Morgunblaðið - 15.04.1961, Qupperneq 2
2
MORGVWBLAÐ1Ð
Laugardagur 15. aprfl 1961
Frelsisþráin lyftistöng
Koröurianda
sagði Gunnar Thoroddsen a Norræna
deginum í KaupmannahÖfn
Kaupmannahöfn, 14. apríL
Einkaskeyti frá Páli JónssynL
UM 2000 manns voru saman
komnir í ráðhúsinu í Freder-
iksberg í gærkvöldi, er Nor-
rænn dagur var þar hátíð-
legur haldinn. Meðal gesta
var forsetafrú Dóra Þór-
hallsdóttir, dönsku konungs-
hjónin og sendiherrar Norð-
urlanda. — Ungar stúlkur í
þjóðbúningum stóðu vörð á
svölunum hver við fána síns
lands.
Ávörp fluttu Stæhr Johansen
borgarstjóri, formaður Norræna
félagsins, Hedegaard banka-
stjóri og Hjermind hæstaréttar-
lögmaður, sem er formaður fé-
lagsdeildar Norræna félagsins í
Frederiksberg.
Hjermind þakkaði forsetafrú
Dóru Þórhallsdóttur fyrir kom-
una og minntist nokkuð á komu
forsetahjónanna til Frederiks-
berg árið 1954. Því næst bauð
hann aðalræðumann kvöldsins,
Gunnar Thoroddsen fjármála-
ráðherra, velkominn og sagði:
„Hann er einn þeirra stjóm-
málamanna, sem hlustað er á
alls staðar á Norðurlöndum“.
Ræða fjármálaráðherra
í ræðu sinni sagði Gunnar
Thoroddsen að varla fynndist
þess dæmi í sögu síðari tíma að
fimm sjálfstæðar þjóðir hafi
getað komið á jafn víðtækri og
vinsamlegri samvinnu og er
meðal Norðurlandanna. Hér er
hvorki um að ræða ofstæki,
stjórnmál, hemaðarþörí né
vopnabrak. Þessi samvinna er
algjörlega byggð upp af frjáls-
um vilja. Frelsisþráin hefur ver-
ið og er lyftistöng Norðurland-
anna og stendur í nánu sam-
bandi við vissa metnaðarkennd.
Hin rótgróna þörf á framgangi
og frelsi hefur birzt í kröfum
og baráttu Norðurlandanna fyr-
ir sjálfstæði. Sagan sýnir að frá
þeirri stundu er löndin höfðu
öðlazt sjálfstæði og fullveldi og
gátu mætzt á grundvelli jafn-
réttis, óx þörfin á náinni sam-
vinnu, sem hefur blómgazt og
borið aðdáunarverðan ávöxt.
Fróðleiksfýsn
Samhliða frelsisþránni á Norð
urlöndum sjáum við virðingu
fyrir rétti meðborgaranna, því í
skapgerð Norðurlandabúa er að
finna undarlega en ákveðna og
trausta blöndu einstaklings-
hyggju og félagsanda. 1 huga
Norðurlandabúa býr einnig
nærri óseðjandi þörf fyrir
fræðslu og þekkingu, fróðleiks-
fýsn, sem er ein af imdirstöðum
lýðræðis og lýðstjómar.
★
Að lokinni ræðu fjármálaráð-
herra komu fram ýmsir lista-
menn frá Konunglega leikhús-
inu í Kaupmannahöfn. Því næst
hafði Norræna félagið móttöku
fyrir nokkra gesti. Þar lýsti
Hedegaard ánægju sinni yfir
ræðu Gunnars Thoroddsens og
yfir miklum og vaxandi áhuga
íslendinga á og þátttöku í nor-
rænni samvinnu.
Vinsælt leikrit
LEIKRIT Gunnars Gunnarsson-
ar, Bragðarefirnir, er mjög vin
sælt í Finnlandi. Það var leikið
í janúar s.L í þætti, sem Finn-
arnir kalla ,,Rithöfundur mánað
arins“ og fluttur er í finnska út-
varpið.
En vinsældir leikritsins voru
svo miklar, að það var endur-
tekið í fiimska útvarpð nú á norr
æna daginn. Þess má að lokum
geta að leikritið var flutt í
danska útvarpið fyrir mörgum
árum.
Á norræna daginn kom einnig
út ný útgáfa á Sögu Borgarætt-
arinnar hjá forlagi Werners Söd
erströms í Helsingfors. Sagan
kom fyrst ú á finnsku fyrir all
mörgum árum.
Laxveiðimynd
STANGVEIÐIFÉLAG Reykja-
víkur hefur í dag kl. 3 kvik-
myndasýningu fyrir félagsmenn
og gesti í Gamla Bíói. Verða þar
sýndar myndir vestan frá
Ameríku t. d. frá Alaska og Ný-
fundnalandL
ÞÓR Félag ungra Sjálfstæðis-
manna á Akranesi Spilað verð
ur Bingó á Hótel Akranesi á
sunn-udagskvöldið kl. 8,30
stundvislega. Glæsileg verð-
laun og dansað verður til kl.
1. Aðgöngumiðar sel/dir við
innganginn sama dag frá kl. 8.
Listasafnið opnað aftur
l\iyndir eftir 48 ísl. málara
LISTASAFN Islands hefur nú
verið opnað á ný, en því var
lokað í nóvember og hefur verið
lokað síðan vegna sýninga á veg
um Menntamálaráðs.
Asókn að safninu þá rúma 10
/5 hnútar I
%ttSVSOhnútor
H SnjHoma
• OH
17 Shúrír
R Þrumur
Vtral!
KuUatki,I
Hitaskii
H, Hai
Lægðarmiðjan er skammt
frá Suðurströnd landsins,
enda er NA-átt og snjókoma
um allt land að heita má. Þó
er frostlaust og slydda eða
rigning í Skaftafellssýslum.
Norðanlands er 1—3 st. frost
á láglendi og hríðarveður.
lægðin þokast austur eftir og
má búast við norðlægri átt
og fremur köldu veðri hér á
landi næstu daga. Snjókoma
hefur verið býsna mikil víða á
Suðurlandi. Á Hellu á Rang-
árvöllum var 24 cm. jafnfall-
inn snjór á föstudagsmorgun.
Veðurapáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-land til Breiðafjarðar
og miðin: Hvass norðan og
víða lítils háttar snjókoma í
nótt, lægir og léttir til á morg
un.
Vestfirðir til NA-lands og
miðin: Norðan stormur í nótt
en fer heldur lygnandi á morg
un, snjókoma.
Austfirðir og miðin: Breyti-
leg átt í nótt, en norðvestan
stinningskaldi á morgun, úr-
komulítið.
SA-land og miðin: Allhvass
NA og síðar norðan, léttir til.
mánuði, sem það var opið 1960,
var góð, eða 11420 gestir. Á ár-
inu voru keyptar 37 myndir til
safnsins.
Dr. Selma Jónsdóttir, listfræð-
ingur, Gunnlaugur Scheving,
listmálari, og Svavar Guðnason,
listmálari, sáu um uppsetningu
þeirra mynda, sem nú eru til
sýnis, en meðal þeirra eru 35,
sem ekki hafa verið sýndar áð-
ur. —
Nú eru til sýnis í safninu
myndir eftir 48 innlenda lista-
menn, sá elzti er Þórarinn B.
Þorláksson (1867—1924), en sá
yngsti Hafsteinn Austmann (f.
1934). Myndimum er þannig
raðað að yngstu málararnir eru
fremst, en þeir elztu innst.
í tveimur hliðarsölum eru
myndir eftir erlenda málara og
eru flestar þeirra gjafir til safns
ins. í öðru þessara herbergja
eru eingöngu myndir eftir Ed-
ward Munch. 1 einum hliðarsal
eru eingöngu myndir úr safni
Markúsar Ivarssonar.
Um safntíma ,er getið í Dag-
bókinni.
10,000 íbúar
í Krúsjeíf
MOSKVU, 14. apríl (NTB/Reut-
er) — Kolanámubærinn Novo-
georgievsk hefur nú hlotið nýtt
nafn. Heitir bærinn héðan í frá
Krúsjeff.
í Krúsjeff eru 10.000 íbúar og
liggur bærinn um 200 kíló-
metrum fyrir suðaustan Kiev.
Skipstjórinn hlaút
230 þús. kr. sekt
Gat ekki séð strondina ur ratsja sinni
eins og hann hafði haldið fram
GILBERT Casson skipstjóri
á brezka togaranum Kingston
Andalusit var í gær dæmdur í
230 þúsund króna sekt fyrir land
helgisbrot. Afli að verðmæti 87
þús. kr. og veiðarfæri að verð-
mæti 90 þús. kr. voru gerð upp-
tæk
Togarinn lagði úr höfn um kl.
4 síðdegis og hafði skipstjórinn
þá áfrýjað málinu til Hæstarétt-
ar og umboðsmaður togarans sett
600 þús. kir. tryggingu fyrir
greiðslu sektar og verðmætis
hins upptekna.
Af forsendum dómsins er það
ljóst, að tvær staðarákvarðanir
úr gæzluflugvélinni Rán teknar
í ratsjá með skömmu miliibili
voru taldar sanna sök skipstjór-
ans, að hann hefði verið rúmar
fjórar sjómílur fyrir innan sex-
mílna mörkin út af Selvogi, en að
þeim mörkum mega brezkir tog-
arar veiða á þessu svæði.
Ósýnilegt i 26% mílna fjarlægð
Hinsvegar var ekki hægt að
byggja á þeirri staðhæfingu skip
stjórans, að hann hefði séð í rat-
sjá togarans, að hann hefði ver-
ið 26% mílu frá ströndinni. Töldu
tveir dómkvaddir siglingafræð-
ingar, að skipstjóri hefði ekki
gdtað séð hina lágu strönd í
ratsjá sinni í svo mikilli fjar-
lægð, einfaldlega vegna þess að
bunga hafsins skyggir þar á. Þeir
töldu að ströndin yrði aðeins séð
úr 11% mílu fjarlægð frá togar-
anum.
Ekki réttlæti
m
Fréttamaður Mbl. hitti skip-
stjórann snöggvast að máli.
— Kom dómurinn yður á
óvart?
— Nei, ég vissi þetta fyrirfram,
mér skilst að við séum alltaf
dæmdir, hvort sem við erum sek.
ir eða saklausir. Hér ræður ekki
réttlæti.
— Eruð þér þá reiður yfir
dómnum.
— Nei, ég er ekkert reiður.
En mér finnst bara að íslending-
ar ættu að setja upp einhver
merki á ströndinni svo hægt sé
að átta sig, á því hvar maður er
staddur. Þarna þar sem ég var
handtekinn er maður svo langt
frá ströndinni, að það er mjög
erfitt að átta sig á því og forðast
að fara inn fyrir. Bezt væri ef
Decca miðunarkerfið væri tekið
upp og fleiri miðunarstöðvar
og að gagnL
Missir réttindi í þrjá mánuði
— Þurfið þér sjálfur að borga
sektina?
— Nei, eigendur togarans gera
það líklega.
— Hvaða áhrif hefur dómur-
inn þá fyrir yður persónulega?
— Skipstjórnarréttindin verða
tekin af mér í þrjá mánuði, þó
ekki fyrr en hæstaréttardómur
Ný verzlun opnar
í Aðalstræti 9
í DAG opnar ný búð í Aðalstræti
9, þar sem áður voru seld teppi.
Búðin sem opnar ber heitið
„Teddýbúðin“ og selur eingöngu
fatnað á börn og unglinga. Verzl-
unin hefur aðallega á boðstól-
um vörur frá Barnafatagerðinni,
en þær vörur hafa áunnið sér
vinsældir fyrir gott snið og vand-
aðan frágang. Verzlunarstjóri í
hinni nýju búð er Soffía Jóhanns
dóttir en eigendur Ásbjörn
Björnsson og Þórhallur Arason.
hefur verið kveðinn upp. Það er
örðugt fyrir mig, missi launin og
ég er orðinn 46 ára. Og ef maður
er kominn yfir fertugt, þá liggja
skipstjórastöðurnar ekki lausar
fyrir.
— Gagarin
Framh. af bls. 1
Moskvubúa voru saman komnir
til að hylla Gagarin. Þegar hann
kom til torgsins var sleppt upp
þúsundum af blöðrum, allsstað-
ar blöktu fánar og þarna voru
gríðarstórar myndir af geimfar-
anum og fyrirmönnum SovétríkJ
anna. Aldrei fyrr hefur íbúum
Moskvu gefizt kostur á að taka
þátt í annarri eins móttöku.
Gagarin tók sér stöðu á þaki
grafhýsis Lenins og stóð þar
milli Krúsjeffs forsætisráðherra
og Breznevs, forseta Sovétríkj-
anna.
Kolumbus
Eftir að þjóðsöngurinn hafði
verið leikinn, hélt Krúsjeff
ræðu af þaki grafhýsisins. —
Beindi hann orðum sínum til
sovétþjóðarinnar og allra þjóða
heims og kvaðst vera bæði
hreykinn og glaður. Geimskip,
byggt í Sovétríkjunum með
sovézkan geimfara um borð,
hafi farið út í geiminn í 500 km
hæð. Það fór umhverfis jörðu
og lenti aftur á fyrirfram
ákveðnum stað í Sovétríkjunum.
Gagarin höfuðsmaður varð fyrsti
maðurinn til að fara umhverfis
jörðina í geimskipi, sagði Krús-
jeff og líkti afreki Gagarins við
það er Kolumbus fann Ameriku.
Óskaði Krúsjeff Gagarin til ham
ingju með afrekið.
Gagarin heiðraður
Gagarin flutti stutt ávarp og
þakkaði kommúnistaflokknum
og ríkisstjóminni fyrir að hafa
fengið það þýðingarmikla verk-
efni að fara þessa fyrstu geim-
ferð. Sagði Gagarin að meðan á
ferðinni stóð hafi hann oft huga
að til flokksins, landsins og
þjóðarinnar. Lauk Gagarin máli
sínu með að þakka Krúsjeff per-
sónulega og að skýra frá þvl
að hann hefði tileinkað væntan-
legu flokksþingi kommúnista-
flokksins árangur fararinnar.
Gagarin var sæmdur ýmsum
æðstu heiðursmerkjum og nafn-
bótum Sovétríkjanna. Har.n
hlaut nafnbótina „Hetja Sovét-
rikjanna", Leninorðuna, nýja
nafnbót, „Geimflugmaður Sovét-
ríkjanna“ og nafnbótina „Heið-
ursíþróttameistari'*. — Ákveðið
hefur verið að reisa af honum
styttu úr kopar í Moskvu.
Samkvæmt öllum fyrri frétt-
um átti Gagarin að hafa lent
geimskipi síirö í Sovétrikjunum,
en nú hefur verið frá því skýrt
að hann hafi komið til jarðar I
fallhlif — og að sögn rússneskra
blaða Ienti hann standandi I
báða fætur án þess að hrasa. —
Lenti hann á nýplægðum akri,
en ekki er sagt hvar. Það var
starfsstúlka á samyrkjubúi, sem
fyrst kom auga á geimfarann.
Sá hún hann svifa til jarðar og
varð óttaslegin, en þegar hún
komst að því að hann værl
Rússi bauð hún hann velkom-
inn og óskaði honum tíl ham-
ingju. Starfsfólk samyrkjubús-
ins hefur ákveðið að reisa
minnisvarða þar sem Gagarin
kom til jarðar.
Athöfninni á Rauðatorginu
var sjónvarpað víða um Evrópu,
m.a. til Bretlands.