Morgunblaðið - 15.04.1961, Síða 1
24 siður með Barnafesbók
C8. árgangur
84. tbl. — Laugardagur 15. apríl 1961
Frentsmiðja MorgunblaSsins
Réttar-
Jerúsalem, 14. apríL
— (NTB/Reuter) —■
RÉTTARHÖLDIN í máli
Eichmanns hófust að nýju í
dag. Verjandi Eichmanns, dr.
Robert Servatius, hélt því
enn fram, að dómurinn hefði
ekki heimild til að fjalla um
málið og eftir nokkrar um-
ræður var réttarhöldunum
frestað til mánudagsmorg-
uns, en þá mun verða gefinn
út úrskurður uin rétt dóms-
ins. —
Réttarhöldin í dag stóðu að-
eins í tvo tíma. Servatius hélt
|>ví fram að Eichmann væri sak-
laus og hefði aðeins verið svo
ólánssamur að þurfa að hlýða
fyrirskipunum yfirmanna sinna.
En Gideon Hausner, saksóknari
ísraels, hélt því hins vegar fram
að Eichmann hefði ekki aðeins
farið eftir fyrirskipunum, heldur
einnig oft gengið talsvert lengra
í ofsóknunum gegn Gyðingum en
fyrir hann var lagt. Servatius
heldur því fram að Eichmann
eigi kröfu á vernd Vestur Þýzka
lands og að þar beri að dæma
í máli hans. Byggir hann þessa
ekoðun sína á eftirfarandi:
1. Eichmann var fluttur nauð-
ugur frá Argentínu.
2. Glæpir hans voru ekki dýrð
ir i ísrael.
3. Sérhver ísraelskur dómstóll
hlýtur að vera hlutdrægur gagn
vart Eichmann.
4. Ísraelsríki var ekki til þeg-
ar glæpirnir voru drýgðir. Lauk
Bervatius máli sínu í dag með
eð benda á að Eiohmann væri
ekki lengur hættulegur mann-
ikyni. Eftir endalok Hitlersstjórn
erinnar, væri Eichmann orðinn
íriðsamur borgari.
Ýmsir áheyrenda í réttarsaln-
um ráku upp hæðnishlátur með-
en Servatius lýsti Eichmann á
þennan hátt.
Hausner svaraði verjandan-
um og lýsti því yfir að handtaka
Eichmanns í Argentíu skipti ekki
xnáli lagalega séð. Hann sagði að
ekkert annað land hefði farið
tfram á það að sækja Eichmann
til saka og að ísraelskir dómarar
yrðu að kveða upp dóm í sam-
ræmi við landsins lög.'
Fyrsti geimfarinn er kvæntur og á tvær dætur. Hér sést Gagarin með eiginkonu sinni Valentinu, en hún er læknir að mennt-
un. Með þeim er dóttirin Jelena, tveggja ára. Hin dóttirin, Galja, fæddist fyrir rumum mánuði.
Gagarin ákaft
fagnaö í Moskvu
Er reiðubúinn að legg ja í aðra ferð
Moskvu, 14. apríl.
(NTB/Reuter)
»
MILLJÓNIR Rússa fögnuðu
í dag geimfaranum Yuri Gag
arin, er hann hom til
Moskvu. Móttakan hófst á
Vnukuvu-flugvelli er Gagar-
in sté út úr flugvélinni og
gekk eftir purpurarauðum
dregli til Krúsjeffs forsætis-
ráðherra, sem þar var mætt-
ur til að taka á móti geim-
faranum. Krúsjeff faðmaði
Ihaldsmenn vinna
Bretlandi
a i
LONDON, 14. apríl, (NTB-
Reuterj. — Verkamannaflokkur
inn hélt meirihluta í bæjarstjórn
inni í London, í nýafstöðnum
kosningum, en íhaldsflokkurinn
vann þó talsvert á.
í síðustu kosningum hlaut
Verkamannaflokkurinn 101 sæti
i bæj arstj órninni en íhaldsflokk-
urinn 25. Nú hlaut Verkamanna-
flokkurinn »4 sæti og íhalds-
flokkurinn 42.
Verkamannaflokkurinn hefur
átt meirihluta í bæjarstjórn
London frá þvi 1934.
Víða berazt að fréttir um tap
Verkamannaflokksins í bæjar og
sveitarstjórnarkosningunum, en
talningu er ekki alls staðar lokið.
í Middlesex héraði, þar sem
Verkamannaflokkurinn hafði
áður meirihluta, unnu nú íhalds
menn og hlutu 55 sæti gegn 22
sætum Verkamannáflokksins.
Einnig unnu íhalasmenn Lancas-
hire hérað
og kyssti Gagarin á flugvell-
inum, en síðan óku þeir sam-
an í opinni bifreið eftir blóm
um stráðum þjóðveginum til
Rauðatorgsins í Moskvu, þar
sem aðalhátíðahöldin fóru
fram. Á leiðinni stóð Gagar-
in í bifreiðinni og var ákaft
hylltur af mannfjöldanum,
sem safnazt hafði saman
meðfram akbrautinni. Áður
en lagt var af stað af flug-
vellinum gaf Gagarin Krús-
jeff forsætisráðherra svo-
hljóðandi skýrslu:
Félagi, aðalritari miðstjómar
rússneska kommúnistaflokksins,
forsætisráðherra Sovétríkjanna.
Ég hef þá ánægju að skýra yður
frá því að verkefni það sem mér
var falið af miðstjórn rússneska
kommúnistaflokksins og ríkis-
stjórn Sovétríkjanna hefur verið
leyst. Fyrsta geimflug veraldar-
sögunnar var farið í rússneska
geimskipinu Vostock hinn 12.
apríl 1961. Öll tæki og kerfi
skipsins reyndust prýðilega. Mér
líður vel og er reiðubúinn að
taka hvert það nýtt verkefni,
sem flokkurinn eða ríkisstjórnin
felur mér.
Á Rauðatorginu
Rauðatorgið var eitt mannhaf,
þar sem hundruð þúsunda
Frh. á bls. 2
Gagarín boðinn velkominn eftir velheppnaða geimferð.
Föngum sJeppt
Algeirsborg, Alsír, 14. apríl.
— (Reuter) —
FRÖNSKU yfirvöldin í Al-
geirsborg tilkynntu í dag að
765 manns, aðallega Serkir,
hafi verið látnir lausir úr
haldi. Það fylgdi fréttinni að
nú væru um 3.000 manns í
fangabúðum í Alsír.
Það var sérstök nefnd, er
fór með mál byltingarfanga,
sem ákvað að þessum mönn-
um skyldi sleppt úr haldi.
En nú hafa yfirvöldin sett af
stað nýja ritskoðun á öll dag-
blöð í Algeirsborg. Er blöSun-
um bannað að segja ítarlega
frá sprengjutilræðum, og mega
fréttir af þeim ekki koma á út-
síðum blaðanna. Þá er blöðun-
um algjörlega bannað að segja
frá handtökum, stofufangelsun-
um og brottvísunum úr landi.
Framh. á bls. 23.
Tal — vinn-
ingslíkur
12. SKÁKIN i einvígi þeirra
Tals og Botvinniks var tefld
í gær. Með fjögurra vinninga
forskoti taldi Botvinnik sér
óhætt að reyna aftur sína upp
áhaldsbyrjun, Franska vöm,
þótt Karo-Can vörnin hafi
annars reynzt honum betur
gegn Tal.
Miklar sviptingar urðu í
skákinni, unz hún fór í bið,
en talið er líklegt að heims-
meistarinn rétti aftur hlut
sinn að nokkra þegar biðskák-
in verður tefld í dag, því að
sterkar sigurlíkui hefir hann
í biðstöðunni.