Morgunblaðið - 20.08.1961, Blaðsíða 11
Sunnudagur 20. agúst 1961
MORCVNBLAÐ1Ð
11
'/j&ó&a/bóit/j/i
Leyndarmál Lúkasar
Ignazio Silone: Iíeyndarmál
Lúkasar. Skáldsaga. 173 bls.
Jón Óskar íslenzkaði. Al-
menna bókafélagið, Reykja-
vík, apríl 1961.
ÍTALSKA skáldið Ignazio Silone
gat sér heimsfrægð fyrir nokkr-
ar skáldsögur sem hann skrifaði
á útlegðarárum sinum fyrir
seinni heimsstyrjöld, þegar fas-
istar réðu ríkjum í heimalandi
hans. Kunnastar þeirra eru
„Brauð og vín“ og „Fontamara".
Lýsir hann þar lífi og kjörum
alþýðunnar í fæðingarþorpi sínu
í Abruzzi-fjöllunum og þó eink
um hlutskipti þeirra manna sem
ofsóttir voru fyrir skoðanir sín-
ar og frelsistilhneigingar. Utan-
garðsmaðurinn er af eðlilegum
ovsökum sú manngerð sem Sil-
one verður tíðræddast um.
Svo er enn í „Leyndarmáli
Lúkasar“, þó með nýjum hætti
sé. Lúkas er ekki pólitiskur
flóttamaður eða fórnarlamb, held
ur eiga örlög hans sér persónu-
legar og að nokkru leyti félags-
legar orsakir. Hann verður fórn-
arlamb kringumstæðna og atvika
sem hann ræður ekki við, af því
hann er þannig skapi farinn, að
hann gengur hvorki á mála hjá
sjálfum sér né öðrum. Tilfinning
ar hans og virðing fyrir konunni
sem hann elskar banna honum
að verja sakleysi sitt.
í hinni ágætu ritgerð, sem Sil-
one skrifaði á sínum tí-ma í bók-
ina „Guðinn sem brást“, lýsir
hann fundi í Komintem (hann
var sjálfur um skeið einn helzti
leiðtogi ítalskra kommúnista)
þar sem rætt var um einhver und
anbrögð til að túlka línu komm-
únistaflokksins. I>á reis enskur
verkalýðsleiðtogi á fætur og
sagði: ,,En ef við segðum þetta,
væri það lygi“ —og það fór hlát-
urshviða um allan fundarsalinn.
Silone hefur aldrei verið í hópi
þeirra sem hlæja að sannleikan-
um, hversu veikburða sem hann
er. Hann ber meðfædda virðingu
fyrir hinu einfalda, ekki síður
en Tolstoi eða Shakespeare í
„Troilus and Cressida“.
„Leyndarmál Lúkasar" fjallar
um leitina að sannleikanum sem
á rætur sínar í ástinni. í sögunni
er fléttað saman lífi nokkurra
manna í ítölsku fjallaþorpi,
xnanna sem þekkja sannleikann
er gera allt sem þeir geta til að
leyna honum.
Lúkas kemur heim í þorpið sitt
eftir 40 fangelsisvist fyrir glæp
sem hann er saklaus af. Hrepþs-
stjórinn, þorpspresturinn og allir
hinir dyggðugu og tvöföldu ná-
grannar vita að Lúkas framdi
ekki morðið, en þar sem hann
gerði enga tilraun til að verja sig,
þegar böndin bárust að honum,
Ikjósa þeir að líta á hann sem
sekan. Þeir óttast hneykslið, sem
koma myndi óþyrmilega við
marga þeirra, ef sakleysi hans
pannaðist.
En sálarró þessara forhertu
eálna er raskað, þegar ung hetja
úr stríðinu kemur heim í þorpið
á sama tíma og Lúkas. Andrés er
and-fasisti og leiðtogi skærulið-
anna úr stríðinu, svo hann verður
að fá tilhlýðilega móttöku. Koma
Andrésar vekur þorpsbúum líka
óþægilegar' kenndir og minning-
ar, því afstaða þeirra til fasism-
ans hefur verið óhrein, en þeir
reyna að breiða yfir það með því
að hylla hetjuna á sama tíma og
þeir leitast við að svæfa sannleik
ann sem birtist þeim í persónu
Lúkasar.
Það hefði verið höfundinum í
lófa lagið að gera kaldhæðinn
eamanburð á móttöku þessara
tveggja manna í þorpinu, en
hann hefur kosið að ganga beint
til verks og lýsa á látlausan, en
Ignazio Silone.
áhrifamikinn hátt sambandi
þeirra og fálmandi vináttu, sem
leiðir til þess að Andrés greiðir
úr öllum lygaþráðunum kring-
um Lúkas og afhjúpar sakleysi
hans. Með þessu er hann jafn-
framt að kanna hvatirnar bak
við sína eigin viðleitni í þjóð-
fél-aginu.
,Leyndarmál Lúkasar" er þann
ig saga um sannleikann og ást-
ina á fleiri en einu plani. Þegar
við komumst að ráun um hið
sanna í málinu — þögn Lúkasar
fyrir dómstólnum til að vernda
heiður konunnar sem hann elsk-
aði — þá skiljum við að til er
sannleikur sem leitast ekki við
að verja sig, heldur er bara til.
Hreinleikur hans liggur í varn-
arleysinu.
Sagan er ekki í flokki beztu
bóka Silones, þó hún leyni vissu-
lega á sér og sé kannski skemmti
legri aflestrar en þær flestar.
Hún er á köflum nokkuð gagnsæ
og hálfgert reyfarabragð að ýms-
um þáttum hennar. Hluturinn er
sá að lesandinn veit frá upphafi
að Lúkas er saklaus, og þess
vegna verður hinn flókni sögu-
þráður óþarfur og stundum þreyt
andi. Raunar má segja að fyrir
skáldinu vaki ekki að sanna sak-
leysi Lúkasar, heldur leiða í ljós
eðli sannleikans og sakleysisins,
sem hvort tveggja eru mjög
flóknir hlutir í mannlífinu.
Persónur sögunnar eru yfirleitt
heldur flatar, þó samtölin séu
víða hlaðin mikilli lífsspeki. Það
er eins og vanti í bókina eitthvað
af safa lífsins. Mér er ekki full
komlega ljóst af hverju þetta staf
ar, en held helzt að það eigi ræt-
ur að rekja til þess að höfundur-
inn leggur svo ríka áherzlu á
sjálfa rás sögunnar. að líf persón
anna verður einhvern veginn út
undan — þær verða várla annað
eða meira en lampar sem varpa
ljósi á vandamálið. Það er eins og
þær eigi bágt með að öðlast
sjálfstætt líf.
Mér finnst þetta t. d. eiga við
um Andrés, „aukahetju" sögunn
ar sem minnir mig dálítið á .,deus
ex machin-a". Hann er látinn
koma til sögunnar í þeim tilgangi
einum að leysa leyndarmálið, en
áhugi hans á málinu er einkenni-
lega ógrundaður, þó rakið sé
s-amband hans við Lúkas í
bernsku. Þegar á söguna líður
skreppur hann líka saman með
kynlegum hætti.
Aðrar persónur sögunnar eru
fremur manngerðir en einstakl-
ingar, sumar skopstældar, aðrar
teknar alvarlegri tökum. Gamli
presturinn, séra Serafino, kemst
næst því að fá eigið andlit, en
samt er það í hálfgerðri móðu.
Lúkas er mjög torráðin persóna,
en hann ávinnur sér samúð og
áhuga lesandans. Það er ekki
laust við að frá honum stafi dul-
rænir töfrar ■— hann verður eins
konar mannlegt tákn þjáningar-
innar, fórnarlamb og jafnframt
ofjarl hins meiningarlausa í
mannlífinu og þjóðfélaginu.
Silone virðist í sögunni hallast
að hinni frægu indversku kenn-
ingu u-m óvirka mótstöðu. En
-hún er tvíeggjuð. Sé hann að
gefa í skyn að dómsvaldið sé
óhæft, ef það tryggir ekki full-
komið réttlæti jafnvel þeim sem
n-eita að verja hendur sínar, þá
er hann í vissum skilningi rót-
tækari en stjórnleysingjarnir.
Hann virðist dást að þeim stað-
fasta ásetningi Lúkasar að segja
ekki neitt fyrir réttinum. Og
vissulega er hann aðdáunarverð-
ur á þeirri forsendu, að Lúkas er
að vernda heiður ástmeyjar sinn-
ar
eins lipur eða vönduð og ég
hefði búizt við. Samtölin eru
En fráleitt væri að áfellast ™jög stirðleg og hjákátlega
, . . i hatiðleg, og stillinn yfirleitt
dómarann fyrir að framfylgja^ klunnalegur. Verður það augljós
settum lögum. Þögn Lúkasar er j íega að skrifast á reikning þýð-
hetjuleg, en hún er lögum og
dómsvaldi algerlega óviðkom-
andi. Hann er að verja einka-
sannleik sem lögin ná ekki tU.
„Leyndarmál Lúkasar“ er
arans. Víða er tekið næsta kyn-
lega til orða: „ráða þeim frá að
vera viðstadda“ (31). ,,leysa af
sér tvo hárpinna sem voru fyrir
ofan gagnau-gun" (40), „húsin
fyrst og fremst heimspekileg j tylltu sér upp um klettótta hlíð-
skáldsaga um sannleikann og ást- ina" (103), „að hann hefði í
ina og vandamál hins illa,,varn- j hyggju að fara um hæl aftur“
arleysi einstaklingsins gagnvartj (123), „Þama Voru allir aðsjá-
óvæntum atlögum Ufsins, um taki anúi“ (125), „Hann líktist bónda
m-arkaðan skilning þjóðfélagsins að hvíla sig“ (161), (leturbr. min-
inslant
chicken soup/
DULFRANCE
Dulirance IIUSTAMT
siipur
Dulfrance súpurnar eru ljúf-
fengustu og bezia supu-
kaupin.
— eru ódýrustu súpur sem
fáanlegar eru.
— eru þægil-egar í ferðalög
um.
— eru þægilegar í notkun,
og kosta litla fyrirhöfn.
Vandlátir neytendur kaupa
því Dulfrance súpur. Fást í
flestum matvöruverzlunum.
Verð kr. 8.90.
Umboðsmaður
á hinum flóknu spurningum um
sekt og sakleysi. u-m ótta manns-
ins við hið ókunna og margræða.
Silone virðist gefa í skyn að
þjáning hins saklausa fyrir hinn
seka geti verið vegur til sann-
leikans, og vissulega er Lúkas
sigurvegarinn í sögunni: hann
hefur bæði yfirunnið sjálfan sig
og eignazt hjarta konunnar, sem
hann elskar, óskipt.
Þýðing Jóns Óskars er ekki
ar). Mér þykir tilvísunarfornafn
ið „er“ ævinlega hvimleitt, en
alveg óþolandi í samtölum, því
þannig talar jú engin lifandi sál
á þessu landi.
Atli Már hefur gert skemmti-
lega kápu og titilsíðu á bókina,
og er ytri frágangur hennar góð-
ur, þegar frá er talinn prófarka-
lesturinn sem er vægast sagt
hörmulegur.
Sigurður A. Magnússon.
Atvinna
Ungur maður með tæknilegan áhuga óskast til að
sjá um varahlutapantanir. Májakunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar kl. 4—6 e.h. á morgun.
GUNNAR ASGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16
Dodge ,59
Lítið ekinn glæsilegur einkabíll til sölu. — Tilboð
óskast í bifrciðina er verður til sýnis við Leifsstytt-
una í dag (sunnuðag) kl. 1—3.
Löybcrg — Heimskrmgla
Eina íslenzka vikublaðið í Vesturheimi. Verð kr. 240
á ári.
Umboðsmaður :
SINDRI SIGURGEIRSSON
P. O. Box 757, Reykjavík.
HVEITIÐ
SEM HVER
REYND
HÚSMÓÐIR
ÞEKKIR
2 _ 5 og 10 lbs.
... OG
NOTAR
í ALLAN
BAKSTUR
GM—1