Morgunblaðið - 13.10.1961, Síða 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Föstudagur 13. okt. 1961
41
C1
Rússar
sprengja
M ra m
Washington, 12. okt.
Frá setningu aðalfundar Verzlunarráðs Islands.
Aðalfundur Verzlun-
arráðs islands
AÐAX.FUNDUR Verzlunarráðs
tslands hófst í gær kl. 14 í húsa-
kynnum ráðsins að Pósthús-
etræti 7.
Formaður ráðsins, Gunnar
Guðjónsson, setti fundinn og
minntist þeirra kaupsýslumanna,
sem látizt hafa síðan síðasti aðal-
fundur vr.r haldinn, og heiðruðu
fundarmenn minningu þeirra
með því að rísa úr sætum. Þá
fór fram kosning fundarstjóra,-
og var Ámi Árnason, kaupmað-
ur, kjörinn fundarstjóri. Fundar-
stjóri tilnefndi Guðmund Bene-
diktsson og Valdimar Hergeirs-
son, fundarritara.
Formaður V. 1. flutti því næst
ræðu. Ræddi hann aðallega efna-
hagsmál landsins og viðhorf ís-
lendinga til þátttöku í Markaðs-
bandalagi Evrópu. (Sjá bls. 8).
Dr. Louw
kallaður
heim?
\
Þá flutti framkvæmdastjóri
ráðsins, Þorvarður J. Júlíusson,
skýrslu stjórnarinnar og las upp
reikninga V. I. fyrir árið 1960 og
skýrði þá.
Að því loknu voru kosnar
nefndir til að starfa að þeim
málum sem liggja fyrir fundin-
um.
f>á var lýst úrslitum stjómar-
kosninga, en stjórn Verzlunar-
ráðsins skipa nú þessir menn:
Tilnefndir af sérgreinafélögum
V. L: Birgir Einarsson, ísleifur
Jónsson, Gunnar Ásgeirsson,
Hans R. Þórðarson, Kristján G.
Gíslason, Egill Guttormsson,
Hilmar Fenger, Tómas Péturs-
son og Gunnar Friðriksson.
Kjömir af meðlimum V.í. utan
sérgreinafélaga: Gunnar Guð-
jónsson, Magnús Víglundsson,
Þorvaldur Guðmundsson, Magn-
ús J. Brynjólfsson, Othar Elling-
sen, Kristján Jóh. Kristjánsson,
Sigurður Magnússon, Sigurður
Ó. Ólafsson, Tómas Björnsson og
Einar Guðfinnsson.
----------------------------—<!>
(Ljósm.: K. M.)
Ræða inngöngu 1
Efnahagsbanda-
lagið
í GENF, 12. okt. — Ráðherrar í
ríkisstjórnum Svíþjóðar, Aust-
urríkis og Sviss munu koma
saman hinn 19. okt. í Vínar-
borg til þess að ræða um hugs-
anlega umsókn ríkjanna um
upptöku í Efnahagsbandalag
Evrópu. Er sennilegt, að utan-
ríkis- og viðskiptamálaráð-
herrar allra ríkjanna sitji fund
inn. Búizt er við, að í næstu
viku muni stjórnirnar gera
uppkast að umsókn sinni, sem
síðan verður rædd sameigin-
lega.
Búizt er við, að viðræður
danskra ráðherra við Efna-
hagsbandalagið hefjist 24. eða
25. október og mun Jens Otto
Kragh mæta þar fyrir hönd
stjórnar sinnar.
RÚSSAR sprengdu í dag enn eina
kjarnorkusprengjuna í gufu-
hvolfinu, nú yfir Síberíu, í nánd
við Semiplatinsk, sagði í tilkynn
ingu frá bandarísku kjarnorku-
málanefndinni. Þetta var meðal-
stór sprengja miðað við þær, sem
Rússar hafa sprengt að undan-
förnu og var hin 20. í röðinni, sem
ibandaríska nefndin hefur til-
kynnt síðan Rússar hófu spreng-
ingar í septemberbyrjun. Kenne-
dy sagði frá því á blaðamanna-
fundi í gær, að Rússar hefðu
sprengt fleiri sprengjur en nefnd
in hefði tilkynnt um. Ástæðan
fyrir því, að ekki var alltaf sagt
frá sprengingunum er sú, sagði
Kennedy, að þær voru þess eðlis,
að Rússar hefðu þá e.t.v. getað
fundið út hvernig við höfðum
veður af þeim.
Þyriur funcSu
útvarps-
stöðina
Rússum
vísað úr
landi
HAAG, 12. október. — Rússneski
sendiherrann í Haag, Ponomar-
enko, hélt flugleiðis tii Moskvu
í dag. í sömu mund hirti hol-
Ienzka utanríkisráðuneytið til-
kynningu þar sem tveimur starfs
mönnum sendiráðs Rússa var vis
að úr landi vegna atburðarins á
Schiphol flugvellinum á laugar-
dag, er rússnesku sendiráðs-
mennirnir fluttu konu eina rúss-
neska nauðuga viljuga úr landi.
Eiginmaður hennar bað um
hæli í Hollandi, en Rússar báru
í gær þær sakir á hollenzku lög-
regluna, að hún hefði neytt mann
inn til að flýja. Á blaðamanna-
fundi í dag sagði maðurinn, að
enginn hefði neitt sig eða beitt
sig þvingunum. Framkoma Hol-
lendinga hefði verið óaðfinnan-
leg.
Rússamir tveir, sem verða að
vera á brott fyrir laugardag, eru
verzlunarfulltrúi og annar ritari,
jafnframt blaðafulltrúi rúss-
neska sendiráðsins. — Hollenzki
utanríkisráðherrann sagði í dag,
að þessi alvarlegi atburður yrði
ræddur alvarlega við Ráðstjórn-
ina.
Rekinn
PARÍS, 12. október. — Kúbanska
sendiráðið í París tilkynnti í
dag, að ræðismaður Kúbu í París
hefði verið sviptur embætti sínu
þar eð hann stæði í glæpsamleg-
um samböndum við bandaríska
sendiráðið.
" ^&u(fáirú
ALÞINCIS
A DEILDARFUNDUM Alþingis í dag
verða dagskrár sem hér segir:
Efri deild: — 1. Skráning skipa og
aukatekjur ríkissjóðs, frv. 1. umr. —
2. Innflutningur á hvalveiðiskipum,
frv. 1. umr. — 3.. Parísarsamþykkt um
vernd eignaréttinda á sviði iðnaðar,
frv. 1. umr.
Neðri deild: — 1. Iðnaðarmálastofnun
Islands, frv. 1. umr. — 2. Heyrnarleys-
ingjaskóli, frv. 1. umr. — 3. Ríkis-
borgararéttur, frv. 1. umr. _____
New York, 12. október.
FULLTRÚI Senegal á Allsherjar-
þinginu ætlar að flytja tillögu um
að Suður-Afríku verði vikið úr
samtökum SÞ vegna ummæla ut-
anríkisráðherra Suður-Afríku,
Dr. Louw, í gær þess efnis, að
blökkumenn í hans landi lifðu
við betri kjör en í öðrum Afríku
ríkjum. Dr. Louw beið fyrirmæla
frá stjórn sinni í dag, en ekki er
talið ólíklegt að stjórnin kalli
sendinefnd sína heim af Allsherj-
arþinginu. í gær voru samþykkt-
ar vítur á Dr. Louw á þinginu.
Frakkar byrjaðir
brottflutning
Tunis, 12. október.
EF FRAKKAR vilja ekki semja
um brottflutning hers síns frá
Bizerta getur svo farið, að við
neyðumst til þess að hefja skæru
hernað gegn þeim, sagði Bour-
gúiba, Tunisforseti, í ræðu í dag.
Hann sagðist nýlega hafa sent
Frökkum orðsendingu varðandi
samninga um brottflutning liðs-
ins. Ennfremur, að þess væru
merki, að Frakkar væru byrjað-
ir að fækka mönnum í flotastöð-
inni. Þeir hefðu verið fluttir til
stöðva utan Túnis.
Við getum rætt
við IJIbricht
Samkomulag um stjórnarmyndun
BONN, 12. okt. — Kristilegir
demókratar og Frjálsir demókrat-
ar náðu í dag fullu sam-
komulagi um stjórnarmyndun.
Enn er ekki ljóst hver valinn
verður í kanslaraembættið, en
áður hafa frjálslyndir lýst því
yfir, að þeir gangi ekki til sam-
vinnu við kristilega með Aden-
auer í fararbroddi. Hins vegar
féllust þeir á Erhard. — Aden-
auer sat viðræðufundinn í dag
og var skýrt frá því að fund-
inum loknum, að full eining
væri með báðum aðilum: Stjórn
Akranesbátar
AKRANESI, 12. okt. — Atta línu
bátar voru á sjó í gær. Aflinn var
frá 3—5 tonnum á bát. Sami
fjöldi báta var á sjó í dag og
samskonar aflabrögð. Hringnóta-
báturinn Haraldur fékk enga síld
í nótt, en hann hefur haldið sig
suður á Víkum, en illt er að at-
hafna sig vegna storms um þess-
ar mundir. — Oddur.
, Z' NA /5 hnihr / SV 50 hnutar Snjókomo • ÚSi V Skúrir It Þrumur ws, KuUoM HiUtkii H Hmt | L Lmu» 1
Framsóknarfrumvarp
um efnahagsmál
f GÆR var dreift í sölum Alþing-
is frumvarpi frá níu Framsóknar-
þingmönnum um breytingar á lög
um nr. 4/1960 um efnahagsmál. í
langri greinargerð með frumvarp
inu aðallega er gerður saman-
burður á því, sem flutningsmenn
nefna „framfarasókn Framsókn-
arflokksins“ Og „samdráttar- og
kj araskerðingarleið“ ríkisstj órn-
arinnar. Er sú lýsing svipuð því,
sem áður hefur mátt lesa í „Tím
anum“. Um áhrif þess, að frum-
varpið verði samþykkt, segir í
lok greinargerðarinnar m. a.:
„Útlánsvextir fara niður í 8%
hæst, eins og þeir voru. Vextir af
afurðavíxlum færast niður í 5,5%
hæst úr 9—9!4% nú.“ Þá segir
að vextir og lánstími ræktunar-
sjóðs og nokkra fleiri sjóða verði
eins og áður, og lánskjör skulda-
bréfa 1960—’61 breytist. Og að
lokum: „Ríkisstjórnin verður að
hætta að láta frysta í Seðlabank-
anum hluta af sparifjáraukning-
unni, og útlánamöguleikar aukast
að sáma skapi“. Telja flutnings-
menn, sem m. a. eru þeir Eysteinn
Jónsson og Skúli Guðmundsson,
að frumvarpið „nái^ auðvitað
skammt til að forða mönnum frá,
þeirri hættulegu upplausn, sem
fram undan blasir við, ef ekkert
er gert annað en berja höfðinu
í steininn“ en geti þó orðið fyrstu
skrefin. ' .
in ætlaði m.a. að leggja áherzlu
á að efla v-þýzka herinn með
beztu vopnum sem völ væri á
— og styrkja samvinnu við
NATO-ríkin. — Jafnframt var
ákveðið að lengja herskyldutím-
mann úr 12 mánuðum í 18.
— ★ —
Von Brentano lét svo um
mælt í kvöld, að hugsanlegt
væri að v-þýzka stjórnin tæki
upp einhvers konar samband
við a-þýzku stjómina, en de
facto viðurkenning kæmi ekki
til greina. Sameining alls Þýzka
lands væri höfuðtakmark V-
Þjóðverja. Frá því yrði ekki
hvikað.
Alsír, 12. okt. i
FRANSKAR öryggissveitir í Al-
geirsborg létu til skara skríða í
dag gegn leynilegri útvarpsstöð
OAS - neðanjarðarhreyfingarinn-
ar eftir að útvarpað var fjórða
daginn í röð og hvatt til and-
spyrnu gegn frönsku stjórninnL
Þegar útvarpsstöðin hóf send-
ingar fóru fimm þyrlur á loft og
sveimuðu yfir borginni. Höfðu
þær miðunarstöðvar til þess að
leyta að senditækinu. Skömmu
síðar gerðu öryggissveitirnar her
ferð og fundu útvarpsstöðina sam
kvæmt tilvísun þyrlanna í 10
hæða húsi í miðhluta borgarinn-
ar. — Þeir, sem staðið höfðu að
útsendingunum, voru á bak og
burt, en nokkrir aðrir voru hand-
teknir, grunaðir um aðild að
OAS.
Óstaðfestar fregnir herma og,
að einn af helztu leiðtogum OAS
í Algeirsborg hafi verið handtek-
inn í dag.
Um hádegið í gær var veð-
ur allhvass A og rigning suð-
vestan lands, en þurrt veður
og gott norðan lands og aust-
an. Hiti var víðast 4—6 st.
við sjávarströndina, en um
eða lítið yfir frostmark í inn-
sveitum norðan lands. — Fyr-
ir suðvestan landið er djúp
og víðáttumikil lægð og virð-
ist hún þokast N-eftir. Hins
vegar er mikið háþrýstisvæði
um Bretlandseyjar og hiti
víða 15—20 st. þar um slóðir.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöld:
SV-land til Breiðaf jarðar Og
miðin: Sunnan og SA kaldi,
þokuloft og hlýindi, dálítil
rigning e(Sa súld með köflum.
Vestfirðir og miðin: SA gola,
skýjað, úrkomulítið.
Norðurland til Austfjarða,
norðurmið og NA-mið:
Sunnan gola, víða rigning
í nótt en úrkomulaust að
mestu á morgun, hlýrra.
SA-land, Austfjarðamið Og
SA-mið: SA og sunnan gola,
þokusúld.