Morgunblaðið - 29.04.1961, Blaðsíða 3
f Laugardagur 29. apríl 1961
MORVUNBLAÐ1Ð
3
Vasa lig-gur hér í öryggi milli lyftuskipanna Friggjar og
Óðins, sem notuð voru við björgunin. f miðju skipinu sjást
„polla" stytturuar tvær sem ekki höfðu séð dagsins ljós
í 333 ár.
Upp í sólskinið efti 333 ár
umhverfið breyzt á þessum
333 árum — og „kallarnir"
fundu fljótt á sér, að þeim
yrði búin önnur og betri vist,
en þeir höfðu átt í gamla daga
er þeir voru sífellt reyrðir
reipum. Eitt var þó óbreytt —
sólskinið — í>eir höfðu farið
niður í sólskini og komu aftur
upp í sólskini.
Verkfræðingurinn Og kafár-
inn réru út að „pollunum“ og
vippuðu sér yfir á stöpulinn,
sem þeir stóðu á. Þeir klöpp-
úðu þeim blíðlega á kollana,
sem þegar voru orðnir þurrir
í sólskininu. Verkfræðingur-
inn var stoltur — hann hafði
fundið þetta skip, sem verið
hafði þjóðarstolt Svía á sínum
tíma. Og hann hló við sólinni
og fólkinu sem stóð allt í
kring um hann.
Fræðimenn, börn og gamal-
menni biðu með mestri eftir-
væntingu. Börnin lifðu í hug-
anum ævintýrið um hið mikla
sigursæla skip Vasa — sem
aldrei varð svo neitt ævin-
týri. Gamla fólkið hugsaði um
„Pollarnir".
soguna og fræðimenmrnir
biðu með öndina í hálsinum
eftir því að sjá, hvort skipið
væri eins byggt og þeir töldu
að 16. og 17. aldar skip hefði
verið. Gamall skipstjóri sagði
— O-ja, hefði flotastjórnin *
hlýtt á gamla aðmírálinn í I)
þá daga, hefði þetta skip .
aldrei þurft að eiga slík örlög
— en þá hefðum við ef til vill
heldur ekki lifað þennan dag, I
Æfingar hafnar
á „Sigauna-
baróninum64
ÆFINGAR eru nú byrjaðar í
Þjóðleikhúsinu á óperettunni
Sígaunabaróninum eftir Strauss.
Leikstjóri sá sem fenginn hafði
verið, Carl Gustav Kruse frá
Malmö, gat ekki komið, en í
staðinn var fenginn Svíinn So-
lini Wallenius. Er hann nú kom-
inn hingað og æfingar hafnar.
Frumsýning er áformuð 25. maí.
Aðalhlutverkið í óperettunni
syngur söngkona frá Vínarborg,
Christine von Widmar. Hún er
nú að syngja á ítalíu, fór þang-
að frá Lausanne í Sviss, en kem
ur síðan hingað. Guðmundur
Guðjónsson syngur titilhlutverk
ið og aðrir íslendingar í aðal-
hlutverkum eru Guðmundur
Jónsson, Þuríður Pálsdóttir og
Sigurveig Hjaltested. Og auk
þeirra syngja Þorsteinn Hannes-
son, Erlingur Vigfússon og Guð-
rún Þorsteinsdóttir.
Soine Wallenus leik*'' *
KLUKKAN var tuttugu mín-
útur gengin í þrjú á mánu-
daginn, þegar Anders Franzén
verkfræðingur reri ásamt
Edvin Falting, kafara, út í
sænska stórskipið Vasa, sem
legið hefur á sjávarbotni á
32 metra dýpi í 333 ár. Með
ferðum þeirra fylgdust tugir
þúsunda áhorfenda í landi,
sem hylltu þá með húrrahróp-
um og lófaklappi, auk þeirra
milljóna sem fylgdust með
þessum merkiviðburði í út-
varpi og sjónvarpi.
Það var fyrst kl. 9 um morg
uninn, að hvirfillinn á annarri
styttunni af tveim, sem eru
um miðbik skipsins og notaðar
voru sem festingar, braut sjáv
arflötinn og gægðist upp í ver
öldina eftir 333 ára vist í haf-
djúpinu. — Mikið hafði nú
Fyrstir um borð í Vasa voru þeir Anders Franzén, sænski verkfræðingurinn, sem fann
skipið og Edvin Fálting aðalkafarinn við björgunin. Þeir reru um borð í árabát og festu
honum í „pollana".
STAKSTEINAR
Verkfallið í Grimsby
Verkfall togaramanna í Grims
by hefur nú staðið í rúmar þrjár
vikur. Er nú svo kotnið, að allir
hinir 170 togarar þessa stóra út-
gerðarbæjar eru lagztir við land-
festar og eru horfur daufar á
því að úr verkfallinu greiðist.
Höfuðmarkmið þessa verkfalls
var eins og kunivugt er að mót
mæla og koma í veg fyrir, að ís
lenzkir togarar lönduðu ísvörð
um fiski í Grimsby. Svo reiðir
voru yfirmenn á togurunum
vegna lausnar fiskveiðideilunnar
við Breta, að þeir gripu til þessa
óyndisúrræðis. En þeim hefur
sannarlega ekkert orðið ágengt í
því að spilla fyrir löndunum ís-
lenzkra fiskiskipa. Þvert á móti
hafa íslenzkir togarar sjaldan
eða aldrei fengið jafngott verð
fyrir fisk sinn og einmitt undan
farna daga.
Morgunblaðið birti í gær skeyti
frá einum fréttaritara sínum í
Bretlandi, þar sem rætt var um
hina vonlausu aðstöðu togara-
manna í Grimsby í þessu máli.
Var m.a. komizt að orði á þessa
leið í skeytinu:
„Það er átakanlegt að sjá þessi
virðingarverðu samtök hug-
prúðra manna berjast fyrir svo
vonlausum málstað, þar sem þeir
sjálfir eru dæmdir til að verða
einu fórnarlömb baráttunnar.
Ástandið í Grimsby verður sí-
fellt verra og verra. Verkfallið
var upphaflega gert vegna and-
stöðu á Iöndun íslenzkra togara
en nú hafa önnur atriði verið
dregin inn í barálttuna“.
Fréttaritarinn bendir einnig á
það, að þessar aðgerðir brezkra
togaramanna geti í engu skaðað
íslendinga. Hann kallar verkfali
ið „fáránleg heimskupör“. Má
segja að það séu orð að sönnu.
Ungir Framsóknarmenn
á kommúnistalínunni
Xíminn birtir í fyrradag yfirlýs
ingiu formanns ungra Framsókn
armanna, er hann flutti á aðal-
fundi Sambandsstjórnar nýlega.
Er þar m.a. vikið að öryggismál
unum og komizt að orði á þessa
leið:
„Ungir Framsóknarmenn vilja
að varnarsamningnum sé sagt
upp og að hinn erlendi her
hverfi úr landi þegar í stað, en
að kappkostuð sé góð samvinna
við allar þjóðir, einkum þær, sem
okkur eru skyldastar menningar
og stjórnarfarslega“.
Ekki er þessi yfirlýsing ungra
Framsóknarmanna í góðu sam
ræmi við þær skoðanir, sem birzt
hafa í greinum þeirra Heimis
Hannessonar oð Baldurs Baldvins
sonar á Ófeigsstöðum um örygg
ismálin undanfarna daga. Hún
er þvert á móti í fullkomnu sam
ræmi við þá Moskvulínu, sem
Ieiðtogar Framsóknarflokksins
hafa fylgt í afstöðunni til örygg
ismálanna undanfarna mánuði.
Borgarastyrjöldin innan Fram-
sóknarflokksins heldur áfram. Á
tökin eru stöðugt að harðna milli
þeirra manna innan flokksins,
sem halda vilja fast við þá
stefnu í utanríkis- og öryggismál
um, sem lýðræðisflokkarnir í
landinu hafa mótað sameiginlega.
á undanförnum árum og hinna
sem fylgja Moskvulínunni.
Innrás kommúnista
Annars þarf engan að furða,
þótt slíkar yfirlýsingar komi úr
herbúðum ungra Framsóknar-
manna. Það er vitað, að kommún
istar hafa hreinlega gert innrás
í þessi samtök s.I. tvö ár. Fjöldi
af ungum kommúnistum hefur
sótt þar um upptöku til þess eins
að skapa sér aðstöðu til áhrifa á
afstöðu Framsóknarflokksins í
^rvg'gismálunum