Morgunblaðið - 15.04.1961, Page 4
<
4
MORGVNBLAÐ1Ð
Laugardagur 15. apr3 1961
r
2 H113
SENOIBÍLASTQOIN
Handrið
úr járni úti, inni.
Verkst. Hreins Huukssonar
Birkihvammi 23 Sími 36770
Milliveggjaplötur
Brunasteypan
Sími 35785.
Smurt brauð
Snittur, brauðtertur. Aí-
greiðum með litlum fyrir-
vara.
Smurbrauðstofa
Vesturbæjar
Hjarðarhaga 47 Sími 16311
Rauðmagi
Spriklandi rauðmagi í vör
inni við Shellportið eftir
kl. 2 í dag.
24 ha. bátamótor
í 1. flokks standi til sðlu
fyrir tækifserisverð. Uppl.
í Síma 13488.
Hestamannafél. Hörður
Munið árshátíð félagsins í
Hlégarði f kvöld. Ferð frá
Félagsgarði í Kjós kl. 7,45.
Ferð frá B. S. L kl. 8,30.
Kona óskar
eftir vinnu 4—5 tíma á dag
Uppl. í síma 32380.
Bell & Howell
sýningarvél 16 mm í góðu
lagi til sölu. Uppl. í síma
10367.
Ýmsar vélar
og tæki til sælgætisgerðar
tii sölu. Uppl. í síma 18499.
Milliveg'gjaplötur
Brunarteypan sf.
Sími 35786.
Ungan ekkjumann
vantar ráðskonu á gott
sveitarheimili í Borgarfirði
Uppl. í sima 33996 eftir kl.
• i kvöld og næstu kvöld.
Upphlutur
sem nýr til sölu með öllu
tilheyrandi. Uppl. í síma
35557.
Skemmtiferðir
Hestar til leigu. Uppl í
síma 23400.
Til leigu
3ja herb. íbúð fyrir barn-
laust reglusamt fólk. Tilb.
sendist Mbl. fyrir mánu-
dagskvöld merkt „Vogar
1031“
í dae er laugardagurinn 15. april.
105. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5:23.
Síðdegisflæði kL 17:45.
Slysavarðstofan er opin ailan sólar-
hringinn. — Læknavörður L.R. (fyrlr
vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8.
Síml 15030.
Næturvörðnr vikuna lð-—22. apríl
er í Reykjavíkurapóteki. Helgidaga-
varzla 20. apríl er i Apóteki Austur
bæjar.
Holtsapótek og Garðsapótek eru
opin alla virka daga kl. 9—7. laugar-
daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Næturlæknir í Hafnarfirði frá 18.
—22. april er Eiríkur Björnsson, simi
50235. Helgidagalæknir 20. april er
Garðar Ölafsson simi 50536 og 50861.
Ljósastofa Hvítabandsins er að Fom
haga 8. Ljósböð fyrir börn og full-
orðna. Upplýsingar í síma: 16699.
□ G-imli 59614177 — 1.
□ EDDA 59614156 == 3
□ EDDA 59614153 s= 3
Frá Blóðbankanum. Margir eru þeir,
sem lengi hafa ætlað sér að gefa blóð.
Nú er vöntun á blóði og fólk er því
vinsamlegast beðið að koma í Blóðbank
ann til blóðgjafar. Enginn veit hvenær
hann þarf sjálfur á blóði að halda.
Opil milli kl. 9 og 12 og 13 til 17. Blóð
bankinn í Reykjavík, sími 19509.
Tjarnarlundur, Keflavík: „Söfnuður
inn og gildi hans4', nefnist erindið, sem
Svein B. Johansen flytur á morgun
kl. 20,30.
Skaftfelligar, munið skemmtifund
Skaftfellingafélagsins í Skátaheimilinu
(nýja salnum) kl. 21 í kvöld, fjölmenn
ið og takið gesti með.
Kvenfélag Langholtssóknar heldur
bazar 9. maí n.k. Skorað er á félagskon
ur og aðrar konur í sókninni, er vildu
gefa muni, að koma þeim á þessa staði:
Skipasund 37, Karfavog46, Sólheima 17,
Langholtsveg 2 og Bókabúðina Lang-
holtsvegi 51. Allar upplýsingar gefnar
í símum 35824 og 33651.
Ungmennafélagið Afturelding heldur
kvöldvöku að Hlégarði, sunnudaginn
1«. apríl kl. 8,30.
Messur á morgun
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11 f.h.,
ferming, sr. Sigurjón Þ. Árnason. —
Messa kl. 2 e.h., ferming, sr. Jakob
Jónsson.
Háteigsprestakall: Messa i hátíðasal
Sjómannaskólans kl. 2. Barnasamkoma
kl. 10,30, sr. Jón Þorvarðarson.
Neskirkja: Ferming kl. 11 f.h. og alt
arisganga, sr. Jón Thorarensen.
Laugarneskirkja: Messa kl. 10,30 fJi.
Ferming, altarisganga og messa kl. 2
e.h. Ferming, altarisganga, sr. Garðar
Svavarsson.
Bústaðasókn: Bamasamkoma í Háa-
gerðisskóla kl. 10,30 árdegis.
Fríkirkjan: Fermingarmessa kl. 2,
sr. Þorsteinn Bjömsson.
Elliheimilið: Guðsþjónusta kl. 2 e.fc.
Heimilispresturinn.
Fríkirkjan f Hafnarfirði: Messa kl. 2
e.h., ferming, sr. Kristinn Stefánsson.
Hafnarf jarðarkirkja: Messa kl. 2 eii.
Ferming, sr. Garðar Þorsteinsson.
Kirkja Óháða safnaðarins: Ferming
armessa kl. 2 edi., sr. Bjöm Magnús-
son.
Mosfellsprestakall: — Skátamessa að
Lágafelli kl. 2 e.h. — Séra Bjarni
Sigurðsson.
Grindavík: Bamaguðsþjónusta kl.
11 f.h. Sóknarprestur.
Aðventkirkjan: „Eru örlög mannsins
fyrirfram ráðin?“ nefnist erindi, sem
Svein B. Johansen flytur á morgun kl.
5 e.h.
Keflavík: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Njarðvík: Barnaguðsþjónusta kl. 1,30
sr. Björn Jónsson.
Akraneskirkja: — Messa kl. 2 e.h. —
Sóknarprestur.
f dag verða gefin saman í
hjónaband af prófessor Jóhanni
Hannessyni ungfrú Guðrún Jó-
hanna Auðunsdóttir bankaritari,
Hverfisgötu 99A og Lúðvik Leós-
son húsasmiður, Grensásvegi 3.
Heimil þeirra verður að Klepps
vegi 26.
Á sunnudaginn var voru gefin
saman í hjónaband í Washington,
ungfrú Huld Hilmarsdóttir, Sund
laugavegi 22 og Robert Goithe,
veitingamaður.
Nýlega hafa verið gefin saman
í hjónaband ungfrú Sigríður
Hrönn Hámundardóttir og
Marínó Jónsson, starfsmaður hjá
Gefjunni. Heimili irngu hjónanna
er á Byggðavegi 134, Akureyri.
Móises á steininn sló
stillt með sprota naumum,
og það skeði, að hann spjó
úr sér vatnastraumnum.
Eins ég þinn á bumbinn ber
og bið um litinn sopa. _
Láttu fljóta fram úr þér
fríðar náðar dropa.
(Sigurður Breiðfjörð: Við tunnuspons
kveðið).
NÚ hafa enn einn sinni verið i
valdar bezt klæddu konur (
heims og mun sjálfsagt engum |
koma á óvart, að hin nýja for ]
setafrú Bandaríkjanna Jacque'
line Kennedy er í efsta sæti.
Hinar eru: greifafrú Jacque- i
iine de Ribes, París, Audrey ,
Hepbum, leikkona, frú Nor-'
man K. Winston, New Xork, |
frú Maria Agnelle, Turin j
(Fiat-verksmiðjurxiar) og ]
prinsessa Alexandra af Kent.
Félag bandarískra tízku-
frömuða hefur verðlaunað |
sex bandarískar konur fyrir j
góðan smekk á höttum og J
voru verðlaunin smáar hatt-
öskjur úr gulli. Meðal þeirra|
kvenna er þau hlutu eru leik- j
konurnar Irene Dunn, Loretta ,
Yong, Arlene Dahl og Joan'
Fontaine.
Fjórir góðglaðir herrar komu
inn á bar og er þeir komu að
afgreiðsluborðinu, segir sá
fyrsti:
— Einn gin.
— Einn cognac, segir sá næsti.
— Einn whisky, segir sá þriðji
— Það sama og hinir, segir sá
fjórði.
Maria litla, sem var 6 ára,
var með tárin í augunum og
amma hennar spurði: — Hvað
er að, María litla?
— Uhu, ég var að rífast við
dóttur þína.
?33
— Niðuri
JUMBO í KINA
+ +
Teiknari J. Mora
i
W&SZ&Í, Vfth. 4/ / /I ■ 'nBrnf^'T
1) Það var svo niikil ferð á
skepnunni, að hún kom ekki einu
sinni við hið litla þak fyrir utan,
heldur hélt áfram út í tómið . . .
2) . . . og lenti loks með heljar-
miklu skvampi niðri í ánni. Það var
vissulega þungu fargi létt af Júmbó,
þegar hann gekk aftur fram í dyrn-
ar, þar sem hr. Leó stóð.
3) —• Mikið skelfilega var ég
hræddur, andvarpaði hr. Leó. — Að
hugsa sér, ef tígrisdýrið hefði nú
étið þig! — Jæja, ætli það sé ekki
bezt að halda leitinni áfram, sagði
Júmbó og bar sig mannalega.
Jakob blaðamaður
Eftir Peter Hoffman
— Ungfrú Dawson, að hvaða leyti
var Clary öðruvísi en hann átti að
sér í gærkvöldi?
— Það er eins og ég sagði lögregl-
unni . . . Hann var ekki hann sjálf-
ur! Það sem hann sagði! . . . Það
sem hann gerði!
Hvað var það sem hann gerði?
— Ja . . . Ef þér lofið að birta
það ekki í blaðinu . . ,
— Eigið þér við að hann hafi einn-
ig tekið peninga frá yður?