Morgunblaðið - 06.10.1961, Qupperneq 24
SUS-síða
Sjá bls. 17.
JllflygSMttM&Mfii
226. tbl. — Föstudagur 6. október 1961
IÞROTTIR
Sjá bls. 22
ísland varð nr. 7 á
Evrópumót'nu í bridge
Kvennalibið islenzka vcrrð s'.Bast
í síðustu umferð bridgemóts-
ins í Torquay vann ísland Finn
land með 100 gegn 44 eða 6 stig
um gegn 0. í hálfleik stóðu leikar
48—21. Þetta nægði þó ekkí til
að hsekka ísland um saeti vegna
annarra úrslita. Líbanon vann
Holland 6—0, Danmörk vann
Þýzkaland 6—0, Noregur vann
England 6—0 og voru það ein ó-
væntustu úrslit alls mótsins.
Frakkland vann Ítalíu 6—0. —
Spánn — Svíþjóði 3—3. Svíþjóð
vann Belgíu 6—0.
í kvennaflokknum urðu úrslit
þessi: Egyptaland vann ísland 6—
0, (43—27 í hálfleik) Frakkland
vann Finnland 6—0, Belgía vann
Noreg 5—1, England vann írland
6—0, Þýzkaland vann Svíþjóð 6
~0.
Lokaúrslit mótsins urðu þessi:
1. England 87 stig
2. Frakkland 82 stig
3. Danmörk 78 stig
4. Ítalía 71 stig
5. Noregur 70 stig
6. Sviss 68 stig
7. ísland 67 stig
VirðuEeg útför
flsgeirs Sig-
urðssonur
ÁSGEIR Sigurðsson, skipstjóri,
var jarðsunginn frá Fríkirkjunni
Reykjavík í gær. Séra Þorsteinn
Björnsson jarðsöng. Sigurður ís-
ólfsson lék á ongel. Þórarinn Guð
mundsson lék einleik á fiðlu og
Guðmundur Jónsson söng einsöng
Frímúrarar stóðu heiðursvörð í
kirkjunni en fánar hinna ýmsu
sjómannafélaga voru í kór. Þing
menn úr Sjálfstæðisflokknum
báru kistuna í kirkju, en menn úr
sjómannasamtökunum úr kirkju
Meðal viðstaddra voru forseti ís
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson og
forsætisráðherra, Bjarni Bene-
diktsson.
Fjölmenni var við útförina, sem
var hin virðulegasta. -
Vöruhupp-
dræfti SÍBS
1 GÆR var dregið í 10. flokki
Vöruhappdrætti S.Í.B.S., um 1190
vinninga, að fjárhæð kr.
1,280,500.00. Eftirtalin ‘númer
hlutu hæstu vinningana:
Kr. 200.000,00
3001
Kr. 100.000,00
43161
Kr. 50.000,00
30445
Kr. 50.000,00
44160
Kr. 10.000,00
12703 15830 34041 39124 41791
45864 46322 50884 51749 54890
55229 56187 56292 57932 63504
Kr. 5.000,00
10160 13472 20055 23854 26316
28746 30722 32629 33963 37974
40173 43409 45226 46675 47148
47546 47549 47561 49816 52322
53746 55747 57780 60136 64166
8. Svíþjóð 60 stig
9. Egýptaland 49 stig
10. Þýzkaland 47 stig
11. Holland 47 stig
12. írland 45 stig
13. Spánn 42 stig
14. Belgía 40 stig
15. Líbanon 31 stig
16. Finnland 26 stif?
í kvennaflokki va:j röðin
þessi:
1. England 57
2. Svíþjóð 48
3. írland 44 '
4. Frakkland 43
5. Egyptaland 3V
6. Belgía 36
/7. Þýzkaland 35
8. Noregur 30
9. Holland 30
10. Finnland 22
11. ísland 14
TORQUAY, 5.-okt. — í sextándu
umferð tapaði ísland fyrir Líban
on 0—6, 78—100 (í hálfleik var
staðan 28—55). Holland vann
Svíþjóð 6—0, Danmörk vann
Noreg 4—2, Finnland vann
Ítalíu 4—2, Frakkland vann Ir-
land 6—0, England vann Spán
5—1 og jafntefli gerðu Egypta-
land og Þýzkaland 3—3. — Sjá
nánar á öðrum sfað í blaðinu.
í 15. umferð í opna flokknuim á
Evrópumeistaramótinu sigraði ís
land Sviþjóð 4:2 (78:73, í hálf-
leik var staðan 25:43 fyrir Sví-
þjóð). önnur úrslit urðu: Belgía
vann Þýzkaland 4:2; Noregur
vann Egyptaland 6:0; Ítalía vann
Líbanón 6:0; Danmörk vann
Spán 6:0; írland vann Flnnland
6:0; England vann Sviss 6:0. í
kvennaflokki fóru leikar þannig
að Finnland vann ísland 6:0
(74:53, í hálfleik var staðan 43:25)
Noregur vann Frakkland 6:0; ír-
land vann Egyptaland 6:0; Sví-
þjóð vann Belgíu 6:0 og England
vann Holland 6:0.
Próf. Einar Ól. Sveinsson og frú taka á móti próf. Anne Holtsmark, ásamt próf, Matthiasi
Jónassynl.
Fálki með bjöllu og fjötur um
fót fannst norður í Grímsey
Kominn einn af fálkum Egons Mullers
I BYRJUN ágúst var komið að
Þjóðverja einum, Egon Muller,
með sex fálka norður í Flateyjar-
dal. Hafði hann sett bjöllur á
fætur fállkanna, er hann tók þá
úr hreiðrum, en taldi sig ekki
geta náð þeim. Fullyrti hann að
þar væri aðeins um smábjöllu
um fót fuglsins að ræða. Þar sem
algerlega ólöglegt er að veiða
fálka var maðurinn tekinn til yf
irheyrzlu á Húsavík og gert að
greiða sekt, sem hann og gerði.
Mun hann farinn af landi brott.
En fálkarnir náðust ekki.
Nýlega náðist svo fálki einn
-^norður í Grímsey, sem ekki að
Hér er dr. Finnur Guðmundsson, fuglafræðingur, með bjöll-'
una af fálkanum í hendinni. Á borðinu Iiggja „skórnir", eins
og þeir sem fálkatamningamenn nota.
eins hafði bjöllu v.ið fótinn, held-
ur einnig það sem fálkatamninga
menn kalla „skó“, á báðum fót-
uim, en það eru leðurólar er brugð
ið er um fætur fuglanna og lafa
niður, líklega svo hægt sé að
halda í þá eða tjóðra þá. Var fugl
inn horaður og illa haldinn. —
Það er algerlega ófyrirgefanlegt
að sleppa fugluan með þessa
trossu á löppunum, sagði Finnur
Guðmundsson, fuglafræðingur, er
hann sýndi fréttamanni blaðsins
útbúnaðinn í gær.
Finnur hafði fengið bjölluna og
„skóna“ sent frá Grímsey. Har
aldur Jóhannesson, útgerðarmað
ur í Vestmannaeyjum, sem kom
með það suður segir svo frá: —
Síðustu dagana í ágúst urðu
Grímseyingar varir við fálka,
sem þeim sýndist vera eitthvað
miður sín og er betur var að' gáð
um fætur hans, var eitthvað
vafið. Komust nokkrir allnærri
fuglinum og heyrðu þá greinilega
í bjöllu og sáu málmhlut ásamt
fleiru bundið við fætur hans.
Annan eða þriðja september
tókst svo 12 ára dreng, Sigfúsi
Jóhannessyni að læðast aíveg ad
fálkanuim, þar sem hann sat u-nd
ir moldarbarði og ná.hon-um með
því að kasta yfir hann úlpunni
sinni. F-uglinn var illa á sig kom»
inn, sem geta má nærri, þegar
hægt var að ná honum á þennan
hátt, bæði grindhoraður og blaut
ur og var farið með hann strax
heim í hús. Eftir þó nokkra fyrir
höfn tókst að leysa aðra ólina og
bjölluna af fótu-m fuglsins, en
hina ólina varð að skera af. Reynt
var að gefa honum að eta, en
-hann vildi ekkert hvorki dautt
né lifandi og var honum því
sleppt strax og hann var orðinn
þurr. Virtist fálkinn all-ur ann,
ar er hann flaug burt, laus við
sinn fótabúnað og þurr. Gríms-
eyingar töld-u vafalítið að þarna
hefði verið einn Flateyjardals-
fálkanna og að bjallan og ólarn
ar hefðu drepið fuglinn áður en
hann hefði losnað við þær“.
Hvar eru hinir fimm?
Ekki er vitað um hina fálkana
fimm, sem Þjóðverjinn var með,
En ef einhver kynni jið verða
þeirra var, er sannarlega ástæða
til að reyna að ná þeiim og losa
þá við ólarnar.
Stolínni bifreið
veift eftirför
Lögreglan óskar eftir vitni
UM HÁLF tólfleytið á miðviku-
dagskvöldið var bifreiðinni R
1368 stolið við húsið nr. 151 við
Skeiðarvog. Menn í húsinu urðu
fljótlega varir við stuldinn og
veittu eftirför í annari bifreið.
Höfðu þeir veitt eftirför skamma
stund er stolnu bifreiðinni var
ekið með ofsahraða þvert yfir
Langholtsveginn. Unglingsstúlka,
sem þar var á ferð, taldi sig
naumlega hafa sloppið víð að
verða fyrir bifreiðinni, en hún
var stöðvuð snögglega er yfir
I gatnamótin kom. Taldi stúlkan
sig hafa séð mann stökkva út úr
stolnu bifreiðinni og hlaupa eftir
* görðunum við Nökkvavog.
i Mönnunum, sem veittu eftirför
ina, láðist að spyrja stúlku þessa
um nafn og heimilisfang og veit
lögreglan því ekki hver hún er,
Er stúlkan vinsamlegast beðin að
gefa sig fram við rannsóknar-
lögregluna.
Stolna bifreiðin hafði veri#
gangsett á þann hátt, að kveikju-
þræðir voru slitnir og síðan
„tengt saman".