Morgunblaðið - 23.01.1962, Page 15
Þriðjudagur 23. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
15
Örstutt athugasemd
til Einars Þóiðarsonar fiá Skeljabrekku
1 MBL. 16. þ. m. birtist grein
eftir Einar Þórðarson frá Skelja-
brekku er hann nefnir „Vísna-
safnarinn frá Haukagili“, og er
dagblaðið Tíminn átti við mig og
íbirtist 17. des. sl. Virðist það
ihafa verið E. Þ. lítt að skapi
að hans skyldi eigi vera getið í
iþví viðtali. E. Þ. virðist hafa
gleymt því að ég lét vélrita vísna
safn hans, honum að kostnaðar-
lausu gegn því að ég fengi afrit
af því er ég kostaði vélritun á.
Voru tekin tvö eintök, fékk ég
annað, en E. Þ. hitt. Var þetta í
5 bréfamöppur (ekki eins og E.Þ.
segir). Kostnaður við þetta verk
nam rösklega 10 þús. krónum.
Frumritin seldi E. Þ. á safn fyrir
nokkurt verð. Mun hann hafa
þótzt gera góða verzlun, bjarga
sínum handritum á öruggan
stað, hljóta að launum nokkurt
skotsilfur, en eiga þó eftir afrit
af saí'ninu. E. Þ. 'virðist einnig
ihafa gleymt því, að um nokkurt
érabil fékk hann að láni úr mínu
safni vísnabækur til þess að af-
rita, enda mun algengt að safn-
arar fylli þannig upp hver hjá
öðrum. Þó voru hans vinnubrögð
við þá afritun slík, að þar sem
nauðsynlegar skýringar fylgda
vísunum, hirti E. Þ. ekki um þær
til afritunar, en lét sér nægja
vísurnar sjálfar. E. Þ. virðist
ennfremur hafa gleymt því, að
við afritun á vísum hans óskaði
hann sjálfur eftir því, að afritin
yrðu merkt sér þannig að eng-
um dyldist síðar, hvaðan og úr
hvers höndum vísur þær væru
ikomnar, sem þau hefðu að
geyma. Var svo gert Og ætti
E. Þ. tæplega að vera vandi
á höndum að fullvissa sig um
hvernig þessar vísnamöppur
væru merktar, því hann á sjálf-
ur samrit við mitt eintak. Ég
hefi fylgt þeirri reglu við mína
söfnun, hafi ég fengið vísna-
kver til afritunar, að láta þess
ætíð getið hvaðan af landinu og
úr hvers eigu þau væru komin,
þeim til glöggvunar er síðar
kynnu að huga að vísum. Þá
verð ég að hryggja E. Þ. með
því, að ekkert af þeim 16 bréfa-
bindum, sem honum verður svo
tíðrætt um, hefir inni að halda
afrit þau er honum vaxa svo
mjög í augum. Þá er það vísa
Jóns Pálmasonar E. Þ. virðist
hafa gleymt því að þessa vísu
kenndi hann mér sjálfur á þann
veg, er hún birtist í Tímanum,
þó hann telji nú, að hún hafi
‘átt að vera öðruvísi, og er vissu
iega skylt að hafa það er sann-
ara reynist. E. Þ. gleymir að
geta þess í sambandi við þær
tvær vísur, sem hann birtir
eftir mig, að hann orti sjálfur
vísu og lét mig heyra í umrætt
skipti og er hún þannig:
Ýms mig beygja amaský
á lífs vegi hörðum
sorgum sleginn sit ég því
sviftur megingjörðum.
Þessi vísa varð kveikjan að
mínum vísum samhliða eggjun
frá hendi E. Þ. að ég gerði vísu,
Og sannast hér, sem fyrr að sá
veldur miklu sem upphafinu
veldur. Það skal að lokum ját-
að, að ég varð fyrir nokkrum
vOnbrigðum er ég las grein
Einars Þórðarsonar frá Skelja-
brekku, þó hún beri vitsmun-
um og mannkostum síns höf-
undar sæmilegt vitni.
Sigurður Jónsson
frá Haukagili.
- Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
fyrr en 1815, og var ein af
síðustu þrem kantónunum
sem það gerðu.
í Valais var síðasta nornin
í Svisslandi brennd, en íbú-
arnir eru ennþá skapheitir
og hjátrúarfullir. Á forsíðum
dagblaðanna má stöðugt líta
frásagnir af ástríðuglæpum í
Valais, og lengi vel voru
karlmenn kantónunnar eftir-
sóttustu málaliðar í Evrópu.
Valaisbúar eru kraftmikið
fólk, t&lsvert ólíkir öðrum
Svissum í útliti. Flestir eru
dökkir á húð og beinaberir,
skarpleitir menn með sting-
andi, svört augu. Tungan er
franska en hljómur hennar
er harðari en annars staðar
í Svisslandi. Sumir álíta að
Valais-búar séu afkomendur
ítalskra sígauna.
Lítil lífsbjörg
Atvinnulífið er frekar fá-
tæklegt. Flestir rækta naut-
gripi, fé og geitur. Einnig
fylgir garðblettur hverju
húsi.
Ef einhver ætlar að heim-
sækja Val d’ Herens utan
ferðamannatímans, er vissara
að tryggja sér fyrst að bæði
vegir og hótel séu opin. —
Gestirnir skyldu ekki búast
við hóglífsaðbúnaði, jafnvel
ekki á sumrin._____________
__________4 .
SKIPAÚTGCRB RIKISINS
M.s. HEKLA
austur um land í hringferð hinn
28. þ. m Vörumóttaka í dag og
árdegis á morgun til Fáskrúðs-
fjarðar, Keyðarfjarðar, Eskifjarð
ar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Raufarhafnar og Húsavíkur. Far
seðlar seldir á föstudag.
ELEKTBIH
heiii á boðstóltun raímótora
af nýiustu gerðum.
• „Squirrelbúr" 2—4—6—8 póla, rakaþéttir —
alveg tilluktir stærðir frá 0.6 til 400 kw, allt
að 500 V.
• Steytuhreyfia 2—4—6—8—10—12—16 póla, raka
þéttir — alveg tihuktir, stærðir frá 5 til 800 kw,
allt að 500 V.
• Lyftumótora, steytuhreyfla og „Squirrelbúr",
einnig hljóðlausa fyrir húsalyftur. Viðstöðulaus
og afbrotinn gangur (25% og 40%) stærðir
frá 1 til 110 kw, allt að 500 V.
• Einfasa mótora, stærðir frá 0.1 til 1 kw, 120
eða 220 V.
• Þrífasa mótora eldtrausta, „Squirrelbúr" 2—4—
6—8 póla, 550 V stærðir frá 0.8 til 160 kw.
• Háspennumótora með lögákveðnum snúnings-
hraða,
Vönduð vara — hóflegt verð — fljót afgreiðsla.
Verð- og myndahstar sendir þeim sem þes óska.
Einkaútflytjendur:
Polish Foreign Trade Company, Ltd.
- Eléktflm«
Warszawa 2, Czackiego 15/17, Pöland P. O. Box 254.
ANNÁLXiINN, sem nndanfarin ár hefur
nr birzt í Lesbók Morgunblaðsins, verð
ur framvegis í blaðinu sjálfu. Tölurn-
ar í sviga segja til um hvaða mánað-
ardag viðkomandi frétt birtist í blað-
inu.
Norskir sérfræðingar, sem hafa
unnið á vegum ríkisstjórnarinnar
hafa nú skilað áliti með drögum að
áætlun um þróun þjóðarbúskapar-
ins hér á landi. (16).
Seðlabankinn greiðir fyrstu af-
borgun af yfirdráttarskuld við
Evrópusjóð að upphæð 2 millj.
dollara. (30).
Ólafur Thors tekur að nýju við
embætti forsætisráðherra um ára-
mótin. (31).
ALÞINGI:
Samþykkt var samhljóða að heim-
ila Færeyingjum að anda handfæra-
veiðar innan 12 mílna fiskveiðitak-
markanna við ísland. (7).
Frumvarp um dómsmálastörf, lög-
reglustjórn, gjaldheimtu oJl. sam-
þykkt á Alþingi. (16).
Frumvarp um verðlagsráð sjávar-
útvegsins samþykkt á Alþingi. (16).
Alþingi kýs fulltrúa í Norðurlandráð,
stjórn síldarverksmiðja ríkisins, í síld
arútvegsnefnd o.fl. (19).
Alþingi hækkar framlag til náms-
manna og listamanna um rúma eina
millj. kr (19).
Fjárlög 1962 fgreidd á Alþingi. f?0).
Alþingi frestað til 1. febrúar. (20).
VEÐRIÐ!
Fyrstu daga desember var frost um
land altt og flestir vegir ófærir um
allan norðurhluta landsins. Bændur
vantar nokkuð fé og I veðurofsa brotn-
tiðu t.d. 25 símastaurar í Axarfirði (5).
Fyrsti snjórinn féll i Reykjavík á
þessum vetri (7). — Bílar voru nokkra
BÓIarhringa að brjótast frá Akureyri
til Reykjavíkur (8). — Um miðjan mán
uðinn varð aftur fært til Akureyrar
(13). — Síðu u 30 ár var miklu hlýrra
hér í veðri en næstu tvö 30-ára-tíma-
bil þar á undan (14). — Fyrir jólin var
»uð jörð víðasthvar 1 byggð (23., 24),
en um jólin snjóaði og mikið *rost
gerði um alit land, 10—20 stig. Sam-
fföngur urðu erfiðar aftur norðan lands
og á Austurlandi voru allir vegir lok-
aðir. Flugferðir töfðust um jólin vegna
blindþoku (28).
. tJTGERÐIN:
1 Samlag skreiðarframleiðenda flutti
út skreið a6 verðmæti 135 millj. kr. s.l.
ér (3).
Togarinn Jón Forseti náði metsölu í
Þýzkalandi (7).
Síldveiði hefur verið góð sunnan-
land (12).
Framhaldsaðalfundur LÍÚ samþykkti
að mæla með því að róðrar hefjist
strax um áramót. Sverrir Júliusson var
endurkjörinn formaður sambandsins
(14).
Síðast í mánuðinum höfðu borizt á
land 650 þús. tunnur af Suðurlandssíld
frá því vertíðin hófst fyrir alvöru í
lok október. Mestur hlutinn hefur far-
ið í bræðslu, en rúmlega 100 þús. tunn-
ur hafa verið frystar, rúmar 100
þús. tunnur saltaðar, um 20 þús. tunn-
ur í súr og nokkuð flutt utan ísað (29).
Góðar markaðshorfur fyrir fisk í
Bandaríkjunum (30).
MENN OG MÁLEFNI:
íslenzkur búfræðingur, Arinbjörn
Jóhannsson Kuld, ráðinn héraðsráðu-
nautur í Noregi (3).
Páll Líndal, skrifstofustjóri, lýkur
síðasta prófmáli sínu fyrir hæstarétti
(19).
Fyrsti íslendingurinn, Sæmundur S.
F. Vigfússon, hlýtur kaþólska prest-
vígslu í Rómaborg (20).
Rögnvaldur Hannesson, nemandi i 5.
bekk Menntaskólans á Akureyri lilaut
3ja mánaða námsdvöl í Bandaríkjun-
um sem sigurlaun I ritgerðasamkeppni
menntaskólanema (22).
Sigurður Helgason, forstjóri Orku,
verður framkvæmdastjóri Loftleiða í
New York (24).
Um áramót fellur útgáfa Lesbókar
Morgunblaðsins niður 1 því sniði, sem
hún hefur verið. Lætur Árni Óla þá
af ritstjórn hennar (31).
Jón Þórarinsson, tónskáld, ráðinn
tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins í
stað dr. Páls Isólfssonar, sem lætur af
því starfi (31).
Einar Arnalds skipaður yfirborgar-
dómari (31).
FRAMKVÆMDIR:
Bæjarráð Reykjavíkur samþykkir að
semja við Véltækni h.f. um hitaveitu
framkvæmdir í Laugarneshverfi (1).
Gísli lóðs, nýr 100 smálesta bátur
keyptur til Hafnarfjarðar. Eigandi er
Jón Gíslason (1).
Fjórir norskir sérfræðingar koma
hingað til þess að gera athuganir um
orkufrekan iðnað hér á landi, og verða
ríkisstjórninni til ráðuneytis (6).
Rafmagnslína lögð frá Þverárvirkjun
við Hólmavík yfir Tröllatunguheiði til
Króksfjarðarness (6).
Háskóli íslands 'iefur ákveðið að
byggja raunvísindastofnun í áföngum
(6).
Nýrri álmu bætt við húsmæðraskól-
ann á Varmalandi (7).
Hafin er bygging stærsta húss á
landinu, 35000 rúmmef.ra. Er það
geymsluhús, áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi Í9).
Miklar framkvæmdir við framræslu
í Leirár- og Melasveit (9).
Jöklar h.f. taka við hinu nýja skipi
sínu, Drangajökli (9).
160 tunnur af kísilleir teknar úr Mý-
vatni í haust (9).
Brynjólfur Sveinsson, kaupmaður,
opnar kjörbúð á Ólafsfirði, þá fyrstu
þar (12).
Fyrirhuguð stækkun Menntaskólans
í Reykjavík á að ljúka næsta haust
(14).
Yfir 1000 umferðarmerki hafa verið
sett upp í Reykjavík (15).
Tryggvi Ófeigsson hefur keypt togar-
ann Keili. Heitir hann nú Sirius RE
16 (14).
Rafmagni frá Sogsvirkjun hleypt á
11 býli undir Eyjafjöllum (16).
Verzlun Tómasar Jónssonar opnar
nýja kjörbúð við Grensásveg í Reykja
vík (21).
Jón á Stapa nefnist nýr 119 smálesta
bátur, sem keptur hefur verið til Olafs
víkur (30).
SLYSFARIR OG SKAÐAR:
Fé finnst dautt í fönn í Þingeyjar-
sýslu og hest fennir í Möðrudal (1).
Sprenging varð i búrinu á strand-
ferðaskipinu Heklu og oUi nokkrum
skemmdum (5).
Mývetningar gera, út margra daga
leiðangur til þess að reyna að bjarga
fé sínu úr fönn. Allmargar kindur
finnast dauðar (6., 7). — I>eir
náðu þó langflestu fé sínu (8).
Vörubill rann út af bryggju í Kefla-
vik ofan í vélbát (6).
Eldur kom upp í vélbátnum Fiska-
kletti frá Hafnarfirði á síldveiðum og
varð ekki slökktur fyrr en báturinn
hafði verið dreginn til hafnar (7).
Vélbáturinn Böðvar frá Akranesi
strandaði á Snæfellsnesi út af Jökli.
Mannbjörg varð (7).
Nokkrar skemmdir urðu á býlinu
Borgartúni við Akranes, er eldur kom
þar upp (7).
Brezki togarinn Kingston Agate
strandaði á Seyðisfirði í annað sinn á
hálfum öðrum mánuði, en náðist út
aftur (10).
Þórhanna Árnadóttir, Grænuhlíð 6,
slasaðist í bílslysi (12).
. Sjö bílar skemmdust I árekstri á
sama stað í hálku (12).
Vélbáturinn Geir goði strandaði við
innsiglinguna til Sandgerðis. Mann-
björg varð (13).
Verkamaður við höfnina, Páll Guð-
mundsson, tvífótbrotnaði, er tunna féll
ofan á hann (14).
Trilla frá Akureyri rakst á ísjaka á
Eyjafirði og sökk. Einn maður var á
bátnum, Bjarni Jóhannsson. Guðrnund
ur Hauksson á öðrum trillubáti bjarg-
aði honum (16).
Bærinn í Höskuldsey brann til
grunna (16).
Vélbáturinn Sæþór, sem lenti á land
í ofviðrinu 25. nóv. í Ólafsfirði, dreg
inn á flot (19).
Tvítugur piltur, Pétur Leósson frá
Akureyri, lézt af voðaskoti (21).
Vélbáturinn Jökull frá Sandi strand
aði við Engey, en náðist á flot aftur.
(21).
Vélbáturinn Hannes lóðs frá Vest-
mannaeyjum tók niðri við Grindavík,
en bátnum varð bjargað áður en stór
tjón hlauzt af (22).
Jón Halldór Þórarinsson, Snorra-
braut 36, slasaðist nokkuð í nörðum
bílaárekstri (23).
Bílskúr og þvottahús að Borgarholts
braut 30 í Kópavogi eyðilagðist í eldi
á 2. jóladag. Bíll eyðilagðist og nokkr
ar skemmdir urðu á íbúðarhúsiau (28).
Eldur kom upp í Hafnarfjarðarbátn
iim Sæfara GK 224 út af Garðskaga.
Áhöfnin varð að yfirgefa bátinn, en
hann síðan ^ dreginn til hafnar (28).
Kra^ við írafossstöðina orsakaði raf-
magnstruflanir í Reykjavík. Hvert ó-
happið rak annað hjá Hitaveitunni (28).
Maður að nafni Guðmundur Clau-
sen, Fossvogsbletti 55, varð fyrir bif-
reið á Snorrabraut og slasaðist nokkuð
(29).
Eldur kom upp í vélbátnum Júlíu
VE 123 í róðri. Mannbjörg varð en
báturinn skemmdist mikið (29).
Piltur á Patreksfirði, Gunnar Karl
Guðjónsson, slasaðist nokkuð, er
heimagerð sprengja sprakk í höndum
hans (30).
64 dauðaslys urðu á árinu 1961, 34
drukknanir, 14 bifvélaslys og 16 siys
önnur (31).
Olíutankur sprakk f rafstöðinni á
Þórshöfn, kviknaði í henni og urðu
skemmdir miklar (31).
Hilmar Guðmannsson, 23 ára, háseti
á togaranum Frey, hvarf í Hamborg og
ekkert til hans spurzt (31).
BÓKMENNTIR OG LISTIR:
Komin er út 13. bókin í flokknum
Lönd og lýðir, sem Menningarsjóður
gefur út, Mannkynssaga eftir Ólaf
Hansson (1).
Komið er út úrval Ijóða eftir Huldu.
Nefnist bókin Segðu mér að sunnan.
(1).
Komin er út ný bók eftir Árna Óla,
Strönd og vogur, sagnaþættir og frá-
sagnir af Suðurnesjum (1).
Komin er út samtalsbók við dr. Pál
ísólfsson eftir Matthías Johannessen
(1).
Út eru komnar endurminningar Krist
ínar Dahlstedt veitingakonu (3).
Leikfélagið Stakkur í Keflavík sýn-
ir gamanleikinn ,,ÓlympíuhlauparannM
eftir Derek Benfield (2).
Eyjólfur Einarsson heldur málverka
sýningu í Reykjavík (3).
Komin er út bók með^ myndum af um
100 listaverkum eftir Ásmund Sveins-
son (5).
Komin er út ævisaga Hannesar Haf-
steins, fyrra bindi, eftir Kristján Al-
bertsson, rithöfund (6).
„Endurtekin orð“ nefnist ný ljóða-
bók eftir Guðberg Bergsson (6).
Komið er út 3. bindi í rímnasafni
Si^urðar Breiðfjörðs (6).
Árni Kristjánsson og Bjöm Ólafsson
halda sónötukvöld í Austurbæjarbíói
(6).
Komin er út ný bók eftir Björn Th.
Björnson, „Á íslendingaslóðum í Kaup
mannahöfn (6).
Sinfóníuhljómsveitin frumflytur verk
eftir Jón Lcifs (6).
Komnar eru út endurminningar Jöns
Engilberts, listmálara, skráðar af Jó-
hannesi Helga. Bókin nefnist , Hús
málarans**. (7).
Musica Nova heldur hljómleika í
Reykjavík (7).
Komin er út önnur útgáfa af bók-
inni „ísland í máli og myndum" (7).
Komnar eru út tvær nýjar barn^bæk
ur eftir Ármann Kr. Einarsson, „Ævin-
týri í borginni'* og „Óskasteinninn
hans Óla“. (7).
„Séra Friðrik segir frá“ nefnast sr.m
talsþættir, sem Valtýr Stefánsson, rit-
stjóri, hefur átt við séra Friðrik Frið
riksson (7).
Komin er út ný bók eftir Jónas Áma
son „Tekið 1 blökkina**. (7).
„Músin, sem læðist“ nefnist fyrsta
skáldsaga ungs höfundar Guðbergs
Bergssonar (8).
„Konur skrifa bréf“ nefnist bréfa-
safn, sem Finnur Sigmundsson, lands-
Framhald á bls. .16.