Morgunblaðið - 25.01.1961, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 25. jan. 1961
MORCVTSBLAÐIÐ
3
STAKSTEIIVAR
XJNGUR íslendingur, búsettur
á Spáni, rekur nú fyrsta ís-
lénzka hótelið á hinni fallegu
Costa Brava strönd við Mið-
jarðarhafið og hefur gefið því
nafnið Hótel Hekla. f bréfi
til blaðsins segir hann að
stjórn hótelsins hafi tekið þá
ákvörðun að leyfa að viss
hluti dvalarkostnaðar greiðist
í íslenzkum krónum.
Magnús er ungur Reykvík-
ingur, sonur Kristjáns Magn-
ússonar, listmálara, og Klöru
Helgadóttur, sem lengi vann á
Landssímanum, en þau eru
bæði látin. Hann fór til Spán-
ar til íistmálaranáms, en
kvæntist þar og er þar nú bú-
settur.
„Residencia Hekla'* er í
bænum Tossa de Mar. Um
hann segir Magnús í bréfi
sínu;
Bærinn Tossa de Mar er á Miðjarðarhafsst rönd Spánar, 135 km. sunnan við landamæri
Frakk lands.
Islenzkt hdtel á Spáni
• Mikill ferðamanna-
straumur
„Tossa de Mar var áður
fyrr lítið og óþekkt fiskiþorp.
íbúarnir um 1200 manns, öfl-
uðu sér um aldaraðir lífsviður
væris með fiskiveiðum. Nú á
fáum árum hafa orðið þar
miklar breytingar og bærinn
orðið einn af vinsælustu bað-
stöðum hér við Miðjarðarhaf.
Hann er staðsettur 95 km.
Eitt gestaherbergi á „Residencia Hekla".
norður frá Barcelona og 135
km. sunnan við landamæri
Frakklands á hinni fögru
Costa Brava. Ströndin á að
vissu leyti frægð sína að
þakka þeim kvikmyndum,
sem teknar voru hér og sýndu
þá fegurð, sem þessi strönd
á yfir að búa. Þúsundir ferða-
manna koma nú hingað árlega
og þó hótel bætist í hópinn á
hverju ári, þá hefur eftirspurn
in verið meiri en hægt er að
anna.
Til að gefa hugmynd um
það hve mjög þessi bær hefur
stækkað, þá hafa um sextíu
hótel verið byggð þar sl. fimm
ár. f vetur eru sjö hótei í
byggingu og er gert ráð fyrir
að þau taki til starfa á kom-
andi sumri. Sum þessi hótel
eru smá, önnur rúma þrjú til
fjögur hundruð gesti.
Eitt af þeim hótelum, sem
nú hefuf verið opnað, er hótel
„Hekla", sem er fyrsta ís-
lenzka hótelið hér á Costa
Brava. Verður þetta hótel op-
ið allan ápsins hring.
Þar sem okkur er kunnugt
um þá erfiðleika, sem margir
eiga við að etja þegar hugsað
er til utanferðar, hefur stjóm
hótel Heklu tekið þá ákvörð-
un að leyfa að viss hluti dval-
arkostnaðar hér megi greiðast
í íslenzkum krónum og von-
um við að þessi ráðstöfun
megi létta á margan hátt og
lengja dvalartíma þerra, sem
hafa hugsað til utanferðar í
sumar. Rétt er þó að taka
fram, að varla má búast við
að fá gistirúm mánuðina júní
til septemberloka hafi ekki
verið óskað eftir því í síðasta
lagi fyrir apríllok. » .
Mánuðirnir marz og maí eru
góðir mánuðir, þar sem hitinn
er þá venjulega ekki orðinn
of mikill fyrir þá sem eiu
miklum hitum óvanir, enda er
mikið um Norðurlandabúa hér
þá. Má oftast fá gistingu á
þeim tíma hér með tveggja
til þriggja vikna fyrirvara".
• Alltaf gott veður
Fréttamaður átti um helg
ina tal við Baldur Jónsson, en
kona hans er Hansína Helga-
dóttir, móðursystir Magnúsar;
Dvöldu þau hjónin einmitt í
húsinu sem nú er hótel, seinni
hluta síðasta árs og Hansina
skrifaði nokkrar greinar frá
Tossa de Mar í kvennadálka
Morgunblaðsins, meðan þau
hjónin dvöldust þar. Sagði
Baldur að þetta væri dásam-
legur staður, alltaf blíða og
gott veður, nema hvað hann
gæti rokið upp einn og einn
dag, og lægði veðrið þá eftir
nokkra klukkutíma.
Fullkomnasti togari
Breta smíðaður
NÝLEGA var hleypt af stokkun-
um í Hamborg í Vestur Þýzka-
landi stærsta og nýtízkulegasta
togara, sem Bretar hafa látiW
snnða fyrir sig fram að þessu.
Eru þá þó undantekin Fairtry
verksmiðjuskipin, sem að vísu
eru búin togútbúnaði, en eru í
öðrum flokki skipa.
Þessi nýi togari verður 1200
tonn og er skuttogari ný og end-
urbætt gerð af þýzka togaranum
Sagitta sem oft hefur komið
hingað til lands.
Lord-togararnir
Þegar honum var hleypt af
stokkunum í Hamborg var hon-
um gefið nafnið Lord Nelson.
Hann er eign Lord togarafélags-
ins í Hull, sem gerir út eintóma
Lorda. Er félag það eign Associa-
ted Fisheries. Er það undarlegt
að um líkt leyti og orðrómur
gengur um það, að Ross hringur-
inn ætli að kaupa um Associated,
er síðarnefndi hringurinn að
eignast sennilega fullkomnasta
togara, sem hann hefur nokkurn
tima átt.
Aflakló skipstjóri
Skipstjóri á Lord Nelson verð-
ur Walter Lewis einn allra
mesti aflakóngur Breta. Er þess
m. a. getið að hann vann afla-
kóngsverðlaun Breta í fyrra, silf
urþorskinn.
Fullkomin innrétting
A þessum nýja togara eru tæki
til að frysta hluta aflans, en ætl-
unin er þó að meginhluti hans
verði ísaður sem hingað til. Skip-
ið á að geta sótt á fjarlægustu
mið. Brezka blaðið Fishing News,
sem lýsir Lord Nelson í síðasta
blaði er mjög hrifið af smekk-
legri innréttingu skipsins og góð
um aðbúnaði skipshafnar.
Framkvæmdastjóri Lord tog-
arafélagsins er hinn kunni Tom
Boyd. Hann segir að þeir hafi
látið smíða togarann í Þýzka-
landi, vegna þess að þýzku skipa
smiðastöðvarnar hafi miklu meiri
reynslu af smíði þessara skipa en
þær brezku.
Spilakvöld
HAFNAFIRÐI — Félagsvist
Sjálfstæðisfélaganna er í Sjálf-
stæffishúsinu í kvöld og hefst
kl. 8,30. — Verðlaun eru veitt
og síffar heildarverðlaun.
Leidsögumanni
kennt um brunann
VOSS í Noregi, 23. jan. fReuter).
Réttarhöld eru hafin hér yfir
ferðaleiðsögumanni aff nafni
Riisnes, sem talinn er bera á-
byrgff á þvi aff eidur kom upp í
stóru gistihúsi í Stalheim i júní
1959. í brunanum fórust 25
manns, þar af 18 Bandaríkja-
menn og 3 Kanadamenn. Saman
viff máliff er slegiff skaðabóta-
kröfu fjögurra bandarískra ferffa
manna, sem komust lífs af, en
misstu verffmætan farangur.
★
Það er ljóst af gögnum máls-
ins, að eldurinn kom upp í her-
bergi þvl sem leiðsögumaðurinn
hafði og er það álit saksóknar
ans að kviknað hafi í vegna gá-
lausrar meðferðar hans á síga-
rettum.
Einnig er upplýst að leiðsögu
maðurinn hafði drukkið a'llstíft
um kvöldið og nóttina og verið
fyrirferðarmikill í ölæðinu.
Hann mætir fyrir réttinum og
segist vera saklaus. Hann kveðst
ekki hafa verið í herbergi sínu,
þessa nótt sem eldurinn kvikn-
aði, heldur í kjallaraherbergi
hjá einni starfsstúlku gistihúss-
ins og geti eldurinn því ekki ver
ið honum að kenna.
Ofbýður ábyrgðf rleysið
Einn af þingmönnum Fram-
sóknarflokksins, Björn Pálsson,
flutti ræffu á Alþingi í fyrradag,
þar sem hann deildi á flokksbræff
ur sína og kommúnista fyrir á-
byrgffarlausa stjórnarandstöffu.
Ræffuna hélt Björn viff umræffur
um staðfestingu bráðabirgffalag-
anna um lánamál útvegsins.
Lýsti hann yfir stuðningi viff þaff
mál og kvað enga ástæðu til aff
deila á ríkisstjórnina fyrir þaff,
enda ætti hver stjórn að njóta
sannmælis.
Verffur aff telja þaff nokkur
tíðindi, þegar þingmaður sér sig
knúin til að deila á flokk sinn og
málgögn fyrir ábyrgffarleysi í
málflutningi. Er þvi ekki aff
furffa, þó að óbreyttum Fram-
sóknarmönnum finnist nóg um
dekur forystumannanna viff
kommúnista.
Hótanabréfamálið
off blöðin
Eftir dóm Hæstaréttar í hiira
svonefnda hótanabréfamáli, sem
getiff er um í Morgunblaðinu í
gær, má ætla að ljúki þeim
skrípalátum, sem hafa veriff í
kringum þaff mál frá upphafi.
Hverskyns kviksögum, ásökuiv
um og fáránlegum fullyrðingum
var fléttaff þar inn í þann mála-
tilbúnaff, reynt aff draga sak-
lausa menn inn í máliff og tor-
velda framgang þess. Þrjú dag-
blaðanna í Reykjavík tóku þátt í
þessum skrípalátum og hafa orff-
iff sér til mikillar minnkunnar.
Skiptir þaff út af fyrir sig ekki
meginmáli, en hitt er fullkomiff
alvörumál, þegar menn, sem trú-
aff er fyrir þeirri ábyrgff aff hafa
áhrif á almenningsálit, beita
þeirri affstöðu til þess beinlínis
aff reyna aff Iæffa því inn, aff
réttarfar sé meff þeim hætti, aff
ekki sé hægt aff treysta því, að
dómsstólar leitist viff aff fram-
fylgja lögunum. Jafnframt miff-
uðu ásakanirnar svo aff þvi að
rýra traust manna á lögreglunni
og yfirstjórn hennar og er þaff
ekki síffur vítavert, þegar ásak-
anirnar eru úr lausu lofti gripn-
ar.
Svo augljós er þessi Ijóti leik-
ur nú orffinn, aff því verffur a3
treysta aff honum sé lokið, meff
endakyktum þessa hluta málsins,
svo aff framhald þess geti gengiff
hindrunarlaust og dómur falliff
án óþarfa tafa.
Vísdómur Kristins
og- Einars
Rússneska sendiráffið í Reykja
vík er stöðugt aff senda út frétta-
tilkynningar um kommúnistaráff
stefnuna, sem haldin var í
Moskvu fyrir áramótin. f þeirri
síffustu segir, aff yfirlýsingin, er
áffur hefirr veriff getiff um hér
í Morgunblaðinu sé „sameigin-
legur ávöxtur af visdómi komm-
únista- og vcrkamannaflokk-
anna“. Eftir þessu aff dæma hafa
flokkarnir allir lagt til nokkurn
„vísdóm". Þess vegna leyfum viff
okkur aff beina þeirri fyrirspurn
til Kristin E. Andréssonar og
Einars Olgeirssonar, sem voru
fulltrúar íslenzku kommúnist-
anna á ráffstefnunni, hver hafi
veriff sá „vísdómur", sem þeir
lögffu til í nafni íslenzka komm-
únistaflokksins.
Væntanlega stendur ekki á
svarinu, a.m.k. ætti Einar aff geta
skýrt frá sínum skoðunum, svo
mikiff er málæði hans oftast. Ilitt
er svo allt annaff mál, hvort al-
menningur á íslandi telur í því
fólginn sérlega mikinn „vísdóm".