Morgunblaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 3
Föstudagur 1. des. 1961
M O R C 11 N P T 4 f> 1 Ð
3
Gestlr á Iðominjasýningunni í Bogásalnum i gær.
■ ' ■ ■■'■■■ • • ■:
Iðnminjasýning
opnuð í Bogasalnum
f GÆR var opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafnsins iðnminja-
sýning, sú fyrsta sinnar tegund
ar hér á landi. í upphafi rakti
Snæbjörn Jónsson forstjóri,
sem er einn af nefndarmönn-
um sýr.ingarinnar, tildrög að
stofnun þessa vísis að iðn-
minjasafni. Hann kvað það
fyrst hafa komið til tals á 5.
iðnþingi íslendinga, sem háð
var á ísafirði árið 1939 að
stofna iðnminjasafn. Var
kosin nefnd til að vinna að
framgangi málsins Og þá um
leið hafin söfnun gamalla
muna, sem viðkomu iðnaðin-
um, gamalla skjala, mynda,
meistarabréfa og fleira.
Eru munir safnsins nú orðn-
ir 300 talsins og myndirnar
100. í upphafi var ákveðið að
safn þetta yrði deild í þjóð-
minjasafninu og vann Matt-
hías Þórðarson þáverandi þjóð
minjavörður mjög að þeim
málum. Dr. Kristján Eldjárn
hefði einnig alla tíð verið
mjög hlynntur þessari ákvörð-
un, og þakkaði Sveinbjörn hon
um sérstaklega fyrir að lána
Bogasalinn undir sýninguna.
300 munir 100 myndir
Þá fór Sveinbjörn nokkrum
orðum um þessa sýningu.
Hann sagði að í henni væru
ekki allir munir, sem nefndin
hefði í fórum sínum, heldur
væri hér um sýnishorn að
ræða. Sett hefir verið upp eitt
verkstæði, sýndir gamlir mun-
ir, þar er hinn fagurlega út-
skorni spegill Ríkarðs Jóns-
sonar, sem var hans prófsmíði,
þá er allstór klukka, sem
stendur á gólfi og var smíðuð
af Magnúsi Benjamínssyni fyr-
ir aldamótin og gengur enn,
sýnt er gamalt orgel, er einnig
var smíðað hér fyrir aldamót,
svo Og fiðla. Þá er fagurlega
útskorinn stóll gerður úr hval
beini, mi'kið af gömlum smíða-
tólum, myndir og málverk eru
á veggjum og á borðum undir
gleri er aragrúi af gömlum
sveinsbréfum, myndamótum,
skjölum og ýmsum upplýsing-
um varðandi iðnaðarstéttina á
liðnum áratugum. Er þarna að
sjá marga gamla og velgerða
muni, sem mikill fengur er í
og sýnir vönduð vinnubrögð
frumherjanna í íslenzkum iðn-
aði.
Hvatti til söfnunar
Að lokum hvátti Sveinbjörn
menn að halda til haga göml-
um munum, en sýningin ncfði
m. a. það markmið að minna
á hversu mikið gildi slíkt safn
gæti haft fyrir komandi tima.
Vinna yrði að því markvisst að
auka við og bæta safnið eins
og kostur væri.
Að ávarpi Sveinbjörns loknu
tók til máls Jóhann Hafstein
iðnaðarmálaráðherra og fór-
ust honum orð á þessa leið:
Ávarp Jóhanns Hafsteins
Virðulegu sýningargestir og
forstöðumenn þessarar sýn-
ingar.
Mér er það sönn gleði að
fá tækifæri til að vera við
opnun þessarar iðnminjasýn-
ingar. Hún er sérstæðs eðlis
og á einnig' sinn aðdraganda
auk hinnar gömlu sögu, sem
talar til okkar frá þessum
minjagripum liðins tíma í lífs-
baráttu íslenzku þjóðarinnar.
Það munu nú um 22 ár síð-
an þeir Sveinbjörn Jónsson og
Arngrímur Fr. Bjarnason
fluttu eftirfarandi tillögu á
fimmta Iðnþingi^ íslendinga,
sem haldið var á ísafirði:
„Þar sem breytingar í ísl.
iðnaði og byggingum gerast nú
mjög örar, svo margt hið eldra
týnist á stuttum tíma, beinir
Þessi stóll var smíffaður af hag—
leiksmanninum Stefáni Eiríks-
syni otr gerffur úr a. m. k. 50
hvalbeinum. _______________
Johann Hafstem raffherra ásamt Jónasi Sólmundssyni (taliff f.v), Braga Hannessyni, Sveinbimi
Jónssyni og lengst til hægri Guðmundi H. Guðmundssyni. Brúin, sem þeir virffa fyrir sér
likan af brú, sem byggff var yfir Skiðadalsá í Svarfaðardal áriff 1896. Gísli Jónsson þar
sveit smíffaði líkaniff og stóff fyrir brúarsmíffinni. Hann er enn á lífi, aff verffa 93 ára.
er
úr
5. Iðnþing íslendinga því til
stjórnar Landssambandsins að
athuga möguleika til Iðnminja
safns, og að ætla væntanlegu
safni rúm í fyrirhugaðri iðn-
skólabyggingu í Reykjavík“.
Þessi tillaga er fram borin
þegar dregur að miklum þátta
skilum í ísl. iðnaði. Á síðustu
tveim úratugum hafa orðið
stökkbreytingar í þessari at-
vinnugrein. Ný iðnfyrirtæki
iðngreinar, á okkar mæli-
kvarða margar hverjar stórar
og nýtízkulegar, hafa risið
upp. Ný tækni hazlað sér völl
á sviði iðnaðar og iðnaðurinn
orðinn einn af meginatvinnu-
vegum okkar. Á þessum tíma
reis hin veglega iðnskólabygg-
ing hér í Reykjavík og verið
er að leggja síðustu hönd á
stórbyggingu Iðnaðarbanka ís
lands við Lækjargötu.
Það ber því vissulega að
'þakka þeim ótrauðu áhuga-
mönnum, sem á undanförnum
árum hafa með árvekni unnið
að því að koma á fót iðnminja
safni hér á landi.
Okkur er hollt að gleyma
ekki um of gömlum tíma,
gömlum tækjum og verkfær-
um, sem tala sínu máli um
strit og slit fyrri kýnslóða,
um leið og sótt er fram af
áræði og kjarki til nýs land-
náms á sviði nýrrar tækni og
aukinnar menningar.
Þegar litið er hér yfir gömul
tæki, gamla hluti, gömul verk-
færi, gamla smíðisgripi list-
ræna, þá andar frá þeim þátt-
ur íslandssögu. Við finnum á
Frh. á bls. 23
STAKSTEIMAR
Lúðvík og Eysicinn
sammála
Morgunblaffiff gat í gær um þá
frumlegu kenningu Lúðvíks JóS-
efssonar, aff gengislækkun I-
þyngdi útflutningsatvinnuvegun-
um, þaff væri þeim til stórtjónfl
aff fá fleiri krónur fyrir útfluttar
afurffir sinart Virffist hann telja,
aff sjávarútveginum væri be»t
borgiff meff þvi að stórhækka
gengiff, þannig aff verff útflutn-
ingsafurffanna lækkaffi aff mikl-
um mun í verði. Nú hefur Tím-
inn upplýst, aff annar ma'ffur aff-
hyllist „hagfræffikenningar" LúS
viks Jósefssonar. Sá maffur heit-
ir Eysteinn Jónsson. í ritstjórnar
grein skýrir Tíminn frá þvi, aff
Eysteinn hafi rætt um gengis-
lækkunina í sumar og sáffan seg
ir orffrétt:
„Niffurstaffan verffur þvi aú,
aff einmitt útvegurinn verffur ver
staddur eftir en áffur.“
Morgunblaffinu finnst þaff
móffgun viff kjósendur á Austur-
landi, aff tveir af aðalkeppinaut-
unum um fylgi þar skuli líka
heyja samkeppni um hinar fár-
ánlegustu blekkingar.
Hvað um
Alþýðubandalagið?
Eins og greint er frá aunars
staffar hér í blaffinu, virffist sam
einingarflokkur Alþýffu, Sósía-
listaflokkurinn, hafa ákveffiff aff
leggja Alþýðubandalagið niffur,
effa a.m.k. aff breyta því stórum.
Fram aff þessu hafa Hannibal og
menn hans reynt aff telja lands-
mönnum trú um, aff Alþýffu-
bandalagiff væri stjórnmálaflokk
ur, sem réffi sjálft gerffum sínum.
Aff vísu hefur lítiff kveffið aff
sjálfstæffum samþykktum þess
fyrirtækis, effa skipulögffu flokks
starfi, þar sem fulltrúar væru
valdir til trúnaffarstarfa eftir
Iýffræffislegum leiffum. Hefur
raunar aldrei veriff frá því skýrt,
hvemig bandalagiff hangir sam-
an. Hinsvegar hefur kommún-
‘ istaklíkan, sem ræffur Sósíalista-
flokknum, nú upplýst, aff Alþýffu
bandalagiff sé affeins tæki í henn
ar höndum (og vissu þaff raunar
ýmsir fyrir), sem stjómað sé aff
geffþótta kommúnista. Verffur nú
frófflegt aff sjá, hvert hlutverk
kommúnistar ætla þeim bandingj
um, sem þeir hafa haft í Alþýffu
bandalaginu, þegar hin nýja sam
fylking, hvaffa nafn. set, henni
verffur nú valiff, kemur til sög-
unnar.
Allt rekur sig á
annars horn >
Blaffalesendur muna, aff Tím-
inn lagði á haff mikla áherzlu í
sumar, aff rikissjóður væri gjald-
þrota og taldi meira aff segja, að
gengislækkunin hefffi veriff fram-
kvæmd til þess aff bjarga honum
frá algjörum greiðsluþrotum.
Þessar fullyrffingar hafa aff vísu
veriff hraktar rækilega, en þó
naumast jafnvel og Tíminn gerir
sjálfur í gær, þegar hann segir,
aff „veriff sé aff moka fé inn í
ríkissjóffinn — sennilega til fryst
ir -ar — og inn í -innlánsstofnan-
ir ríkisins."
Þannig telur Tíminn nú svo
komiff, aff stórar fjárfúlgur safn-
ist fyrir hjá ríkissjóffi og þá ekki
síffur hjá bönkunum. Satt er þaff,
aff fjárhagur ríkissjóffs er góffbr
og sparifjáraukning er mikil.
Hvort tveggja eru þetta örugg
batamerki, en fram aff þessu hef-
ur málgagn Framsóknarflokks-
ins taliff hiff gagnstæffa vera ein-
kennandi fyrir þjóðfélagsástand-
iff. Hlýtur Morgunblaðiff aff fagna
hinum nýja vitnisburði Timans,
sem stafffestir þaff, sem vitaff var,
og Morgunblaðiff hefur marg
greint frá, aff í rétta átt stefndi f
efnahagsmálum þjóffarinnar.