Morgunblaðið - 05.11.1961, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.11.1961, Blaðsíða 15
Sunnudagur 5. nðv. 1961 M OR'GVN BL ifílÐ 15 - Luthuli Framh. af bls. 10. þús. (ísl. kr.) sekt, og var hún greidd af fyigismönnum hans i Englandi, BREYTT ASTAND I S.-AFRlKU Astandið í S.-Afríku hefur breytzt. Hætt er að þreyta dóm- stóiana með „svikurum". Þeir eru sviptir frelsi um óákveðinn tíma Og fluttir til Röbben eyjunnar undan Höfð&borg eða Modder 1 Benomi. Þeu „hverfa“ út á eyði- mörkina í norðri. Mæður með fjölda barna vita ekki,. hvar eiginmenn þeirra eru niður komn ir. Vorster, dómsmálaráðherra, sem var i varðhaldi öll stríðsárin fyrir nazisma, hefur bannað þel- dökkum að draga fána S.-Afríku að húni, því að svartar hendur eiga ekki að saurga hann. Fóuche, varnarmálaráðherra hefur viður- ikennt opinberlega, að hinum mikla vígbúnaði S.-Afríku, sé beint geg.i óvinum innan landa- mæra ríkisins. Stjórnin neitar að læra af reynslunni. I Sharpeville skaut lögreglan á vopnaðan mannfjölda, en þegar vopnanna var leitað, fundust aðeins tvær marglitar regnhlífar og hjólhestapumpa. Síðar var lögreglustjórinn spurð- ur, hvað hann hefði lært af fjölda morðunum. Hann svaraði: „Ja, nú fáum við ef til vill betri vopn“. Þetta hefur rætzt. Nú eru skrið drekar í svertingjahverfunum, húsmæður eru þjálfaðar í skotfé- lögum og allir hvítir menn í landinu geta átt von á að vera kallaðir í herinn til að skjóta á hina þeldökku. Nú getur 18 ára lögregluþjónn gengið að þeldökk- um kennara, sem ég þekki, slegið hann í andiitið og sparkað í syst- Ur hans: nú eruð þið undir stjórn Swfrts, en ekki Englandsdrottn- ingar. MANNtJDARLEYSI Það sem gestinum þykir óhugn- anlegast í S.-Afríku er að íbúarn- ir líta á ógnarstjórnina sem sjálf sagðan hlut. Þetta skrifaði mér hvítur v'inur minn. „öll höfum við séð har.djárnað fólk í löng- um röðu'ii á götunum. Við nöfum séð svartar hendur grípa um riml a.na á pöilum fiutningavagnanna. Við erum orðin ótrúlega tilfinn- ingalaus gagnvart því. Við horf- urn á, en engin breyting verður í hjörtum Okkar eða huga. Ekkert gerist. Biskup Zulu- lands uppiýsir að siðvenja sé á búgörðunum að láta börn eldri en átta ára hefja vinnu úti á ökrunum kl. 5 á morgnana hálft árið. Þá fá þau leyfi til að stunda skóla hinn heiming ársins. Þetta segir hann, en enginn hefst neitt að. Orð dómsmálaráðherrans eru ágætt dæmi um almenningsálitið: „Ef þjóðin líður undir lok, þá verður svo að vera. Það verður ekki vegna mistaka Okkar, held- ur eru það örlög landsins". A meðan lokka auglýsinga- spjöld ferðaskrifstofajrha og dá- satna hina sólríku S.-Afríku, þar sem áhyggjulaust fólk baðar sig við ströndina í Durban, en kyn- þáttaaðskilnaður er í fullu gildi marga kílómetra á haf út. Þegar svona er ástatt, kemur mér þolinmæði ,hinna þeldökku einkennilegast fyrir sjónir. Þótt undarlegt megi virðast, hefur hat- ur þerira til Búanna ekki orðið að hatri til alls hins hvíta kyn- stofns, og í allri eymdinni og volæðinu má eygja von um að baráttan mum um síðir bera ár- angur. Siðferðilegur styrkur þeirra liggur í því, að þeir hafa sýnt, að skriðdrekum og lögreglu iiði er stefnt gegn vopnlaus- um kröfugöngu þeirra. Svo magn- aður er ótti hvíta mannsins. Og á grundvelli óttans byggjr hann framtíð sina Sá, sem neitar um áratuga bil að láta undan kröfum réttlætisins, hlýtur að lokum að verða undir í baráttunni. Þjóðarflokkur blökkumanna, verður nú að starfa „neðan jarð- ar“ og stærsta vandamál hans er skipulagning starfseminnar. Erfiðleikarnir eru augljósir, þar sem blökkumenn verða að fá leyfi yfirvaldanna til að vera við útför föður síns, sem fer fram í nágrannahverfinu. Styrkur Bú- anna byggist á hinu nákvæma eftirliti, sem þeir hafa með ferða- frelsinu. Gegn Búunum berjast aliir þeir, sem andvígir eru að- skiinaði kynþáftanna. Meðal þeirra eru hvítir menn, Indverjar ag Afríkunegrar. Sjónarmiðin eru margvísleg, en kjörorðið eitt; að hnekkja yfirráðum hvíta manns- ins. „HEIMIJLSFANGIÐ ÖÞEKKT" Eg fé'kk fyrir skömmu tækifæri til að skrifa Albert Luthuli bréf, en fékk það endursent með árit- uninni: „Heimilisfangið óþekkt". Það segir sína sögu. Fæstir hinna hvítu vita, hver hann er, og stjórn in vill ekki, að umheimurinn fái neinar fregnir af honum. En tíu milljónir þeldökkra í S.-Afríku vita, hvert þeix eiga að snúa sér. Hvar í flokki sem þeir standa líta þeir á Lutixuli, sem leiðtoga sinn. Hann er íyrirmynd hámenntaðra sem ólæsra. Luthuli er tákn hins bezta, sem komið hefur fram meðal hinna ungu Afríku-þjóða, og áhrifa hans gætir um gervalla áifuna, Veiting friðarverðlauna Nöbels til handa Luthuli, sýnir hinum þeldökku, svo að ekki verður um villzt, að heimurinn fylgist með baráttu þeirra og örvar þá til að halda áfram á sömu braut, þó að þessi vxðurkenning háfi ef til vi'.l komið of semt og landið m"ni xnnan skamms löga í óeirðum. Enn er S.-Afríka umlokin ósýnilegum múrvegg. Fæstir vita, hvað gerist innan hans. En á meðan Albert Luthuli er S.-Afríka í augum blökkumann- anna, meðan þeir þekkja heimilis fang hans, getum við þrátt fyrir allt borið veika von í brjósti. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa til áramóta. — Upplýsing- ar í verzl. Rauða Moskva, Aðalstræti 3. barnaskór eru þekktir fyrir gæði bæði í Evrópu og Ameríku. fást aðeins í Sagan um Tajo og fílsungann EINU SINNI var lítill xiegrastrákur, sem hét Tajo. Þið haldið nú máske að lítil negrabörn séu eitt hvað öðruvísi en íslenzk ir drengir og stúlkur? Að vísu eru þau það í útliti, en að öðru leyti eru þau alveg eins og þið. Þegar þau eru hrygg, gráta þau, og þegar þau eru glöð, hlæja þau svo hjartan- lega, að þau verða að fleygja sér niður og sparka öllum öngum til að ná andanum. Og þegar þau óska sér einhvers, eru þau allan daginn að hugsa um það, alveg eins og þið. Tajo litli átti sér eina ósk. Haxm hugsaði ekki um annað allan daginn, og á nóttunum dreymdi hann um þetta eina, sem hann langaði til að fá. Þið haldið nú kannski, að það hafi verið reiðhjól eða hjólaskautar? Nei, slíka hluti þekkti Tajo litli ekki og hafði ekki hu.gmynd um, að þeir væru til. Tajo langaði til að eiga fíl. Ekki stóran, fullvax- inn fíl, heldur lítinn fíis- unga, sem gæti verið bezti vinur hans og borið hann um skóginn, þegar hann færi með föður sínutm að safna kókoshnetum. En þetta þorði Tajo ekki að segja neinum. Engin vissi um þessa ósk hans, nema lítil negra- stúlka, sem hét Hera. 4 LESBÓK BARNANNA GRETTISSAG A 173. Nú leggjast þeir niður l um kveldið. Og er kom að miðri nótt, brauzt Grettir um fast. Kveiktu þeir þá ljós. Og er til var leyst sýndist fótur- inn blásinn og kolblár. Þar fylgdi mikill verkur, svo að hann mátti hvergi kyrr þola og eigi kom honum svefn á auga. Þá mælti Grettir: „Svo skul um vér við búast sem krank- I leiki þessi, sem eg hefi fengið, mun eigi til einskis gera, því að þetta eru gerningar, og mun kerling ætla að hefna steinhöggsins. Mun þetta eigi eitt saman fara og skulum vér vera varir um oss“. 174. Nú er frá því að segja, að Grettir var svo sjúkur, að hann mátti eigi á fætur standa. Sat Illugi yfir honum, en Glaumur skyldi halda vörð. Hann hafði þá enn mörg orð í móti og fór þó út úr skálanum og allnauðugur. Og er hann kom til stiganna, mæltist hann við einn saman og sagði nú, að hann skyldi eigi upp draga stigann. Tók hann nú að syfja mjög og svaf allan daginn. Þennan dag hafði Þorbjörn öngull safnað liði og var á leið tii eyjarinnar. 175. Þorbjörn kom nú itl eyjarinnar og sáu þeir, að stig inn var ekki upp dreginn. Þá mælti Þorbjörn: „Brugð- ið er nú lagi", segir hann, „úr því sem vant er, að engir eru menn á gangi, enda stendur stiginn þeirra. Má vera, að fleira beri til tíðinda í ferð vorri“. Síðan gengu þeir upp á eyna og sáu, hvar maður lá skammt frá uppgangi ag hraut fast. Þorbjörn kenndi Glaum og rak sverðshjöltun við eyra honum og bað mannfýluna vakna, — „og sannarlega er sá eigi vel staddur, er líf sitt á undir þínum trúnaði“. 176. Þá æpti Glaumur upp sem hann mátti, er hann kenndi mennina. „Gerðu annaðhvort“, segir „Öngull, „að þú segir oss frá hýbýluro vðrum, ella drep eg þig“. Glaumur sagði Gretti sjúk- an og að bana kominn, en 111- ugi sæti yfir honum. Síðan sagði hann allt, hversu til hefði borið með skeinu Grett- is. — Öngull mælti: „Ilit er að eiga þræl að einkavin". Margir lögðu illt til hans fyrir sína ódyggð og lömdu hann nálega til óbóta og létu 5. árg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.