Morgunblaðið - 25.04.1961, Blaðsíða 24
Verkfallið í
Keflavík
ólögmœtt
1 GÆR féU dómur í málinu, sem
Vinnveitendasamband ísl. höfð-
aði fyrir Félagsdómi fyrir hönd
Vinnuveitendafélags Suðurnesja
gegn Alþýðusambandi Islands
fyrir hönd Verkakvennafélags
Keflavíkur og Njarðvíkur. Vinnu
veitendafélagið taldi að verka-
kvennafélagið hefði aldrei sagt
upp samningum og það hefði því
ekki heimild til að hefja verk-
íallið.
Féll dómur þannig, að verk-
fallið var talið ólögmætt gagn-
vart Vinnuveitendafélagi Suður-
nesja, þar sem eigi var sannað
að lögmaet uppsögn hefði farið
£ram á samningi aðiljanna frá 2.
október 1958 og er hann því enn
í gildi og óheimilt að hefja verk-
faU til að knýja fram breytingar
á honum.
Umrætt verkfall verkakvenna
I Keflavík og Njarðvíkum hefur
staðið síðan 25. marz eða í rúmar
#iórar vikur.
[
Guðrún Jónsdóttir I Listamannaskálanum, við borðið sem
„peningakassinn“ stóð á. Hún er með nýjan kassa, mjög líkan
þeim gamla. Maðurinn hafði verið unglegur í hreyfingum,
sagði Guðrún (Ljósm. Mbl.: Öl. K. M.)
Maður með grímu
rændi abgongumickisöluna
i Lisfamannaskálanum
30 lestir í róöri
að meðaltali
KEFLAVÍK, 24. apríl. — í gær
og í dag var eitt bezta veiði-
veður sem verið hefur fyrir
Keflavíkurbáta. Undanfarið hef-
ur veiðiveður verið erfitt til
sjósóknar, en afli hefur verið
góður, þó alltaf talsvert mis-
jafn, bátarnir haft 4—8 lestir.
'Aflahæstur er nú Ólafur Magn-
ússon. Er hann búinn að fá 409
lestir í 50 róðrum og á síðustu
8 dögum kom hann með 242 lest-
ir eða að meðaltali 30 lestir í
róðri. Ólafur Magnússon hóf
veiðar 7. janúar og á þessum
sama tíma hefur hann einnig
fengið 414 lestir af síld, sem er
sérstaklega mikill afli. Skipstjóri
á Ölafi Magnússyni er Óskar
Ingibersson.
Næstu bátar fyrir neðan hafa
780—790 lestir. Allur fiskur, sem
berst til Keflavíkur nú er salt-
aður, því verkfall stendur yfir.
— Helgi.
„Eddaw í Kópa-
vogi
H AND AVINNUKV ÖLD Sjálf-
stæðiskvennafélagsins í Kópa-
vogi verður haldið í Melgerði 1
í kvöld (þriðjudagskvöld) kl.
8:30. Kosnir verða fulltrúar á
Landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Kono Iézt
í brunn
ó Þingeyri
A LAUGARDAGSKVÖLDBÐ um
kl. 20.30 varð elds vart í húsinu
Fjarðarstræti 20 á ÞingeyrL Það
er Htið timburhús og bjó þar ein
feona í norðurenda hússins, Jó-
hanna Jóhannsdóttir. Varð það
fyrst fyrir að athuga um hana,
en hún var þá látin, og telur
læknir að hún hafi verið látin
fyrir nokkrum klst.
Slökkviliðið var rúma klst. að
slökkva eldinn. Húsið stendur en
er mikið skemmt af eldi og reyk.
Skemmdir af
hlákunni á
Raufarhöfn
RAUFARHÖFN, 24. apríl — Hin
öra hláka síðustu daga hefir að
mestu brætt snjóinn, sem kom í
stórhríðinni. Hefur það ollið
flóðum og vatnavöxtum hér í
þorpinu. Stíflugarðurinn kring-
um vatn, er átti að geyma til
sumars til verksmiðjureksturs og
iðnaðar hefir sprungið. Og fram-
ræslan í þorpinu orsakar, að
flætt hefur inn í kjallara húsa
og orsakað nokkrar skemmdir.
— Einar.
EINSTÆÐUR atburður átti
sér stað hér í bænuta í
björtu á sunnudagskvöldið.
Maður með klút fyrir andliti,
snaraðist inn í Listamanna-
skálann við Kirkjustræti og
greip þar lítinn kassa með
nokkurri fjárhæð af inngangs
eyri sýningargesta.
Um þessar mundir hefur Félag
íslenzkra myndlistarmanna yfir-
litssýningu á verkum frú Bar-
böru Árnason í Listamannaskál-
anum. Á sunnudaginn var aðsókn
að sýningunni allgóð.
Klukkan 7—8 voru þó nokkrir
gestir í salnum. Úti við dyrnar
sat Guðrún Jónsdóttir er annast
daglega vörzlu á sýningum, við
lítið borð, þar sem hún að vanda
veitir aðgangseyri móttöku og
afhendir gestum sýningarskrár.
Hrifsaði kassann af konunni
Guðrún Jónsdóttir, sem verið
hefur í mörg ár í Listamannaskál
anum við listsýningar, vissi ekki
fyrr til en hurðinni er hrundið
upp og inn snarast maður í
dökkum frakka og dökkum föt-
um. Hafði sá klút fyrir efra
andliti, er féll þétt að því. Göt
voru fyrir augun á þessari grímu
mannsins.
Hann greip litla kassann með
inngangseyrinum í, en það var
vindlakassi, og var samstundis
kominn út aftur. En Guð-
rún hljóp á eftir honum, og það
sá hún síðast til þjófsíns að hann
hvarf að húsabaki við Hótel
Skjaldbreið og nærliggjandi hús
í Kirkjustræti.
Xveir í vitorði?
Það voru um 1000 krónur í
Næsthæsta togara-
sala í Bretlandi
Nú aðeins seld
I FYRRINÓTT seldi togarinn
Júpiter 221 lest af fiski I Hull
fyrir 18951 pund, og er það næst
hæsta sala íslenzks togara í
Bretlandi. Hæstu sölu hafði
Neptúnus árið 1947, seldi fyrir
tæplega 19100 pund, en í báðum
þessum söluferðum hefur Bjarni
Ingimarsson verið skipstjóri.
Mest af afla Júpiters var ýsa
eða 165 lestir, og flatfiskur. —
Sneri skipið við með um 25 lest
ir af þorskl, eftir að hafa fyllt
upp í hið litla magn sem eftir
var cif þorskkvóta mánaðarins.
ýsa og flatíiskur
Hallveig Fróðadóttir seldi
einnig 112 lestir í Hull fyrir.
10701 sterlingspund. Var það
eingöngu ýsa og flatfiskur. Þá
átti togarinn Pétur Halldórsson
að selja í Grimsby í nótt og
Marz í Hull, og voru þeir með
ýsu og flatfisk.
Sólborg frá ísafirði átti að
selja blandaðan farm, ýsu, þorsk
og upsa í Bremerhaven í
dag. Þetta verða seinustu ís-
fisksölumar í þessum mánuði,
nema síldarsölur á Þýzkalands-
markaðL
Þýzka sendiráðið
mótmœlir harðlega
peningum í kassanum, sagði Guð
rún við blaðamann Mbl. í gær.
— Peningarnir eru ekki það
versta heldur hitt að maður skuli
geta átt það yfic höfði sér, að
fá svona heimsóknir hér í skál-
ann, sagði Guðrún, sem kvaðst
hafa kynnzt ýmsu óvenjulegu 1
sambandi við langt starf sitt við
gæzlu listsýninga í Listamanna-
skálanum. Og Guðrún kvaðst
hafa heyrt það frá vegfarendum
að tveir menn myndu hafa ver-
ið í vitorði með þjófnum. Til
þeirra átti að hafa sézt á harða-
hlaupum eða á einhvers konar
verði við Listamannaskálann rétt
um það leyti sem þjófnaðurinn
var framinn.
LUBLIN, Póllandi, 24. april. —
(Reuter) — Átta ára drengur,
sem var að leika sér að eld-
spýtum, olli í gær stórbruna í
þorpinu Karozmiska. 43 íbúðar-
og gripahús gjöreyðilögðust.
EINS og skýrt var frá hér í blað-
inu á sunnudag fór strákahópur,
sem miHi telja sig nýnazistahóp, í
göngu á sumardaginn fyrsta und-
ir hakakrossfána, frá Fossvogs-
kapellu og að grafreit þýzkra og
austurrískra hermanna í kirkju-
garðipum þar. Héldu þeir þar
einhvers konar athöfn og lögðu
blömsveig á leiðin.
Vegna þessa atburðar hefur
talsmaður þýzka sendiráðsins í
Reykjavík lýst yfir því, að sendi-
ráðið telji atburð þennan ekki
aðeins hryggilegan, heldur bein-
línis andstyggilegan.
Talsmanni sendiráðsins farast
svo orð, að hinir austurrísku og
þýzku hermenn, sem þama liggi,
hafi látið líf sitt á unga aldri
fyrir hinar Sömu vitfirringslegu
hugmyndir, sem íslenzkir nýnaz*
istar vilji nú breiða út eð nýju.
Þess vegna sé athöfn þessi ekki
einungis óleyfileg misnotkun á
þ ý z k a hermannagrafreitnum,
heldur einnig svívirðing við fórn-
arlömb nazismans, sem þarna
hafa hlotið hinzta hvílustað sinn.
Talsmaður sendiráðsins tók
einnig fram, að grafreitur þessi
væri ekki gerður í tíð hins natio-
nal-sósíalistiska Þýzkalands, held
ur af Sambandslýðveldinu Þýzka
landi. Hann á að vera þeim, sem
þarna eiga leið um, hvatning til
þess að tryggja frið í heiminumt
Sendiráðið frábiður sér í fram
tíðinni mjög eindregið hvers kon
ar misnotkun á grafreitum, sem
eru í umsjá og vörzlu þess. >
Sigurður með 450 lesfir
síldar til Þýzkalands
Sild við Reykjanes um helgina
Hér er verið að Ijúka vlð t
að lesta togarann Sigurð. (
Á móti rúmlega 400 lest- 1
um af síld fóru um 140
lestir af ís. Það var stöð-
ug bílaröð með síld á palli
á bryggjunni.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
HINN stóri togari Sigurður,
sem undanfarna mánuði hef-
ur legið bundinn vestur í
„þanghafi", var leystur á
sunnudaginn og færður að
Faxagarði, þar sem byrjað
var þá þegar að setja í skip-
ið nýveidda síld af Reykja-
nesmiðum. í gærkvöldi milli
klukkan 8 og 9 lagði togarinn
af stað með fullfermi síldar,
445 lestir, áleiðis til Þýzka-
lands.
Bátarnir hafa verið í síld við
Reykjanes um helgina með góð-
um árangri, svo sem sjá má af
síldarfarmi Sigurðar. Var það
fallegasta síld sem veiddist á
sunnudaginn, hæfilega feit til
reykingar. Mun hin ísvarða fersk
síld að mestu fara til reykingar,
er á Þýzkalandsmarkað kemur.
Jóhann Magnússon fyrrum tog-
araskipstjóri og núverandi hafn-
sögumaður, var 1. stýrimaður
togarans, en skráður skip-
stjóri var Jón Sigurðsson. Farm-
inn eiga áhafnir bátanna sem
Framhald á bls. 23.