Morgunblaðið - 30.07.1961, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.07.1961, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ 15 Sunnudagur 30 *'ilí 1961 í „luxus“ útgáfu af P-544, sem þær' nefna P-1200 Amazon. Bifreið þessi er hingað komin um 40 þús. krónum dýrari en P-544 og sérstaklega vönduð í öllum frágangi. s s s i * ! Ac Volvo P 1200 Amazon Svíþjóð er sem kunnugt er mesta iðnaðarland Norður- landa og eitt mésta iðnfyrir- tæki Svíþjóðar er hlutafélagið Volvo. Þarna eru framleiddar ýmsar gerðir bifreiða, allt frá tveggja manna „sport“-bif- reið (P-1800) og upp í stærstu langferða- og vörubifreiðir. En auk þess framleiða dóttur- fyrirtæki Volvo margskonar báta-, skipa- og iðnaðarvélar, landbúnaðarvélar, smíðavél- ar, þotuhreyfla o. fl. Sú gerð Völvobifreiða, sem mest selst, nefnist P 544 og á sér langa sögu að baki. Tilraun ir með þessa bifreið hófust ár- ið 1944 og kom hún fyrst á markaðinn skömmu eftir heimsstyrjöldina í mjög svip- uðum búningi og hún er enn í dag. Nefndist hún þá P-444 og vakti alheimsathygli. Síðan hafa verið gerðar miklar um- bætur á bifreiðinni og nýtur hún mikilla vinsælla. Fyrir skömmu hófu Volvo- verksmiðjurnar að framleiða Tveir þekktir Svíar: Ingemar Johanson hnefaleikarameistari og Volvo P-544 Bifreiðir þessar hafa verið þaulreyndar og ber mönnum saman um að aksturshæfni þeirra sé mikil. Þær liggja vel á vegi ogyþola mikinn hraða. Opel Car A van '!•»■ •PaURAVAl F Y R I R hálfum mánuði voru kynntar hér í blaðinu þrjár gerðir bifreiða, sem vóru lítt þekktar hér á landi. Að þessu sinni er ætlunin að ræða um þrjár gerðir, sem allar eru vel þekktar hér og sjá má víða á vegum úti. ★ Opel Car A Van Station bifreiðir hafa náð miklum vinsældum hér á landi, enda mjög þægilegar til ferðalaga, fyrir kaupmenn, ýmsa iðnaðarmenn o. fl. Ein •tation-bifreið, sem mikið hef- ur flutzt hingað til landsins er Car A Van frá Opel verk- •miðjunum í Vestur Þýzka- landi. Car A Van er nú fyrir skömmu kominn á markað- inn í nýjum búningi. Opel bifreiðir eiga langa reynslu að baki sér hér á ís- landi. Um 1932 og 1934 komu til dæmis til landsins nokkrar sendiferðabifreiðir og reynd- ust prýðilega, enda má sjá sum ar þeirra á götunum enn í dag. Car A Van er rúmgóð bif- reið tekur 5 manns í sæti og auk þess um 200 kíló af far- angri. Ef aðeins tveir eru í bifreiðinni, má leggja bakið á aftursætinu niður og verður þá 180 sentímetra langt gólf fyrir aftan framsæti, eða nægi lega langt fyrir meðalstóra menn að sofa á. Og dyrnar eru það breiðar að mjög auðvelt er fyrir menn í öllum líkams- stærðum að komast inn og út um þær. Car A Van er þægilegur í akstri og liggur vel á vegi. Fjöðrunin er við það miðuð að bifreiðinni sé ekið jafnt á steyptum þjóðvegum sem á steinóttum moldarvegum, en það ætti að vera afar heppi- legt hér. Car A Van kostar hér, gegn nauðsynlegum leyfum, frá kr. 150,400,— (Umboð Samband íslenzkra Samvinnufélaga ) NOKKRAR UPPLÝSINGAR: Car A Van Volvo Dauphine Benzínnotk. L/100 km. c. 130 C. 145 c. 115 Rúmtak (c.c.) — 1580 845 Borvídd (mm) 85,09 79,37 58,00 Slaglengd (mm) 73,91 80,00 80,00 Hám. hraði km/klst. c. 130 c. 145 c. 115 Benzínnotk. L/km. 6 Breidd cm. 163,0 162,0 152,0 Lengd cm. 451,0 445,0 395,0 Hæð cm. 147,0 150,5 144,0 Sæti 5 5 4 Dyr 3 4 4 Fá má Amazon með annað- hvort 66 ha. eða 85 ha. vél. Stærri vélin er búin tveim láréttum blöndungum af gerð inni SU H 4. Einnig má velja á milli 3ja Og 4ra hraða gír- kassa og eru allir gírar sam- hraðatengdir. P-544 kosta hér, gegn nauð- synlegum leyfum, frá kr. 135 þús., en Amazon frá kr. 173 þús. (Umboð: Gunnar Ásgeirsson h.f.) Dauphine Ac Renault Dauphine Fyrir um fimmtán árum komu fyrstu Renault bifreið- irnar hingað til lands. Komu þær í allstórum hópum og er sparneytin bifreið, notar að eins rúmlega 6 ltr. á 100 km. undir venjulegum kringum- stæðum. Dauphine hefur Oft tekið þátt í aksturskeppni víða Renault Dauphine mun hafa gengið erfiðlega að útvega nauðsynleg leyfi og kaupendur fyrst í stað. Varð þetta til þess að bifreiðirnar voru fluttar í geymslu hjá Haga og víðar. Ekki leið á löngu áður en við þær festist nafnið Hagamús. Þessi byrjun varð til þess að Renault hlaut ekki í upphafi það álit, sem bifreiðin fylli- lega verðskuldar. Margir gerðu þá góð kaup og fengu Renault á vægu verði. En þess ar „Hagamýs“ eru flestar enn í fullu fjöri, eigendum sínum til ánægju. Renault verksmiðjurnar frönsku eru þekktastar fyrir frekar litlar bifreiðir, þ. e. Dauphine og Floride eða Cara- velle, sem eru yfirleitt 4manna. Dauphine er minnst Renault bifreiðanna og ódýrust. Þetta um heim með góðum árangri, jafnvel oft borið sigur af hólmi í keppni við stærri og af 1 meiri bifreiðir. í Dauphine er fjögurra strokka vél með þrískiptum hraða. Bifreiðin fæst með nokkurskonar sjálfvirkri kúpl ingu. í akstri þarf einungis að færa gírstöngina eftir orku- þörf, en ekkert að hugsa um kúplinguna. Ekki er nema um tvo „pedala" að hugsa, þ. e. hemil og benzíngjafa. Þetta er mjög þægilegt, ekki sízt fyrir byrjendur. Verð Dauphine bifreiða hér, gegn nauðsynlegum leyfum, er frá kr. 99,500,—. (Umboð: Columbus h.f.) Upplýsingarnar hér að ofan eru flestar frá framleiðendum bifreiðunna og því ekki á ábyrgð Mbl. Renauit Floride

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.