Morgunblaðið - 03.03.1961, Síða 10
10
MORGl’NBLAÐIÐ
Föstudagur 3. marz 1961
ViSINDICÍOG TÆKNI
4
Gervitunglatækin
ÞEGAR hinar risastóru eld-
flaugar nútímans bíða þess,
að þeim verði skotið upp,
bera þær við himin, eins
og einhver ógnandi ferlíki
frá öðrum heimum. — Og
þegar eldflaugunum er skot-
ið upp, leysast úr læðingi
kraftar, sem skjóta jafnvel
hinum huguðustu mönnum
skelk í bringu. Jörðin nötr-
ar undan heljarátökum eld-
flauganna, þegar þær brjót-
ast undan yfirráðum henn-
ar. Á örskömmum tíma f
þjóta eldflaugarnar af stað {
og eru horfnar úr augsýn, f
áður en maðurinn hefur raun {
verulega skilið, hvað gerzt |
hefur.
Allt er svo stórfenglegt, að ]
maðurinn sjálfur hverfur í {
samanburði við það.
Þó er erfitt að gera sér í
hugarlund, að ef lítið stjórn-
tæki (gyroscope), sem vegur
aðeins nokkra tugi gramma
og er samsett úr örsmáum
hlutum, væri ekki í eldflaug-
unum, yrðu þær eins og
hjálparvana börn, sem ekki
Útvarpstækið, sem stúlkan
er með í eyranu, er nú selt í
Bandaríkjunum fyrir 20 doll-
ara. Er það gott dæmi um þá
þróun sem átt hefur sér stað
á ýmsum tækjum, eftir að
gervitunglin
leika.
urðu að veru-
létu að stjórn. Ef þær springa
ekki á^jörðu niðri þá myndu
þær þeytast um eins og púð-
ursprengja á gamlárskvöld.
Þetta er aðeins smá dæmi
um það samræmi, sem á sér
stað milli þess stóra og þess
smáa í tækni nútímans.
Jafnframt því að sumir hlut-
ir verða stærri og stórfeng-
legri, verða aðrir stöðugt
minni og minni og þar af leið
andi fíngerðari.
Þetta er aðeins eðlileg af-
leiðing geimaldarinnar því
að eftir því sem tækin eru
smærri, því minna rúm taka
þau. Er þá hægt að koma fyr-
ir fleiri tækjum í gervitungl-
unum sem háð eru ákveðnum
stærðum. Upphaflega snerist
þessi „fíngerning" fyrst og
fremst um hluti, sem nota
átti við eldflaugar og geim-
rannsóknir, en smám saman
hefur hún breiðzt út og færst
einnig yfir á önnur svið.
Þeir sem vinna við að gera
þessa smáu hluti, hafa það
fyrir máltæki, að svo framar
lega sem hluturinn sjáist
með berum augum, þá sé
hann stór. Þetta er auðvitað
orðum aukið, en samt verða
menn furðu lostnir, þegar
þeir hafa fyrir augum sér
eitthvert af hinum smáu og
Þessi mynd sýnir lítið rafmagnstæki, sem komast fyrir í
venjulegri fingurbjörg.
fíngerðu tsekjum, sem nú eru
framleidd í stórum stíl.
Menn hafa fyigzt með því
hvernig útvarpstækin hafa
minnkað ár frá ári, og nú
er svo komið, að hægt er að
stinga þeim beint í eyrun,
og láta þau vera þar eins
lengi og hver vill. Menn hafa
jafnvel framleitt svo lítil
sjónvarpssendi og töku tæki,
að þeir láta þau fara í gegn-
um meltingarfæri manna til
þess að rannsaka starfsemi
'þeirra.
Það er ávallt þannig, að
þegar einhver ný tækni er
fundin upp, þá er það eins
og þegar steini er kastað í
lygnt vatn. Öldurnar breið-
ast út í allar áttir. Geimtækn
in, sem upphaflega var að-
eins tengd gervitunglunum
er smám saman tekin 1 notk-
un á öðrum sviðum.
OUR EVER CHANGING WORLD By OHo O. Binder
OUR EVER CHANGING WORLD By OHo O. Binder
LIGHTNING
IDEAL We/GHTieaSN£BS
FOR WEAK HFARTS /
:
OPERATING ROOA IOp% GERfA-FREB
• ©
Á HVERJUM degi verða um
25.000 eldingar að jafnaði 20
manns að bana. Eidingin fer
frá jörðunni og upp í skýin, en
þeim slær ekki niður úr skýj-
unum, eins og margir halda.
Geim-hjúkrun
FRAMSYNIR menn segja, að
í framtíðinni verði sjúkarhús-
um komið fyrir í gervihnött-
um, sem ganga umhverfis
jörðu, og þar verður hægt að
gera „kraftaverk", stunda
Iækningar, sem ekki er hægt
að gera hér á jörðu. Hjarta-
veikir’munu hafa miklu meiri
möguleika til að fá bata, þeg-
ar þyngdarlögmálið hefur ekki
lengur áhrif á þá. Þar á ekki
Vegna þess að stjórnkerfi
eldflauganna þurfti svo fín-
gerð tæki, þá höfum við nú
tannbora, sem snúast svo
hratt, að sársauki finnst
varla. Tannborarnir snúast á
sams konar legum og sum
stjórntækin í eldflaugunum.
Vegna þess að gervitunglin
þurftu svo smágerð tæki við
útvarpssendingar sínar þá
eru nú til smá heyrnartæki,
sem gera mörgum það kleyft
að heyra raddir og hljómlist,
sem þeir gátu ekki látið sig
dreyma um að heyra fyrir
nokkrum árum. Til þess að
stjórna hinum flóknu hreyf-
ingum geimflauganna þarf
margbrotna rafeindaheila.
Þessir rafeindaheilar eru nú
notaðir af ýmsum fyrirtækj-
um, bönkum eða tryggingar-
stofnunum, til þess að létta
á hinu þreytandi bókhaldi.
_ Þeir eru ekki stæri núna en
venjuleg skrifborð, en eiga
samt eftir að minnka enn
meira. Hin örsmáu segul-
bandstæki, sem eru á stærð
við eldspýtustokk og notuð
hafa verið í gervitunglunum,
fara nú að ryðja sér til rúms
í viðskiptalífinu. Fram-
kvæmdastjórar fyrirtækja
lesa bréfin inn á lítil vasa-
segulbandstæki, sem einka-
ritarar þeirra síðan vélrita
eftir.
Svona mætti lengi telja,
því alls staðar eru gervi-
tunglatækin að ryðja sér til
rúms, og spurningin er, hvort
þessar framfarir réttlæti
ekki einmitt alla þá peninga-
sóun, sem virðist fara til
einakis í gervitunglin. Það
virðist þó aðeins vera þann-
ig fljótt á litið. Það er ekki
hægt að meta þá þekkingu í
peningum, sem gervitunglin
hafa fært mönnum með mæli
tækjum sínum. En við lifum
á geimöldinni, þegar ekkert
er það stórt, að það sé ekki
hægt að gera það stærra og
ekkert er það lítið, að ekki
sé hægt að gera það minna.
að þurfa að óttast alls kyns
sýkla, sem gera skurðlæknum
oft erfitt fyrír — og geim-
geislarnir verða líka notaðir
til lækninga.
★
.
Afli og atvinna á Dalvík
DALVÍK, 1. marz. Enn er sama
▼eðurblíðan og verið hefur, það
•em af er þessum vetrL Nokk-
urt föl er til fjalla, en snjólaust
I byggð, og vegir greiðfærir
•ins og á sumardegi.
Sjór hefur verið stundaður af
kappi allt frá áramótum, og er
það eins dæmi í sögu vélbáta-
útgerðar á Dalvík. Afli var
sæmilegur í febrúar. Segja má,
að heildarútkoma línuveiðanna
hafi orðið betri en vonir stóðu
tu, en flestir smærri bátanna
hættu línuveiðum um miðjan
febrúar og hafa síðan stundað
rauðmagaveiðar. Afli þeirra hef
Ur verið góður, en tregur mark-
aður. Nokkurt magn hefur þó
verið sent með bíl til Reykja-
víkur, og fengizt gott verð fyrir.
Annar hinna stærri línubáta,
Bjarmi, er nú hættur veiðum
hér, en býr sig á netaveiðar á
Suðurlandi, en Hannes Hafstejn
mun halda áfram eitthvað fram
eftir mánuðinum. Björgúlfur,
sem undanfarið hefur stundað
línuveiðar, bæði í Faxaflóa og
við Norðurland, hefur nú rekið
troll og leggur sennilega út í
dag. Togveiði hefur verið afar
rýr að þessu, en virðist nú held-
ur að glæðast. — Björgvin kom
inn í gær með 45 tonn eftir 6
daga útivist, og er það hið
mesta, sem hann hefur fengið.
Fullyrða má, að þótt heildar-
aflamagnið sé ekki mikið, þá
hefur útgerðin skapað hér meiri
og jafnari atvinnu, en venju-
legt er á þessum árstíma. — SPJ.
Aflabrögð
ESKIFIRÐI, 1. marz. — Á Eski-
firði eru nú komnar 752 lestir af
fisk í land frá áramótum. Afli
Eskifjarðabáta á sama tíma er
640 lestir, og skiptist hann á bát-
ana, sem hér segir: Guðrún Þor-
kelsdóttir 157; Vattarnes 150, Sel-
ey 137; Hólmanes 130; og Björg
66 lestir. Aðkomubátar, sem hér
hafa lagt upp hafa fengið 112
lestir.
Mjög miklar ógæftir hafa haml
að veiðum hér fyrir austan og
suðaustan land undanfarinn mán-
uð. — G. W.
Kynnir sér
fræðslumynda-
söfn
NÝLOKIÐ ER í London þriggja
daga ráðsstefnu um gerð og
dreifingu fræðslumynda. Meðal
fulltrúa á ráðstefnunni var Gest
ur Þorgrímsson og fór hann á
vegum fræðslumyndasafns ríkis
ins. Er það í fyrsta sinn, sem ís-
land á fulltrúa á slíkri ráðstefnu.
Ennfremur voru viðstaddir sér-
fræðingar um kvikmyndagerð frá
Frakklandi, Vestur-Þýzkalandi,
Ítalíu, Luxemburg, Hollandi,
Austurríki, Danmörku, Irlandi,
Noregi og Spáni auk áheyrnar-
fulltrúa frá UNESCO, menningar
og fræðslustofnun Sameinuðu
þjóðanna.
Á ráðstefnunni voru boriu
fram tilmæli um, að sérfræðingar
Evrópuráðsins um menningarleg
efni kæmu saman af og til og
kynntu sér þær fræðslumyndir,
sem líklegar væru til þess a3
auka skilning og vinsemd þjóða
í milli. Einnig var lögð áherzla
á nauðsyn þess, að auðvelduð
yrði dreifing fræðslumynda með
lækkun eða afnámi tolla.
Fulltrúum voru sýndar marg
ar nýjar fræðslumyndir, meðan
á ráðstefnunni stóð. Að henni
lokinni lagði Gestur Þorgríms-
son upp í viku ferðalag um Eng
land á vegum British CounciJ
til þess að kynna sér fræðslu-
myndasöfn og möguleika á þvl
að fjölga sýningum fræðslu-
mynda á íslandi.