Morgunblaðið - 13.10.1961, Page 1
48. árgangur
24 siður
Mannaveiðar á næturpeii
Á-þýzka logreglan elti félaga
sína á flótta inn í V-Berlín
BERIjÍN, 12. október. — Tíu
austur-þýzkir lögreglumenn
(VOPOS), vopnaðir vélbyssum,
réðust í nótt yfir í Vestur-Berlín
og brutust þar inn í hús í leit
að félögum sínum, sem flúið
höfðu um nóttina. Þegar vestur-J
þýzka lögreglan kom á vettvang
snéru A-Þjóðverjarnir aftur og |
klöngruðust yfir múrvegginn
opnað. Flúði konan með dætur
sínar upp á háaloft. en kommún-
istarnir brutust inn í húsið og
hófu að leita. Sagði konan svo
frá, að ein dætranna hefði fund-
þess að skipzt ið þarna á háaloftinu gamlan
lúður, er eiginmaður hennar,
sem var járnbrautarstarfsmaður,
hafði notað til þess að gefa merki
við járnbrautarlínuna. Blés dótt-
I irin nú lúðurinn af öllum kröft-
| um og var það nóg til þess að
um kl. 3 í nótt. Höfðu lögreglu-1 v-þýzka lögreglan kom á vett-
markalínunni án
væri á skotum.
Vöknuðu við barsmíð.
Atburður þessi varð á franska
hemámssvæðinu, rétt hjá járn-
brautarstöðinni Wilhelmsruh,
Rændu
blaða:
manni
GIFHORN, Þýzkalandi, 12.
okt. — Austur-þýzka lögregl-
an rændi í dag v-þýzkum
blaðamanni, sem var að tala
við a-þýzkan bónda á landa-
mærum Austur- og Vestur-
Þýzkalands. — Sjónarvottar
segja svo frá, að blaðamaður-
inn, Kurt Lichtensten, frá blað
inu Westfalische Rundschau,
hefði komið akandi í bifreið
sinni að markalínunni, stigið
út og gengið að landamærun-
um og tekið bónda nokkurn,
sem þar stóð handan landa-
mæranna, tali. Landamæra-
verðir kommúnista sáust nú
nálgast og fólk, sem stóð á-
lengdar, hrópaði aðvörunar-
orðum til blaðamannsins. —
Hann leit upp og sá lögregl-
una nálgast, snérist á hæl og
ætlaði að taka til fótanna. 1
sömu mund geltu vélbyssur
kommúnista. Blaðamaðurinn
hné niður og landamæraverð-
irnir komu hlaupandi, náðu til
hans og drógu hann helsærðan
á eftir sér frá Iandamærunum
— og hurfu sjónarvottum.
mennimir séð til 12 flóttamanna
sem komust yfir í V-Berlín, en
fjórir þeirra voru úr alþýðulög-
reglunni, eða VOPOS, eins og
það er skammstafað þar eystra.
Virtust lögreglumennirnir 10
hafa grun um að félagar þeirra
leyndust , húsi einu, sem stóð
rétt við markalínuna. Þar býr
kona ein ásamt þremur dætrum
sínum og sagðist henni svo frá,
að þær mæðgur hefðu vaknað
upp um miðja nótt við mikla
barsmíð úti fyrir.
Var þar komin alþýðulögregl-
an. Var barið harkalega að
dyrum og hrópað, að dyrnar
yrðu skotnar upp, ef ekki yrði
vang áður en alþýðulögreglu-
mennirnir höfðu áttað sig og
haft hendur í hári konunnar og
dætranna.
Konan og dæturnar voru
yfir sig skelfdar og þora ekki
að búa lengur í húsinu af ótta
við aðra næturheimsókn, því
ekki er því að treysta, að þær
komist undan annað sinn.
Þegar v-þýzka lögreglan kom
að einhver hefði gert glufu í
ir burtu. Sagðist konan aldrei
hafa séð til flóttamanna, en hins
vegar hefði hún tekið eftir því,
að einhver hefði gert glufu í
gaddavírsgirðinguna á markalín
unni, bak við hús hennar.
Endurskoða afstöðu sína
New York, 12. okt.
FULLTRÚI Bandaríkjannia í
stjórnmálanefnd Allsherjar-
þingsins sagði í dag, að Bandarík-
in mundu neyðast til þess að end
urskoða fyrri ákvörðun sína um
að gera ekki kjarnorkutilraunjr
í andrúmsloftinu, ef Rússar héldu
tilraunum sínum áfram.
Sagði hann, að tvöfeldni Rússa
í kjarnorkumálunum væri auðsæ.
Bretar og Bandaríkjamenn væru
reiðubúnir til þess að undirrita
samning um bann við tilraunum
með öll kjarnorkuvopn. Var mik
ið þrefað um það í stjórmála-
nefndinni hvort kjarnorkumálin
skyldu rædd sér eða afvopnun
heiid.
Vesturveldin og mörg hlutlausu
ríkin svonefndu vilja þegar í stað
ræða kjarnorkutilraunirnar og
hugsanlegt bann við þeim, en
Rússar og önnur kommúnistaríki
eru andvíg, vilja fella kjarnorku-
málin inn í umræður um allsherj-
ar afvopnun.
múrinn.
fhaldsflokkurinn samþykkir
aðild Bretlands
Birgir Kjaran tók þessa mynd af gufugosinu í Öskju í gær, en hann flaug þar yfir með Sig-
urði Þórarinssyni, jarðfræðingi, í flugvél Björns Pálssonar. Inni í blaðinu (bls. 10) eru mynd-
ir, sem Björn tók og frásögn fréttamanns Mbl., sem einnig var með i ferðinni, og er nú í leið-
angri til Öskju með Sigurði Þórarinssyni og fleirum
BRIGHTON, 12. október. — Árs-
þing brezka íhaldsflokksins sam-
þykkti í kvöld með miklum
meirihluta atkvæða að styðja
einhuga ráðagerðir ríkisstjórn-
arinnar um að tengja Bretland
traustum böndum við Efnahags-
bandalag Evrópu.
★
Áður hafði þingið fellt tillögu
þar sem skorað var á stjómina
að gera ekkert það samkomu-
iag við Efnahagsbandalagið, sem
rýrði á einhvern hátt sjálfsfor-
læði Bretlands, gengi á gefin lof
orð við brezkan landbúnað og
samveldislöndin.
Samveldismálaráðherrann,
Duncan Sandys, sagði. að ef síð-
arnefnda tillagan yrði sam-
þykkt, þá þýddi það einungis,
að þing íhaldsflokksms hafnaði
algerlega stefnu brezku stjórn-
arinnar, sem miðaði að því að
styrkja aðstöðu Bretlands í sam
félagi Evrópuþjóða.
★
Edward Heath, sem hefur for-
ystu um samninga við Efna-
hagsbandalagið fyrir hönd stjóm
arinnar, sagðist hafa lagt drög að
raunsæjum samningagrundvelli,
er hann var í París og ræddi
við fulltrúa landanna sex í Efna-
hagsbandalaginu.
Þingið lagði loks áherzlu á,
að fitiórninni bæri að hraða við-
ræðum við ríki Efnahagsbanda-
lagsns og brýna nauðsyn bæri til
að samkomulág næðist hið bráð-
asta.
Krusjeff
endurtekur gomlu
skilyrðin
MOSKVU, 12. okt. — Rússar
vilja semja við vesturveldin um
Berlínar- og Þýzkalandsmálið á
frundvelli fimm meginatriða,
sagði TASS-fréttastofan í kvöld
og vitnaði í bréf, er Krúsjeff
hafði ritað brezkri þingmanna-
nefnd úr Verkamannaflokkn-
um. Atriðin eru þessi:
1) Samgönguleiðir við Berlín
tryggðar.
2) Viðurkenning á Oder-
Neisse-línunni sem landamær-
um Þýzkalands.
3) Viðurkenning á a-þýzku
stjórninni svo og hinni v-þýzku
— og upptaka beggja í SÞ.
4) Bann við að Austur- og
Vestur-Þýzkaland fái kjarn-
orkuvopn.
5) NATO og Varsjár-banda-
lagið flytji herafla sinn úr Mið-
Evrópu.