Morgunblaðið - 26.11.1961, Page 5

Morgunblaðið - 26.11.1961, Page 5
Sunnudagur 26. nóv. 1961 MORGUNBLAÐIÐ 5 níiriúmin^iM il 1 eldhúsi hótelsins á Keflavíkurflugvelli. Útlendingum líkar skyrið vel Mafsaíur á Deild úr sjóhernum Navy Exchange undir yíirstjórn Leaut. Commander Vogel tók vi<3 rekstri eldihúss og matsölu hótelsins á Keflavilkurflug- velli 25. sept. s.l. Var tilhögun I starfseminnar þá verulega breitt m.a. er hún nú undir íslenzkri stjórn og er Edward Frederiksen fraankvæmda- stjóri. íslenzikir matsveinar hafa verið fengnir í stað þeirra amerisku, sem áður voru. — Starfsliðið er nú 36 manns, 21 karl og 15 konur. Eitt af fyrstu verkum Navy Exchange í sambandi við eld- hús og matsali var að hreinsa, Keflavlkurflugvelli mála og bæta starfsaðstöðu eft ir föngum. Sá siður hefur verið tekinn upp að hafa íslenzkan mat á boðstólum t.d. salat og nýtt lambakjöt og skyr. Hefur Navy Exchange í hyggju að auka kaup á Jislenzku hráefni til matargerðar á hótelinu. Fyrir nokkru voru banda- rískir þingmenn á ferð til Evrópu og höfðu þeir viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Á hót- elinu var þeim boðið skyr og rjómapönnukökur og líkaði þeim hvoru tveggja svo vel, endurbættur að þeir báðu um uppskriftir af réttunum, sem þeim voru fúslega veittar. Það fer mjög í vöxt að út- lendingar biðji um íslenzkan mat. Ef vel tekst til, getur falizt í þessu góð landkynning. Yfirmatsveinn á hótelinu er R. Petersen, sem lengi starfaði hjá Skipaútgerð ríkisins. Á meðan flugherinn hafði stjórn hótelsins með höndum, voru matsalirnir lokaðir frá kl. 10 e.h. til kl. 6 f.h., nema fyrir flugfarþega. Eftir að Navy Exohange tók við rekstr inum er opið allan sólai'hring inn. Alþingishátíðarpeningar til sölu, nokkur sett. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Staðgreitt — 7618“. Tvær reglusamar stúlkur óska eftir herb. og eldhúsi eða aðg. að eldhúsi, helzt í Austurbænum. — Upplýsingar í síma 18828. Konur, athugið: Yfirdekki ekó. UppL 1 sima 33573 og 36610. TRÉSMÍÐAVÉL þykktarhefill nx. 12 I ágætu standi til sölu með tækifærisverði. Til sýnis á Hvassaleiti 46 eftir kL 7 á kvöldin. Opel Caravan ‘55 til sölu „eftir veltu“. — Upplýsingar í símum 10427 og 50924. Tek að mér auglýsinga- teikningar hverskonar og skreytingar bóka. Er til viðtals alla virka daga frá kl. 10—-17 á vinnu- stofu minni að Bárugötu 5, simi: 13129. Hanna Frímannsdóttir. KAISER-eigendur: Nýkcmið Hurðarskrár og lamir. Hurðarhúnar og læsingajfim. Læsingar í-hanskahólf og margt fleira. Læknar fiarveiandi Árni Björnsson um óákv. tíma. — (Stefán Bogason). Esra Pétursson um óákveðinn tíma (Halldór Arinbjarnar). Gísli Ólafsson frá 15. apríl 1 óákv. tíma. (Stefán Bogason). Kjartan R. Guðmundsson frá 21. sept. 1961 til 31. marz 1962. (Samlagssj. Ol- afur Jóhannsson# Taugasj. Gunnar Guðmundsson ). Sigurður S. Magnússon um óákv. tíma (Tryggvi Þorsteinsson). Próf. Snorri Hallgrímsson fjarv. til 5. desember. Víkingur Arnórsson til marzloka 1962. (Olafur Jónsson). RAFTÆKMI H.F. Laugavegi 168 sími 18 0 11. Á MORGUN verður opnuð al menningi listaverkasýning að Selvogsgrunni 10. Er það Jó- hann K. Eyfells, sem sýnir þar listaverk sín: allskonar skúlptúr úr aluminium, kopar, hraungrýti, járni og steinum, olíumyndir, bronsmyndir og ýmsar tegundir af skissum. Fjoldi listaverkanna er sam- tals 90, og eru þau flest til sölu. Sýningin verður opin frá kl. 5—10 e.h. virka daga Og 2 til 10 á laugardöguim og sunnu dögum. Aðgangseyrir að sýn ingunni er enginn. Jóhann K. Eyfells fór árið 1945 til Ameríku, þar sem hann lagði stund á arkitektúr, skúlptúr og málaralist, fyrst við University Of California, Berkeley, síðar fluttist hann til Florida, þar sem hann lauk námi í arkitektúr við Uni- versity of Florida, Gaines- viile, sumarið 1953. Jóhann hefur undanfarin ár verið búsettur í Ameríku á Long Island, New York, og verið þar starfandi arkitekt. Jafnframt hefur hann stundað skúlptúr og máiiaralist, hefur haldið listsýningar, tekið þátt í útvarpsumræðuim um list og verið listadómari á Long Is- land við marga gagnfræða- skóla. Haustið 1960 álkvað Jóhann að snúa sér aftur fyrir alvöru að frekara námi í listum, aðal- lega í skúilptúr, og er hann nú innritaður í „Graduate Sohool“ við University of Florida. í>ar mun hann ijúka ,ymasters“ gráðu í „Fine Arts“ eftir um það bil ár. Sýning Jóhanns, er sem fyrr segir, að Selvogsgrunni 10, sem er eitt af nýtízkulegustu húsum bæjarins. Þar býr bróð Jóhann Eyfells við eina skúlptúrsstyttu sína, sem gerð er úr aluminíum, járni og steinum. ir listamannsins Einar Ey- fells verkfræðingur. Má segja að þarna sé um að ræða ó- venjulega sýningu í óvenju- legum húsakynnum. Jóhann Eyfells sagði við blaðamenn í fyrradag, að verk hans væru „natúralismi á öðru stigi en við eigum að venjast“. Þessi orð hans skýrast bet ur, ef litið er í sýningarskrána, en þar stendur: — Eg vil vinna í anda frummannsins, sem horfði agndofa á veraldar ir listamannsins, Einar Ey- undrin og „skapaði“ sér guð. — Listin er tjáning tilfinninga og hugsana. Mín list byggist á öllu sem ég skynja, öllu sem ég hugsa. Jóhann kvaðst í framtiðinni ætla að reyna samræma list- ina arkitektúrnum, og fást að allega við svonefndar „minnis varðabyggingar". Jóhann K. Eyfells er ungur Reykvikingur, fæddur 1923, sonur Ingibjargar og Eyjólfs Eyfells, listmálara. Bifreiðaeigendur Nýkomið Stefnuljósaluktir og rofar. Bakkluktir, stefnuljósa- blikkarar 6, 12 og 24 volta. Allar gerðir af per um 6, og 12 volta. Rafgeymar 6 og 12 volta. Rafmagnsþurrkur 6, 12 og 24 volta. RAFTÆKNI H.F. Laugavegi 168 sími 18 0 11. Bifreiðaeigendur Sætacover fyrir ameríska bíla. Stýriscover í smexklegu úrvali. Einnig fyrirliggjandi fjölbreytt úrval varahluta í flestar gerðir bifreiða. RAFTÆKNI H.F. Laugavegi 168 sími 18 0 11. Harðplast á borð. Plötustærð 122 cm x 244 cm. 8 litir og lím Verð pr plata kr. 936,00 fyrirliggjandi. Þ. Þorgrímsson & Co. Borgartúni 7 — Sími 22235

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.