Morgunblaðið - 29.04.1961, Blaðsíða 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 29. april 1961
Undirbúningur
Guðmundur Thoroddsen,
prófessor:
Landspítalamálið átti sér
þegar alllanga sögu, er
undirbúningur að byggingu
spítalans hófst. Margir höfðu
fyrir löngu séð þörfina fyrir
landspítala, en ekkert var að-
hafzt í málinu fyrr en konur
í Reykjavík hófust handa
stuttu eftir að þær öðluðust
kosningarétt árið 1915 og kusu
Landspítalanefnd, sem beitti
sér fyrir fjársöfnun. Þannig
varð Landspítalasjóðurinn til,
form. hans var Ingibjörg H.
Bjarnason, s'kólastjóri Kvenna
skólans, sem jafnframt var
einn helzti hvatamaður að
byggingu Lanlspítala í Reykja
vík.
Árið 1921 var þó fyrst skip-
uð nefnd til að undirbúa bygg
ingu Landspítalans, ákveða
fyrirkomulag hans, stærð o.
fl. f nefndinni áttu sæti
Guðmundur Hannesson, pró-
fessor, Jón Hjaltalín Sigurðs-
son, þá héraðslæknir og kenn-
ari í lyflækningum við Há-
skóla fslands, síðar prófessor,
og ég. Nefndin vann í sam-
vinnu við Guðjón Samúelsson,
húsameistara ríkisins, sem
teiknaði spítalann.
Fyrsta uppdrættinum skil-
aði nefndin í ársbyrjun og
samkvæmt honum átti spítal-
inn að rúma 200 sjúklinga.
En teikningin var aldrei sam-
þykkt og kom þar margt tiL
í fyrsta lagi vantaði peninga
í ríkissjóð, í öðru lagi þótti
byggingin of dýr og í þriðja
lagi voru ráðandi menn ekki
ánægðir með fyrirkomulagið.
Fengum við skömm í hattinn
fyrir allt saman.
Málið lá nú niðri um hríð.
Þá minnkaði Guðjón Samúeis-
son fyrri spítalateikningu en
hafði fyrirkomulag svipað. Þar
var þó flest skorið við nögl.
Var sú teikning samþykkt og
spítalinn, sem nú hefur starfað
um þriggja áratuga skeið,
byggður.
Þegar skriður var kominn á
bygginguna, var farið að hugsa
fyrir innanstokksmunum og
ný nefnd skipuð í því skyni.
Flest lækningaáhöldin voru
keypt í Þýzkalandi og ekkert
til þeirra sparað. Sjúkra-
rúmin voru og keypt þar og
dugðu þau langa lengi. Er ég
ekki frá því að sum séu notuð
enn.
Einnig fékk Landsspítalinn
að gjöf allmörg sjúkrarúm
frá Vestur-fslendingum, sem
hingað komu á Alþingishátíð-
ina. Kom til tals að þeir
byggju í spítalanum meðan
þeir hefðu viðstöðu hér, en
úr því varð þó ekki, heldur
bjuggu þeir á Elliheimilinu
Grund, sem þá var nýbyggt.
Rúmin reyndust ekki allskost-
ar hentug og voru aldrei not-
uð.
Alexandríne drottning lagði
hornstein að La"ndspítalanum
árið 1926 í suðausturhorn
byggingarinnar. En þótt und-
arlegt kunni að virðast, var
spítalinn aldrei vígður. Útvarp
ið helgaði Landspítalanum
eina dagsskrá um jólaleytið
1930 og töluðu þar Jónas Jóns
son frá Hriflu, heilbrigðismála
ráðherra og Guðmundur
Björnsson, landlæknir. Voru
þó fáir sem höfðu tækifæri
til að hlýða á mál þeirra, þar
sem útvarpstæki voru ekki
mörg í landinu, enda var
Ríkisútvarpið nýtekið til
starfa.
Þann 20. desember 1930 voru
fýrstu sjúklingarnir lagðir inn
á spítalann og starfsemi hans
þar með hafin. Deildir hans
voru fjórar til að byrja með,
röngtendeild, lyflæknisdeild,
handlæknis- og fæðingardeild,
sem voru undir sömu stjóm.
Löngu seinna var reist sér-
stök bygging á Landspitalalóð
inni fyrir húð- og kynsjúk-
dómadeild. Þvottahús hefur og
alltaf verið rekið í sambandi
við spítalann og var líkskurð-
arstofa til húsa í þvottahúss-
byggingunni fyrst í stað.
Læknar á spítalanum voru
ekki margir fyrstu árin. Á
lyflæknisdeild voru í upphafi
aðeins yfirlæknir og aðstoðar
læknir, á handlæknis- og fæð
ingardeild yfirlæknir, aðstoð-
ekki væri hann skilyrði fyrir
lækningaleyfi, sem menn
fengu strax að loknu embætt-
isprófi og sóttu flestir ísl.
læknar í því skyni til Dan-
merkur áður en Landsspítal-
inn tók til starfa.
Aðsókn var strax mikil að
spítalanum og leið ekki á löngu
þar til hvert rúm var skip-
að. Sjúkrarúm voru fljótlega
Fyrri hluti
sett í dagstofurnar og það
var ekki fyrr en mörgum ár-
um seinna, þegar byggt var í
geilarnar við bakhlið spítal-
ans, að sjúklingar fengu aft-
ur dagstofu til umráða.
Landspitala-
sjóðurinn
Ragnheiður Jónsdóttir,
fyrrv. skólastjóri:
— Landspítalasjóðurinn var
stofnaður árið 1915, skömmu
eftir að konur hér á landi
öðluðust kosningarrétt, en það
var 19. júní sama ár. Sá dag-
ur var aðalfjáröflunardagur
um var stofnaður Minningar-
gjafasjóður Landspítalans
árið 1916 og starfaði hann í
fyrstu innan vébanda Land-
spítalasjóðsins. Til hans var
stofnað á þann hátt, að hjónin
Guðrún Bjamadóttir og Þor-
‘steinn Jónsson, jámsmiður,
Vesturgötu 33, Reykjavík, gáfu
Landspítalasjóði minningar-
gjöf um föður Guðrúnar,
Bjama Kolbeinsson útvegs-
bónda, sem andaðist 8. maí
1916. Síðan komu fleiri á eft-
ir, bæði í Reykjavík og úti
um land, og afhendu Land-
spítalasjóði minningargjafir
um látna ástvini, frændur og
vini. í sjóðinn safnaðist fé
allt til ársins 1930. Þá var
hann aðgreindur frá Land-
spítalasjóðnum og hlýtur sína
sérstöku skipulagsskrá og 5
manna stjórn. Á sjóðurinn þá
180,000 kr. höfuðstól.
Strax á árinu 1931 er fátæk-
um og efnalitlum sjúklingum,
sem liggja á spítalanum, veitt
ur styrkur úr Minningargjafa-
sjóðnum og hefur slíkt ætíð
verið gert síðan.
Árið 1952 er skipulagsskrá
Minningargjafasjóðs Lands-
spítalans breytt og honum
veitt heimild til að styrkja þá
sjúklinga til utanfara, sem
ekki gátu fengið bót meina
sinna hér á landi. Ekki er sá
styrkur bundinn við sjúklinga
Hornsteinn Landspítalans lagður 1S. júní 1926. Vinstra megin sést Jón Magnússon forsætis-
ráðherra lesandi upp ágrip af sögu spítalans, sem lagt var inn í hornsteininn, en hægra meg-
in sjást dönsku konungshjónin sitjandi.
arlæknir og einn kandidat. Á
röngtendeild voru tveir lækn-
ar. Kandidötum fjölgaði fljótt
eftir að lögleitt var, að þeir
fengju ekki lækningaleyfi
fýrr en þeir hefðu starfað eitt
ár á sjúkrahúsum, 6 mánuði
á lyflæknisdeild og 6 á hand-
læknisdeild og auk þess
einn mánuð á fæðingar-
deild. Þessi mánuður á fæð-
ingardeild hafði um langan
aldur þótt sjálfsagður, þótt
sjóðsins allt til þess að Land-
spítalínn reis af grunni árið
1930. Hafði þá sjóðurinn af-
hent stjórn Landspítalans um
300 þús. kr. til byggingar
Landspítála í Reykjavík.
Ingibjörg H. Bjarnason, skóla
stjóri Kvennaskólans, var for-
maður sjóðsins og aðalhvata-
maður, ásamt Ingu L. Lárus-
dóttur, ritstjóra kvennablaðs-
ins „19-júní“.
Jafnhliða Landsspítalasjóðn-
Landsspítalans, en skilyrðj er
að styrkhafar hljóti ummæli
lækna Landsspítalans á nauð-
syn læknisaðgerðar erlendis.
Minningargj afasj óður Land-
spítalans hefur síðan hann tók
til starfa árið 1931 til ársloka
1960 úthlutað sjúkrastyrk að
upphæð kr. 855,229,00 til 983
sjúklinga Landspítalans og til
sjúklinga, sem hafa þurft að
leita sér heilsubótar erlendis.
Fyrsta stjórn Minningar-
gjafasjóðs Landspítalans var
skipuð eftirtöldum konum:
Ingibjörgu H. Bjarnason, for-
maður, Ingu L. Lárusdóttur,
Laufeyju Vilhjálmsdóttur,
Elínu Jónatansdóttur og Ragn»
heiði Jónsdóttur.
Stjórn hans er nú þannig
skipuð: Lára Árnadóttir, for-
maður, Laufey Þorgeirsdóttir,
Sigríður Bachmann, Guðrún
P. Helgadöttir og Ragnheiður
Jónsdóttir.
Hjúkrunar-
konurnar
Sigríður Bachmann
forstöðukona Landsspítalands:
— í upphafi störfuðu að-
eins 5 hjúkrunarkonur, yfir.
ljósmóðir og aðstoðarljósmóð-
ir í Landsspítalanum en for-
stöðukona var ekki ráðin í
spítalann fyrr en 1/6 1931. Var
það Kristín Thoroddsen, sem
nú er nýlátin og gegndi hún
því starfi til 31/12 1953, er ég
tók við.
Á fyrsta starfsári Lands.
spítalans bætast við fjórar
hjúkrunarkonur, þar af ein
dönsk. Straxum áramótin 1930
—31 hófu 4 nemar nám í spít-
alanum, um vorið voru þeir
orðnir 12 og í árslok töldust
þeir 13. Starfsstúlkur voru 12
að tölu fyrir utan starfsfólk
í eldhúsi og þvottahúsi. Þess
má geta, að á fyrsta árinu lágu
að meðaltali 93 sjúklingar á
sjúkrahúsinu, ' en hámarks-
fjöldinn var 119 sjúklingar.
Ef við lítum á síðastliðið ár
og berum saman aukningu
hjúkrunarkvenna, nema og
annars starfsfólks, má sjá að
aukningin er mjög mikil. Á
síðasta ári voru starfandi 12
deildarhjúkrunarkonur, 44
aðstoðarhjúkrunarkonur. 55
hjúkrunarnemar, 18 ljósmæð-
ur og 41 starfstúlka (starfs-
fólk þvottahúss og eldhúss þó
ekki meðtalið.) Fjöldi sjúkra
rúma í spítalanum er nú 219,
en meðaltalsfjöldi sjúklinga á
dag síðastliðið ár var 231.
Flestar hjúkrunarkonur
vinna .á þrískiptum vöktum,
dag-, kvöld- og næturvakt, og
er hver va'kt 8 stundir. Vinnu
vakt deildarhjúkrunarkvenn.
anna er afiur á móti oftast
tvískipt á degi hverjum. Væri
mjög æskilegt að breyta þvi
fyrirkomulagi, en hingað til
hefur það ekki reynst fram-
kvæmanlegt.
Vinnan í sjúkradeildum er
mjög mikil, enda er að jafn-
aði mikið af bráðveikum
sjúklingum í spítalanum. Oft
þarf að bæta við hjú'krunar-
konum til þ- . að gæta þeirra,
að nóttu til, sem eru hættu-
lega veikir. Eru það mjög oft
giftar hjúkrunahkonur, sem
taka að sér slík störf. Þær
vinna einnig mikið á meðan
sumarorlof standa yfir.
Þrátt fyrir að á ári hverju
útskrifast um 30 hjúkrunar-
HINN 20. desember sl. voru 30 ár liðin síðan fyrstu
sjúklingarnir voru lagðir inn í Landspítalann í Reykja—-
vík, og starfsemi hans þar með hafin.
í tilefni 30 ára afmælisins hefur Morgunblaðið haft
tal af öllum yfirlæknum Landspítalans og öðrum þeim
körlum og konum, sem gerst þekkja sögu hans, bæði
í fortíð og nútíð. Er hér um allyfirgripsmikla frásögn
að ræða og verður hún birt í tveim hlutum. Fylgir hér
á eftir fyrri hlutinn: