Morgunblaðið - 11.12.1960, Blaðsíða 24
13
DACAR
TIL JÓLA
13
DACAR
TIL JÓLA
285. tbl. — Sunnudagur 11. desember 1960
Frá síldarlöndun.
Stórsíld í Miðnessjó
veldur framhaldandi söltun
30 þúsund tunnur haía veiðzt
AÐFARANÓTT föstudagsins kom stór og feit sild upp í Miðnes-
sjó og komu nokkrir bátar með góðan afla að landi í fyrradag,
eins og sagt var frá í blaðinu í gær. Veiddist síldin bæði í hrliig.-
nót og reknet. Smásíldin og millisíldin, sem til þessa hefur veiðzt
við Reykjanes fékkst ekki í reknet og höfðu því margir rekneta-
bátar lagt upp netum sínum, en munu nú væntanlega halda
lengur úi —
er er stærsti söltunarsamn-
ingurinn við Rússland og er
þar gert ráð fyrir að helm-
ingur síldarinnar sé stórsíld.
Á þessu hausti hafa verið
saltaðar yfir 30 þúsund tunn-
ur af síld hér sunnanlands og
var vafamál hvort haegt yrði
að halda söltun áfram, ef
eingöngu hefði fengizt smá-
síld eða millisíld.
SANDGERÐISBÁTAR
YFIR SÍLDINNI
1 fyrrinótt voru engir bát-
ar á sjó, en seint í gaer voru
Sandgerðishátar komnir á
miðin í Miðnessjó og höfðu
þegar orðið varir. Var Guð-
björg í þann veginn að
SÖLTUN VAR AÐ
STÖÐAST
Þessi feita og stóra sild
auðveldar síldarsaltendum
mjög að standa við gerða
samninga, ef framhald verð-
ur á veiðinni. Sem kunnugt
Flytur erindi um
SÞ og Kongó
I HUGH Williams, yfirmaður'
upplýsingaþjónustu Samein-
uðu þjóðanna á Norðurlönd-
um flytur erindi um Samein-
uðu þjóðirnar og Kongómálið
á morgun (mánudag) í fyrstu
kennslustofu háskólans kl.
8,30 s.d. Verður erindið flutt
á ensku og er öllum heimill
aðgangur. (Sjá samtai við
hann í blaðinu i dag).
Yfirlitssýning
Svavars Guðna-
sonar opnuð í gær
YFIRLITSSÝNING sú, sem
menntamálaráð gengst fyrir á
verkum Svavars Guðnasonar list
málara var opnuð í gær kl. 2
e.h. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra flutti við það tæki-
færi stutt ávarp og óskaði lista-
manninum til hamingju með sýn
inguna. Helgi Sæmundsson for-
maður menntamálaráðs lýsti sýn
inguna opnaða. Mikill fjöldi boðs
gesta var viðstaddur, þeirra á
meðal forseti íslands. Um 100
málverk Svavars Guðnssonar eru
á þessari sýningu.
kasta er síðast fréttist og
fleiri bátar sveimuðu yfir
síldartorfum. — Veður var
sæmilegt á miðunum, að því
er fréttaritari biaðsins í Sand
gerði tjáði.
Rjupur á 75 kr.
á Kópaskeri
„A&eins" 50 kr. boðnar i stykkið
i Skagafirði
ALLT ÚTLIT er fyrir að fáir hafi rjúpur í jólamatinn að þessu
sinni, þótt hátt verð sé í boði, sagði fréttaritari blaðsins á Húsa-
vík í simtali við okkur í gær, en þess eru dæmi, að rjúpur hafi
verið seldar á Kópaskeri fyrir 75 krónur stykkið.
Undanfarna daga hefur eitthvað verið gengið til rjúpna hér
í nágrenni Húsávíkur, en ekkert fengizt. í hretinu um siðustu
helgi virtist eitthvað af rjúpum hafa komið niður í fjöll, því
dálítil slóð hefur sézt. En um leið og snerist til sunnanáttar og
birti, hvarf rjúpan inn til hálendisins. Líklega er veiðin í haust
minni en í fyrra.
Blaðið átti tal af Þorvaldi Guð-
mundssynj forstjóra í Síld og
Fisk vegna þessara ummæla
fréttaritarans og sagði hann, að
lítið væri af rjúpu á markaðin-
um. Þar sem hún hefði verið
seld í verzlunum, væri verðið yf-
irleitt 50 kr., en þess væru dæmi
að menn greiddu allt að 70 kr.
fyrir hana.
Þær spöku hurfu með vori
Þá átti Mbl. í gær tal við frétta
ritara sinn á Höfðaströnd, Björn
í Bæ, og spurði hann frétta af
rjúpunni. Björn sagði að óvenju-
lega lítið hefði sézt af rjúpu, það
sem af væri vetrinum. — Ég held
næstum því, sagði hann, að þetta
ætli að verða versta rjúpuár,
sem komið hefir, a. m. k. man ég
ekki eftir að svo lítið væri um
rjúpu. — Kvað hann sömu sögu
að segja víðast hvar úr Skaga-
firði.
Björn bætti því við, að skyttur
hefðu farið margar árangurslaus
ar ferðir í rjúpnaleit, því mikil
eftispurn væri eftir þessum ljúf-
fenga jólamat, og hefðu kaup-
staðabúar jafnvel boðið 50 kr. í
Fékk kvartmiiijón
og 2 aukavinninga
Yfirlæknir
skipaður
LÖGBIRTINGUR skýrir frá því
að Snorri Ólafsson læknir, hafi
verið skipaður yfirlæknir Krist-
nesshælis í Eyjafirði. Snorri
læknir hefur gengt þar störfum
yfirlæknis um árabil.
I GÆR var dregið í 12. flokki
happdrættis Háskóla íslands.
Voru dregnir út 2630 vinningar
að fjárhæð 3.730.000,00 kr. Er
þetta langhæsta fjárhæð, sem
dregin hefur verið út hjá happ-
drætti Háskólans.
Stærsti vinningurinn, hálf
milljón, kom á hálfmiða, nr.
49045, sem seldir voru í umboði
Þóreyjar Bjarnadóttur, Lauga-
vegi 66. Þess skal getið, að eig-
andi annars hálfmiðans átti löð
af miðum og fékk því báða auka-
vinningana.
Hundrað þúsund króna vinn-
ingurinn kom á heilmiða, nr.
38082, sem seldur var í umboði
Frímanns Frímannssonar í Hafn
arhúsinu. Fimmtíu þúsund komu
á 23716, fjórðungsmiða, sem
einnig voru seldir hjá Frímanni,
og hálfmiða nr. 35287; var annar
seldur í Vesturveri, en hinn hjá
Valdimar Long, Hafnarfirði.
stykkið. Venjulega hefðu skytt-
umar fengið í hæsta lagi eina
eða tvær rjúpur, en hitt væri
þó algengara, að þær kæmu tóm-
hentar heim.
Þá sagði Björn i Bæ, að sér
virtist hegðun rjúpunnar harla
einkennileg. Undanfarin vor
hefði hún komið í flokkum og
verið svo gæf, að hún hafi setzt
á húsin, þess hafi jafnvel verið
nokkur dæmi í vor, að rjúpurnar
hafi leitað inn i bæina. — En svo
hurfu þær algerlega. Mér er ekki
kunnugt um hvert rjúpan fer, a.
m. k. hefir hún ekki í vetur leit-
að hælis hjá okkur hér í Skaga.
firði Eins og ég sagði áðan, held
ég sé minna af henni nú en
nokkru sinni áður, sagði Björn
að lokum.
Sjúmanna-
félagið
KOSNING heldur áfram il
Sjómannafélagi ReykjavíkurJ
og í dag verður kosið á skrif-
stofu félagsins frá kl. 2—7.1
Framvegis verður kosið dagl
lega frá kl. 19—12 og 3—6 á|
skrifstofu félagsins.
Sjómenn- Listi lýðræðis-J
sinna er A-listi.
konu
í NÓTT gerði maður nokkur árás
á konu á Hverfisgötunni. Lamdi
maðurinn hana í höfuðið með
flözku, en hún hlaut af því slæma
skurði og sátu glerbrot í sárun.
um. Samkvæmt fregnum frá lög-
reglunni mun konan ekki vera
höfuðkúpubrotin. Málið er í rann-
sókn.
Jóla.undur
Hvalar
HINN ÁRLEGI jólafundur Sjálf-
stæðiskvennafélagsins Hvatar,
verður í Sjálfstæðishúsinai á
mánudagskvöld kl. 8:30.
Á fundinum talar próf. Jóhann
Hannesson um jólin, frú Guðrún
Aradóttir les upp jólaljóð og spil
aðir verða jólasöngvar og sung-
ið. Á etfir verður kaffidrykkja.
Fjallað um óvenjulegar
orkulindir á ráð-
stefnunni í Róm
SVO SEM frá var skýrt í
blaðinu í gær, kom fram á
fundi með forstöðumanni
upplýsingaskrifstofu Samein-
uðu þjóðanna á Norðurlönd-
um, að einn Islendingur
mundi sækja ráðstefnu um
nýjar orkulindir, sem haldin
verður í Rómaborg dagana
21.—31. ágúst nk.
Blaðið hefur nú fengið að
vita, að sá er ráðstefnuna sæk-
ir, er Sveinn Einarsson, verk-
fræðingur, en hann hefur, sem
kunnugt er, unnið að áætlun um
gufurafstöð í Hveragerði.
í símtali við blaðið í gær,
sagði Sveinn, að á ráðstefnu
þessari yrði reyndar ekki fjall-
að um nýjar orkulindir — öllu
fremur um óvenjulegar orku-
lindir og þá fyrst og fremst um
sólarorku, vindorku og jarðhita-
orku.
Lögð verður megináherzla á
umræður um hina raunverulegu
hagnýtingu þessara orkulinda og
hvernig fenginni reynslu verði
miðlað til vanþróaðra landa. —
Mönnum, sem starfa við rann-
sóknir þeirra víðsvegar í heim-
inum, hefur verið boðið að
senda inn greinar um þær, og
verða umræður á ráðstefnunni
síðan byggðar á erindum, sem
sérstakir fyrirlesarar semja upp
úr þeim greinum.
Fjórar eða fimm frá Islandi
Sveinn kvaðst ekki vita með
vissu, hve margar greinar yrðu
sendar frá íslandi, en líklega
yrðu þær fjórar eða fimm.
Munu þær fjalla um hagnýt-
ingu jarðhita hér á landi og
jarðeðlisfræðileg atriði varðandi
hana, svo og mikilvægi þeirrar
hagnýtingar fyrir þjóðarbúskap-
inn — í hitaveitum, gróðurhúsa-
rekstri og síðar meir væntan-
lega til iðnaðar- og reforku-
framleiðslu