Morgunblaðið - 26.11.1961, Side 17

Morgunblaðið - 26.11.1961, Side 17
* Sunnudagur 26. nóv. 1961 MORCTri\BlAÐlÐ 17 A Ð þessu sinni verða kynntar hér þrjár brezkar bifreiðir, sem allar eru nokkuð þekktar hér. Þær erii Triumph Herald 1200 frá Standard-Triumph, Morris Oxford Series VI frá Britsh Motor Corpora- tion og Hillman Super Minx frá Kootes. Triumph Herald 1200 TRIUMPH Herald bifreiðin var fyrst sýnd almenningi í maí 1959 og vakti afar mikla athygli. Útlit hennar var gjör- ölíkt þvi, sem menn áttu að venjast í Bretlandi, enda var bifreiðin teiknuð af ítalanum Giovanni Michelotti. Nýjasta gerðin af þessari bifreið nefn- ist Triumph Herald 1200, og kom hún á markaðinn í sum- ar. Bifreið þessi er smíðuð hjá Standard-Triumph verksmiðj- unum í Cöventry í Englandi. 80 km hraða úr kyrrstöðu. Bifreiðasérfræðingur dag- blaðs í Birmingham ók nýlega Triumph Herald 1200 frá Birm ingham í Suður Englandi til Jöhn o’Groats, sem er á nyrzta tanga Skotlands, og heim aft ur. Vegalengdin er um 2000 kílómetrar. Lagði hann af stað á sunnudagsmorgni og kom heim aftur á mánudagsmorgni eftir tæpa 24 tíma. Á leiðinni hreppti hann þó hið versta veð ur, rigningu, þoku, slyddu og snjókomu. Sagði hann á eftir Hillman Super Minx. IViorris Oxford Series VI B-M-C eða British Motor Cor- marga aðdáendur her á landi. poration Ltd eins og fyrirtæk- En fyrirtæki þetta framleiðir ið heitir fullu nafni, á sér m. a. Austin, Austin-Healey, ! það er „rotodip" ryðvörnin. Umboð: Gísli Jónsson & Co. 1622 rúmsentímetrar og hest- Grind og yfirbyggingu er dif- h.f., Ægisgötu 10. öflin 64. Ýmsar endurbætur hafa ver ið gerðar á vélinni og legur eru nú smíðaðar úr nýrri málmblöndu, sem á að gefa mun betri endingu. Einnig Hillman Super IViinx UM þrjátíu ár eru liðin frá því fyrsta bifreiðin af gerð- inni Hillman Minx kom á markaðinn. Talsvert hefur flutzt hingað af þessum bif- reiðum og hafa þær reynzt vel. Nú er nýkomin á markaðinn erlendis ný gerð af þessari teg und og nefnist hún Hillman Super Minx. Vélarorkan hefur verið auk- in nokkuð frá fyrri gerðum og er nú 66,25 hestöfl við 4.800 snúninga á mínútu. Gefur þetta bifreiðinni mun þægi- legri vinnslu og 130 km. há- markshraða á klst. Áður en bifreið þessi kom á markaðinn var hún reynd víða um heim eins og tíðkast um flestar nýjar gerðir. Var reynzlubifreiðum ekið alls um 1,2 millj. kílómetra vegalengd, aðallega í Svíþjóð og Kenya. í þessum tilraunum var unnt að bæta úr ýmsum byrjunar- göllum, sem oft vilja koma fram í nýjum „módelum“. Mikil áherzla hefur verið lögð á öryggi farþeganna. Unnt er að taka hurðarhúna að innanverðu úr sambandi á öll- um hurðum, svo ekki er hætta á að börn leiki sér að því að opna dyrnar á ferð. Öll sæti eru búin festingum fyrir ör- yggisbelti og umgjörðin um mælaborðið stoppuð til að draga úr höggi við árekstur. Vélin er fjórskipt og er gír- skiptir í gólfi. En gegn auka- greiðslu má fá gírskiptir á stýrisstöng og jafnvel full- komna sjálfskiptingu. Umboð: Jón Loftsson h.f. Hnngbraut 121. Triumph Herald 1200 Coupé. Hún er lítið þekkt hér á landi, en hefur þó sézt, a. m. k. í höfuðborginni. Þekktari er önnur gerð, sem verksmiðjurn ar smíða, þ. e. Standard Van- guard, sem mikið kom af eftir stíð. Triumph Herald 1200 er frekar lítil bifreið, þægileg fyr ir fjóra. X fyrstu Herald bif- reiðunum var rúmtak vélar 948 rúmsentímetrar, en það kom fljótlega í ljós að bifreið- in þoldi aflmeiri vél Og hefur rúmtakið nú verið aukið í 1147 rúmsentímetra. Er hámarks- hraði bifreiðarinnar talinn um 125 km/klst. Með þessari stækkuðu vél er bifreiðin mjög lipur í akstri og má til dæmis geta þess að hún er ekki nema 17 sekúndur að ná að ferðin hafi verði hin þægi- legasta og bifreiðin reynzt með afbrigðum vel. Triumph Herald 1200 er smíðaður í fjórum útgáfum, SalOon, Coupé’Estate og Con- vertible. En auk þess hafa verksmiðjurnar getið sér mjög gott orð fyrir „sport“ bifreiðir sínar TR 2, TR 3 og nú síðast en ekki sízt TR 4. Framleiðsla- á síðastnefndu bifreiðinni er hafin fyrir skömmu, en þó er hún ófáanleg í Evrópu, því fyrst verður að afgreiða fyrir- framsölu til Norður Ameríku. Bifreið þessi er með 100 hest- afla vél og rúmlega 180 km. hámarkshraða á klst. Umboð: ísarn h.f., Klappar- stíg 25. Triumph Herald 1200 Saloou. M. G., Morris, Riley og Wolse- ley bifreiðir. Fyrir skömmu komu á markaðinn mjög at- hyglisverðir smábílar frá þessu fyrirtæki, en þeir eru Austin Seven og Morris Mini- Minor. Að vísu er þetta einn Og sami bíllinn, en með tveim nöfnum eftir því hvar hann er settur saman. Bifreið þessi hefur áður verið kynnt hér í blaðinu Og undanfarið verið til sýnis hjá Austin umboðinu, Garðari Gíslasyni h.f. Nú er komin á markaðinn ný gerð af Morris Oxford, sem nefnist Series VI eða Mark VI, Og skal hennar lítillega getið hér. Morris Oxford er ekki nýtt nafn, en þessi bifreið er endurbætt útgáfa af Series V, sem köm á markaðinn árið 1959. Helztu breytingarnar eru á vélinni, sem hefur verið stækkuð talsvert. Rúmtak vél- arinnar í Series V var 1489 rúmsentímetrar, sem gaf 55 hestöfl, en er í nýju gerðinni hefur fjöðrunin verið bætt til muna. Þá má geta þess að sæt- in eru klædd ósviknu leðri. ið ofan í mörg böð þar sem ýms ryðvarnarefni smjúga inn í öll samskeyti og smugur, Morrls Oxford TraveHer. Eitt er. það við Morris Og aðrar bifreiðir frá B-M-C, sem er sérlega heppilegt fyrir okkar vegi og veðurfar, en en það er einmitt á þessum stöðum sem ryðið festir venju- lega rætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.