Morgunblaðið - 14.02.1962, Side 12

Morgunblaðið - 14.02.1962, Side 12
12 MORGUNBLAÐiÐ Miðvikudagur 14. febr. 1962 ÆumiiíttMaliil* Otgefandi: H.f. Arvakur. Reykjavík. Frarakvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: ú.ðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. HÓFLEGIR FÉLAGA- SKATTAR HAGS- MUNIR ALMENNINGS ’tTið umræðurnar um skatta- ^ lagabreytinguna flutti Gunnar Thoroddsen, fjár- málaráðherra, ítarlega ræðu, þar sem hann rakti þróun skattamála og efni hins nýja frumvarps. Ráðherrann vakti athygli á því, að ástand það, sem hér hefði ríkt í skatta- og útsvarsmálum um langt skeið, hefði verið háskalegt fyrir velmegun og lífskjör þjóðarinnar. Það hefði hindr- að eðlilega endurnýjun og aukningu í atvinnulífinu, en jafnframt dregið úr dugnaði og vinnusemi einstaklinga. Þar að auki hefðu skattsvik verið almennari hér á landi en í nágrannalöndum. Fjár- málaráðherra vék einnig að því, að það væri ekki fyrst og fremst hinum efnaðri í hag, að skynsamleg skatt- lagning væri á atvinnurekstr inum, heldur væri það brýnt hagsmunamál alls almenn- ings. Um þetta sagði hann: „Endurbæturnar eru vegna almennings, en ekki auð- manna. Þeir skattar, sem at- vinnureksturinn hefur orðið ■við að búa, eru að dómi allra hlutlausra og sérfróðra manna með þeim hætti, að þeir lama atvinnufyrirtæki, draga úr eðlilegri endurnýj- un og aukningu véla, tækja og húsa, minnka afköstin og draga þannig úr þjóðartekj- unum. Þess vegna kemur minna til skipta á milli lands ins bama. Þess vegna kem- ur minna í hlut. Velmegun almennings byggist á blóm- legu atvinnulífi. Umbætur í skattamálum atvinnulífsins eru hagsmunamál og kjara- mál fyrir allan almenning. Hóflegir skattar atvinnulífs- ins eru því hagsmunamál fólksins.“ Að sjálfsögðu er þetta meg inefni málsins. Almenn vel- megun getur ekki ríkt, þar sem eðlilegur rekstur at- vinnutækjanna er hindraður, hvort heldur er með hóflaus- um skattaálögum eða öðrum brigðum þvingunum ogbein- um ríkisafskiptum. Á því leikur ekki minnsti vafi, að hin óheilbrigða skattalöggjöf, sem hér hefur ríkt, hefur stórum skert lífskjör almenn ings og hindrað þær fram- farir, sem ella hefðu orðið. Þess vegna fagnar allur al- menningur hinum nýju skattalögum. Kommúnistar berjast að sjálfsögðu gegn þeim, en það er auðvitað að- eins staðfesting á því, að rétt er stefnt. ÁBYRGUR VERKALÝÐUR ¥ kosningum þeim, sem að *■ undanförnu hafa farið fram í verkalýðsfélögunum, hefur greinilega komið í ljós, að kommúnistar tapa þar verulegu fylgi, en lýðræðis- sinnar vinna á. Við kosn- ingarnar í Múrarafélagi Reykjavíkur nú um helgina jókst munurinn milli komm- núnista og lýðræðissinna úr 27 atkvæðum í 40 atkvæði, en oft hefur munurinn milli listanna verið sáralítill. Ef til vill segja menn að ekki séu mikil straumhvörf, þótt kommúnistar tapi 8 at- kvæðum en lýðræðissinnar vinni 5. En þegar þess er gætt, að hér er um lítið fé- lag að ræða, þá er þetta þó örugg bending um það, hvert stefnir. 10% atkvæðatap kommúnista er ekki svo lít- ið á einu ári. Þessi úrslit og önnur í verkalýðsfélögunum sýna, að verkalýðurinn vill ábyrga, stefnu. Hann gerir sér grein fyrir nauðsyn þess að reisa við efnahag landsins. Hann er því ekki andvígur við- reisnarstefnunni. Sérstaklega er ánægjulegt að múrarar skuli styðja hana, því að svo lítið hafa stjórnarandstæð- ingar ekki rætt um samdrátt í byggingariðnaði og boðað atvinnuleysi iðnaðarmanna. Sem betur fer er engu slíku til að dreifa, enda munu byggingar nú mjög aukast, þegar jafnvægi er komið á og sparifjáraukning vex. Önnur skýring á sigrum lýðræðissinna er sú, að verka lýðurinn vill fara leið raim- hæfra kjarabóta. Hann ger- ir sér grein fyrir því, að verkfallastefnan hefur ekki fært honum kjarabætur, og hann gerir sér líka grein fyr- ir því, að takmarkaður hug- ur fylgir máli, þegar komm- únistar þykjast vilja fara kjarabótaleiðina. Þegar til- laga þeirra í þá átt hefur verið samþykkt af öllum þingmönnum, þá fellur niður öll barátta fyrir henni, en þess í stað eru sýndartillög- ur sendar til ríkisstjórnarinn ar, eins og hún geti með einu pennastriki bætt kjör alls al- mennings. UTAN UR HEIMI Kenneth Kaunda „ÞAÐ líða fimmtíu eða jafnvel hundrað ár áður en þelr svörtu eru færir um að stjórna þessu landi. Já, vissulega er Kenneth Kaunda viðkunnanlegur maður — en hvað er hann? Hugsið um það að hann hefur aðeins kennaramenntun". Og hvíti lög- fræðingurinn brosti hæðnislega. Síðan lýsti hann því hvað nýi stjórnmálaflokkurinn, sem berst fyrir áframhaldandi veldi hvíta mannsins, hefur á prjónunum. Hann talaði um „niggers“, um frumstæða blökkumenn og um hið óttalega, sem aldrei, aldrei má verða, þ.e.a.s. „óhreinkun" hvíta stofnsins með niðurrifi múrsins milli kynþáttanna. ÓHJÁKVÆMILEGT A öðrum degi og í annarri skrifstofu sagði róleg rödd: „I>að er óhjákvæmilegt að Kenneth Kaunda mun ná völd- um í Norður-Rhodesíu; það vita þeir hvítu uppi í koparbeltinu Annars er athyglisvert, að hvorki Tíminn né Þjóðvilj- inn birtu úrslit kosninganna í Múrarafélaginu. Er það í samræmi við blaðamennsku þá, sem á þeim blöðum er stunduð. LÖG GEGN EINOKUN Alþýðublaðið skýrir frá því í gær, að á flokksstjórn- arfundi Alþýðuflokksins hafi verið samþykkt að flokkur- inn beitti sér fyrir setningu löggjafar til að fyrirbyggja einokun og tryggja eftirlit með fyrirtækjasamsteypum. Þetta hefur um langt skeið verið stefnumál Sjálfstæðis- flokksins, og má því gera ráð fyrir, að stjórnarflokk- arnir sameinist nú um að hrinda þessari löggjöf í framkvæmd. Alþýðublaðið skýrir einnig frá því, að flokksstjómar- fundurinn hafi samþykkt, að flokkurinn beitti sér fyrir setningu löggjafar um sölu- samtök á afurðum þjóðarinn- ar eins og Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Vel má vera að unnt verði að semja heppilega löggjöf í þessu efni, þótt líklegra sé, að betra væri að taka til endurskoðunar almenna lög- gjöf um atvinnufyrirtæki, þar á meðal hlutafélaga og samvinnufélagalög. Hins er svo líka að gæta, að við samningu löggjafar til að fyrirbyggja einokun, hlýt ur að verða höfð hliðsjón af aðstöðu nefndra sölusamtaka og sú löggjöf hlýtur að snerta þau meira eða minna. Aðalatriðið er, að fagnaber þessum samþykktum Alþýðu flokksins, því þær benda til þess, að flokkurinn hafi að þessu leyti heilbrigðar skoð- anir á nauðsyn þess að tryggja frjálsa samkeppni og heilbrigða viðskiptastarfsemi. fyrir norðan, þótt þeir haldi dauðahaldi í vonina um krafta- verk, sem hindri að þeir afrísku fái meirihlutaaðstöðu. Kaunda er skynsamur maður, sem ég ber virðingu fyrir og sem hefur með höndum afar erfitt verk- efni“. — Þetta sagði Sir John Kenneth Kaunda Moffat, leiðtogi frjálslyndra í Norðúr-Rhodesíu. Og hann álít- ur skoðanir lögfræðingsins og flokksfélaga hans hreina vit- leysu. Þeir hvítu eigi ekki ann- ars úrkosta en að hafa samvinnu við Kaunda og stjórnmálaflokk hans, UNIP. Utan Norður-Rhodesíu, eða öllu heldur utan Afríku, er Kaunda enn tiltölulega lítt þekktur. Land hans er ekki stórt, en það er auðugt. Það er eitt auðugasta landsvæði Afríku, þar sem 60.000 hvítir menn berjast örvæntingarfullri bar- áttu til að halda yfirráðum yfir námum koparbeltisins og yfir tveimur og hálfri milljón Afríkumanna. Kenneth Kaunda er enn ekki jafn almennt þekkt ur og Nkrumah, Touré og Keny atta, en sá sem hittir hann og kynnist honum verður fyrir miklum áhrifum og sannfærist um hæfileika hans. Kaunda hefur úr vöndu að ráða. Hann verður að sann- færa brezku ríkisstjórnina um að hún verði fljótlega, mjög fljótlega að færa Norður-Rhó- desíu nýja stjórnarskrá, sem tryggi afrískum mönnum meiri- hluta á þingi — áður en hann missir stjóm á flokki sínum og við taka æsingamennirnir, sem telja að útilokað sé að ná þessu marki án valdbeitinga. Gegn honum standa ekki aðallega hvítu stjómmálamenn- irnir í Norður-Rhodesíu, held- ur öllu fremur námufyrirtækin og leiðtogar hvítra í Suður- Rhodesíu með forsætisráðherra sambandsríkjanna, Sir Roy Wellensky, í broddi fylkingar. AUGUN BROSA Þegar Kaunda talar um and- stæðing sinn, Sir Roy, er það ekki með neinni heift. Hann talar rólega og augim brosa. Hann þarf ekki að rekja ástæð- urnar fyrir andstöðu forsætis- ráðherrans. Þær eru of augljós- ar. Ef þeir hvítu missa völdin í Norður-Rhodesíu rofna senni- lega tengslin við Suður-Rho- desíu. Og þá hafa hvítu stjórn- endurnir ekki lengur möguleika á að beina hluta auðæfanna frá námunum í norðri til Suður- Rhodesíu. Það, sem ef til vill er mest áberandi við Kaunda er það að hann talar án biturleika. Þótt hann hafi oft verið fangelsaður og setið eitt ár í útlegð hefur það ekki skilið eftir nein sjáan- leg ör. Hann fæddist í Laupula- héraði nyrzt í landinu. Þar var faðir hans trúboði og móðir hans kennslukona. Hann ólst upp í skozkri trúboðsstöð, en hélt síðan til Lusaka til kenn- aranáms. Hann var um tvítugt, er hann hóf kennslu, en hætti henni fljótlega. Nokkurn tíma var hann í ferðum um Tangany- ika og Suður-Rhodesíu, en fór svo aftur norður, til koparbelt- isins. Svo tók hann að snúa sér að stjórnmálum. Hann var fyrst fangelsaður árið 1955, fyrir að hafa með höndum „hættulegar'* bókmenntir, m.a. rit Gandhis. Eftir að honum var sleppt úr haldi, smá jukust áhrif hans i stjórnmálum og hann sagði skil- ið við stjórnmálaflokk þann, sem hann hafði barizt fyrir I mörg ár. Stofnaði hann svo nýj- an flokk Zambia National Con- gress, en sá flokkur var bann- aður 1959. Þá var Kaunda vísað í útlegð. Að henni lokinni tók Kaunda við forustu United National Independence Party, sem í dag er fjölmennasta þjóð- ernishreyfing Norður-Rhodesíu. ★ Árið 1960 lögðu Bretar fram tillögu um stjórnarskrárbreyt- ingu, sem virtist gefa mögu- leika á afrískum meirihluta á löggjafarþingi Norður-Rhodesíu. En sl. sumar dró brezka stjórn- in tilboð sitt til baka vegna harðra andmæla frá Sir Roy Welensky og hvítum leiðtogum í Rhodesíu. Breyttu Bretar til- boðinu og skelltu hurðinni í andlit Kaunda og fylgismanna hans. Trosky ekki endurreistur SOVÉZKA tímaritið „Sögu- vandamál“ lætur að því liggja í síðasta hefti sem nýlega kom út, að Sovétstjómin hafi ekki í hyggju að veita Leon Trotsky uppreisn æru. Segir tímaritið að hugmyndafræði Trotskys hafi verið f jandsam- leg sovézka kommúnista- flokknum og ekki geti komið til mála, að henná verði veitt söguleg uppreisn. Þetta tímarit „Söguvanda- mál“ er málgagn vísindaaka- demíunnar sovézku. Þar segir einnig að nú eigi sagnfræðing ar greiðari aðgang aff ýmsum skýrslum og skjölum en á tíma Stalíns. Margvísleg skjöl séu til frá tímabilinu 1930—1950, sem þurfi gagngerrar rann- sóknar við.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.