Morgunblaðið - 14.09.1961, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.09.1961, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 14. sept'. 1961 MORGUNBLAÐ1Ð 3 Hrafl af berjum ÍÞAÐ er orðin föst venja að spyrja Þórð Þprsteins- son á Sæbóli, hvernig berjaspretta er á haustin. Eins og kunnugt er tínir I Þóröur mikið magn af berjum á hverju hausti og selur ennþá meira í búð- Sum sínum á Laugavegin- um og í Fossvogi. — Má hann því teljast hinn ó- krýndi berjakóngur Reykjavíkur og næsta ná- grennis. Þórður var að leggja upp í berjaferð fyrir helgina, þeg- ar við náðum símasambandi við hann. Lofaði hann að Þórður á Sæbóli vigtar ber. hér og Þar láta okkur vita eftir helgina — Þetta er karlinn hann hvernig ferðin hefði gengið. Þórður, var sagt í símanum, í gærmorgun hringdi svo ég kom seint í gærkvöldi siminn: með 830 kíló af berjum. — Og hvar náðirðu í þessi ber? — Vestur í Dölum og á Vestfjörðum. Við fórum karl og kerling í fólksvagninum og komumst vestur í Djúp. Við tíndum mest uppi í ó- byggðunum. — Og hvernig er nú berja- sprettan? — Það eru léleg ber, hrafl svona hingað og þangað, ekkert sem maður getur kallað ber. — En eru ekki 830 kg. af berjum dágóður afrakstur eftir helgarferð? — O, ég tíndi þau nú ekki öll sjálfur, kepti ber á bæj- unum þar sem ég kom. Það eru gömul hjón í Dölunum sem eru mjög drjúgar berja- manneskjur og fékk ég væn- an hlut hjá þeim. Annars er búið að tína allt þar vestra núna. — Hvernig er annarsstaðar á landinu? — Allsstaðar sama sagan- þar sem ég hef komið. Ég fór austur um, allt norður í Steingrímsfjörð og fann lítið, bara hrafl. Um Norðurlandið get ég ekkert sagt, því þang- að hef ég ekki farið. — Hvað selurðu berin dýrt, Þórður? Svona frá 20 og upp í 50 krónur, eftir því hvaða teg- und er um að ræða og hvort þau eru hreinsuð eða ó- hreinsuð. Ég kom með 300 kiló af aðalbláberjum núna og þau eru dýrust. Ég bið svo að heilsa öllum þeim kunningjum á Vest- fjörðum, sem ég hafði ekki tíma til að hitta, sagði Þórð- ur að lokum. Segðu það. Við hjónin lékum okkur allan sunnudaginn og heimsóttum kunningjana en dugði ekki til. Segðu að ég hafi sam- band við þá næst. Hg. Stytta Ingólfs afhent Norö- mönnum á sunnudaginn islendiiigar fara með tfeklu í dag í DAG kl. 17.30 fer ms Hekla áleiðis til Noregs með þá íslend- inga, sem verða viðstaddir af- hjúpun Ingólfsstyttunnar í ætt- byggð Ingólfs Arnarsonar hinn 17. þ. m. Styttan er afsteypa af Ingólfsstyttu Einars Jóns- sonar, sem stendur á Arnarhóli, og er gjöf íslendinga til Norð- manna. Forsaga þessa máls er sú, að sumarið 1957 bauð norska ríkis- stjórnin rúml. 30 íslendingum til Noregs, og ferðuðust þeir um helztu ættarbyggðir landnáms- manna fyrir austan haf. M. a. var komið til Hrífudals (Rive- I dal) í Dalsfirði á Fjölum í Firða fylki, en þar var Ingólfur j Arnarson borinn og barnfæddur. ■ Þar fæddist sú hugmynd meðal! fslendinganna, að ánægjulegt væri, að stytta Ingólfs stæði á j þessum stað. Það var svo 30. maí , 1958, að fimm þingmenn, sem ver | ið höfðu í förinni, fluttu þings- ályktunartillögu um að fela ríkis stjórninni að hrinda þessu máli um styttuna. Þessir fluttu tillög-, una, sem var samþykkt: Bjarni1 Benediktsson, Pétur Ottesen, Gylfi Þ. Gíslason, Halldór E. Heyfengur í meðallagi VALDASTÖÐUM, 8. sept. _ Undanfarna daga hefur verið ágætis veður og suma dagana góður þurrkur. Bændur hafa því náð inn töluverðu af þurru heyi, sem bæði var flatt og upp- sætt. Annars eru flestir að slá túnin aftur, og er það hirt jafn- óðum. En háarspretta er ekki góð. Vera má að heyfengur verði í meðallagi. Útengi var heldur illa sprottið. Hey munu ekki mikið hrakin þó að vot- viðrasamt hafi verið. Laxveiðin mun hafa verið með betra móti í sumar, en ekki hefur mér tekizt að fá heildartölu yfir veiðina. Fáir eru ennþá byrjaðir að taka upp kartöflur nema í mat- inn. Þó veit ég um einn. Eirík- ur nágranni minn í Sogni er búinn að taka upp hjá sér og segir hann sprettu ágæta. Ann- ars er það nokkuð misjafnt frá einum bæ til annars, eins og alltaf vill verða. — St. G. Sigurðsson og Hannibal Valdi- marsson. Nefnd var skipuð til að sjá um framkvæmdina, og eiga í henni sæti fjórir flutnings- manna auk ráðuneytisstjóra ut- anrí’kisráðuneytisins. Um miðjan júní í ár var svo endanlega gengið frá því, hvern- ig afhending styttunnar færi íram. Var þá afráðið að afhenda styttuna með viðhöfn 17. seþt- ember nú í haust, og Bjarni Benediktsson afhenti hana fyrir hönd islenzku þjóðarinnar. Jafn- framt var ákveðið að efna til hópfarar fslendinga til Noregs í sambandi við afhendinguna. Ferðaskrifstofa ríkisins og Skipa útgerð ríkisins sjá í sameiningu um ferðina. Um 150—160 íslendingar eru skráðir til þátttöku, eða eins margir farþegar og skipið rúm- ar. Ýmsir þingmenn fara í ferð- ina. Auk Bjarna Benediktssonar, má nefna frú Auði Auðuns, Halldór E. Sigurðsson, Hannibal Valdimarsson og Guðlaug Gísla- son. Nokkrir fyrrverandi þing- menn taka þátt í förinni, svo sem Bjarni Snæbjörnsson, Hann- es Jónsson og Sigurður Þórðar- son. Auk þess má nefna ráðu- neytisstjóra utanríkisráðuneytis- ins, Agnar Kl. Jónsson, og Othar Ellingsen, konsúl. Eins og áður segir. verður lagt af stað frá Reykjavík kl. 17.30 í í framkvæmd og gefa Norðmöm dag. Komið verður til margr; staða í Noregi, ferðast fram mei ströndum og ferðir skipulagða upp um landið. M. a. verðu komið til Björgynjar og Stafang urs. Frá síðarnefnda staðnun verður farið frá Noregi fimmtu daginn 21. þ. m. og komið ti Þórshafnar í Færeyjum á laug ardagsmorgun. Þar verður dval izt í nokkra klukkutíma, og far þegum m. a. gefinn kostur á a< heimsækja Kirkjubæ. Til Reykj; víkur verður komið um mið nætti aðfaranótt mánudags. Þess skal að lokum getið, a< afsteypan er gerð í Kaupmanna höfn, en norskur listamaður Stale Kyllingstad gerir fótstall inn. Framan á hann er letrað ,,Ingolfr Arnarson", á vinstr hlið: ,,Ingolfr Arnarson frá Dals firði, fyrsti landnámsmaður í íslandi“, en á hægri hliðina „Gjöf frá fslendingum. Vin sín um skal maðr vin vera“. 8TAKSTEIIVAR Einurð eða uppgjöf í fyrradag birtust í Morgunblaft inu og Þjóðviljanum ályktanir tveggja æskulýðssamtaka um al- þjóðamálefni, ályktun Sambands þings ungra sjálfstæðismanna og áiyktun Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík. Má segja, að eðlis- munur þessara tvcggja samtaka hafi sjaldan komið skýrar í ljós. Þegar ÆFR hefur túlkað sjón- armið Ráðstjórnarríkjanna af mestu kostgæfni er niðurstaða félagsins þessi: „Fundurinn álitur, að síðustu atburðir í alþjóðamálum sýni okkur íslendingum glöggt, hvílík Hvernig á að svara þessu? hætta okkur er búin af erlend- um herstöðvum og hernaðar- bandalagi, sem hefur að aðal- vopni viðbjóðs- legustu múg- morðstæki sög- unnar. Hlutlaust og friðlýst fs- land er því krafa fundarins." Þannig vilja ungkommúnistar bregðast við þeim skefjalausu ógnunum, sem yfirboðarar þeirra austur í Kreml hafa sýnt heims- friðnum að undanförnu, nákvæm lega, eins og til er ætlazt þar eystra. „Hlutlaust ísland“ er sameigin- leg „krafa fundarins“ og Krúsj- effs.öllum er nú ljóst, hver til- gangur Kremlverja er með ógn- unum þeirra. Hann er sá að skelfa lýðræðisþjóðirnar til und- anlátssemi og „hlutleysis“ gagn- vart ofbeldinu, og ungkommún- istar uppi á íslandi eru ekki sein- ir á sér að bergmála þessa kröfu. Eflum NATO Ungir SjálfstæÖismenn gera séí ekki síður ljóst eðli ógnananna. En viðbrögð þeirra eru á annan veg: ir „Þar eð Norður-Atlants- hafsbandalagið hefur megnað að forða hinum vestræna heimi frá kommúnískri yfirdrottun, álítur þingið, að íslendingum beri að auka stuðning sinn við bandalag- ið með öllum þeim hætti, er verða má. ií Þingið tekur fram, að ekki komi til mála, að varnarliðið hverfi úr landi meðan ástand er jafn ótryggt í heimsmálum og nú er, og einræðisöfl ógna friði og frelsi svo geigvænlega. ★ Þingið leggur áherzlu á, að varnir íslands séu sem traustast- ar“. Leggjum fram okkar skerf Nokkru síðar í ályktun sinni svara ungir Sjálfstæðismenn svo síðustu hótunum Ráðstjórnar- ríkjanna: ★ „Þingið fordæmir harðlega nýhafnar kjarnorkusprengingar Sovétríkjanna og telur, að þess- um ógnunum verði að mæta af fullri einurð og hvergi hopað á hæl. ★ Lýðræðisþjóðirnar mega ekki hvika á verðinum um frelsi sitt, og íslendingum ber skylda til að leggja fram sinn skerf til varnar frelsi og lýðræði.“ Þessi tvenns konar viðbrögð eru lærdómsrík. Ungkommúnist- ar krefjast uppgjafar og „hlutleys is“ gagnvart hinum austrænu ógnunum. Ungir Sjálfstæðismenn gera sér hins vegar ljósa hættuna. Þeir leggja áherzlu á, „að varn- ir íslands séu sem traustastar.“ Ungir Sjálfstæðismenn svara ógnununum af einurð: „ÍSLEND- INGUM BER SKYLDA TIL ÞESS AÐ LEGGJA FRAM SINN SKERF TIL VARNAR FRELSI OG LÝÐRÆÐI.“ Hér er komið að kjarna máls- ins, og væntanlega gefst tæki- færi til þess að ræða þetta síðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.