Morgunblaðið - 04.10.1961, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. okt. 1961
Dorothy Quentin:
Þöqlaev
. Skdldsaga
Ég er ekki annað en venjulegur
læknir hér. Sikpstjórinn var að
segja mér, að við ættum að
verða heiðraðir með heimsókn
kvikmyndahóps frá Hollywood..
Rex setti upp grettubros:
Þetta er lítill hópur, því að nú er
mest hugsað um að spara, sagði
hann glaðlega, en við erum öll
hrifin af umhverfinu. Okkur
finnst það eins heppilegt og það
getur verið.
André tók þessari kurteisi
mannsins, sem var lítið yngri en
hann sjálfur, vingjarnlega. Ég
vona, að ^ykkur finnist hér ekki
alltof frumstætt — hér er ekkert
gistihús á allri eynni, nema eitt,
sem er aðeins fyrir innlenda
menn og varla til að mæla með.
Venjulega eru okkar gestir í ein-
hverjum erindum fyrir hið opin-
bera og gista þá helzt á einka-
heimilum. Við erum ekki orðnir
eftirsóttir af skemmtiferðamönn-
um.
Snögglega datt Frankie í hug
að svara þessum ummælum og
sagði: Það er hægt að gera við
því, Rex. Þið getið öllsömun
verið hjá mér! Nóg er húsrýmið
í Laurier, enda þótt það hafi nú
staðið lokað árum saman....En
ég get sjálfsagt fengið það gert
í stand á tveim dögum, og þá skal
það vera mér ánægja að hýsa
ykkur,
Hún hafði meinfýsnislega á-
nægju af gleðinni, sem Rex sýndi
við þetta tilboð og eins af ó-
ánægjusvipnum í André, sem
hann reyndi þó að dylja eftir
föngum.
Við borðið í borðsal skipsins
sátu fimm embættismenn, hvítir
og mislitir. Eini írinn og Vestur-
Indíamaðurinn heilsuðu Frankie
með handabandi og buðu ungfrú
Laurier, eiganda Laurier, vel-
komna heim, áður en þeir stimpl-
uðu skjölin hennar, en Frakk-
arnir risu upp, hneigðu sig djúpt
og kysstu hönd hennar, eins og
André hafði gert. Stúlkan komst
við af þessari vinsemd, en kvik-
myndafólkið brosti meðan það
beið eftir að röðin kæmi að því.
Hér ætla ég að kunna vel við
mig, sagði Sally Harding og
brosti til félaga síns, Jefferson-
Jones. Þessir menn kunna að
taka á móti konum.
Jefferson var stúrinn á svip-
inn. Hann mundi þá tíð þegar
hárið á Sally var raunverulega
eirrautt og grænu augun hennar
þurftu enga skugga undir sig til
þess að tekið væri eftir þeim.
Þau voru öll komin yfir bezta
aldur, hugsaði hann, og öll ann-
ars flokks. Nema náttúrlega Mall
ory, sem var nógu ungur til þess
að koma fram í stjörnuhlutverk-
um og í sjónvarpi.
Bíddu þangað til þú ert búin
að kynnast mývarginum og öðr-
um eiturkvikindum hérna og bú-
in að skera á þér lappirnar á
kóralrifjunum og finna málning-
una renna af þér í stríðum
straumum, sagði hann önuglega.
Og þegar þú ert búin að því,
skaltu fara að kalla þennan stað
Paradís. Ég er búinn að vera það
oft við svona starf í hitabeltinu,
að ég er kominn yfir mestu
hrifninguna af því.
Veslings gamli skrjóður! sagði
Sally glottandi, en svo bætti hún
við í lægri tón: Þú mátt ekki
gleyma því, að við erum öll feg-
in að fá þetta verk, góði minn,
svo að við getum ekki sett nokkr
ar mýflugur fyrir okkur.
En hitt setti hún fyrir sig, hve
Rex var hrifin af Frankie. Ekki
vegna þess, að hún þættist sett
hjá, fyrir aldurs sakir, heldur
hitt, að Rex myndi kannske ekki
stunda vinnu sína eins vel fyrir
bragðið.
André var síðasti embættis-
maðurinn, sem þau urðu að tala
við. Hann stóð úti við dyrnar í
salnum, rannsakaði framhand-
legginn á hverjum manni og gaf
þeim síðan heilbrigðisvottorð.
Þetta var heldur flaustursleg
rannsókn, þar eð allir farþegarn-
ir virtust vera við beztu heilsu.
Hann var hærri vexti en allir í
hópnum, jáfnvel tækrtimennim-
ir. Han svaraði augnatilliti Sally
með því að láta þess getið, að
hópurinn væri þarna velkominn,
og hneigði sig um leið.
Er þetta ekki indælt? sagði
Sally og skellti á hann brosi,
sem hafði einu s*nni verið heims-
frægt. Henni fannst hún hafa
yngzt um tíu ár við þessa hof-
mennsku unga mannsins. Þetta
gat orðið síðasta myndin hennar
og hún vildi, að hún yrði góð.
André kom fram við Frankie
nákvæmlega eins og hann hafði
komið fram við Sally, og Marion
Tromsk, sem var þarna aðstoðar-
stúlka. Og Frankie rétti líka að
honum beran handlegginn, jafn
ópersónulega og ef hún væri að
sjá hann í fyrsta sinn á ævinni
Merci, mademoxselle
Ofurlítill glettnisglampí kom í
gráu augun, en hún svaraði hon-
u.m alls ekki. Niðri í káetunni
hafði hann verið aðfinnslusamur
og fjandsamlegur, og hún ætlaði
ekki að fara að svara þessari
frönsku kurteisi hans, fyrr en
hún vissi, hvort honum væri
þægð í heimkomu hennar eða
ekki. Hún þorði ekki að líta á
hann, þegar hann lagði aftur
ermina með mjúkum handtök-
um„ ef ske kynni að hún læsi
sannleikann út úr augum hans,
og kannske læsi hann um leið út
úr hennar augum þrána að kasta
sér í faðm hans og ástina, sem
var öðru hverju að snúast upp
í hatur.
Þau höfðu oft rifizt áður,
mundi hún. Æskuvinátta þeirra
hafði hreint ekki alltaf verið
slétt og felld. Þau höfðu flogizt
á og skammazt út af ýmsu, en
þó alltaf sætzt aftur, þegar
þrætuefnið var á enda kljáð —
venjulega með sigri hans. Og
jafnan höfðu þau snúið bökum
saman gegn umheiminum.
Tefðu ekki oflengi hérna,
sagði hann og laut niður að
henni. Mamma bíður eftir þér
til að bjóða þig velkomna heima,
Francoise.
Hún kinkaði kollj kæruleysis-
lega, en þegar hún kom út í
sólskinið í landi, varð hún æf er
hún hugsaði til þessa hádegis-
verðar með gömlu greifafrúnni.
Helena de Tourville hafði verið
hennar Grýla í barnæsku, og
eina manneskjan, sem hún var
nokkuð hrædd við. Jafnvel í þá
daga hafði Helena verið dramb-
söm og illgjörn kerling, sem
hélt sér dauðahaldi í horfna dýrð
og stjórnaði „Pálmahöllinni“
með járnhendi. Nú væri hún
sjálfsagt orðin ennþá drambsam-
ari illgjarnari og eldri, hugsaði
Frankie. Svona kerlingar batna
ekki með aldrinum.
Frankie hefði heldur kosið að
aka beint heim til Laurier,
gamla heimilisins síns. En svona
heimboð jafngilti konuglegri fyr-
irskipun og dugði ekki annað en
hlýðnast. Frankie bjó enn það
mikið að uppeldinu sínu, að
þetta var henni vel Ijóst. En hún
ásetti sér að vera ekkert að flýta
sér frá skipinu — ef hún ætti
hvort sem væri ekki að hitta
André fyrr en í hádegismatnum,
lá henni ekkert á í land.
Hún bar hönd fyrir auga og
horfði á litlu borgina Bellefleur.
Hún og André höfðu verið
sveitabörn og aldrei kært sig
sérlega um borgina — en hvað
sem því leið, þá var þetta nú
höfuðborgin á Þögluey.
Þegar hún leit á borgina nú,
eftir allar stórborgirnar, sem
hún hafði séð á síðustu árum,
sýndist henni hún ennþá minni,
ry-kugri og svo ósegjanlega ó-
skipuleg. Gömlu, fúnuðu hafnar-
bakkarnir voru þarna enn og
tollskýlin þakin pálmablöðum,
og svo beru rollingarnir, sem
komu alltaf til að horfa á skipin,
og hundarnir, sem höfðu lagt sig
til svefns í skugganum. Þeir ör-
fáu menn, sem höfðu komið til
að taka á móti skipinu, voru nú
inni hjá skipstjóranum og borg-
in virtist næstum manntóm. Fá-
einir ræfilslegir bílar biðu rétt
utan við hafnarhliðin, en bílstjór
arnir lágu út af á heitu malbik-
inu og voru að spila eitthvert
fjárhættuspil. Lágar og breiðar
raddir þeirra báust til Frankie í
logninu og hún brosti ósjálfrátt.
Þetta voru regluleg sólarbörn,
miklu sælli en menntuðu svert-
ingjarnir í Ameríku, þetta var
hennar þjóð — og Andrés. Þá
mátti Þöglaey hafa mikið breytzt
ef þar var ekki ennþá höfðingja-
stjórn. Og André var einn hinna
sjálfkjörnu erfðahöfðingja ....
Hann kynni að vera hrokafullur
við jafningja sína, en það hafði
hann aldrei verið við innlenda
menn — og það var eitt gremju-
efni af mörgum í augum Helenu,
að Frankie og André höfðu um-
gengizt innlend börn eins og
jafningja sína. Helena hafði allt-
af verið heilli öld á eftir tíman-
um, fannst Frankie. Hún fór að
hugsa um, hvort gamla konan
vildi ennþá lifa í fornöldinni og
líta á svertingja eins og þræla
í huga sínum.
Morgunkyrrðin var trufluð er
hegrarnir tóku að losa úr for-
lestinni á skipinu. Fyrst komu
flutningabílarnir, sem tilheyrðu
kvikmyndahópnum. F r a n k i e
brosti aftur, er hún sá Mike
Purcell og Colly Barnes, hljóm-
upptökumennina, hlaupa niður
landganginn til þess að sjá um
uppskipunina á hinum dýrmæta
farangri sínum. Brátt gengu
ljósmyndararnir £ lið með þeim
og á skammri stundu hafði heill
hópur safnazt þarna saman til
þess að horfa á og gefa góðar
ráðleggingar,, hlæja og bölva,
þegar gömlu hegrarnir titruðu
og skulfu, og svo safnast saman
kring um þennan framandlega
flutning. Mikil börn gátu menn
verið — hvítir jafnt sem svartir
—■ þegar vélaleikföng voru ann-
arsvegar!
Hún gekk út að þeim borð-
stokki skipsins, sem sneri frá
bakkanum. Þaðan gat hún séð
blossatréð í fullum blóma og
risavaxnar magnólíur fram með
krókótta stígnum, sem lá upp að
klaustrinu og kirk'junni. Frankie
heyrði hljómfögru messuhring-
inguna, þegar hlé varð á hávað-
anum á skipinu og henni fannst
hljómurinn huggandi og róandi.
Þarna uppfrá var friður og regla
og djúp óhagganleg trú, sem stóð
af sér allar heimsstyrjaldir og
fellibylji, engu síður en tækni-
þróunina — þarna uppfrá höfðu
þau André jafnan verið stillt og
prúð, hvernig sem hegðun þeirra
hafði verið annarsstaðar, undir
vökulum augum mannanna og
séra Filippusar. Allt í einu greip
hana þrá eftir þessari ró og reglu
trúnni á eilíf verðmæti, sem
engin jarðnesk umbrot gátu
haggað, þessari innilegu gleði,
sem tók fram öllu öðru, jafnvel
ást hennar til Andrés....
Pálmarnir meðfram sjónum
skrjáfuðu hæðnislega þegar Rex
kom eftir þilfarinu til hennar og
hún setti sig ósjálfrátt í stelling-
ar, eins og til að dylja ixxnstu
hugsanir sínar.
Mér finnst þessi eyja þín
himneskur staður. Rex brosti
eins og unglingur, en augu hans
rannsökuðu andlit hennar. En
var þér virkilega alvara, að þú
gætir hýst okkur — öll tólf? Ég
var að tala um þetta við Sol núna
og hann sagði, að það kæmi ekki
til nokkurra mála. Það værí svo
mikill átroðningur.
Frankie brosti. Þetta er stórt
hús og mestur hluti þess hefur
staðið ónotaður, árum saman.
Jafnvel meðan foreldrar mínir
áttu þar heima hjá honura
frænda, notuðum við aðeins eina
álmuna. Forfeður okkar voru
svo barnmargir, að þeir þurftu
að byggja stórt.
Tólf er nú sæmilega stór barna
hópur sagði Rex og glotti.
Húsið hefur ekki nema gott af
því, að einhver búi í því aftur,
svaraði hún einbeitt og benti um
leið á hrörlegu húsin fram með
höfninni. Og hversu vesælt, sem
það kann að vera, er það þó
alltaf skárra en þetta — gisti-
húsið hans Tonys....
Mér finnst þetta dásamlegt af
þér....
sUíltvarpið
Miðvikudagur 4. október
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jakob
Jónsson. — 8:05 Tónleikar. —
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar.
10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar.
12:25 Fréttir og tilk.).
12:55 ,,Við vinnuna": Tónleika-r.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og tilk.
— 16:05 Tónleikar. — 16:30 Veð-
urfregnir).
18:30 Tónleikar: Operettulög.
18:55 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Islenzk tónlist:
a) Dómkórinn syngur lög eftil*
íslenzka höfunda (Páll Isólfs-
son stjórnar).
b) Svíta eftir Skúla Halldórsson
(Hljómsveit Híkisútvarpsins
leikur. Bohdan Wodiczko stj.)
20:20 Erindi: „Þar sem að bárur brjóta
hval á sandi" (Arnór Sigurjóns-
son rithöfundur).
20:45 Konserttónlist fyrir málmblásara
og strengjasveit eftir Hindemith
(Sinfóníuhljómsveit Vínarborgair
leikur; Herbert Háffner stj.).
21:05 Tækni og vísindi; XI. þáttur:
Radíóstjörnufræði og fleira (Páll
Theódórsson eðlisfræðingur).
21:25 Samleikur á fiðlu og píanó: Són-
ata í g-moll eftir Debussy (Christ
ian Ferras og Pierre Barbizet
leika).
21:40 Ferðaþáttur: Ur Víðidal; síðari
hluti (Björn Daníelsson skóla-
stjóri á Sauðárkróki).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Smyglarinn'* eftia
Arthur Omre; XVI. (Ingólfur
Kristjánsson rithöfundur).
22:30 Dans- og dægurlög.
a) Willy Berking og hljómsveit
hans leika.
b) Gitta Lind og Christa Willi-
ams syngja með hljómsveit
Arno Flor.
23:00 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 5. október
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jakob
Jónsson. — 8:05 Tónleikar. —•
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar.
10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —•
12:25 Fréttir og tilk.).
12:55 „A frívaktinni“, sjómannaþátt-
ur (Sigríður Hagalín).
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og tilk.
— 16:05 Tónleikar. — 16:30 Veð-
urfregnir).
18:30 Tónleikar: Lög úr óperum.
18:55 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Samleikur á saxófón og píanó
(Marcel Mule og Matha Lenom
leika).
20:20 Háskóli Islands fimmtíu ára: Af*
mælisdagskrá.
a) Erindi: Pættir úr sögu hiá-
skólans (Guðni Jónsson
prófessor).
b) Stofnanir háskólans: Frásagn
ir og viðtöl.
c) Tónleikar.
21:40 Einsöngur: Leonie Hyssanek
syngur óperuaríur.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Smyglarinn'* eftir
Arthur Omre; XVII (Ingólfuir
Kristj ánsson rithöfundur).
22:30 Frá tvennum tónlisrtarhátíðum I
Evrópu:
a) Frá Schwetzingen í maí s.l. f
Sinfónía nr. 23 í D-dúr. K181
eftir Mozart (Sinfóníuhljóm-
sveit suður-þýzka útvarpsina
leikur. Carl Schuricht stjórn-
ar). ,
b) Frá Salzburg I júlí s.l.:
Sinfónía nr. 48 í C-dúr eftiP
Haydn (Filharmoniska hljóm-
sveitin í Vínarborg leikur;
Wolfgang Sawallisch stjórnar,
23:05 Dagskrárlok.
— Ég skil ekki hvers vegna Anna frænka er enn ekki komin!
— Eg næ ekki sambandi við — Flýttu þér Davíð . . . Eld- I Á meðan nálgast eldurinn I — Sirrí! . . Getur þú hjálpað
slökkvistöðina Markús ... Ég urinn breiðist ört út! | brunatrurninn | mér? Sirrí!
verð víst að fara eftir hjálp!