Morgunblaðið - 03.09.1961, Side 5
Sunnudagur 3. sejft. 1961
MORGUNBLAÐ1Ð
5
listamanns. Það hafði ég aldrei
gjört áður.
Frú Ragnheiður Pétursdótt
ir í Háteigi hringdi mig upp
fyrir hönd Bandalags kvenna
í Reykjavík. Spurði hún mig,
hvort ég myndi fáanleg til að
vefa stórt veggteppi, sem ætti
að sýna landnámdð. Teppið átti
að verða gjöf kvenna til vænt
anlegs ráðhúss Reykjavíkur.
Þetta átti að verða eftir fyrir
mynd Jóhanns Briem, sem
þær konurnar höfðu þá talað
við tveimur árum áður. Var
hann þegar kominn með nokk
ur frumdrög. Þarna var úr
vöndu að ráða fyrir mig, því
að ætlun mín var að vefa að-
eins eftir eigin fyrirmyndum.
Það er annað að skapa og
byggja upp sitt eigið, en
verða að setja sig inn í tján-
ingaheim annars listamanns,
þótt mætur sé og hafi hlotið
verðskuldaða viðurkenningu.
Það fór þó svo, að ég sá
mér ekki fært að hafna þessu
boði og hófst því handa um að
útvega mér 2% m breiðan
listvefnaðarstól frá Noregi. En
teppið átti að vera 2x2% m.
Svo þurfti að fá efnið, bezta
fáanlegan hör í uppistöðuna.
Álafoss hafði lofað að vinna
bandið eftir minni fyrirsögn
Vigdis Knstjansdottir fyr
ir framan vefstólinn, sem
hún óf í „Ráðhústeppið“.
rK
og lita það. Var það gert af
mikilli prýði.
Svo kom fullgerð frummynd
in frá Jóhanni Briem, 1957,
hún var sett upp í vefstólinn
og verkið hófst. Það var erfitt
að gera sér grein fyrir því fyr
ir fram hversu mikið verk það
væri að vefa teppið, og óraði 1
mig ekki fyrir því hve mikið
það var í raun og veru.
Það tafði mikið fyrir mér,
hve fáa liti ég hafði, innan við
30, en tæpast er hægt að leggja
upp í svona myndvefnaðar-
verk með minna en 70—80 liti.
Eg varð að rekja bandið í sund
ur Og setja það saman, alla
vegna aftur, til að skapa lit-
brigðin. Oft úr einum 7 blönd
um, þar sem liturinn grípur
hver inn í annan í vefnaðar-
tækninni, þetta tafði stundum
um helming.
Oftast þegar um svona stórt
teppi er að ræða, vinna tveir
við það, en ég var alltaf alein.
Hvernig þetta hefur tekizt get
ég ekkert sagt um.
Teppið var afhent Reykja
vík á 175 ára afmælisdaginn
og afhjúpað þann dag. Hang
ir þar í bæjarþingsalnum í
Skúlatúni 2 þar til ráðhúsið
okkar rís af grunni.
Það verða þjóðin og fram-
tíðin, sem dæma um mína hlut
deild í teppinu. Eg vona að
það eigi eftir að skapa aukinn
áhuga á listvefnaði hér heima.
Það hefur oft undrað mig hve
lítill áhugi og skilningur ríkir
á þessari listgrein hér. Þetta
er þó ein þeirra listgreina ,sem
lengsta þróun „tradition" eiga
að baki sér og margt fallegt
hefur verið ofið hér á landi
gegnum aldirnar úr ullinni
okkar, þó að ekki hafi það
verið myndvefnaður.
Þjóðminjavörður segir, að
þetta umrædda teppi sé fyrsta
stóra myndteppið, sem ofið er
hérlendis, svo hann viti til.
Eg var að tala um áhuga
leysi á myndvefnaði, en ég
held að deild sú, sem sett var
á stofn við Handíða- og mynd
listaskólann fyrir tveimur ár
um, hafi gert mikið til að
glæða hann.
í sumar hef ég hvílt mig vel
frá öllum vefnaði, og er nú
farin að hlakka til að hefjast
handa um vefnað teppa eftir
mínum eigin fyrirmyndum.
m
Fréttamaður blaðsins hitti
Vigdísi Kristjánsdóttur, lista-
konu að máli fyrir skömmu.
Vigdís sagðist hafa tekið það
rólega í sumar, ferðazt um og
einnig unnið að jarðabótum
við sumarbústað, sem hún á
fyrir utan bæinn. I vor Iauk
Vigdís við að vefa ráðhústepp
ið, svonefnda. teppið, sem
Bandalag kvenna í Reykja-
vík gaf og var afhjúpað á 175
ára afmælisdegi borgarinnar.
Hangir það nú uppi í fundar
sal bæjarstjórnar, en er í fram
tíðinni ætlaður staður í ráð-
húsi Reykjavíkur.
Við báðum Vigdísi að segja
okkur frá aðdraganda þess, að
hún tók að sér að vefa teppið
og vinnunni við það.
— Það mun hafa verið árið
1955, sem ég kom heim að
loknu myndlistarnámi mínu,
hóf Vigdís mál sitt. Fyrst var
ég fimm ár við nám í málara
list hjá prófessor Kræsten Iv
ersen, við listaháskólann í
Kaupmannahöfn Og síðan tvö
ár í mynd- og listvefnaði við
ríkisskólann í Ósló. Var það
fyrir eindregin tilmæli próf.
Iversens, að ég fór út í list-
vefnaðinn, en prófessorinn
taldi myndstíl minn vera vel
fallinn fyrir myndvefnað.
Þegar ég kom heim, hafði ég
ofið nokkur teppi eftir eigin
fyrirmyndum, og dómurinn
sem þau fengu hjá prófessorn
um var mjög uppörvandi og
hvatti mig eindregið áfram,
enda mat ég dómgreind þessa
mæta listamanns mjög mikils.
Eg kom því heim full áhuga
með marga frumdrætti í koll
inum, og hlakkaði til að hefja
starf mitt við að skapa mynd-
og listvefnað úr íslenzku ull
inni okkar, sem er sérlega á
gæt til þeirra hluta.
En það fór svo, að fyrsta
stóra verkið, sem ég vann á
þessu sviði, varð ég að taka að
mér eftir fyrirmynd annars
„Ráðhústeppið“, sem Vig
dís óf eftir hugmynd Jó
hanns Briem. Sýnir mynd
in komu Ingólfs Arnarson
ar og Hallveigar Fróðadótt
ur til Reykjavikur. Hjá
þeim stendur sonur þeirra
Þorsteinn. Öndvegissúlur
Ingólfs eru einnig settar
inn í myndina.
Skólapeysur
Sel næsfcu daga drengja-
peysur og fcelpugolf treyj ur
(útprj.) og klukkuprjóns-
peysur. Prjóna úr tillögðu
garni. Sporðagrunnur 4. —
Sími 34570.
Ráðskonustaða
Fertug kona með 17 ára
sori óskar eftir ráðskonu-
stöðu. Tilb. merkt: „ágúst
61 — 1513“, sendist Mbl.
fyrir miðvikudagskvöld.
Húseigendur
Smíðurn í öllum stærðium
okkar viðurkenndu forhit-
ara fyrir hitaveitu. Leitið
uppl. í síma 32778.
Vélsmiðjan Kyndill hf.
Vinna
V antar réttinga-, boddí-
og suðumenn. Uppl. í síma
19683.
TJARIMARCAFÉ
SÍMI 13552
• Mdnudagui
TRlÓ
JÓINiS PÁLS
Leikur frá
kl. 9—11,30
TRÍÓIÐ ER
SKIPAÐ ÞESSUM
Husið opnað kl. 7 jAZZLEIKURUM
AUK HANS SJÁLFS
ÞÓRARINIM ÓLAFSSON PJAIMÍÚ
og ÁRIMI EGILS BASSI
N
N
H5
IHiðnæturskemmtun
HALLBJÖRG BJARNADÖTTIR
SKEMMTIR
í Austurbæjarbíói
miðvikudaginn 6. þ.m. kl. 11,30 e.h.
★
NEO-tríóið aðstoðar
★
Aðgöngumiðar seldir í Bókabúð Lárusar
Blöndals, Vesturveri og í Austurbæjarbíói.
Bernadé Gonzáleg Chapa
lllálverkasýning
í Ásmundarsal við Freyjugötu
3.—10. september.
Opið kl. 2—10 e.h.