 30:46 14
Bolton 20 5 3 12 28:43 13
Preston 20 5 3 12 21:38 13
Blackpool 20 4 3 13 33:46 n
2. deild (efstu og neðstu liðin)
Sheffield U. 22 15 1 6 42:26 31
Liverpool 20 12 4 4 43:25 28
Ipswich 21 12 3 6 46:28 27
Norwich 21 10 6 5 35:25 26
Brighton 21 6 4 11 33:43 16
Lincoln 21 6 4 11 29:40 14
Huddersfield 20 5 4 11 29:40 14
Swansea 20 4 5 11 26:43 13
George Eastham lék sinn fyrsta leik
með Arsenal i gær. Atti hann nokkuS
góðan leik og skoraði tvö mörk. --
Tottenham átti lélegan leik gegn Prest
on og var sigur þeirra ekki sanngjarn.
Alian setti eina markið í leiknum, en
miðvörðurinn Norman átti góðan leik.
Stiórnmálasam-
j
band með Ceylon
og A-Þýzkalandi
CCOLOMBO, Ceylon, 9. des. --
Reuter. — Felix R. Dias Band-
aranaike, embættismaður í ut-
anríkis- og landvarnaráðuneyt-
inu tjáði fulltrúadeild þingsins
í dag, að stjórn Ceylon hefði I
athugun að taka upp stjórnmála
samband við Austur-Þýzkaland.
Kvað hann ekkert því til fyrir-
stöðu, að Ceylon kæmist að sam
komulagi við A.-Þýzkaland, ekki
aðeins um viðskiptaleg efni, held
ur einnig með tilliti til þess að
fá tæknilega aðstoð og ýmiss
konar aðra hjálp til þess að'
hraða iðnþróun á Ceylon.
Enska knaiispyrnan