Morgunblaðið - 12.09.1961, Page 6

Morgunblaðið - 12.09.1961, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞriðjudagUr 12. sep't. 1961 Nýja brúin yfir Mjósund. Vígsla Miúsundsbmar !\lerkilegur áfangi í samgongu- málum Snæfellsness GrundarfirSi, 11. sept. KLUKKAN tvö sl. sunnudag fór fram vígsla Mjósundsbrúar í Eyr arsveit á Snæfellsnesi. Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra, vígði brúna að viðstöddu miklu fjölmenni. Dumbungsveður var fyrir vígsluháitíðina, en er hún bófst með ræðu samgöngumála- ráðherra, létti til og var bezta veður meðan á athöfninni stóð. + Merkilegur áfangi í vígsluræðu sinni sagði Ingólfur Jónsson, samgöngumála ráðherra m.a., að það væri eðli- legt, að Snæfellingar kæmu sam- an þennan dag til að minn- ast merkilegs áfanga í samgöngu málum héraðsins. Þessi brú, sem vígð væri í dag, væri sérstök að því leyti, að hún væri fyrsta brú á íslandi, sem byggð væri yfir fjörð. Snæfellingar gætu minnzt margra sigra á undanförnum ár- um í samgöngumálum og hvers konar uppbyggingu í héraði sínu, eins og sjá mætti, þegar ferðazt væri um héraðið. Snæfellsnes hefði upp á mikla fegurð að bjóða og andstæður, annars vegar grösugar og blóm- legar sveitir með velbyggðum bændabýlum, hins vegar jökull, hraun og bruni, eins og staður- inn, sem vígsla þessarar brúar færi fram á, . Þá gat samgöngumálaráðherra þess m.a., að einnig væri rétt að minnast mikillar sam,göngubótar, sem væri vegurinn um Búlands- höfða, en hann stytti leiðina milli Grafarness og Ólafsvíkur um 90 km. Við þá vegagerð yrði væntanlega lokið á þessu ári. Óskaði samgöngumálaráðherra Snæfellingum til hamingju með brúna á Hraunsfjörð og ýmsar fleiri framkvæmdir, sem verið væri að vinna að. Snæfellingar væru ánægðir yfir því, hvað á hefði unnizt, um leið og þeir gerðu sér ljóst, hve mikið væri ógert í samgöngumálum og ýms- um málum í héraðinu, eins og yfirleitt í öllum öðrum byggðar- lögum á landinu. íslendingar væru ekki nema 180 þúsund manns og byggju í stóru landi, þvi væri ekki nema eðlilegt, að brúargerðir yfir hin mörgu vatnsföll í landinu Og vega gerðir tækju nokkurn tíma. — Þessi fámenni hópur, sem byggði þetta stóra land legði mikið af mörkum í samgöngumálum og annarri uppbyggingu landsins, og þannig yrði það að vera, til þess að þjóðin gæti lifað sjálfstæð og hamingjusöm 1 landinu. + Aðrir ræðumenn Ræðumenn á vígsluhátíðinni, auk Ingólfs Jónssonar, sam- göngumálaráðherra, voru Sig- urður Ágústsson, alþingismaður, Sigurður Jóhannsson, vegamála- stjóri Og Halldór Jónsson, odd- viti í Grundarfirði. Prófasturinn í Snæfellsnesprófastdæmi, séra Sigurður Lárusson, flutti bæn og Lúðrasveit Stykkishólms lék undir stjórn Víkings Jóhannsson- ar. Vígsluathöfninni stjórnaði Hinrik Jónsson, sýslumaður í Stykkishólmi. Að athöfninni lokinni fór fjöldi manns út í Grundarfjörð Og drakk þar kaffi í barnaskóla- húsinu í boði sýslunefndár Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu, sem annaðist undirbúning að vígsluhátíðinni. ♦ Brúin Mjósundsbrú er, eins og fram kom í tilvitnun í ræðu samgöngu málaráðherra, fyrsta brú á ís- landi, sem byggð er yfir fjörð. Með til komu hennar styttist leið in út í Grafarnes um 5 km. og áður þurfti að sæta sjávarföllum til að komast fyrir botn fjarðar- ins og olli það tíðum miklum erfiðleikum og töfum í ferðum. Hafizt var handa um undir- Framhald á bls. 23. Afmœlisvísur til skáldsins tíjálmars á Hofi Úr hæðum kominn ofan ert, á þig meyjar störðu. Blessaður og sæll þú sért, sendur vorri jörðu. Ótal mörgum ert þú kær, öidnu föðurlandi. Háiin grána, himni nær hefst þá skáldsins andi. Björt er draumadísin þín, duliðsmál vill tala. Sérhvert ljóð þitt lifir, skín í lundum himinsala. Hátt við blámans heiði ber hof, sem leiðir varðar. Veizt þú, fjallið Esja er undur vorrar jarðar. Veitti þér ei fögnuð, frið fagur morgunroði. Um þig sveif þá englalið, árdagssendiboði. Hreif þig nóttin ljós og löng, lygni særinn víður. Bar þér ekki svanasöng sumarblærinn þýður. Ilman dylur eyrarrós undir köldum frera. f nöpru frosti norðurljós Nirði vitni bera. — Himnaríki eilíft er ofar svölum straumi. Á bláu fjalli birtist mér blíður guð í draumi. — Lofum nótt, hvern liðin dag, þótt lífið kalt oss græti. Þér um sælast sólarlag Sigurhetj an mæti. Sigfús Elíasson. • Akvegur kringum Snæfellsnes Um síðustu helgi var vígð brúin yfir Hraunfjörð á Snæ- fellsnesi. Brúin sú styttir veru lega leiðina út í Grundarfjörð inn. Þetta er einn áfanginn í að koma upp góðum vegi kringum nesið. Einnig er að koma í gagnið vegurinn yfir Búlandshöfða, og þá verður hægt að aka norðan megin á nesinu milli Stykkishólms og Ólafsvíkur. Einnig er fær veg- ur meðfram allri suðurströnd nessins og fyrir jökulinn. Ein- asti farartálminn á hinni skemmtilegu leið kringum Snæfellsnes er þá Ólafsvíkur- enni, en þar er hægt að kom- ast á fjöru á góðum fjallabíl- um, minni bílum er það ekki fært. Ég fór alla leiðina kringum Snæfellsnes um sl. verzlunar- mannahelgi. Við vorum á Dodge-Weepon bíl með drifi á öllum hjólum, svo Ólafsvíkur- ennið var ekki farartálmi, heldur ekki Búlandshöfðaveg- urinn, sem ekki var búið að bera ofan í þá og því ekki leyfð umferð um hann. Þetta er stórkostlega skemmtileg leið og tilhlökk- unarefni, þegar hún verður fær öllum bílum. Ferðamála- sérfræðingur einn erlendur, sem kom hingað til að athuga hvernig bezt yrði hagað upp- byggingu ferðamála hér, á að hafa sagt, að við íslendingar ættum að snúa okkur að því að byggja góð hótel og bæta aðstæður til að taka á móti ferðamönnum á þremur stöð- um á landinu, en láta aðra staði bíða. Þessir þrír staðir væru Þingvellir, Mývatn og Snæfellsnesið. Ég hefi alltaf vitað að Þing- vellir og Mývatnssveitin væru svo sérstæðir staðir í veröld- inni, að þeir gætu dregið fólk að langar leiðir, og eftir að hafa farið um Snæfellsnesið er ég ekki hissa á þó hinn vani ferðamálamaður teldi það með. • Jökull, hraun og fögur fjöll Falleg hraun teygja hvar- vetna anga sína niður í sveit- irnar, hár fjallgarður með sérkennilegum formum og lit- um er alltaf á aðra hönd og hafið, víða með hraundröng- um út í á hina og úti á nes- oddanum Snæfellsjökullinn sjálfur hvítur og tignarlegur. í fyrrnefndri ferð ókum við norður yfir Mýrasýsluna og út nesið sunnanvert, að Búð- um. Þar er skemmtileg bað- strönd með fíngerðum sandi og ágætis hótel. Þangað er þægileg dagleið úr Reykjavík fyrir þá sem vilja ferðast ró- lega. Nokkru utar á nesinu er komið að stapa þar er lítil sérkennileg höfn, stór kletta- drangur gnæfir upp á endan- um á steynsteyptri bryggj- unni, sem fiskibátar vagga við. Og út með sjónum eru ☆ FERDIMAIMD ☆ c c c « c i X 1 + '—di c < | - < c — 39 y % - c < c c £ < - kynlegustu katlar niður í berg ið, sem sjórinn gengur upp í að neðan verðu frá og utan í klettaveggjunum í þessum göt um situr fuglinn á hverri sillu. Þegar við komum þarna snemma í ágúst, sátu misstór- ir rituungar þar í hverju skoti. Og loks kemur sérkennilegi drangurinn stóri með gatinu í gegnum, sem prýðir almanak Eimskipafélagsins í ár á mynd Magnúsar Jóhannssonar. Á Helln-um er þetta fallega holuberg þéttsetið fugli, og nokkru utar er gengið af veg- inum niður að Lóndröngum, yfir úfið, en mosagróið hraun niður að háum hraundröngun- um úti við sjóinn. Samskonar landslag er ekki á hverju strái í veröldinni og ef það væri þekkt mundu férðamenn áreið anlega leggja á sig langa ferð til að kynnast því, svo ekki sé talað um náttúrufræðinga, sem þarna finna hreinasta Gósenland. ♦ Annar „hringur“ Ég ætla ekki að rekja þetta ferðalag okkar lengur. Við ókum sem leið liggur fyrir jökulinn að Sandi. og vorum svo heppin að koma þar um fjöru, svo við gátum haldið áfram til Ólafsvíkur eft- ir fjörunni neðan við hátt bergið á Ólafsvíkurenni. Þetta er ekki langur spotti, en mér er sagt að hann sé erfiður til vegagerð- ar, þar eð fara verður með veginn upp í múlann. Frá Ólafsvík liggur Búlondshöfða- vegurinn, sem nú er að verða til, og þá verður ekki lengur nauðsynlegt að fara suður um Fróðárheiði og sömu leið eftir nesinu sunnanverðu, heldur hægt að halda áfram alla leið í Stykkishólm norðanmegin, eins og við gerðum, og siðan út Skógaströndina, ef vill, og um Bröttubrekku ofan í Borg- arfjörð. Er þá hægt að aka all an hringinn og fara aldrei sömu leið. Ég er visis um að þessi leið á eftir að verða ekki síður vin sæl, en „hringurinn“ frægi, um Þingvelli, Hveragerði og Hellisheiði, sem sjálfsagt þyk- ir nú að allir ferðamenn, inn- lendir og erlendir fari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.