Morgunblaðið - 03.03.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.03.1961, Blaðsíða 2
 2 MORCVJSBLAÐIÐ Föstudagur 3. marz 1961 * Iðjufundur í gœrkvöldi Vesöl frammisfaða kommúnista FRAMBOÐSFUNDUR var hald inn í Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, í gærkvöldi, en stjórnarkosning fer fram þar nú um helgina. Formaður félagsins, GuSjón Sv. Sigurðsson, setti fundinn og gerði grein fyrir þeim málum, sem efst eru á baugi hjá félaginu. Ræddi hann einkum kjaramálin, og hverjar leiðir væru raunhæf astar til úrbóta í þeim efnum. Þá tók Björn Bjarnason til máls. Kvaðst hann ekki ætla að halda ræðu, heldur minna að- eins á, að „konur væru á oddin um“ hjá A-listanum. Lýsti hann því síðan yfir, að nú tæki efsta númer hans Halldóra Danivalds- déttir, til máls, en hún hafði ekki beðið um orðið. Fundarstjóri taldi það ekki í verkahring Björns að gefa fund armönnum orðið, en bauð Hall dóru að taka til máls, ef hún óskaði. Varð það til þess, að hún gekk í ræðustólinn. Er skemmst feiá því að segja, að Iðjufólk varð undrandi yfir frammistöðu þessa formannsefnis kommúnista. Tókst henni með naumindum að stama því upp, að hún hefði að- eins verið í félaginu í þrjú ár, enda var fáfræði hennar um Iðju slík, að hún taldi kvenfólk vera 33% félagsmanna, en féfck það upplýst í ræðustól, að konurnar væru 7ö%. Varð formannsefn- inu þá að orði: „Nær þrír fjórðu. Já, það er bara það“. Þjóðviljinn hafði eftir Halldóru í gær, að kvenfólk væri tvéir þriðju! Síðan urðu nokkrar umræður. Kom þar m.a. frani Ung frú hér í bæ með skrifaða ræðu um hag fræðileg efni og unglingur úr Æskulýðsfylkingunni. Varaformaður B-listans, Þor- varður Áki Eiríksson bar saman kjarabaráttu Björns Bjarnasonar og núverandi formanns. Benti hann t. d. á það, að Iðjufólki hefði verið haldið í 6 vikna verkfalli 1955. Það, sem raunverulega upp úr verkfallinu hafðist, var 14,58 kr. kauphækk- un á viku hjá stúlkunum, þannig að það tók þær 200 vinnust. eða tæp 4 ár að vinna upp kauptap- ið í verkfallinu, sem var 2.916.00 kr. Að auki var vinstri stjórnin á þessum tíma margsinnis búin að taka aftur þann falska gróða, sem verkfallið gaf í aðra hönd. Til- gangur þess verkfalls var pól- itískur, enda voru áfangarnir hjá verkf allsf oring j unum: V erkf all, vinstri stjórn, verðbólga. Hins vegar hefði stjórn Guð- jóns tvívegis tekizt að ná stór- felldum kjarabótum, án þess að vinnustöðvun hefði orðið í einn einasta klukkutíma. Þá hélt Reinhardt Reinhardts- son ræðu. Minnti hann á það, að á stjórnardögum Björns Bjarna- sonar og félaga hefði Iðja verið langlægst launaða verkalýðsfé- lag landsins, enda hefði honum um síðir verið vikið frá stjórn fyrir þær sakir og aðrar verri. Kvaðst hann ekki vita til þess, að innræti þeirra kumpána hefði batnað síðan. Þeirra tilgangur væri að etja verkafólki út í póli- tísk verkföll, án tillits til þess, hvað hagstæðast væri fyrir fólk- ið. • 1 gær var útsynningur vest ( anlands með slæmum hryðj- S um af hagli og slyddu. Þótt S hiti væri 2—3 stig yfir frost ^ mark. Norðanlands og austan S var fremur hæg SV-átt og S bjart veður með 1—5 st. hita, | og var hlýjast á Dalatanga. ^ Ný lægð er suðvestur í hafi, S um 1000 km frá Reykjanesi. ) Hún hreyfist hratt NNA eftir Mun veður verða rysjótt þenn ! an sólarhring og heldur fara | kólnandi. Austan hafs er hlýtt y í veðri, 12 stiga hiti í Lundún 5j um. í New York var 1 st. hiti. t 5 Veðurhorfur: V Suð-vestan kaldi og síðar V stinningskaldi, skúra- og élja | veður. { s i1 Bátaformenn um allt land ánægðir með samningana Listi lýðræðissinna í Iðju: B-listi VH) Iðjukosningarnar nú um helgina er B-listinn borinn fram af lýðræðissinnum. Hann skipa: Aðalstjórn: Form.: Guðjón Sv. Sigurðsson OHarpa). Varaform.: Þorvaldur Áki Eiríksson (Amor). Ritari: Ingimundur Erlendsson (Iðja). Gjaldkeri: Ingibjörg Arnórsdótt ir (Svanur, Víkingur). Meðstj.: Jóna Magnúsdóttir (Andrés), Steinn Ingi Jóhannesson( Ríma), Kvöldvaka Hraun- prýðiskvenna HAFNARFIRÐI — Á sunnudags fcvöld næstkomandi halda Hraun prýðiskonur sína árlegu kvöld- vöku í Bæjarbíói. Hefst hún kl. 8,30 og verður vel til hennar vand að og margt til skemmtunar. — Hafa þessar kvöldvökur slysa- varnadeildarinnar mælzt vel fyr ir og jafnan verið húsfyllir á þeim. Félagskonur sjá að mestu leyti um skemmtiatriði, en auk þess koma fram þekktir skemmti kraftar, svo allir ættu að finna þarna eitthvað við sitt hæfi. Guðmundur Jónsson (Nýja skó- verksmiðjan). Varastjórn Þorvaldur Ólafsson (Kassa- gerðin), Klara Georgsdóttir (Borgarþvottahúsið), Ingólfur Jónasson (O. J. & Kaaber). Endurskoðendur Eyjólfur Davíðsson (Andrés), Sigurður Valdimarsson (Rey- plast), Halldór Christensen (ísaga), varaendurskoðandi. Athugusemd við grein Hauks Eggertssonar HÉR í BLAÐINU birtist í gær grein eftir Hauk Eggertsson, sem nefndist ,,Má ekki segja sann leikann um austur-viðskiptin". Því miður spilltu línubrengl nokkrum hluta hennar, og þar sem Morgunblaðið hefur orðið þess áskynja, að greinin vakti mikla athygli, þykir rétt að bæta úr því. Vegna rúmleysis gat ekki orðið af því í blaðinu í dag, en í næsta blaði mun meginefni greinarinnar rakið, og sá hluti hennar, sem brenglaðist, prentað ur orðréttur. FRÉTTAMENN blaðsins á Akureyri og í Keflavík höfðu í gær tal af formönnum og útgerðarmönnum í Keflavík, Akureyri, Ólafsfirði, Greni- vík, Flateyri og Húsavík, og spurðu þá um afstöðu þeirra til landhelgismálsins. — Þeir eru yfirleitt á einu máli um, að óhjákvæmilegt sé að semja í þessari deilu, og samningarnir, sem ríkisstjórn in hefur lagt fyrir Alþingi, séu framar öllum vonum. Rétt aS semja Fréttaritari blaðsins í Kefla- vík, Helgi S. Jónsson, átti í gær tal við nokkra af formönn- um bátanna þar syðra og spurði þá um afstöðuna til landhelgis- málsins. Fara svör þeirra hér á eftir: Guðleifur ísleifsson, formaður á Gulltoppi: — Mér finnst alveg rétt að gera þetta að svo komnu máli. Það er gott að endir er bund- inn á þessa deilu. Það var gott fyrir alla. Guðjón Jóhannsson, formaður á Svan: — Mér fannst þetta ágætt úr því sem komið er. Þrjú ár á tak mörkuðu svæði er ekfcí langur tími. Nýju svæðin, þar sem Allur ágóði rennur eins og fyrr til slysavarna, en þeim málum hafa Hafnfirðingar jafnan sýnt góðan skilning og stutt og styrkt slysavarnadeildina Hraunprýði þegar leitað hefir verið til þeirra Er ekki að efa að fjölmenni verð ur á kvöldvökunni, sem býður upp á ágæta skemmtun. Dagskrá Alþingis DAGSKRÁ sameinaðs Alþingis í dag kl. 1,30: Lausn fiskveiðideilunnar við Breta, þáltill. Frh. fyrri umr. (Atkv.- gr.). Dagskrá efri deildar í dag: 1. Lista- aafn Islands, frv. — 3. umr. 2. Korn- rækt, frv. 3. umr. Dagskrá neðri deildar í dag: 1. Rétt- lndi og skyldur hjóna, frv. Frh. 2. umr. (Atkvæðagr.). 2. Sala eyðijarðar Innar Þorsteinsstaða í Grýtubakka- hreppi, frv. Frh. 2. umr. (Atkvgr.). 3. Matreiðslumenn á skipum, frv. Frh. 2. umr. (Atkvæðagr.). 4. Búnaðarháskóli, frv. Frh. 1. umr. (Atkvgr.). 5. Eyðing svartbaks, frv. Frh. 1. umr. (Atkvgr.). 6. Ríkisfangelsi og vinnuhæli, frv. 3. umr. 7. Héraðsfangelsi, frv. 3. umr. Athugasemd frá stjórn Stúdentafélags Rvíkur MORGUNBLAÐINU barzt í gær svohljóðandi athugasemd frá Stúdentafélagi Reykjavíkur. I dagblaðinu Tímanum birtist í gær svohljóðandi klausa: „Fundur í stúdentafélaginu haldinn í gærkvöldi, mótmælir ákveðið svikum rikisstjórnarinn ar í landhelgismálinu“. Af orðalaginu verður ekki ann að séð, en átt sé við Stúdenta- félag Reykjavíkur og af því til- efni vill stjórn félagsins taka fram eftirfarandi: Landhelgismálið hefur ekki verið rætt í Stúdentafélaginu, hvorki á almennum fundi félags ins né í stjórn þess og því síður gerðar ályktanir um það. Hins vegar vill stjórn Stúdentafélags ins taka fram, af þessu gefna til efni, að hún er ekki viss um að Tíminn væri áfjáður að birta samþykkt hennar í landhelgis- málinu, ef hún lægi fyrir. Stjórn félagsins samþykkti ein róma á fundi í gær að senda blöðum og útvarpi fyrrgreinda athugasemd. Með þökk fyrir birt inguna. Stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur grunnlínur eru færðar út, eru okkur til mikilla bóta. Óskar Ingibergsson, formaður á Ólafi Magnússyni: — Ég vil sem minnst um þetta segja. Það er bæði gott, en hefur þó nokkuð illt í för með sér. Magnús Bergmann, formaður á Bergvík: — Bretinn hefur alltaf ætlað sér með brambolti sínu að koma í veg fyrir að meira yrði að gert í framtíðinni af okkar hálfu. Hann sá að hann var bú- inn að tapa 12 mílunum, en með þessum samningi taldi hann sig ná þeim árangri, sem hann ætlaði sér. Vissulega gat þetta verið verra. Gísli Jóhannesson, formaður á Jóni Finnssyni: — Mér líkar þetta samkomu- lag vel. Við áttum alltaf að semja. Með þessum samningum hafa friðunarsvæðin aukizt, og 12 mílurnar eru viðurkenndar af Bretum. Einnig er yfirvof- andi hættu af fiskveiðideilunni bægt frá bátamiðiun okkar. Samningar nauðsynlegir Þá hefur fréttaritari blaðsins á Akureyri, Stefán E. Sigurðsson, átt tal við nokkra skipstjóra og útgerðarmenn frá Húsavík, Flat- ey, Grenivík, Ólafsfirði og Akur- eyri og spurt um viðhorf þeirra til landhelgissamninganna. Þórarinn Vigfússon skipstjóri á Hagbarði, Húsavík, sagði: — Við þurfum að fá 12 mílur friðaðar fyrir Norðurlandi. Með- an 3 mílurnar voru í gildi skröp- uðu togararnir allt hér inn í flóa og eyðilögðu öll línu- og f æramið. Eftir að landhelgislínan var færð út, kom hér aftur fiskur, og hann er að aukast og mun enn aukast, ef við fáum að vera í friði. Ég hef róið hér sl. 3 vetur og í ár er mín bezta vertíð Nú er ég búinn að fá 260 skippund. Páll Pálsson formaður og út- gerðarmaður í Flatey á Skjálf- anda: Hinar nýju tillögur ríkis- stjórnarinnar í landhelgismálinu munu koma Flateyingum mjög vel. Hér búa 70—80 manns og eiga allt sitt undir sjónum og því sem hann gefur. Ef við fáum að veiða hér í friði á Grímseyjar- sundinu, eins og tillögúr ríkis- stjórnarinnar benda á, þá mun okkur vel vegna. Undanfarin ár hafa togararnir eyðilagt fyrir okkur veiðina, en nú þegar er sýnilegur árangur af friðuninni. Þorbj örn Áskelsson útgerðar- maður í Grenivík sagði: — Við þurftum að fá frið á okkar miðum, og úr því að um samninga var að ræða, þá tel ég þessa, sem nú liggja fyrir mjög hagkvæma. Fyrir Norðurlandi og út af Eyjafirði er góð línu- og færamið. Þau hafa ekki fengið að vera í friði undanfarin ár, en nái tillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga, teljum við að þeim sem þær veiðar stunda muni vel farnast. Og það er ekki minnsta atriði, að vita sig öruggan með veiðarfæri og skip fyrir ágangi togara. Magnús Gamalíelsson útgerðar maður Ólafsfirði: — Tvímæla- laust eru tillögur ríkisstjórnar- innar í landhelgismálinu til mifc ils hægðarauka fyrir okkur Ól- afsfirðinga. Ef við fáum að vera í friði hér fyrir Norðurlandi með okkar línu og okkar báta, þá mun okkur vel vegna. Við eigum við erfiða sjóa að etja, og það er nægilegt, þó við þurfum ekki einnig að berjast við veiðiþjófa, sem reyna jafnvel að sökkva bát- um okkar. Björn Baldvinsson skipstjóri, formaður Skipstjórafélags Akur- eyringa sagði: — Þessi samning- ur yar nauðsynlegur fyrir sjó- menn fyrir Norðurlandi. Ég vil séstaklega taka það fram, að friðun Húnaflóadýpisins var mjög nauðsynleg. Á vori kemur fiskurinn upp að ströndinni, og leitar síðan austur með landinu, innan þeirra marka sem línan hefur verið dregin um. Línu- og færabátar fá þá að vera í friði á þessu svæði, og það er lífsnauð- syn bæjanna og sjávarþorpanna frá Vestfjörðum til Langaness. Þorsteinn Stefánsson, skipstjóri, hafnarvörður á Akureyri: — Áð- ur fyrr kom þorskurinn ætíð upp að austurströnd Vestfjarðakjálk- ans og leitaði síðan austur um Húnaflóadýpið, Skagagrunn og austur yfir Eyjafjörð og Gríms- eyjarsund. Ég tel að 12 mílna friðunarlínan á þessu svæði sé mjög nauðsynleg og sjálfsögð til viðhalds sjávarþorpanna á þessu svæði. Línu- og handfærabátarn- ir geta fiskað á þessu svæði í rð og næði, ef togararnir ekki spilla veiðarfærum bátanna. Gunnar Níelsson útgerðarmað- ur Hauganesi, sagði: — Við hefðum gjarna viljað færa línuna lengra út, því að hér út af Eyjafirði hafa togararnir löngum eyðilagt fyrir okkur veiði og veiðarfæri, en úr því sem kom ið er, var nauðsynlegt að gera einhverja samninga, og þessa samninga, sem ríkisstjórnin hef- ur nú lagt fram, tel ég eins heppi lega og á hefði verið kosið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.