Morgunblaðið - 20.08.1961, Síða 9

Morgunblaðið - 20.08.1961, Síða 9
Sunnudagur 20. ágúst 1961 MORGVNBLAÐI Ð 9 Sextugur í dag: Einvarður Hallvarðs- son bankafulltrúi í DAG er Einvarður Hallvarðs- son, starfsmannastjóri Lands- banka íslands, sextíu ára. Hann er ættaður frá Mýrum á Snæ- fellsnesi; kominn af góðu og gagnmerku dugnaðarfólki í bændástétt þar vestra. Ungur markaði hann sér braut til náms og settist á bekk í Flens- borgarskólanum í Hafnarfirði. Ávann hann sér strax í þeim þjóðkunna skóla vináttu og hylli skólafélaga og við próf- borðið komst hann , fremstu raðir. Einvarður Hallvarðsson hélt námi áfram að loknu burtfarar- prófi úr Flensborgarskóla í Menntaskólanum í Reykjavík og varð þaðan stúdent vorið 1925. Tóku síðan við starfsár hans og urðu fyrstu árin í ýmsum grein- um atvinnulífsins. Árið 1928 réðist Einvarður í þjónustu Landsbanka íslands og hefur síðan sléitulaust unnið í þágu þeirrar stofnunar. Störf Einvarðs í Landsbankanum hafa verið margþætt, þýðingar- mikil og erilsöm þann rúmlega þriðjung aldar, er hann hefur þjónað þar. Einvarður hefur á vegum Landsbankans unnið ýms trún- aðarstörf utan veggja bankans. 1932 var hann valinn skrifstofu- stjóri gjaldeyrisnefndar, er þá tók til starfa eftir heimskrepp- una miklu. Úr því vandasama starfi vann hann sig upp í for- mennsku nefndarinnar og var formaður gjaldeyrisnefndar 1937 til 1942. Eftir það var Einvarður Hall- varðsson skipaður forstöðumað- ur gjaldeyriseftirlits bankanna og gegndi því starfi allt til þess að hann var fyrir fimm árum skipaður starfsmannastjóri Lands banka Islands og gegnir nú þeim störfum bæði fyrir Landsbank- ann og Seðlabanka íslands. Einvarður Hallvarðsson á langan og farsælan starfsferil í Landsbanka íslands. Hann hef- ur með afbrigðum kynnt sig vel og drengilega. Hann hefur sam- einað í háttvísi og prúðmennsku trúnað við bankann og ein- beittni við að bæta hag starfs- fólksins. Enda hefur Einvarður ekki komizt hjá því að hafa verið flest starfsár sín í Lands- banka íslands í forystusveit fé- lagssamtakanna. Lengi var hann form. Starfsmannafélags Lands- bankans, síðar einn af braut- ryðjendum stofnunar Sambands íslenzkra bankamanna og mörg ár formaður þeirra samtaka. Fulltrúi samtakanna hefur hann verið á mörgum fundum í nor- rænu samstarfi bankamanna. Af eldmóði og sönnum áhuga hefur hann beitt sér fyrir hverskonar umbótum til handa bankafólk- inu. og veit ég engann hafa markað hin raunhæfu spor til árangurs og samheldni umfram hin giftudrjúgu störf Einvarðar á því sviði. Persónulega hef ég þekkt Ein- varð Hallvarðsson í nærri þrjá áratugi. Leiðir okkar hafa allan þann tíma legið saman í félags- störfum og hef ég á þeim árum margt numið og aflað mér margskonar reynslu og þekk- ingar. Mér er þó efst í huga á þessum heiðursdegi Einvarðar að mega minnast vináttu hans, einlægni og ánægjulegra sam- starfsstunda að sameiginlegum áhugamálum. Einvarður Hallvarðsson hefur að auki unnið mikil og góð störf í öðrum félagssamtökum og er mér kunnugt að hann hefur verið ósérhlífinn og ötull stjórnarmaður Neskirkju og einn fremsti maður samtaka þeirra, er nefnast Lionsklúbbar. Bankamenn og aðrir vinir Einvarðar Hallvarðssonar óska honum af heilum hug til ham- ingju með afmælið og þakka tryggð og vináttu liðinna ára með beztu óskum um bjarta framtíð. A. B. Maður fyrir bíl Á SJÖUNDA tímanum í gær- kyöldi varð það slys á mótum Sundlaugavegar og Laugarnes- vegar að maður, sem þar var að vinna við malbikun, Ólafur Ármannsson, Bakkastíg 6, varð fyrir bíl og hlaut nokkurn á- verka á höfði. Bílstjórinn bar fyrir rannsóknarlögreglunni í gærkvöldi að Ólafur hefði geng- ið út á götuna með bikfötu í hendi. Segist bílstjórinn hafa ’ aldið að Ólafur mundi ætla á- fram yfir götuna, og því hefði hann farið að huga að hinum mönnunum, sem þarna voru við vinnu, og hefði han því ekki tek ið eftir því, að Ólafur hefði snú- ið við yfir götuna aftur. — Ólaf- ur var fluttur á slysvarðstofuna og hafði hann hlotið áverka á hnakka. AKRANESI, 18. ágúst. _ Átta dragnótatrillur föru á sjó héðan í nótt. Flosi og Hagsæll fiskuðu 900 kg hvor, og Sigursæll rúm 300 kg af kola. Lítið var af þorski. — Björg missti dragnót- ina. Hún festist í botni og tóin slitnuðu upp. Hraunskaft hefur verið þar.. Hinar trillurnar fóru til Reykjavíkur og seldu af- mælisbörnunum afla sinn. Oddur. N auðungaruppboð eftir kröfu Dr. Hafþórs Guðmundssonar, hdl. fyrir hönd Péturs Péturssonar, verður bifreiðin R-8146, sem er Ford fólksbifreið, árgerð 1958 seld á opinberu uppboði, sem haldið verður við skrifstofu mína að Álfhólsvegi 32, mánudaginn 28. ágúst n.k. kl. 15. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi □ ] Reykjavíkur- kynning 1961 í DAG: FiJÍ □ I Æskulýðsdagur Sunnudagur 20. ágúst Kl. 14.00 Sýningarsvæðið opnað Guðsþjónusta í Neskirkju. Séra Jón Thorarensen. Kl. 14,30 „Skrúðfylking" félaga og tómstunda- flokka á vegum Æskulýðsráðs hefst á íþróttavellinum á Melunum. Ekið um bæinn. Leið: — Frá Melavelli um Birkimel, Hring braut, Suðurgötu, Sköthúsveg, Frikirkju- veg, Lækjargötu, Skúlagötu, Borgartún og stanzað við: 1) Höfðaborg — Sfðan áfram um Borg- artún og Sundlaugarveg Og stanzað við 2) Laugarlækjarskóla — Þá verður hald- ið um Laugarásveg, og stanzað við 3) Sunnutorg — Síðan um Langholtsveg, Skeiðarvog og stanzað við 4) Vogaskóla — Þá haldið áfram um Gnoðarvog, ilfheima, Suðurlandsbraut, Grensásveg, Sogaveg, Breiðagerði og stanzað við 5) Breiðagerðisskóla — Síðan áfram um Breiðagerði, Grensásveg, Miklubraut, Lönguhlíð og stanzað við 6) Eskitorg — Þá ekið um Eskihlíð Miklubraut, Hringbraut, Hofsvallagötu, Nesveg og inn á hátíðasvæðið í átt að Haga torgi. í skrúðfylkingunni verða: 1. Piltar á vélhjólum úr Vélhjólaklúbbn- um „Elding“. 2. Fánavagn í umsjá skáta. 3. Lúðrasveit drengja. Stjórnendur: Karl O. Runólfsson og Páll Pampichler. 4. ,„Fjallkonan og fylgdarlið“ í umsjá Þjóðdansafélags Reykjavíkur. sjá Ungtemplara. 5. „Ingólfur Arnarson og fylgdarlið“ í um- sjá Ungtemplara. 6. „Vatnspóstur í Reykjavík" í umsjá hóps leikáhugafólks. 7. „Tómstundaiðja" í umsjá ungs áhuga- fólks og leiðbeinenda. 8. „Útilega" í umsjá Farfuglafélags Reykja víkur. 9. „Garðyrkjustörfin“ í umsjá barna úr skólagörðunum. Kl. 16.00 „Skrúðfylkingin" kemur inn á hátíðar- svæðið. Dagskrá Æskulýðsdagsins hefst af palli austan við Melaskóla. 1. Lúðrasveit leikur 2. „Reykjavík fyrr og nú“ Jón Pálsson flyt ur Og stjórnar. 3. Skemmtiatriði undir stjórn Huldu Val- týsdóttur og Helgu Valtýsdóttui'. a) Upplestur „Afmæli Reykjavíkur“ kvæði eftir Kristján frá Djúpalæk. b) „Þegar drottningin af Englandi fór í orlof sitt“. — Saga eftir Jónas Hallgríms- son flutt í leikformi. Leikstjóri Helgi Skúlason. Leikendur: Helgi Skúlason, Guð rún Stephensen, Steindór Hjörleifsson og Helga Bachman. Hirðfólk. Tónlist eftir Dr. Pál ísólfsson. Svavar Gests og hljóm- sveit aðstoðar. c) Svavar Gests skemmtir. Kl. 20.30 Æskulýðskvöldvaka í Neskirkju 1. Ávarp: Séra Bragi Friðriksson. 2. Samleikur á tvö trompett: Jón Sigurðs- son og Viðar Albertsson. 3. Einsöngur: Erlingur Vigfússon. 4. Upplestur. — Þáttur úr „Jörð“ eftir Gunnar Gunnars- sön, Erlingur Gíslason, leikari. „Reykjavík" eftir Einar Benediktsson, Kristín Anna Þórarinsdóttir, leikkona. 5. Söngflokkur þýzks æskufólks syngur þýzk lög. 6. Orgelleikur: Máni Sigurjónsson. 7. Einsöngur: Guðrún Tómasdóttir. 8. Orgelleikur: Ragnar Björnsson. Undirleik annast Ragnar Björnsson Kl. 21.30 Varðeldur skáta á útisvæði austan við Melaskóla, ef veður leyfir. Kynnisferðir Kl. 14.00 Kynnisferð að Sogsvirkjunum. Komið verður við í Áburðarverksmiðju ríkis- ins, á Korpúlfsstöðum, Reykjahlíð, ekið um Grafning að Sogi og rafstöðvarnar skoðaðar. Veitingar að írafossi. Ekið heim um Ölfus og Hellisheiði. Kl. 16.00 Ferð um Gamla bæinn. Lýst upphafi og þróun. Ferð um Nýja bæinn. KI. 17.00 Ferð um Gamla og Nýja bæinn og Ár- bæjarsafn skoðað. Mánudagur 21. ágúst Kl. 14.00 14,00 Sýningarsvæðið opnað Kl. 20,30 Tónleikar í Neskirkju: 1. Strengjasveit undir stjórn Björns Ólafs- sonar. 2. Einleikur á orgel. Dr. Páll tólfsson. Kl. 21.00 Kvikmyndasýning í samkomusal Mela- skólans 3. hæð. — R-eykjavíkunuyndir. Kl. 22.00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á paili viA Melaskólann, eif veöur leyflr, en *Ua. í Hagaskóla. F raink væmdanefn din

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.