Morgunblaðið - 14.09.1961, Blaðsíða 1
20 siötii
ti^ipw^IíiMB
48. árgangur
207. tbl. — Fimmtudagur 14. september 1961
Prentsmiðja Morfnnfolaðsina
ússar sprengja
í 8. og 9. sinn
SOVÉTSTJÓRNIN lætur nú
skammt stórra högga milli í
kjarnavopnatilraunum sín-
um. Seint í gærkvöldi til-
kynnti kjarnorkumálanefnd
Bandaríkjanna, að Rússar
hefðu fyrr um daginn
sprengt enn tvær kjarna-
sprengjur, aðra meðalstóra,
hina minni.
~ * -
Báðar voru sprengjurnar
sprengdar hátt í lofti —
önnur yfir Semiplatinsk-
svæðinu í Síberíu (þar sem
fyrstu sprengingarnar voru
framkvæmdar, í byrjun mán
aðarins), hin yfir Novaja
Zemlya í Norður-íshafi, en á
svipuðum slóðum sprengdu
Rússar sjöiindu kjarna-
sprengju sína — og eiha þá
stærstu — sl. þriðjudag. —
Hafa þeir þá framkvæmt
Kndar gerir
sjálfun sig að
íorsætisrúðherra
Vínarborg, 13. september.
(NTB/Reuter)
ÚTVARPIB í Búdapest birti
í kvöld opinbera tilkynningu
þess efnis, að Janos Kadar,
aðalritari ungverska komm-
únistaflokksins, hefði tekið
við embætti forsætisráðherra
—< af Ferenc Munnich, sem
verið hefur forsætisráðherra
kommúnistastjórnarinnar sl.
þrjú ár.
Tilkynnt var, að allmiklar
breytingar aðrar hefðu verið
gerðar á stjórninni, en ekki
var upplýst, hverjar þær
væru. „Breytingarnar eru
gerðar til styrktar stjórn-
inni", sagði í hinni offinberu
tilkynningu.
Tækif æri til
viðræðna
Washington, 13. sept.
KENNEDY Bandaríkjaíorseti
lét m. a. svo um mælt í yfir-
lýsingu, sem hann gaf út að
loknum viðræðum við sendi-
menn hlutlausu ríkjanna, —
/Keita Mali-forseta og Sukarno
Tforseta Indónesiu, að ef þeir
i Gromyko, sovézki utanríkis-
ráðherrann, og Rusk, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hitt
ust í næstu viku í aðalstöðv-
um SÞ í New York, gæfist
tækifæri til alvarlegra við-
ræðna um Þýzkaland og önn
ur vandamál — ef Rússar
vildu í raun og veru slíkar við
ræður.
þrjár atómsprengingar á
tveim dögum.
í tilkynningu bandarísku
kjarnorkumálanefndarinnar
er sagt, að ekki sé unnt að'
geta sér nákvæmlega til
um kraft þessara síðustu
tveggja sprengja Rússa, en
hvor um sig hafi jafngilt
þúsundum tonna af TNT-
sprengiefni.
Sjáiístæöi Katanga lokið
faMVVMMWVMMV^M^MtMWM^MWMMmWM
Lið SÞ rekur ÍYlkisstjórnina frá og
Kandtekur ráðherra. — Tsjombe og
Munongo komast undan á ílótta
EFTIR hörð átök, sem urðu í gær í Katanga-fylki í Kongó,
milli liðssveita Sameinuðu þjóðanna og hers og lögreglu
fylkisstjórnarinnar, virðist svo sem baráttu Moise Tsjom-
bes og hans manna fyrir því, að Katanga skyldi vera sjálf-
stætt ríki og óháð sambandsríkinu Kongó, sé nú lokið með
algerum ósigri.
? SÞ hófu aðgerðir sínar í nafni samþykktar Örygg-
isráðsins frá því í febrúar sl., en þá var herstjórn samtak-
anna í Kongó heimilað að beita valdi til þess að koma í
veg fyrir borgarastyrjöld í landinu. í gærkvöldi hermdu
fréttir, að lið SÞ hefði ekki aðeins tögl og hagldir í Elisa-
bethville, heldur væru allar mikilvægar stöðvar í landinu
á þeirra valdi. Tveir af ráðherrum fylkisstjórnarinnar voru
handteknir í gær, en þeim Tsjombe og Munongo, innan-
ríkisráðherra, tókst að komnst undan á flótta. Er helzt tal-
ið, að þeir hafi báðir flúið til Norður-Ródesíu, a. m. k.
Munongo. —
ildin væri gefin út af miðstjórn-
inni í Leopoldville. Katanga-rá5-
herrarnir tveir, sem handteknir
voru í gær, Jean Baptiste Kibwe,
fjármálaráðherra, og Evariste
Kimba, utanríkisráðherra, munu
verða framseldir Leopoldville-
stjórninni.
O'Brien sagði á blaðamanna-
Framhald á bls. 19.
; MESSI mynd gefur nokkra
hugmynd um hamfarir felli-
bylsins Carla, en hún er tekin
í borginni Freeport í Texas.
Óveðrið hefir nú lægt mjög,
og í gær hermdu fréttir, að
margir þeirra, sem flúðu heim
ili sín í hinum ýmsu borgum
á suðurstörndinní, væru nú að
snúa aftur heim. i
Vitað er, að a. m. k. 15
manns hafa látið litið í felli-
bylnum og hvirfilsveipum
þeim, er fylgdu í kjölfar hans.
Óttazt er þó, að manntjón
\ kunni að reynast meira, er öll
í kurl koma til grafar.
¦ »¦ ^* ^ m* ^p* aK
í (Mynd frá Associated Press).
•k Cyrill Adoula, forsætísráð-
herra sambandsstjórnarinnar í
Leopoldville, sendi þegar fulltrúa
sína til Elisabethville til þess að
taka við stjórnartaumunum — og
hefir hann lýst yfir undantekning
arástandi í öllu fylkinu.
A Hammarskjöld, framkvæmda
stjóri SÞ, sem kom til Leopold-
ville í gær, að beíðni stjórnar
Adoula, vildi ekkert við frétta-
menn segja um þessa síðustu at-
burði i Kongó.
• Borgarastyrjöld var
yfirvofandi
Samkvæmt fréttum þeim, sem
bárust í gærkvöldi af atburSum
í Elisabethville, hófust hin vopn-
uðu átök í morgunsárið við aðal-
póststöð borgarinnar. — O'Brien,
hinn írski aðalfulltrúi Sí> í Kat-
anga, sagði á blaðamannafundi,
að Katanga-hermenn þar hefðu
neitað að afhenda vopn sín, er
sveitir SÞ hugðust taka húsið.
Varð þarna nokkurt þóf, unz
Tsjombe-menn skutu fyrsta skot-
inu, að sögn O'Briens. Hann lagði
áherzlu á, að tilgangurinn með
aðgerðum SÞ hefði verið að
hindra borgarastyrjöld í Kongó,
milli Katangahers og liðs mið-
stjórnarinnar í Leopoldville, sem
hefði verið yfirvofandi. Því mið-
ur hefðu hermenn Tsjombes hafið
skothríð — og eftir mannfall á
báða bóga hefðu átökin gripið
um sig víðar í borginni. O'Brien
kvaðst hafa haft samband við
Tsjombe nokkru eftir að bardag-
arnir brutust út, og hefðu þeir
orðið ásáttir um vopnahlé — en
erfitt hefði reynzt að koma fyrir-
skipunum um það á framfæri
við alla aðila, og hefðu því bar-
dagar haldið áfram fram eftir
degi.
• Aðskilnaði lokið
O'Brien tók fram, að hann hefði
heimild til að handtaka Munongo
ef hann næðist. Handtökuheim-
áftm
Bandarískt geimíar
með gervimanni
Mikilvæg og vel heppnuð tilraun í gær
Kanaveralhöfða, Flórída,
13. september.
BANDARÍKJAMENN skutu
í dag á loft einnar lestar
þungu geimhylki af Mercury
gerð, með gervimanni innan-
borðs. Geimfarið komst á
braut um jörðu, eins og fyr-
irhugað var, og fór einn
hring áður en það féll niður
í Atlantshafið, austan Ber-
múda-eyja, um kl. 5 síðdegis
(ísl. tíma). HafCd það þá ver-
ið á lofti 1 klst. og 46 mín.
— fjórum mín. skemur en á-
ætlað var. Mesti hraði þess
*mm*mmiM^mmAm*mmmmmAmmim^mm*mmiamnAmAmmnm
mmmmmm
Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins
EINS og áður hefur verið tilkynnt hefst Iandsfundur
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 19. október næst-
komandi. Dagskrá fundarins verður tilkynnt síðar.
Er þess vænzt, að þau félagssamtök flokksins, sem
ekki hafa enn kosið fulltrúa sína á landsfundinn
geri það sem fyrst og tilkynni aðalskrifstofu flokks-
ins í Reykjavík nöfn fulltrúa.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
var rúmlega 28 þús. km á
klst, og lengst var það um
232 km frá jörðu. Geimfar-
inu (sem er af sömu gerð og
þeir Shepard og Grissom
notuðu í geimferðum sínum)
var skotið á loft með eld-
flaug af gerðinni Atlas-D —•
en þetta er í fyrsta skipti
sem Mercury-geimfari er
skotið á umferðarbraut um
jörðu.
• Brátt maður í hringferð
Tilraunaskot þetta, sem talið
er vel heppnað, er að sjálfsögðu
liður í undirbúningi að slikri
geimför Bandaríkjamanns. >að
verður þó sennilega ekki næsta
skrefið, heldur verður væntan.
lega bráðlega sendur api í hring-
ferð um jörðu, en að því búnu
kemur röðin að manninum —
sennilega nálægt lokum þessa
árs, eða snemma á árinu 1962.
-k Gervimaðurinn súrefnisfrekui
Brúðan j geimfarinu var
mannleg á ýmsan hátt — t. d.
var hún þannig útbúin, að hún
„andaði" og „svitnaði" með
sama hætti og maðurinn. Banda-
líska geimferðastjórnin lét hafa
það eftir sér í dag að það hefði
belzt komið á óvart í sambandi
við tilraunina, að gervimaðurinn
hafi notað meira súrefni en reikn
að var með.