Morgunblaðið - 04.05.1961, Page 24

Morgunblaðið - 04.05.1961, Page 24
KEFLAVÍK Sjá bls. 10 IÞROTTIR Sjá bls. 22. 98. tbl. — Fimmtudagur 4. maí 1961 Bóndi verður undir dráttarvéi FLATEYRI, 3. maí. — Seint í gærkvöldi varð dráttarvél- arslys hér kippkorn frá bæn- um. Björn Hjálmarsson bóndi að Mosvöllum, var á leið heim til sín úr kaupstað, er dráttarvélin, sem hann ók fór út af veginum og hvolfdi. Varð Björn að nokkru undir dráttarvélinni. Enginn var nærstaddur er gat komið hon um til hjálpar. Er Björn, sem er hið mesta. Hann vann þá þrekraun að komast heim að bænum Neðri-Breiðdal, en þaðan var sent eftir læknin- um hér, Birni Önundarsyni. ★ Út af veginum Slysið varð á veginum fyrir neðan Breiðdal, um 6 km fyrir innan Flateyri um klukk- an 10 um kvöldið. Vegurinn er upphækkaður nokkuð á þessum kafla og var fallið, er faratæk- inu hvolfdi méð Birni bónda um eina mannhæð. Fyrir neðan var snjóskafl og mun hann mjög hafa dregið úr þungu höggi er Björn fékk á brjóst er vélih kom á hann. Hann var Um hálftíma að komast heim að bænUm. tAt - I*ungt haldinn Björn var allþungt haldinn er komið var með hann hingað í sjúkrahúsið og var svo enn í j morgun. Ekki er vitað með hverj á sextugsaldri, karlmenni | um hætti slysið varð. Tók léttasótt í ilugvél Akureyri 3. maí. SÁ fátíði atburður gerðist í kvöld í Dakótaflugvél frá Flugfélagi íslands, skömmu eftir að flugvélin var komin á loft, áleiðis til Reykjavíkur, að ung kona meðal farþeganna frú Erna Holze fyrrum yfir- hjúkrunarkona hér á spítalan um, tók léttasóttina þar sem hún sat í sæti sínu með tvö börn sín hjá sér. Var flug- vélinni þegar snúið við hing- að og hálftíma siðar, en flug- vélin fór á loft kl. 8,30 var flugvélin setzt, og konan kom in upp í sjúkrabifreið, er ók henni í fæðingardeild spítal- ans og er frú Erna undir lækn ishendi þegar þetta er skrifað. — St. E. Sig. Mikil vinna í Neskaupstað NESKAUPSTAÐ, 3. maí. Undan farna daga hefur verið góður afli á handfærabátum og hef- ur þetta haft í för með sér mikla vinnu í frystihúsinu og hefur þar skort vinnuafl. Að- komubátar hafa líka komið með fisk hér til vinnslu. Er afli góður á grunnmiðum en mun lítill vera á djúpmiðum. — Sv. I* Síðasta spilakvöld vetrarins SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Rvík halda spilakvöld í Sjálfstæðishús inu í kvöld kl: 8,30. Verður þetta síðasta spilakvöldið, sem félögin gangast fyrir á þessu vori. Spil- uð verður félagsvist, Birgir Kjar an, alþingismaður, flytur ræðu, dregið verður í happdrætti og að lokum skemmta leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason með gamanþætti. Áframhaidandi síldveiði hér Sigurður seldi ytra fyrir 84 þús. mörk í GÆR var lokið við að selja síld úr togaranum Sig- urði í Bremerhaven, en sú sala hófst í fyrradag, eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær. Alls voru seld þessa tvo daga 366 tonn, og feng- ust fyrir það 84.500 mörk. í gær fór Pétur Thorsteins son héðan áleiðis til Hollands með 115 tonn af síld. Síldarbátarnir eru nú farn- ir að landa síld í ís um borð í Bjarnarey, er kom fyrir nokkrum dögum frá Þýzka- landi. Þangað sigldi hún með 95 tonn af síld, sem seld voru fyrir 41.000 mörk. ■Á Góður afli í fyrrinótt 1 gærmorgun komu bátarn- ir að með sæmilegan afla, marg- ir með fullfermi. Til Reykja- víkur komu Guðmundur Þórð- arson með 900 tunnur, Heiðrún 700, Sæljón 500 og Arnfirðingur II. 500. Til Akraness bárust hátt upp í tvö þúsund tunnar af tveimur bátum. Höfrungur I. fékk 952 og Höfrungur II. 900 tunnur. í seinna kastinu náði Höfrungur II. kjaftfullri nót af síld, en snurpulínan slitnaði niður, og allt fór í g*ænan sjó. Öll síld- in, sem til Akraness kom, fer í bræðslu. Ar Síldveiðar í gær í gærdag héldu bátamir sig undan Jöklinum. Heiðrún var á leið til þeirra síðari hluta dags þegar hún fann síld um það bil 35—40 mílna siglingu héðan. Náði hún þar um 500 tunnum og sneri við aftur til Reykja- víkur, þar sem aflinn verður setttur um borð í Bjarnarey. — Hinir bátarnir héldu þegar á staðinn, og var Guðmundur Þórð i arson fyrstur á vettvang. Ekki bílfært milli Akureyrcr og Rvíkur AKUREYRI, 3. maí — Sjaldan j víða mjög slæmir, en þar er þó munu vegir hér í nágrenni bæj arins hafa verið jafn slæmir yf- irferðar og nú þessa síðustu daga. Flestir vegir út frá bænum eru ófærir. Öxnadalsvegur er ófær vegna aurbleytu og lokaður. Dal víkurvegurinn er mjög slæmur þó fara hann stórir mjólkurbílar. Svalbarðarstrandarvegur er mcð öllu ófær og um Vaðlaheiði er aðeins Ieyfður takmarkaður bíl- j víkur fyrr en einhvemÞ'ma eftir þungi. Fram Eyjafjörð eru vegir næsíu helgi. — St. E. Sig. einna tálmanaminnst. Vega tálmanir þessar stafa af óvenju- miklum klaka í jörðu og ekki mun úrkoman síðustu dagana hafa bætt ástandið. Vegagerðin hefur unnið að lagfæringum þar sem vegirnir eru mest skemmdir en bað mun vart gera meira en halda í horfinu. Búist er við að ekki verði fært suður til Reykja Flókið mál vantar sjónarvotta í GÆRKVÖLDI varð nýlegur ' læknabíll R 5947, fyrir skemmd- um við húsið Bárugötu 13. Vöru- bíll R 9727 og læknabíllinn runnu saman, þannig að læknab. lenti undir pall vörubílsins og urðu talsverðar skemmdir á þeim fyrr nefnda. En bað sem var flókið við þennan árekstur var, að eng inn var í hvorugum bílanna, að sögn aðila er áreksturinn varð, og báðir bílarnir læstir. Árekst- urinn hefur orðið á tímabiiinu milli kl. 18,30—20. Eru það vin- samleg tilmæli rannsóknarlög- reglunnar að þeir er séð hafa er þessi árekstur átti sér stað, gefi sig fram. Þessi mynd var tekin um helg \ ina uppi á Akranesi, þegar verið var að setja síid í þrær. . Þar eru ágætis síldarþrær,' sem taka 55 þúsund bunnur. Nýr vegur til Hafnarfjarðar SVO sem kunnugt er af fréttum, verður allt svæðið milli Reykja- víkur og Kópavogs skipulagt og efnt til samkeppni um það hér á landi og í Skandinavíu. Er þegar byrjað á að hugsa fyrir hinum ýmsu mikilvægu samgönguleið- um á þessari leið. Þannig hefur vegamálastjóri nú staðsett á kort nýjan veg sem liggur frá Reykja vík til Hafnarfjarðar. Verður þessi vegur lagður einhverntíma í framtíðinni, en hann hefur ver ið staðsettur nú til þess að koma í veg fyrir, að hús eða önnur mannvirki verði sett í vegarstæð- ið. Þessi vegur á að liggja frá Elliðaánum og um land Vífil- staða, og koma á veginn ofan við Hafnarfjörð skammt frá Set- bergi. Botvinnik á betra 18. EINVÍGISSKÁK þeirra Bot- viniks og Tal var tefld í gær- kvöldi. Botvinik sem hafði svart beitti ennþá einu sinni Caro-Kann-vörn. Tal tefldi byrj unina óreglulega og reyndi að ná kóngssókn með framrás peða á kóngsvæng. Fór svo nú sem oft áður, að sóknin rann út í sandinn vegna traustrar varnar Botviniks og eftir stóðu aðeins veilur í peðastöðu heimsmeistar- ans. Er Botvinik hafði hrundið sókninni, tók hann að herja á þessar veilur og vann brátt peð. Eftir drotnningarkaup kom upp flókið endatafl, þar sem Bot- vinik hafði yfirburði á drottn- ingarvæng, en Tal reyndi örvænt ingarfulla sókn á kóngsvæng. Þær aðgerðir heimsmeistarans snerust þó að lokum einnig Bot- vinik í hag og rétt áður en ákákin fór í bið vann Botvinik annað peð. í biðstöðunni hefur Tal að- eins hrók, bisvkup og tvö peð, gegn hrók, riddara og fjórum peðum Botviniks. Vinningurinn í þessari mikilvægu skák yrði væntanlega aðeins tæknilegt atriði fyrir Botvinik. Biðskákin á að teflast í dag og fari svo að Botvinik vinni hefur hann hlotið llVz vinnig gegn 6V2 vinningi Tals, sem bar sigur út býtum I 17. skákinni. Þarf Botvinniþ þvl aðeins einn vinning í viðbót til þess að verða á ný heimsmeistar) í skák. Oddskurð rutt NESKAUPSTAÐ, 3. maf — Komnir eru heim eftir lélega vertíð í Vestmannaeyjum nokkr- ir bátanna héðan úr bænum Loks er þess að geta að byrj- að er að ryðja snjó af vegin- um í Oddskarði. Freyr fékk 15,738 stp. ENN hefur einn togaranna' fengið gott verð fyrir afla I sinn í Bretlandi. Togarinn | Freyr seldi í gær í Grimsby, i 3020 kit, fyrir 15738 sterlings-' pund, en það er mjög gott I verð. Aflinn var af heima- miðum. • □ • í gær sigldu héðan álelðis til Bretlands tveir togarar bá@ I ir dável fiskaðir Askur og | Jón forseti. -<S>- Farþegamir fluttir frá skipi í steininn AKUREYRI, 3. maí. — Er Flóa- báturinn Drangur kom hingað siðdegis í dag vakti það nokkra undrun manna að lögreglubíll og lögregluþj ónar biðu á bryggj- unni. Er Drangur lagði að tók lögreglan í sína vörzlu þrjá af farþegum með skipinu. Þetta voru allt ungir menn og komu þeir frá Siglufirði. Höfðu þeir verið allmjög við skál á leiðinni og orðið farþegum og áhöfn skipsins til óþæginda. Loks höfðu þeir neitað að greiða far- gjaldið með skipinu. Drangur kom við á Svalbarðseyri og sím- aði skipstjórinn, Guðbjartur Snæbjörnsson lögreglustöðinni hér og bað að lögregluþjónar yrðu á bryggjunni er skipið kæmi, til þess að handtaka menn ina. Voru ungu mennirnir fluttir beint af skipsfjöl í steininn. Drangur kom einnig við á Dal- vík í þessari ferð og tók þar nokkra farþega, því ófært er með bílum eins og fram kemur á öðr um stað í blaðinu. — St. E. Sig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.