Morgunblaðið - 15.04.1961, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. apríl 1961
MORGVNBL AÐIÐ
3
*
ásandinum
ENIU SINNI var þetta skonn-
orta sem var á leið vestur á
Isafjörð til að taka þar fisk
farm. En hún komst þangað
aldrei, því í svartasta skamm
degi fyrir rúmlega 40 árum
strandaði hún austur á Bakka
fjöru í Austur-Landeyjum.
Þetta gerðist í desember-
má.nuði 1920. Og segir Morg-
unblaðið þá frá þessu strandi
m. a. á þessa leið:
í fyrrakvöld um klukkanr 6
strandaði danska segiskipið
Dragör (frá Kaupmannahöfn),
Var það á leið frá Kaupmanna
höfn til ísafjarðar og hafði
engar vörur meðferðis hing-
að, en átti að taka fisk til út-
flutnings á ísafirði.
Skipið er svo hátt uppL í
fjörunni að gengið varð út í
það þurrum fótum um fjöru.
Eru því lítil líkindi til að því
verði náð út, þó enn sé það
óskemmt að öllu leyti. Skip-
verjar voru alls 11, flestir
danskir.
Síðan kemur lýsingin á
skipinu, sem hafði verið fjór-
möstruð skonnorta. í henni
var 160 hestafla hjáJparvél.
Skonnortan var byggð árið
1917 600 tonn að stserð. Þess
er getið nokkru eftir strand-
ið, eða 21. des, að fram hafi
farið uppboð við Dragör á
strandstað. Var allt selt fyrir
30—40 þús. krónur, en skipið
sjálft keypti Hjörtur A. Fjeld
Sted fyrir 6200 krónur. Þá
segir blaðið að skipið hafi ver
ið fullt orðið af sjó og sandi.
Og svona er flakið af
Dragör eftir 40 ára stríð á
sandinum. Var þessi mynd
tekin fyrir nokkru, er skipið
komið út i farveg Markar-
fljóts, því það breytti sér á
síðastliðnu hausti á þessum
slóðum. Þegar fljótið tók að
grafa undan flakinu hafði
það missigið, svo það brotn-
aði. Búast má við að það muni
ekki taka Markarfljót langan
tíma að grafa flakið í hínn
fíngerða og kviksand í árós-
um sínum.
Bandarísk sópran-
söngkona syngur hér
A ÞRIÐJUDAGS- og miðviku-
dagskvöld n.k. efnir Tónlistar-
félagið til tónleika í Austurbæj-
arbíói fyrir styrktarmeðlimi sína
en þar kemur þá fram ung og
efnileg bandarísk sópransöng-
kona, ungfrú Martina Arroyo,
eem á undanförnum þremur ár-
um hefur áunnið sér síaukna
Ihylli tónlistarunnenda og gagn-
rýnenda bæði austan hafs og vest
an.
Martina Arroyo er nú aðeins
25 ára að aldri, hún er fædd í
New Yorkborg og hefur hlotið
alla menntun sína þar, aðallega
við Hunter College og Hunter
College Opera Workshop. Árið
1958, þá aðeins 22 ára, vann hún
hin eftirsóttu verðlaun Metró-
pólitan óperunnar í New York.
Fram að þeim tima hafði hún
aðeins sungið á nemendatónleik-
um, en skömmu eftir að hún
vann þessi verðlaun var hún feng
in til þess að syngja aðalhlutverk
ið í óperu Pizzettis „Assassinio
nella Cattedrale" („Morðið í
dómkirkjunni") við frumflutn-
ing hennar í Carnegie Hall hinn
17. september árið 1958. Hlaut
PRÓFESSOR dr. Franz From frá
Háskólanum í Kaupmannahöfn
kemur hingað í boði Háskóla ís-
lands og flytur tvo fyrirlestra um
eálfræðileg efni.
Fyrri fyrirlestur sinn flytur
próf. From þriðjudag 18. þ.m.
kl. 6 e.h. stundvislega í 1.
kennslustofu Háskólans. í .erindi
þessu fjallar prófessorinn um
„Oplevelser af andres handling-
er“. (Um skilning mann á at
ferli annarra). Síðari fyrirlestur
sinn flytur próf. From föstudag
21. þ.m. kl. 6 e.h. stundvíálega
einnig í 1. kennslustofu Háskól-
hún einróma lof gagnrýnenda
fyrir söng sinn í þessu erfiða hlut
verki, og síðan hefur tónlistar-
ferill hennar verið samfeld sig-
urganga.
Undanfarið hefur ungfrú Arr-
oyo sungið við Metropólitan óper
una og er yngsti söngvarinn við
þá frægu óperu. Kom hún 'fram
á sviðinu í Metropólitan í síðasta
sinn á þessum vetri rétt áður en
hún lagði upp í ferð sína hingað,
en þetta er upphafið að þriðju
tónlistarferð söngkonunnar til
Evrópu.
A tónleikunum n.k. þriðjudags
og miðvikudagskvöld syngur ung
frú Arroyo m. a. söngva eftir þá
Stradella, Gluck, Hándel, R.
Strauss, Rodrigo og Obradors.
Tónlistarfélagið hefur beðið
um að það verði sérstaklega tek-
ið fram að smámistök áttu sér
stað að þessu sinni við útsend-
ingu aðgöngumiða til styrktar-
meðlima félagsins. Þeir sem
veníulega hafa fengið aðgöngu-
miða að fyrri tónleikunum, fengu
þá nú senda að þeim síðari, en
þeir sem venjulega fá miða að
síðafi tónleikunum fengu þá nú
senda að þeim fyrri.
ans. Efni þess erindis er: „Hvor
er vi henne?“ (Hvar erum við
stödd).
Próf. From er fremur ungur
maður; doktorsritgerð sína varði
hann við Hafnarháskóla 1953, og
vakti hún þegar mjög mikla at
hygli. Prófessorinn má tvímæla-
laust tlejast meðal hinna helztu
sálfræðinga á Norðurlöndum, en
er auk þess vinsæll útvarpsfyrir-
.lesari og hefir sérstaklega Ijósa
framsetningu.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrum þessum, meðan hús
rúm leyfir.
Martina Arroyo
HÚSAVÍK, 13. apríl. — 1 vetur
hefur verið svo snjólétt hér um
slóðir, að greiðfært hefur verið
bílum um allar sveitir, en nú
með vordögunum hefur breyting
á orðið, og það, sem af er þess-
um mánuði, hefur verið mesta
vetrarharka; sett niður töluverð-
an snjó og vegi gert illfæra.
Áætlunarbíllinn frá Húsavík til
Akureyrar lagði af stað héðan
kl. 8 í gærmorgun og gekk sæmi-
lega inn eftir, en var þó ekki
þangað kominn fyrr en kl. 3, en
er venjulega kominn þangað fyr-
ir hádegí.
Blindhríð
Kl. 4 lagði bíllinn af stað aftur
heim á leið og gekk ferðin ílla.
Þegar bíllinn var kominn að
Veisuseli, brast á blindstórhríð,
en frá þeim bæ og að Hálsi voru
aðaltálmanirnar vegna snjóa.
Bílstjórinn, Aðalsteinn Guð-
mundsson, hafði fengið sér til
aðstoðar stóran trukkbíl, sem
draga átti hann yfir verstu
torfærurnar, en framdrif hans
Leigja bíla
án bílstjóra
STOFNAÐ hefur verið hér í bæn
um nýtt fyrirtæki, sem leigir út
-bila án bílstjóra. Nefnist það
Farkostur hf. og er í Blönduhlíð
1. Eigendur þess hafa kynnt sér
starfsemi slíkra fyrirtækja er-
lendis, og mun það verða rekið
með líku sniði og þar tíðkast.
Notaðir verða nýir Volkswagen
bílar af árgerð 1961.
Erlendis er það mjög komið í
tízku, að feðamenn, sem ekið
geta sjálfir, taki bíla á leigu og
eru í nágrannalöndunum mörg
fyrirtæki, sem hafa þessa þjón-
ustu með höndum. Hefur Far-
kostur h.f. þegar sent út upplýs-
ingabækling til erlendra aðila
víðs vegar um heim og fengið
hvarvetna góðar undirtektir. Eru
pantanir fyrir sumarið þegar
farnar að berast. Bílar verða að
sjálfsögðu einnig leigðir íslend-
ingum.
brotnaði eftir skamma ferð.
Samt var reynt að halda áfram,
þannig, að trukkbíllinn ók á
undan, en áætlunarbíllinn reyndi
að haída á eftir í slóðina. Ferð
þessi gekk mjög seint og stirð-
lega, og eftir 8 tíma akstur frá
Akureyri voru þeir aðeins komn
ir að Sólvangi, sem er nýbíli hjá
Hallgilsstöðum.
Beiðzt gistingar
Þá voru enn eftir miklar tor-
færur og þær verstu, svo að bíl-
stjórinn ákvað að beiðast gist-
ingar á bænum. Var það auðsótt,
og öllum veittur hinn bezti
beini, þótt rúm væru ekki fyrir
alla og fimm karlar yrðu að sofa
á gólfi.
í morgun var svo fengin jarð-
ýta til að hjálpa bílnum áfram
að Hálsi, en þaðan var greiðfært
að Köldukinn, en fremst í Kinn-
inni var allþung færð. Þó bætti
úr, að mjólkurbíll hafði farið
þar um áður í morgun. Til Húsa-
víkur var komið klukkan að
verða þrjú.
Háskólafyrirlestrar um
sálfrœðileg efni
Erfitt ferðalag
STAKSTEiIHAR
Andstæðingar
kommúnistaþjónkunar
Morgunblaðinu er kunnugt
um, að fjöldi Framsóknarmanna
var eindregið samþykkur lausn
landhelgisdeilunnar, og andvíg-
ur hinni óábyrgu afstöðu flokks-
forystunnar. Er það ekki sízt
úti um land, sem Framsóknar-
mönnum ofbýður kommúnista-
þjónkun leiðtoga sinna. Raunar
mátti líka glöggt greina þreng-
ingar ýmissa þingmanna Fram-
sóknarflokksins við afgrciðslu
málsins. Þó að flokksböndin
héldu, þá var augljóst að þar
breyttu menn þvert um hug
sinn. Auðvitað verður því ekki
neitað að kommúnistaþjónkun
Framsóknarflokksins mun rýra
fylgi hans og þá um leið styrkja
stjórnarflokkana, ekki sízt Sjálf
stæðisflokkinn. Samt sem áður
hlýtur slík afstaða lýðræðis-
flokks að vera öllum góðum
mönnum mikið áhyggjuefni.
Of seint
Enginn efi er á því, að and-
staðan gegn kommúnistaþjónk-
uninni fer vaxandi í Framsókn-
arflokknum. Gallinn er hara sá
að það getur orðið um seinan
að hefjast handa fyrir þá, sem
í einlægni vilja gera flokkinn
að sterku lýðræðislegu afli. Þótt
hinar kommúnistisku undirróð-
ursaðferðir ættu að vera al-
þekktar, þá er því ekki að Ieyna
að það hefur fleiri hent en lýð-
ræðislega sinnaða Framsóknar-
menn að láta leika sig grátt. Við
þekkjum dæmin úr leppríkjun-
um, þar sem kommúnistaflokk-
arnir voru smáir minni hluta
flokkar, en tókst að smeygja
flugumönnum sínum inn í lýð-
ræðisflokka, veikja þá innan frá
og laða til samstarfs við sig með
alkunnum ógnarafleiðingum.
Hliðstæð dæmi eru af öðrum
einræðisöflum, valdatöku þýzku
nasistanna.
Hafa komizt langt
Flugumenn kommúnista hafa
komizt furðulega Iangt í Fram-
sóknarflokknum. Sá flokkur á
allra íslenzkra stjórnmálaflokka
erfiðast með að vera í stjórnar-
andstöðu vegna eðlis síns. Flokk
urinn er hugsjónasnauður orð-
inn, samvinnustefnan var hon-
um áður mikill styrkur, en mis-
notkunin á samvinnufélögunum
er nú orðin Framsóknarmönn-
um fjötur um fót. Flokksforingj-
arnir telja því nauðsynlegt að
halda í sérréttindaaðstöðu og
sitja við kjötkatlana, svo þeir
geti haldið flokksmönnunuin við
efnið með því að útbýta gæð-
um á kostnað ríkisins. Erind-
rekum heimskommúnismans hef
ur tekizt að fá þá til óþjóð-
hollrar stjórnarandstöðu, þar
sem þeir telja pólitískt líf sitt
háð því að kollvarpa ríkisstjórn-
inni og komast sjálfir í ráð-
herrastóla. Það er svo saga út af
fyrir sig, að óðagotið hefur verið
svo gegnsætt, að það hefur bein-
línis valdið því að viðreisnar-
stjórnin hefur stöðugt styrkzt i
sessi. Bardagaaðferðirnar hafa
sjálfar dæmt flokkinn úr leik.
Vissulega er það nauðsynlegt í
sérhverju lýðræðisþjóðfélagi að
hafa heilbrigða stjórnarandstöðu.
Þess vegna er það mjög tryggi-
legt, að Framóknarflokkurinn
skuli hafa brugðizt því hlut-
verki sínu, og ekki búa yfir
nægilegu þreki til að geta um
eins eða tveggja kjörtímabila
skeið gætt hinnar lýðræðislegu
skyldu heilbrigðrar stjórnarand-
stöðu.
*