Morgunblaðið - 23.01.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.01.1962, Blaðsíða 1
24 síður 49 árgangur 18. tbl. — Þriðjudagur 23. janúar 1962 Prentsmiðja M^rgunblaðsins Bólan vekur ugg — tleilt um bólusetningu — Samtal við Hendrik Sv. BjÖrnsson sendiherra ÞKGAR Mbl. hringdi Hendrik Sv. Björnsson, sendiherra ís- lands í Kondon upp í gærdag, var símasambandiö eins gott og á milli húsa hér i Reykjavík. — Við hyggjum gott til hins nýja sæsímatalsambands, sagði sendiherrann. Áður höfum við stundum orðið að bíða dögum og jafnvei vikum saman eftir síma- sambandi við Reykjavík. Kngin bólusetningarskylda — Hvað er að segja um bólu- faraldurinn í Bretlandi? — Að sjálfsögðu verður vart Hendrik Sv. Björnsson nokkurs uggs meðal almennings hér út af honum. Á tæpum mán- uði hafa sex menn látizt af völd- um bólunnar Og um 20 manns hafa tekið veikina, eða eru grun- aðir. Hér er engin bólusetningar- skylda og skoðanir mjög skiptar um það mál Sumir heimta taf- arlausa bólusetningu en aðrir vilja ekki heyra á það minnzt. Margir hafa þó látið bólusetja sig. — Hvernig horfir um aðild Breta að markaðsbandalaginu — Það er erfitt að segja fyrir- fram um það. Vitað var í önd- verðu, að samningaviðræður um málið mundu verða langar. Er ekki búizt við að þeim ljúki á næstunni, eða að aðild Breta geti legið fyrir fyrr en í lok þessa árs, ef á annað borð semst um aðild þeirra. Póstmaður sást á hlaupum! — Hvað er helzt að gerast í borginni um þessar mundir? — Hér er í bili stórviðburða- laust. En brezka þingið kemur saman að loknu jólaleyfi eftir nokkra daga. Útsölur eru í helztu verzlunarhverfum og stórkostleg umferð er á götunum. Miklar tafir hafa orðið á póst- Framhald á bls. 2. Ingólfur Jónsson símamálaráðherra talar við ungfrú Pike, aðstoðarsímamálaráðherra Bret- lands og opnar hið nýja sæsimatalsamband frá fslandi til Skotlands. Til hægri við ráðherrann er Gunnlaugur Briem póst- og símamálastjóri en til vinstri Bend Suenson framkvæmdastjóri Mikla norræna ritsímafélagsins. — Mbl. ÓI. K. Magnússon. Nýja talsimasambandið Boðberi velgengni og f ramfara Urant að tala héðan án hiðar allara sólarhringinn Frá opnunarathöfninni i gær — GÓÐAN dag, herra símamálaráðherra. Það er mjög ánægjulegt að fá tækifæri til þess að tala við yður. Ég vona að þér heyrið vel til mín. Símamálaráðherra íslands svarar: — Góðan dag, ungfrú Pike. Mér er einnig mikil ánægja að fá tækifæri til þess að skiptast á orðum við yður. Ég heyri yður mjög vel, þakka yður fyrir. Með þessum orðaskiptum Ingólfs Jónssonar, póst- og símamálaráðherra, og ungfrú Pike, aðstoðarpóst- og síma- málaráðherra Bretlands, var hið nýja sæsímatalsamband milli íslands og Skotlands um Færeyjar tekið í notkun síðdegis í gær. Klukkan 14,35 hringdi bjalla á borði uppi í Þjóðleikhús- kjallara, þar sem símamálaráðherra og póst- og símamála- stjóri höfðu boð inni fyrir nokkra gesti í tilefni af opnun hins nýja talsambands. Fór fyrsta samtalið fram milli að- stoðarsímamálaráðherra Breta og póst- og símamálaráðherra íslands, eins og fyrr segir. Ráðherrarnir töluðust við í 4 mínútur og lögðu áherzlu á þá miklu umbót, sem yrði með hinu nýja talsambandi í samskiptunum milli Islands og Bretlandseyja. Að loknu samtali ráðherranna talaði fulltrúi ensku flugmála- stjórnarinnar við flugumferðar- stöðvarnar í Prestwick, Shann- on, Reykjavík og Gander. Voru heyrnartæki við sæti allra gesta og fylgdust þeir með því sem fram fór í talsímanum við opn- unarathöfnina. Flugsamgöngur við Færeyjar? Þá talaði Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri, við Ped ersen, póst- og símamájastjóra Dana, og síðan við Sir Ronald German, forstjóra brezka sím- ans. Ennfremur talaði Ingólfur Jónsson, pöst- og símamálaráð- herra, við P. Mohr Dam, lög- mann Færeyja. Létu þeir í ljós mikla ánægju yfir bættu sam- bandi milli hinna tveggja frænd þjóða, og Ingólfur Jónsson minnt ist jafnframt á, að æskilegt væri að íslenzkar flugvélar, sem jafn- Agreiningur í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna Báðum sölustjórunum í Banda- rílijunum sagt upp NÚ UM áramótin voru mikl- Ir fundir haldnir í stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna, þar sem ræddur var ágreiningur um rekstur fyr- irtækisins Coldwater Seefood Corporation f Ameríku, sem annast sölu þar á vegum SH. Aðdragandi þessa máls mun vera sá, að sölustjórar Coldwater í Ameríku, þeir Árni Ólafsson og Pálmi Ing- varsson, höfðu um miðjan desember ritað stjórn Sölu- miðstöðvarinnar og óskað eft ir viðræðum við hana um störf Coldwater og ágrein- ing sinn við framkvæmda- stjórann, Jón Gunnarsson. Munu þeir í skýrslu til stjórn arinnar hafa átalið margt í rekstri fyrirtækisins, einkum í rekstri verksmiðjunnar í Naticoke, og talið að í óefni stefndi, ef ekki yrðu gerðar veigamiklar breytingar. Viðræður sölustjóranna við stjórn SH fóru fram hér dag ana 2. og 3. janúar, en skömmu síðar fóru þeir aft- ur til starfa síns vestanhafs. En þegar þeir Árni og Pálmi komu til New York, lágu fyr- ir þeim uppsagnabréf frá framkvæmdastjóra Coldwat- er. Létu þeir strax af störf- um. Skýrsla sölustjóranna mun vera allveigamikil og hefur hún verið til athugunar og umræðna hjá stjórn SH. — Verður að gera ráð fyrir, að Sölumiðstöðin skýri opinber- lega frá máli þessu, áður en langt um líður. an flygju yfir Færeyjar á leið sinni til Norðurlanda, gætu haft viðkomu í Færeyjum. Fagnaði Dam lögmaður þeirri hugmynd. Ennfremur talaði forstjóri Framh. á bls. 10 Molotov ekki til Vínar HAFT er eftir áreiðanleg- um heimildum í Moskvu, að Molotov sé ekki ætl- að að fara aftur til Vín- arborgar og taka við em- 'bætti sínu sem formaður rússnesku nefndarinnar hjá Alþjóðakjarnorkumála nefndinni í Vín. Hafi ann- ar maður verið skipaður hans stað og heiti sá Alex androv. : Þá hefur það vakið athygli í Moskvu, að ekki hefur verið minnst einu orði á dvalar stað Krúsjeffs síðustu tíu dag _ ana. Síðast kom hann fram ^ opinberlega 12. janúar sl. og * flutti þá ræðu í Minsk um ástandið í landbúnaðinum. Venja er að blöðin geti þess, þegar hann kemur eða fer frá Moskvu, en ekki hefur þess verið getið að hann væri þangað kominn. Aðspurður í dag kvaðst tals maður utanríkisráðuneytisins ekkert vita hvenær Krúsjeff Framhald á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.