Morgunblaðið - 23.01.1962, Síða 24
Frét tasímar Mbl.
— eítir lokun —
Erleudar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Furðulegt fyrirbœri
Sjá bls 13.
18. tbl. — Þriðjudagur 23. janúar 1962
Búlgörsk orrustuþota hrapaði á Ítalíu
Virðist hafa verið
á njósnaflugi
Róm og Sofia, 22. janúar.
-— AP — NTB — Reuter.
A LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
bar svo við í Suður-ítalíu,
skammt frá bænum Bari, að
orrustuþota af gerðinni MIG
19, merkt búlgarska flug-
hernum, hrapaði til jarðar.
Við rannsókn á flakinu og
yfirheyrsla á flugmannin-
um, sem liggur nú í sjúkra-
húsi, hefur margvíslegt kom
ið fram, sem bendir til þess
að flugvélin hafi verið á
njósnaflugi. — Atlantshafs-
bandalagið hefur herstöð hjá
Bari, rétt þar hjá, er þotan
hrapaði.
Talsmaður ítalska lan-dvama-
ráðuneytisins segir, að nokkrar
flugvélar hafi sézt í mikilli hæð
á ratsjám hersins í ítalskri loft-
helgi. Skyndilega hafði ein vél-
anna tekið sig úr hópnum, snar-
lækkað flugið og reynt að nauð-
lenda, — en tókst ekki betur
en svo að vængir rifnuðu af þot-
unni og ýmsar aðrar skemmdir
urðu. Búkurinn reyndist þó lítt
skemmdur, enda kviknaði ekki
í vélinni.
★ Fullkoranar myndavélar.
Flugmaðurinn, sem heitir
Milush Solakov Kirov 22ja ára
að aldri, var þegar fiuttur í
sjúkrahús og gert að sárum hans.
Jafnskjótt var hafin rannsókn á
vélarbúknum og fundust þar hin
fullkomnustu tæki bæði til ljós-
myndunar og kvikmyndunar.
Nokkrar myndir höfðu verjð
teknar og við framköllun þeirra
kom í Ijós, að flugvélin hefur að
öllum líkindum verið í njósna-
flugi. Þó verður ekki dregin
endanleg niðurstaða um það fyrr
en flugmaðurinn hefur verið yf-
irheyrður betur.
Kirov liggur 1 sjúkrahúsinu í
Aquaviva með brotið vinstra við
Framh. á bls. 23.
Almennur umrœðufundur um
kjaramál launþeganna
Kommúnistar vildu forðast opin-
berar umræður um þetta mál
HpmMNNHWMIfWMWNWWNMNMHNHHRM
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn
gengst fyrir almennum laun-
þegafundi í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld kl. 8,30, þar sem til um-
ræðu verða kjaramál launþeg-
anna. Framsögumenn á fundin-
um verða Pétur Sigurðsson al-
þingismaður, Jóhann Sigurðsson
verkamaður og Magnús Jóhann-
esson formaður Óðins. Frjáfsar
VILHJALMUR Einarsson
var af íþróttafréttamönn-
um kjörirui íþróttamaður
ársins og sést hér með stytt
una sem fréttamennirnir
gáfu. Er það veglegasta
stytta sem veitt er í ísl.
íþróttum. Nánar um kosn-
inguna á íþróttasíðu bls. 22.
umræður verða að loknum fram
söguræðum.
Akvörðun um fund þennan
var tekin í stjórn Óðins í nóv.
sl. og ritaði stjórn félagsins þá
stjórn Sósíalistafélags Reykja-
víkur bréf, þar sem þeim var
boðið til kappræðna um kjara-
mál launþega. í bréfinu segir
m. a.:
„Stjórn Óðins hefir á fundi
27. nóv. sl. ákveðið að bjóða
Sósíalistafélagi Reykjavíkur til
rökræðna um kjaramál launþeg-
anna á opinberum fundi í
Reykjavík.
Akvörðun þessi er tekin með-
fram af því, að Málfundafélag-
ið Óðinn hefir jafnan látið sig
þessi mál miklu skipta og stjóm
félagsins hefir veitt því athygli,
að Sósíalistafélagið hefir einnig
rætt þessi mál á fundum sínum.
Ef af fundi þessum yrði, vill
Óðinsstjórn leggja áherzlu á, að
hún telur æskilegt og eoiuegt,
að á fundinum yrðu þrír ræðu-
menn frá hvorum aðila, er séu
jafnframt því að vera félags-
menn áðurgreindra félaga, með-
limir í verkalýðshreyfingunni.“
Sósíalistafélagið hafnaði til-
boðinu með bréfi dags. 7. des.
sl. undirrituðu af Brynjólfi
Bjarnasyni, form. félagsins, en
stjórn Óðins ókvað að halda
fundinn eigi að síður. Eins og
fyrr segir verða frjálsar umræð-
ur að loknum ræðum framsögu-
manna og er öllum heimil þátt-
taka í þeim.
Ekki er að efa, að launþeg-
ar muni fjöimenna á þennan
Nú þegar nýji sæsíminnl
hefur verið tekinn í notkunl
verður stórum auðveldara aðj
fá símasendar m.yndir erlend-J
is frá^ Hér er fyrsta myndin
sem Morgunblaðið fær sím-
senda eftir að sæsíminn var
opnaður. — Myndin er af
flaki búlgörsku flugvélarinnar
sem hrapaði í Suður ttalíu á
laugardagskvöld.
fund, þar sem þessi mál hafa
verið mjög til umræðu upp á
íðkastið.
Þung færð í
V-Skaftafellssvslu
Kirkjubæjarklaustri 22. jan. —
MIKILL snjór er í V.-Skaftafells
sýslu, og þyngsla-færð á vegum.
T. d. má geta þess, að mjólkur-
bilarnir voru 10 klukkutíma I
gær frá Vík og hingað austur að
Klaustri.
— Gísli.
Tvær íeonur slas-
ast i' Fossvogi
UM KI.UKKAN 10:30 á sunnu-
dagskvöldið slösuðust tvær kon-
ur, er bíll, sem þær voru í, rann
til á Reykjanesbraut og skall á
ljósastaur.
Um það leyti er slysið varð
Sveitabær brann á hálftima:
Fólkið komst út á sokkaleistunum
ÓLAFSVÍK, 23. jan. — Um kl.
19 í gærkvöldi kom upp eldur í
íbúðarhúsinu Tröð í Fróðár-
hreppi og brann húsið til kaldra
kola á svipstunó -, án þess að
nokkuð yrði að gert. Á hálftíma
var húsið orðið alelda og féll áð-
ur en slökkviliðið frá Ólafsvík
gat komið á vettvang, en þaðan
er um hálf tíma akstur.
í heimili í Tröð eru fjórir full
orðnir, en auk þeirra var þar
gestkomandi kona með tvö börn.
Sat fólkið að spilum í næsta her-
bergi við það sem eldurinn kom
upp í. Allt íeinu barst mökkur
þangað inn og allt fylltist af eldi
og reyk. Þannig hagar til, að
eldurinn kom upp nær útidyrun
um en lúgan er niður í kjallar
ann, og fór fólkið því í snatri
þar niður. En þá kom í ljós að
útidyrahurðin í kjallaranum var
læst utan frá og það króað inni.
Varð húsbóndinn, Magnús Árna-
son, að fara aftur upp og í gegn
um eldinn út, til að geta opnað
fyrir fólkinu. Brenndist '-inn við
það talsvert á andliti, og var
fluttur til læknis á Ólafsvík, sem
gerði að sárum hans.
Fólkið komst út eins og það
stóð, flestir á sokkaleistunum.
Það eina, sem bjargaðist út úr
húsinu var þriggja lítra mjólkur-
brúsi, sem húsmóðirin greip með
sér. Allt annað brann.
Íbúðarhúsið að Tröð var að
mestu úr timbri og klætt að inn-
an með pappa og veggfóðri, en
steingaflar. Var húsið mjög þurrt
og læstist eldurinn um það á
svipstundu. Bkki er ljóst hvernig
eldsupptökin eru, en eldsins
varð vart í herbergi fram við úti
d> rnar.
Hefur þarna orðið mi'kið tjón,
en þess má geta að fyrir tæpum
tveimur mánuðum brann þarna
hlaða með 200 hestum af heyi.
Húsið mun hafa verið sæmilega
vátryggt, en innanstokksmunir
lítið.
Fólkið hefur komið sér fyrir á
bæjunum í kring, MávahHð og
Fögruhlíð.
voru lögreglumenn að vinna við
árekstur, sem hafði orðið í Foss-
vogi, v'ð Nesti. Var ekki búið að
færa bílana, sem í árekstrinum
lentu, ar götunni og myndað:st
af því nokkur umferðatruflun.
Er billinn, sem konurnar voru
í, náigaðist þessa umferðatrufl-
vm, steig bílstjórinn á hemlana.
Snerist bíllinn þá þversum á gót
unni, sem var flughál, og skail
á ljósastaUr í vegarbrún.
Konurnar voru fluttar á slysa-
varðstofuna. Var önnur þeirra
skorin í andliti en hin marin á
fæti. Bíllinn, sem er af Chevro-
letgerð, er mikið skemmdur.
Unglingar óskast til að bera
blaðið til kaupenda í eftir-
talin hverfi:
Skeggjagötu
Fjólugötu
Hafið samband við af-
greiðsluna, sími 2-24-80.