Morgunblaðið - 26.11.1961, Síða 3
Sunnudagur 26. nóv. 1961
HIOPCUNBLAÐIÐ
3
EINN af bílaikóngum bæjarins
lét svo ummælt í blaðaviðtali
í fyrra, að holuverkstæðin —
sem hann kallaði svo — væru
eins konar afætur á stéttinni
— bílaviðgerðastéttinni. Eitt-
hvað á þá leið fórust þeim
vísa manni orð. Sem dæmi um
óreiðuna hjá þessum verk-
stæðum. sagði hann, að eig-
endur þeirra gengju með bók-
faaldið í rassvasanum.
En þeir í Bílasprautun Garð
ars Sigmundssonar, Skipholti
25, vilja ekki viðurkenna
þetta.
— Við höfum ekki lengur
bókhaldið í rassvasanum, seg-
ir Garðar, það er ^rðið úrelt.
Við höfum það núna í brjóst-
vasanum. Svo þú sérð að það
hefur færst nær heilanum frá
því í fyrra.
Það eru fjórir bílar inni á
verkstæðinu þessa stundina —
fleiri bíla rúmar venkstæðið
ekki — og þarna eru þrír
menn að vinnu: Garðar, eig-
andi verkstæðisins. blöndun-
armeistari og aðalsprautari,
Mansi, altmuligmand, og
Baldvin, sem einkum skrapar
bílana og býr þá undir spraut-
un. — Inni er megn málning-
arstýbba, svo svíður í lungun
-— þetta hlýtur að vera krafaba
meinsvaldur, flýgur í hugann.
— Það er svo vond loftræst
ing hérna, segir Garðar afsak-
andi, þegar hann heyrir hósta-
kjöltrið.
— Fáið þið ekki brings-
palaskottu í þessu lofti?
-— Hver fjandinn er það?
— Jónas Hallgrímsson talar
hana í bréfum sínum.
— Það hlýtur að vera ein-
hver skáldsjúkdómur.
— Verðið þið þá ekki varir
við nein áhrif af málningar-
loftinu?
— Jú. áhrif eru rétta orðið,
segir Baldvin,
— Það er viðurkennt að mál
arar séu drykkfeldari en aðrir,
segir Garðar, nema kannski
skáld.
— Það er eins og málning-
arloftið ýti undir brennivíns-
löngunina, segir Baldvin.
— Já, það eru einhver efni í
henni, sem hafa þessi áhrif,
segir Mansi.
— Er þetta ekki bara afsök-
un?
— Nei. við drekkum ekki
svo mikið, að við þurfum af-
sökun, segir Garðar. það er
miklu frekar afsökun að
drekka.
— Verðið þið líka heimspek
ingar af málningarloftinu?
— Nei, en við verðum mann
þekkjarar — eins og rakarar.
— Það getur til dæmis verið
gaman að geta sér til um,
hvaða lit kúnninn muni velja
á bílinn sinn, segir Baldvin.
s Sr. Jón Auðuns -.pröfastur
Gamalt vín og nýtt
ivXWÍliiiXil.siiíX'é>X:X'
Garffar, blöndunarmeistari.
„EKKI láta menn nýtt vín á
gamla belgi, því að þá springa
belgirnir og vínið fer niður'*.
Þessum líknarorðum mælti
Jesús, er hann var að reyna að
gera áheyrendum skiljanlegt,
hve erfitt væri oft að samríma
hið gamla hinu nýja.
Föstum fótum stóð hann sjálf-
ur í sígildum trúararfi feðra
sinna. En jafnhliða svo djarfur
og frjáls, að fyrir það var hann
krossfestur."
A upplausnartímum, þegar
mörgu hinu gamla er vægðar-
laust varpað á glæ og verðmæti
feðra og mæðra mörg eru höfð
að engu, er tíðum spurt: Verður
hið gamla varðveitt við hlið hins
nýja? Þola gamlir belgir hið nýja
vín?
Hvað er um kristna kirkju? Er
hann þess virði, sá gamli arfur,
sem hún geymir, að hann sé
varðveittur ?
Hver er þessi arfur? Hefir .ekki
samhengið í kristinni menningu
glatazt, þegar hvað eftir annað
hefir verið höggvið á þann þráð?
Hafa ekki trúarviðhorfin tekið
svo miklum breytingum, að
naumast verði lengur með réttu
talað um gamlan arf?
Þrátt fyrir aiðbót eftir siðbót
■ ■
011 vinna skemmtileg
— Það er hægt að sjá það
af manngerðinni, hvaða kúnni
velur baðkarslit á bílinn sinn,
segir Garðar.
— Veljið þið aldrei fyrir
þá?
— Nei, það borgar sig ekki
— ef þeir skyldu verða
óánægðir á eftir.
— Stundum koma þeir með
konuna sína iheð sér og láta
hana velja litinn, segir
Baldvin.
— Þá afgreiðir Garðar allt-
af, segir Mansi.
— Er ekki verra að eiga við
þær?
— Þær eru smekiklegri í
litavali, segir Baldvin.
— Það þarf að taka niður
hverja málningarkrús úr hill-
unum fyrir þær og blanda alla
mögulega liti saman, segir
Garðar, eins og í skóbúðun-
um.
— Kannski hafa þeir, sem
koma með konurnar með sér,
vonda samvizku, segir Mansi.
— Já, sumir gefa þeim
blóm, þegar þeir hafa vonda
samvizku, eða svo segir Villi
Ská.
— Er verkstæðið alltaf fullt
hjá ykkur?
— Fullt af konum? segir
Mansi.
— Nei, svo mikið aðdráttar-
afl hefur Garðar varla.
— Það er alltaf nóg að gera,
segir Garðar. (
— Gera hvað ?
— Sprauta.
— Hvað afgreiðið þið marga
bíla á mánuði ?
— Tollstjóri getur svarað
því, segir Garðar, hann veit
það miklu betur en við.
— Hvað kostar að láta
sprauta bíl?
— Það er misjafnt, eftir því
hvað hann er stór og hve mik-
ið þarf að vinna hann undir
málningu, segir Mansi.
— Það kostar svona frá
þrem þúsundum upp í átta,
segir Garðar.
— Unnið í tímavinnu ?
— Við höfum yfirleitt þann
hátt á að taka verkið fyrir
ákveðið verð, segir Garðar,
Mamjl, altmuligniand, og Baldvin skrapari.
það samsvarar nokkurn veg-
inn tímavinnukaupi í dag-
vinnu — hvort sem við vinn-
um verkið yfir helgi — á dag-
inn eða kvöldin.
— Þetta eru betri kjör held
ur en stóru verkstæðin bjóða,
segir Baldvin, og svo vinna
engir lærlingar hjá ofekur.
— Kúnninn verður ánægð-
ari með þetta, segir Garðar,
þá þarf hann ekki að óttast að
bætt sé á verkið tímum, sem
ekki hafa verið unnir við bíl-
inn.
— Finnst ykkur gaman að
þessu starfi?
■— Það er öll vinna skemmti
leg, segir Garðar, ef hún geng-
ur vel og hægt er að bera nóg
úr býtum við hana .
— Eru ungir menn, sem
fára út í bílaviðgerðir og bíla-
sprautun yfirleitt með bíla-
dellu ?
— Nei, ekikert frekar.
— Það er sennilega þjen-
ustan, sem fær þá til að fara
út í þetta, segir Baldvin.
Lengur var ekki hægt að
haldast við, vegna málningar-
stybbunnar Sjaldan hefur úti
loftið bragðazt jafnvel . . .
áttu ekki fyrir einni, spyr
ljósmyndarinn allt í einu. en
bringspalaskottan hljóp niður
í nafla á förunautinum.
innan kristinnar kii-kju, marg-
föld siðaskipti og margskipta
kristni í kirkjur og flokka, er
byggt á einu og sama bjargi enn.
Ekki svo, að um aukaatriði eigi
ný, kristin kynslóð að vera bund-
in viðhorfum hinnar eldri, held-
ur þannig, að sem hugsandi menn
berum vér það bezta úr gömlum
arfi inn í nýja framtíð, bvo að
hið bezta úr þeim gamla arfi fái
spunnið oss ný og betri örlög.
Vér lúterskir nútímamenn lít-
um um öxl og skoðum með full-
um skilningi og fullu þakklæti
arfinn frá hinni kaþólsku fortið.
En sú staðreynd blasir við oss,
að eftir 80—90 ára rómv. kaþ.
trúboð á Islandi hafa aðeins sár-
fáir menn gengið í kaþólska söfn-
uðinn í Reykjavík, sem að mestu
er skipaður erlendu fólki.
Viðhorf hafa breytzt og trú-
arskilningur en enn byggir
kirkja islands sitt hús á sama
bjargi og Isleifur byggði fyrst og
Gissur Einarsson fimm öldum
síðar; Og svo er um kristnina
alla, ’að þrátt fyrir margbreytileg
viðhorf rennur straumur hinnar
einu hgilögu, kristilegu arfleifðar
óslitinn um allar aldir, óslitinn
vegna þess, að þótt húsin séu
mörg af manna höndum gjör, hef
ir á sama bjarginu verið byggt.
En siðaskipti, skoðanamunur og
ágreiningur um kenningu er sjálf
sagt fyrirbæri. Bjargið, sem
byggt er á, gnæfir svo hátt. að
af tindi þess er víðsýni til margra
átta.
Fyrir allmörgum árum var ég
staddur í Drangey. Frá ævintýra
legri fegurð Uppgönguvíkurinn-
ar lögðum vér upp og klifum
skriður og kletta. Viðsýnið óx og
óx, unz hámarki náði á klettin-
um við bæli Grettis. Hvílík út-
sýn var þaðan yfir víðáttur hafs-
ins í norður og landsýn 1 suður,
imað drifhvítan háj’öklaheim í
baksýn breiðra byggða Skaga-
fjarðar. Ferðafólkið stóð allt á
sama klettinum, en horfði ekki
allt til sömu áttar. Sumir heilluð
ust mest af «ð horfa yfir viðáttur
hafsins í norður, en aðrir af hinni
töfrandi landsýn í suðri. En á
sama klettinum stóð fólkið allt.
Eitthvað svipað er oss kristn-
um mönnum farið. Af klettinum,
sem vér stöndum allir á, er svo
, víðsýnt, að til margra átta- má
faorfa. Af því skapast sá skoðana
munur innan kristninnar, sem er
miklu eðlilegri en mörgum þyk-
ir, sem yfir honum fátast.
Nýir siðir hijóta að koma með
nýrri kynslóð, ný verkefni og við
horf að skapast. En þá verður
mörgum erfitt að finna leið til að
samríma hið nýja hinu gamla
þannig, að vínið nýja sprengi
ekki hina gömlu belgi. En til þess
að vér verðum ekki xótlaus sem
'reikult þang á hafi umbreyting-
anna, verður festa að haldast í
faendur við frelsið.
Vér lifum á gömlum arfi. Af
hinu bezta úr þeim arfi eru fædd
dýrustu menningarverðmætin,
sem vér njótum í dag. Þau eru
grundvöllur hinnar kristilegu
siðmenningar. A sama bjargi,
sem liðnar kynslóðir byggðu á,
byggjum ver enn, — sem frjálsir
menn, en bundnir samt, bundnir
hinu sígilda, hinu bezta.
-> Enska knattspyrnan *;■
19. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar
fór fram í gær og urðu úrslit þessi:
I Skotlandi fóru m.a. fram þessir
leikir:
Dundee U. — Rangers 23
1. deild: Hibernian — Dundee
Aston Villa — Manchester City .... 2:1 St. Johnstone - - St.
Blackburn — Fulham 0:2
Blackpool — Sheífield W 1:3 Staðan er nú bessi
Cardiff — Ipswich 0:3 1. deild (efstu og neðstu liðin)
Chelsea — W.B.A 4:1 Burnley . 18 12 2 4 55:36 26
Manchester U. — Burnley 1:4 Ipswich 19 10 3 6 47:35 23
N. Forest — Bolton 0:1 Everton . 19 10 2 7 36:24 22
Sheffield U. — Birmingham ... 3:1 West Ham 19 9 4. 6 43:39 22
Tottenham — Leicester ..
West Ham — Everton .... 3:1
Wolverhampton — Arsenal 2:3 Manchester U. 18 € 4 8 27:38 16
Birmingham .. 19 6 4 9 30:43 16
2. deild: Chelsea 19 5 5 9 36:39 15
Brighton — Preston 0:0 Blaokburn 18 5 5 8 20:29 15
Bristol Rovers — Middlesbrough 0:2
Bury — Plymouth 1:1 i. deiid (eístu og neðstu liðin)
Charlton — Huddersfield 0:2 Liverpool 19 14 3 2 51:15 31
Leeds — Walsall 4:1 Leyton Orient 19 9 5 5 36:21 23
Liverpool — Swansea-. 5:0 Rotherham 18 9 5 4 39:34 23
Norwioh — Derby ... 3:2
Rotherham — Southampton 4:2 Preston 20 4 6 10 20:30 14
Stoke — Newcastle 3:1 Bristol Rovers 19 6 1 12 28:40 13
Sunderland — Luton 2:2 Charlton 18 3 3 12 21:41 9