Morgunblaðið - 10.05.1961, Blaðsíða 8
M
8
MORGUISBLAÐIÐ
Miðvik’udagur 10. maí 1961
Situr á Borg með
trefil um háisinn
Viðtal við franska songvarann
(jérard
Á BEKKJUNUM undir styttu
Jóns Sigurðssonar sátu nokkrar
sumarklæddar manneskjur og
teygðu andlitin upp í sólina eftir
hádegið á sunnudaginn, þegar
fréttamaður blaðsins gekk inn á
Hótel Borg og spurði eftir
franska söngvaranum Gérard
* Souzay, sem hér hafði dvalið síð-
an um miðja síðustu viku og hald
ið tvenna tónleika fyrir Tónlist-
arfélagið, við geysilega hrifningu.
Söngvarinn kom niður stigann,
hár og grannur ungur maður,
dökkur á brún og brá, enda þykir
hann glæsimenni á sviði. Hann
hafði ullartrefil vafinn um háls-
inn og upp á höku. Han kvaðst
hafa vott af kvefi og af ótta við
að það versnaði, svo hann gæti
ekki sungið, hafði hann varla
hreyft sig út af Hótel Borg síðan
Gérard Swuzay
hann kom, bara setiðlnni og tek-
ið inn lyf. Enn voru eftir einir
opinberir tónleikar á mánudags-
kvöld og því var trefillinn.
Bezti ljóðasöngturinn á árinu
Það er heldur ekki gaman að
því fyrir frægan söngvara að fá
kvef, þegar búið er að skipu-
leggja hljómleikaferðir fram í
maí 1962. Eftir dvölina hér ætlar
Gerard Souzay beint til Parísar,
þar sem hann syngur á hljóm-
leikum í Theatre de Champs
Elysées sömu viðfangsefni og á
opinberu hljómleikunum hér, eft
ir Schubert, Debussy, Poulinc,
sem hann segir að sé fremsta
ljóðatónskáld Frakka nú, braziliu
manninn Lobez o. fl. Þó heimili
söngvarans sé í París, stanzar
hann þar aðeins í fjóra daga, fer
síðan til Berlínar, til að syngja
inn á plötur, þaðan til Vínar-
borgar til að syngja á tónlistar-
hátíð og þá til Bath á Yehudi
Menhuin-hátíð, áfram til Amster
dam til upptöku hjá Phillips og
til Rómaborgar .... Þetta gefur
Souzay
ofurlitla hugmynd um það líf
sem eftirsóttur söngvari lifir.
Hin glæsilegi söngferill Gér-
ards Souzays hófst fyrir meira
en 15 árum. Síðan hefur hann
sungið víða um heim, t.d. í Asíu,
Suður-Afríku .og á Norðurlönd-
um, og kemur þangað enn einu
sinni næsta vetur. Sl. haust voru
10 ár liðin frá því hann söng fyrst
opinberlega í Bandaríkjunum, og
í því tilefni söng hann í óperunni
Orfeus í City Center í New York
undir stjórn Leopolds Stokow-
skys og þótti það tónlistarvið-
burður.
Fyrir aðeins fáum dögum fékk
Gérard Souzay að vita að hann
hefði hlotið verðlaunin fyrir
bezta ljóðasöng á plötur á árinu
fyrir Dichterliebe eftir Schu-
mann, Phillipsplötu), en það söng
hann einmitt hér á síðari tónleik
um Tónlistarfélagsins. Af öðrum
nýjum plötum, sem söngvarinn
hefur sungið inn á, má nefna
aríur úr kantötu Bachs á His
Masters Voice plötu og „Songs
of many lands“, en þar eru m.a.
norsk og sænsk lög. Þess má geta
að Gérard Souzey syngur á 14
tungumálum.
Dásamleg þögn
Eftir að hafa rætt um stund
við söngvarann um verkefnin
sem bíða hans um víða veröld,
var ekkert eðlilegra en spyrja:
— Hvernig stendur á því að þér
gefið yður tíma til að koma alla
leið til íslands, í fámennið hér?
— Því ekki það, ég hafði áhuga
á því. Og mér hefur fundist dá-
samlegt að syngja fyrir fslend-
inga. Áheyrendur eru svo for-
dómalausir og móttækilegir. Það
er alveg sérlega hljótt í salnum.
Þögnin er svipuð og ég hefi fund-
ið í hljómleiksölum í Japan. Þess
háttar þögn sem gerir mann feim
inn, af því að þegar fólk hlustar
svona ákaft, finnur söngvarinn
að hann verður að gefa sitt bezta,
minna dugar ekki. íslendingar
yrðu áreiðanlega undrandi, ef
þeir kæmu á hljómleika á Ítalíu,
þar sem varla heyrist í söngvar-
anum á stundum fyrir gaura-
gangi.
Það virðist ekki hvarfla að
Gérard Souzay að hann hafi sjálf-
ur valdið því að áheyrendur hlust
uðu svo ákaft á tónleikum hans,
að heyra mátti saumnál detta.
Er hér var komið tali, kom und-
irleikari söngvarans, Dalton Bald
vin, inn. — Hann hefur verið
með mér einum í 9 ár, sagði Gér-
ard Souzay, og ég læt hann hafa
nóg að starfa. Og þar með féll
talið niður. Blaðamaðurinn hélt
aftur út í sólina, söngvarinn vafði
treflinum fastar um hálsinn.
— E. Pá.
Kensluplötur í tungumáluvn
Franska, rússneska, spænska og þýzka.
Tvær 33 snúninga plötur ásamt leiðarvísnm.
Verð kr. 372.20. — Lærið tungumál fljótt.
Garbar Gislason h.f.
Hindsherg píanó
Eitt hinna góðu dönsku Hindsbergs Píanóa til sölu
og sýnis á Flókagötu 15 1. hæð í dag og á morgun
frá kl. 2—8.
) Blómið í riýjum stað
Sl. fjögur ár hefur snotur
blómabúð sett svip sinn á
Lækjargötuna í nánd við
Lækjartorg. Nú er hún horf-
in af þeim stað og komin í
Austurstræti 16, á neðri hæð-
ina í nýja Eymundssonshús-
inu. Hér er um að ræða Blóm
ið, sem er fyrsta verzlunin er
flytur þarna inn á neðri hæð-
ina. Á eftir koma skartgripa-
verzlun Jóhannesar Norð-
fjörðs og útibú frá skóverzlun
inni á Laugaveg 100.
Blómið reka þær Aðalheið-
ur Knudsen Margrét Hinriks-
dóttir og Rannveig Jónsdótt-
ir, en þær eru allar blóma- í
kaupendum í bænum kunnar, 1
voru í Flóru áður en þær
settu upp eigin blómabúð. Við
litum í gær inn í nýju búð-
ina til þeirra. Þar var allt
eitt blómahaf, afskornar rós-
ir, nellikkur, íris og levkoj og
alls kyns pottaplöntur, enda
mesti blómatíminn að koma.
Og ljósmyndari blaðsins
smellti af þessari mynd.
Hvitasunnuferð til
Vestmannaeyja
U N G I R Sjálfstæðismenn efna
til ferðar til Vestmannaeyja
um hvítasuimuna. Veröur lagt
af stað úr Reykjavík með bílum
til Þorlákshafnar kl. 2,30 laug-
ardaginn 20. maí og farið úr
Þorlákshöfn kl. 4. — I Vest-
mannaeyjum verður dvalizt til
mánudags, siglt um eyjarnar,
ekið um Heimaey, horft á bjarg
sig og hlýtt messu. Meðan ferða-
fólkið er í Eyjum, efna ungir
Sjálfstæðismenn þar til skemmt-
ana. Farseðillinn kostar kr.
675,00 (kr. 615,00 frá Þorláks-
höfn). Þátttaka tilkynnist félög-
um ungra Sjálfstæðismanna, í
Reykjavík Heimdalli, Valhöll
við Suðurgötu, sími 17102 (opið
kl. 4—7).
Bankamenn unnu
HIN árlega skákkeppni Tafl-
félags Hreyfilsmanna og Sam-
bands íslenzkra bankamanna fór
fram að Hlégarði, þriðjudaginn
18. apríl síðastliðinn. Fóru leikar
svo að bankamenn báru sigur úr
býtum og fengu 16V2 vinning en
Hreyfilsmenn 13%. Keppt var í
annað sinn um fagran silfurbik-
ar, er Landsbanki íslands gaf til
keppninnar og hafa bankamenn
unnið hann í bæði skiptin. Alls
hafa liðin keppt sex sinnum og
ávallt á þrjátíu borðum. Hafa
bankamenn sigrað þrisvar sinn-
um, Hreyfilsmenn tvisvar og í
Skólaslit í Bolungarvik
BOLUNGARVÍK, 2. njaí. Barna-! dóttir, Björg Guðmundsdóttir og
og unglingaskóla Bolungarvíkur'
var sagt upp í gær i Félags-
heimilinu að viðstöddum nem
endum, kennurum og foreldrum
barnanna. Fyrst var sunginn
skólasöngur, en þá flutti skóla-
stjórinn, Björn Þ. Jóhannesson,
skýrslu um skólastarfið. — Sam-
tals voru í báðum skólunum 142
nemendur en 9 kennarar, þar
af 5 fastráðnir. — Heilsufar var
fremur gott, og félagslíf stóð með
blóma. Má þar nefna skemmti-
fundi, taflæfingar og árshátíðar-
hald. Þá gat skólastjóri þess, að
frú Sigríður Nordquist, söng-
kennari, hafi gefið peninga-
upphæð til stofnunar sjóðs, sem
nota á til þess að kaupa slag-
hörpu í hina nýju skóíabyggingu,
sem fyrirhuguð er. — Þá var
getið úrslita prófa á fullnaðar-
prófi barnaskólans. Efst var
Björg Guðmundsdóttir með 8.60.
I. bekk unglingaskólans varð
Helga Þorkelsdóttir efst með
8.80, sem jafnframt var hæsta
einkunn í skólanum, en í II.
bekk unglingaskólans varð efst
Guðlaug Snorradóttir með 8.32.
Guðlaug Snorradóttir. Fyrir
hegðun og stundvísi hlutu verð-
laun: Jóhanna Hálfdanardóttir,
Hlíf Guðmundsdóttir og Grétar
Pétursson. — Ónefndur vinur
skólans hafði gefið verðlaunabæk
ur fyrir beztan árangur í náttúru
fræði í II. bekk unglingaskól-
ans. Þau verðlaun hreppti Sig-
rún Guðmundsdóttir. — Að lok-
um sungu allir viðstaddir lagið
Landið vort fagra, og lauk með
því þessari skólauppsögn.
eitt skipti skildu liðin jöfn.
Áður en keppnin hófst að Hlé-
garði buðu Hreyfilsmenn þátt-
takendum og nokkrum gestum
til kvöldverðar og voru borð
hlaðin kþldum úrvalsmat og á
öllu hinn mesti myndarbragur og
rausn. Síðar um kvöldið voru
káffiveitingar, hinar ríkmann-
legustu.
Formaður Taflfélags Sam-
vinnufélagsins Hreyfils, Magnús
Einarsson, ávarpaði gesti og
þáttakendur og formaður Sam-
bands íslenzkra bankamanna,
Hannes Pálsson, þakkaði frábær-
an undirbúning Hreyfilsmanna
og höfðinglegar móttökur.
Bjarni G. Magnússon, banka-
fulltrúi, afhenti fyrir hönd stjórn
ar Landsbanka Islands fyrirliða
sigurvegaranna, Gunnari Gunn-
arssyni, hinn fagra bikar Lands.
bankans og voru gef£mda færðar
þakkir fyrir góðan hug og stuðn-
ing við iðkun skákíþróttarinnar.
Þá afhenti hann einnig Margréti
Þórðardóttur, bankaritara í Bún-
aðarbanka íslands áletraða silf-
urskál í minningu þess, að húi»
hefir verið eini kvenmaðurinn,
sem hefir tekið þátt í skákkeppn-
inni og verið þátttakandi öll sex
ár að undanförnu og ávallt teflt
við góðan orðstír.
6 herb. ný íbúð í Kópavogi. íbúðtn er á
I. hæð með sér inng. Ibúðinni fylgja teppi
á gólfum. íbúðin er rúmgóð og sérlega þægi-
leg.
Þá voru afhent verðlaun. Verzl-
anir í Bolungarvík höfðu að venju
gefið bókaverðlaun fyrir beztu
námsafrek, og Lionsklúbbur Bol-
ungarvíkur hafði eins og í fyrra
gefið bókaverðlaun fyrir hegðun
og stundvísi, er einskorðuð er við
ákveðnar bekkjarsagnir. Þessir
nemendur hlutu verðlaun fyrir
námsafrek: Jóhanna Hálfdanar-
K \ H illi I \ \
Híbýladeild
Hafnarstræti 5 — Sími 10422.
tl I R