Morgunblaðið - 25.01.1961, Side 24
Cook sér fyrir öllu
S já blaðsíðu 13.
íþróttir
Sjá bls. 22.
19. tbl. — Miðvikudagur 25. janúar 1961
Skipið
brotið
ÞAÐ fór eins og óttast hafði ver-
ið með belgíska togskipið Marie
Jose Rosette að það sökk við
hafnargarðinn í Vestmannaeyj-
um þar sem það strandaði. Brotn
aði skipið, en stefni þess situr
fast í garðinum, sem er nú mjög
brotinn orðinn. Viðgerð á garð-
inum mun kosta milljónir króna.
Sala Þormóðs goða
TOGARINN Þormóður goði seldi
í Bremerhaven í dag 242 lestir
af síld fyrir 119,500 mörk, sem
telja má sæmilega sölu.
Fjölsóttir sin-
fóníutónleikar
Synfóníujhljómsveit ísilands
efndi til hljómleika í Þjótleikihús
inu í gænkvöldi udnri stjórn
Bolhdan Wodiczko. Viðfangsefn-
in voru eftir Beetihofven, Kanlo-
wics og Roman Palester.
Hljómsveitinni og stjórnanda
var ágætlega fagnað og voru
tónleikarnir mjöig fjölsóttir.
Sildarnótin
alltaf
um borð t
I SAMTALI, er Morgun
blaðið átti við Sturlaug
Böðvarsson á Akranesi í
gærkvöldi, skýrði hann
svo frá, að ákveðið væri
að Höfrungur II myndi í
vetur verða látinn hafa
síldarnótina um borð,
hvort sem hann stundaði
línuveiðar eða jafnvel
netaveiðar. Stærri bátarn-
ir, sem hafa nótina á báta-
dekki, geta sér að skað-
Iausu látið hana vera um
borð og verði þeir síldar
varir kasta þeir á hana
og stunda þá síldveiðarn-
ar. Að undanförnu hefir
veður verið þannig að allt-
af hefði verið hægt að
vera að línuveiðum, þótt
síkiin ekki næðist.
Ekki er ólíklegt að fleiri
bátar kunni að hafa sama
hátt á þar sem bátarnir
eru nægiiega stórir og
rúm leyfir.
Mikil síld ■ Miðnes-
sjó í fyrrinótt
Veður hamlaði veiðum — Bátar
sprengdu nætur sínar
í FYRRINÓTT fengu nokkr-
ir síldveiðibátar afla, en bæði
hamlaði veður veiðum og
einnig sprengdu bátar nætur
sínar vegna þess hve köstin
voru stór.
Blaðið átti í gærkvöldi tal við
Jakob Jakobsson fiskifræðing um
borð í Ægi þar sem þeir voru
staddir 10 mílur út af Hafnar-
bergi og biðu eftir að geta haldið
áfram síldarleit, en veður var
þá orðið svo óhagstætt að síldar-
leitartækin voru óvirk. Allir síld-
veiðibátarnir voru þá komnir að
landi sakir óveðurs.
Jc Síldin sunnar
Síldin, sem veiddist í fyrri-
nótt fékkst 10—15 sjómílum VNV
af Eldey og er því komin mun
sunnar og dýpra en þá er hún
veiddist í sl. viku. Segir Jakob
þetta eðlilegt og það sem alltaf
hafi verið búizt við. Jafnvel má
vænta að síldin standi eitthvað
við þar sem hún er nú komin.
Ennfremur eiga þeir von á
göngu, sem var undan Snæfells-
jökli um áramótin. Reiknað er
með að sú síld gangi suður á bóg
inn og taki þá við af þeirri, sem
er í Miðnessjónum nú.
ic Mjög góð síld
Síldin, sem veiddist í fyrri-
nótt er bæði stór og feit og sú
bezta, sem fengist hefir til þessa.
Segir Jakob að það sé eins og
smærri síldin skilji sig frá þegar
komið er þarna suður og veiðist
þá eingöngu stóra síldin.
Að síðustu sagði Jakob að þeir-
væru vongóðir um frekari veiði
þegar veður gæfi, þótt að sjálf-
sögðu sé ekkert hægt að fullyrða
um hegðun síldarinnar.
ic Tveir bátar með allgóðan
afla
Fréttaritari blaðsins í Kefla-
vík símaði í gærkvöldi að Ólaf-
ur Magnússon hefði komið inn í
gær með 600 tunnur síldar og
hefði ekki getað tekið meira og
orðið að sleppa allmiklu af kast-
inu. Þá kom Árni Geir einnig
með 600 tunnur og Eldey og Kóp
ur með um 50 tunnur hvor, en
báðir sprengdu þeir nætur sínar
því köstin voru svo stór. Alls
höfðu 11 bátar farið á síldveið-
ar frá Keflavík í fyrrinótt og í
gær.
Síldin er sem fyrr segir mjög
góð og fer í salt og til frystingar.
Jc Sneru við vegna veðurs
Akranesi, 24. jan. — Síld-
veiðibátarnir fóru allflestir út í
morgun. Allir snéru þeir aftur
vegna SA storms á miðunum.
í morgun dokuðu tveir bát-
anna við kippkorn dýpra af róðr
arbaujunni og annar þeirra var
að því kominn að kasta nótinni
þegar sjómennirnir uppgötvuðu
að þarna var síli á ferð en ekki
síld.
Fjórir trillubátar réru héðan í
morgun. Aflinn var ágætur. Hæst
ur var Hafþór með 2 tonn. — O.
Verkfallinu vífta aflétt
Fundir í sjómannaféldgunum
í gærkvöldi
Fréttir frá ýmsum verstöðvum
M B L. átti í gærkvöldi tal
við marga af fréttariturum
sínum í ýmsum verstöðvum
landsins og spurðist fyrir um
hvort fundir hefðu verið
haldnir í sjómannafélögum
og með útvegsmönnum um
samkomulagið, sem náðist á
fundi sáttasemjara ríkisins í
fyrrinótt. Á nokkrum stöð-
um stóðu fundir enn í gær-
kvöldi er símstöðvum var
lokað og var því ekki hægt
að fá fregnir þaðan. Svo var
t. d. með verstöðvarnar á
Snæfellsnesi, Sand, Ólafsvík
og Stykkishólm. Annars
staðar var búið að sam-
þykkja að létta af verkfall-
inu eða fundum hafði verið
frestað um málið þar til í
dag. — Um ástandið á Vest-
fjörðum er fjallað á öðrum
stað í blaðinu.
AKRANES
Útvegsmenn hér á Akranesi
samþykktu tillögu þá er gengiS
var frá hjá sáttasemjara um
samninga við sjómenn. Bátar
voru hér flestir á sjó í dag og
komu margir seint að í kvöld
og var fundi sjómanna því frest-
að.
HÓLMAVÍK
Héðan fór vélbáturinn Brynj-
ar á sjó í dag, en hann er 38
tonn að stærð og er þar með litið
svo á að vinnustöðvun á báta-
flotanum sé lokið. Nýr 12 tonna
bátur, sem smíðaður var á Akra-
nesi er að búast á veiðar.
Steingrímur trölli er að landa
hér afla sínum í dag, en hann
Frh. á bls. 23
Enn virðist vera næg síld í
Miðnessjó, ef veður leyfir að
hægt sé að stunda veiðarnar.
Þá er von nýrrar síldargöngu
suður Faxaflóann og er Jakob
Jakobsson fiskifræðingur
bjartsýnn á áframhald sild-
veiðanna. Sjá nánar síldar-
frétt. Þessi mynd er tekið um
borð í Guðmundi Þórðarsyni
frá Reykjavtk þar sem skipið
var að veiðum í síðustu viku.
i L — Ljósm. vig.
Sólarkaffi
HINN árlegi Sólarkaffi-fagnaðttf
Isfirðinga í Reykjavík er í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld. Isfirðingar
hér í bæ hafa um árabil haldið
við þessum gamla og góða sið og
jafnan hefur verið mjög glatt á
hjalla hjá þeim, enda alltaf góðir
skemmtikraftar.
6 milljdn
lítro mjólkur-
uukning
t MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
/ gær til Sveins Tryggvasonar,
I framkvæmdastj. Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins og spurð
ist fyrir um framleiðslu mjólk
ur á síðastliðnu ári. Honum
sagðist svo frá að fyrstu 11
mánuði ársins 1960 hefði inn-
vegið mjólkurmagn í mjólkur-
bú aukizt um 5,6 milljónir
lítra. Skýrslur eru enn ókomn
ar frá nokkrum mjólkurbúum
um mjólkurmagnið í desem-
ber sl. Reyndist aukningin í
þeim mánuði svipuð og hina
mánuðina verður heildar-
mjólkurmagnið á árinu 1960
74—5 milljón lítrar. Er hér
miðað við innvegið mjólkur-
magn í mjólkurbú, en að sjálf-
sögðu er mjólkurframleiðslan
allmiklu meiri, þegar reiknað
er með eigin notkun bænda á
mjólk.
!Árið 1959 var innvegið
mjólkurmagn 69 millj. lítrar.
Er því mjólkuraukningin á ár
inu 1960 um 6 milljón litrar.