Morgunblaðið - 15.04.1961, Page 5
Laugardagur 15. aprfl 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
<*%«■«
UM SKEIÐ hefur dvalizt hér
á landi í boði Ferðaskrifstofu
ríkisins, Jan Herchenröder,
þýzkjur blaðamaður og rithöf-
undur. Herchenröder hefur á
undanförnum árum ferðast
mikið um Noröurlönd og
kynnt sér málefni þeirra. Hef-
ur hann ritað bók um dvöl sína
í Svíþjóð og vinnur nú að
samningu handbókar fyrir þá,
sem vilja ferðast með bifreið-
um frá Þýzkalandi til Dan-
merkur.
Herchenröder er senn á för-
um til Þýzkalands og mun þá
rita um íslandsferð sína fyrir
blöðin Frankfurter Allgem-
eine Zeitung, Lúbecker Nach-
richten, Herrenjournal í Berl-
ín og Stuttgarter Zeitung.
f viðtali við Morgunblaðið
sagði Herchendröder að til-
gangurinn með greinum sín-
um sé að hvetja Þjóðverja til
íslandsferða — þótt áhugi sé
nú reyndar allmikill þegar,
sagði hann. En það ætti að
verða kostnaðarminna en áð-
ur að ferðast um ísland, þar
sem meira samræmi er nú
milli hins íslenzka og þýzka
gjaldmiðils en verið hefur.
Óneitanlega hlýtiur gistihúsa
skorturinn hér að valda nokkr
um vandkvæðum, hélt hann
áfram, en hugmynd mín er sú
að hvetja fólk til að fara helzt
til íslands í júní — eða septem
ber, fremur en um hásumar-
tímann. Það er hvort sem er
ekki beinlínis hægt að mæla
með því við menn, að þeir
fari hingað til þess að baða
sig í sjónum og sóla sig á
ströndinni, sagði Herchenröd-
er. íslendingar verða að leggja
áherzlu á að laða ferðamenn
að því sem þeir eiga fegurst
— sem er hið sérkennilega
landslag og fögur litbrigði
náttúrunnar — og vekja áhuga
þeirra, sem ánægju hafa af
göngtuferðum um fjöll og firn-
indi.
Herchenröder sagðist hafa
komið hingað í boði Ferðaskrif
stofunnar, fyrir milligöngu
Scandinavisches Verkehrsbur-
eau, sem fsland væri aðili að.
Hann sagði, að Þjóðverjar
hefðu nú um alllangt skeið
ferðazt um ftalíu, Frakkland,
Spán og fleiri suðlæg lönd, en
nú væri áhugi þeirra óðum að
beinast í norðurátt. Hefði
ferðamannastraumurinn til
Norðurlanda vaxið ótrúlega
síðustu áarin, og mætti nú bú-
ast við að augu þeirra beind-
ust í æ ríkari mæli til íslands
og Grænlands.
Þar sem réttarhöldin í máli
Adolfs Eiclimanns eru nú rétt
hafin í fsrael leikur okkur for-
vitni á að heyra af vörum hins
þýzka blaðamanns, hver séu
viðbrögð almennings í Þýzka-
Iandi við málinu, og hvort það
sé ekki mikið rætt.
— Vitaskuld get ég ekki
fullyrt neitt almennt um það,
sagði Herchenröder, en það
virðist ekki vera. Eg held helzt
að meiri hluti landsmanna líti
málið sömu augum og aðra at-
hyglisverða heimsviðburði. —
Persónulega tel ég vel farið
að Eichmann skuli fundinn og
leiddur fyrir rétt, enda þótt
mér finnist ekki með öllu rétt
að ísraelsmenn skyldu flytja
hann nauðugan og með Ieynd
frá Argentínu. Hefði verið
eðlilegast að þeir hefðu skýrt
frá því að hann væri fundinn
og síðan hefði verið f jallað um
mál hans fyrir þýzkum dóm-
stóli. En þess ber þá einnig að
gæta að dauðarefsing tíðkast
ekki í Þýzkalandi og þótt ég
sé persónulega andvígur dauða
refsingu, tel ég afbrot F.ich-
manns þess eðlis, að hann
hljóti að fá þann dóm.
OFT hefur Jobbi sagt þaö og
meiraösegja á prenti, að fáir
hlutir í menningarlífi þjóðarinn-
ar eru jafnmikilvœgir og upp-
byggilegir í alla staði og dans-
lagákeppnir. •— Sömuleiðis
kvusskyns dansmenning. Ber því
að þakka háttvirtu Ríkisútvarpi fyrir þá drjúgu menn-
ingarviöleitni, sem það sýnir meö því aö láta sérmenntaðan
dansara telja uppað þremur í útvarpið ööru hverju og
vœla soltiö á milli.
I.oftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er
væntanlegur frá Hamborg, Khöfn og
Gautaborg kl. 22. Fer til New Vork
kl. 23,30.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
fór frá Vestm.eyjum í gær til Keíla
víkur og þaSan annað kvöld til New
York. Dettifoss er á leið til Hamborgar.
Fjallfoss fór frá Keflavík í gær til
Hafnarfjarðar og Rvíkur. Goðafoss er
í Rvík. Gullfoss kom Khafnar 14. apríl
Lagarfoss fór frá Fatreksfirði i gær
til Vestfjarðar- og Faxaflóahafna. —
Reykjafoss fer frá Rotterdam I dag til
Antwerpen. Selfoss er á leið til Rvíkur
Tröllafoss fer frá Reykjavík í kvöld
til Akureyrar og Siglufjarðar. Tungu
foss er á leið til Gautaborgar og Rvik.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er I Sölvesborg. Askja lestar á
Breiðaf j arðarhöf num.
Þóað úngskáldunum þyki það ekki samboöiö viröingu (!)
sinni aö yrkja danslagatexta, er Jobbi aíveg brandsjúr á
þvi, að bœöi Fjórtándi September, Þrítugasti og fyssti mæ
og hvað þeir nú heita allir mánaöardagarnir hafa unniö
þarfara verk í þágu menningarinnar og þá einkum œsku-
lýösmenningarinnar heldur en jafnvel Herra Hoffmann, og
er þá langt til jafnað.
Nú hefur Doktor Þrítugasti og fyssti mæ sent mér
prýðilegan texta, sem ég vona að mússíkantar vorir semji
angurblíöa dansmelódíu við í snarheitum, — ef þeir finna
þá ekki eitthvert gamalt lag, sem má nota. Minnstakosti
mætti reyna að finna einhverja parta úr gömlum lögum
til að flýta fyrir innspírasjóninni, ef hún er eitthvaö döpur.
Og þá kemur textinu og mundi sœma hvaöa Doktori sem
væri:
V O R 1 B O R G I N N I .
(Stóru stafirnir eiga aö tákna, aö það á að
œpa upp nábbniö)
Vorið er komiö, og gæjarnir góna
girugum freðsjónum skvísurnar á,
syngur i öllu, og senn kemur Jóna
svifandi i vœkántnum erlendis frá.
Nú tekur hýrna um herbergiö hér,
hreiörar sig Jóna í fanginu á mér!
„—- Malbikið glottiÐ og glampaÐ á okkuÐ —“,
gulbröndótt emjar í portinu fress,
röddin er mikil, en raunáleg nokkuð
rétt eins og mússík frá Svavari Gesss.
Jöklar h.f.í Langjökull er á leið tíl
Rvíkur. Vatnajökull er í Grimsby.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er á
Reyðarfirði, fer þaðan í dag til Rrem
en. Arnarfell fer í dag frá Rotterdam
áleiðis til Austfjarða. Jökulfell er
væntanlegt til Tönsberg á morgun.
Dísarfell er á leið til Austfjarða. Litla
fell er á leið til Rvíkur. Helgaíell er
á leið til Rvíkur. Hamrafell kemur til
Amuay á morgun frá Rvík.
Söfnin
Listasafn íslands er opið sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1,30—4 e.h.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1,30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 eh.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. 8—10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
Bæjarbókasafn Reykjavfkur sími:
12308 — Aðalsafnið, Þingþoltsstræti 29a
Útlán: Opið 2—10, nema laugard. 2—7
og sunnud. 5—7 Lesstofa: Opin 10—10
nema laugard. 10—7 og sunnud. 2—7.
Útibúið Hólmgarði 34: Opið alla
virka daga 5—7.
Útibúið Hafsvallagötu 16: Opið all«
virka daga frá 17.30—19.30.
Tæknibókasafn IMSÍ í Iðnskólahús-
inu Skólavörðutorgi er opið virka
daga frá kl. 13—19, nema laugardaga
kl. 1.30—4 e.h.
Doktor Þrítugasti og fyssti mæ.
Ftð þennan ágæta texta hefur Jobbi sosum eingu að bæta
nema þvi, aö miöbikiö á kvœöinu meö malbikinu og gœsa-
löpponum (einsog viö kölluöum það á Króknum) og eöon-
um er aXveg gasálega sniöug uppfynding, sem mœtti kannski
veröa atómskáldum til fyrirmyndar.
Það sem er gagnlegast af öllu, sem
mennirnir sækjast eftir, er að gera
eitthvað öðrum til góðs. — Bailey.
Höfuðgallin er að hafa galla án þess
að reyna að bæta úr þeim. Konfucius
Hvít kisa
með grábröndótt skott,
bletti á bakinu og höfðinu
hefur tapast. Sími 23669.
Óska eftir konu
til húsverka. Frítt húsnæði
og fæði. Engin börn. Uppl.
í síma 16626.
Garðeigendur
Kúamykja til sölu og af-
greiðslu nú þegar.
Sími 14770.
Ung hjón
sem bæði vinna úti óska
eftir 1—2ja herb. íbúð
strax. Uppl. í síma 351&5.
Veðskuldabréf
Til sölu vel fasteignatryggð
bréf um kr. 100,000,—. Tilb
sendist Mbl. merkt „Hag-
kvæm viðskipti — 1034“
Píanó
Notað píanó til sölu, ódýrt.
Sími 34614.
Til leigu
ný íbúð við Kleppsveg 4—
5 herb., leigð strax. Nöfn
og uppl. um fjölskyldu
ástæður sendis Mbl. merkt
1900.
Stúlka
vön afgreiðslu óskar eftir
innanbúðarstörfum eða
annari atvinnu um 1. maí.
Sími 34145.
Stór ísskápur
og búðarvog má vera not-
að, óskast til kaups. Uppl.
í kvöld frá kl. 8—10. Sími
37206.
Timbur
5—600 fet af 2x4 óskast.
Notað og ódýrt Sími 10615.
Sumarbústaður
Sumarbústaður við Þing-
vallavatn til sölu. Veiði-
leyfi fylgir. Tilb. sendist á
afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m.
merkt: „B. J. — 1026“.
Hjón
með 3ja ára telpu óska eft-
ir 2ja—3ja herb. íbúð '1.
eða 14. maí. Uppl. í síma
24070.
Geymslubraggi
50—100 ferm. eða góður
skúr óskast til leigu eða
kaups. Uppl. í síma 34576.
íbúð óskast
2—3 herb. óskast til leigu.
Uppl. 1 síma 19095.
Hafnarfjörður
Til leigu ný risíbúð 2 herb.
og eldhús fyrir barnlaust
fólk. Tilb. merkt „Sólrík"
sendist í pósthólf 706
Hafnarfirði.
Félag íslenzkra stórkaupmanna
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Þjóðlélkhúskjallaram.m
á morgun laugardaginn 15. apríl og hefst fundurinn
með borðhaldi kl. 21,15.
Dagskrá fundarins verður:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt félagslögum_
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna
þátttöku sína í skrifstofu félagsins í dag í síma
15407 og 19813.
STJÓRNIN.
Félagsvist og Bingó
Síðasta spilakvöld með Bingó og dansi verður
í kvöld, laugardag kl. 8,30 e.h. í Tjarnarcafé (uppi).
Hver hreppir verðlaunin. — Verðmæti ca. kr. 1.500
fyrir flesta slagi á vetrinum.
Fjölmennið og takið gesti með.
Verkstjóraféiag Reykjavíkur.
MÁLIÐ EKKI ÚTVEGGI
áður en VATNVERJA-SILCONE er borið á.
Hafið samband við SILICONE SÉRFRÆÐING okkar,
sem veitir yður allar nánari uppl. um notkun efnisins
endurgjaldslaust og án skuldbindinga.
Skrifið eða hringið í síma 35-6-36.
Verksmiðjan KlSILL, Pósthólf 335 Reykjavík.
ATHUGIB
að borið saman - '3 útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —