Morgunblaðið - 14.02.1962, Qupperneq 21
Miðvikudagur 14. febr. 1962
MORGllTSBLAÐiÐ
21
77/ leigu
Tveggja herbergja íbúð til leigu í Vesturbænum. Til-
boð leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsiins, fyrir
18. þ.m. merkt: „Reglusemi — 5677“.
Nýkomiö
Harðplast á borð og lím. Stærð: 244x122 cm.
Litir: GuJt, hvítt, grátt, svart og brúnt.
Aluminium einangrunar folia.
Undirlagskork fyrir dúka, flisar og
gólfteppi.
Sísalpappi: með og án aluminium fólíu
Vegg mosaik: símynstrað og lím og
fugu sement.
Corkoustic hljóðeinangrunarplötur
hvítar 30x30 cm.
Korkveggfóður, í mörgum litum.
Þ. Þorgrlmsson & Co.
Borgartúni 7 — Sími 22235
Söluskattur
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 4. ársfjórðung
1961, svo og vangreiddan söluskatt eldri ára, hafi
gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta lagi hinn 15.
þ.m. Að þeim degi liðnum verður stöðvaður án
frekará aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi
hafa þá skilað gjöldunum.
Reykjavik, 12. febrúar 1962.
Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli.
Unglingur
óskast til að bera Morgunblaðið út á
LANGHOLTSVEG I
Kjallaraíbúð
Til sölu er 2ja herbergja kjallaraíbúð í Samtúni.
Semja ber við undirritaða.
Jón Magnússon, hdl.
Tryggvagötu 8 — Símar 11164 og 22801.
eða Guðíaug Einarsson, hdl.,
freyjugötu 37, sími 19740.
kJyjk\c\xf
sícP&XAÍjVY\\AV\ÍÝí
SlálvöVuf
Si^u^ófJorNSSorx 3c co
Slæm færð
vegna snjóa
MIKIL ófærð hefur verið á veg-
um um land allt eftir ofanákom-
una undanfarið. Hellisheiði var
lokuð í gær, en verið var að moka
hana. Er það undir veðri kom-
ið, hvort hún verður opnuð til
yfirferðar í nótt eða dag.
Krýsuvíkurvegurinn var fær
öllum bifreiðum síðari hluta dags
í gær, enda unnu þar að veg-
heflar og snjóplógur. Hvalfjarð-
arleiðin var farin í gær. Á henni
var hvergi mikill snjór, þótt
kyngt hafi niður fönn á nokkrum
stöðum.
Holtavörðuheiði er ófær, en
þar verður rudd slóð, um leið
og veður batna. í dag verður
reynt að opna veginn vestur í
Dali um Bröttubrekku.Borgarnes
hefur verið einangrað um hríð,
en leið mun opnast þangað á
morgun. Vegir um Flóa voru
illfærir eða ófærir í gær, en
munu bílfærir í dag.
Góð sala hjá
Víkingi
TOGARINN Víkingur frá Akra-
nesi seldi í Bremerhaven í gær
148 lestir fyrir 110 þúsund
mörk. Þetta er góð sala, og átti
Mbl. í gærkvöldi tal við Fram-
kvæmdastjóra skipsins, Valdi-
mar Indriðason, um þetta. Sagði
hann, að ofsaveður hefði verið
sl. daga á Norðursjó, og því fá
skip komizt inn með afla sinn
til sölu í Þýzkalandi. Því myndi
verðið sennilega vera sæmilega
gott í Þýzkalandi um þessar
mundir. Víkingur lagði út frá
Skipaskaga kl. fimm á miðviku-
dag og var fjóra sólarhringa á
leiðinni til Bremerhaven. Hann
var á veiðum í hálfan mánuð
Sex íslenzkir togarar munu að
öllum líkindum selja erlendis í
vikunni; flestir 1 Þýzkalandi.
Tveir þeirra eru með síld auk
annars afla; þeir Skúli Magnús-
son og Júpíter.
Pottaplöntur
Stærsta úrval í allri borginni.
Akið upp að dyrum. —
Sendum um alla borg.
Gróðrastöðin við Miklatorg.
Símar 22822 og 19775.
-J"eakfasT
CpCOA,
Á STrENGTH AND Vl6
NY SENDING
\\lí/ ítalskir skór
3
Lönguhlíð milli Miklubrautar og Barmahlíðar.
tTSALA
Okkar ÁRLEGA UTSALA stendur aðeins
í fáa daga.
Seljum: Undirfatnað, Lífstykkjavöru,
Sokka, Sokkabuxur o. m. fl. fyirr hálfvirði.
(WHqjmtpm
Laugaveg 26, sími 15-18-6.
Bátur til sölu
Bátur 8% tonn með 48 ha. Lister dieselvél og Atlas
dýptamæli til sölu strax. Báturinn er tdlbúinn á ver
tíð. Línu- og netjaveiðarfæri geta fylgt. Uppl. gefur
Lárus Jónsson, Ólafsfirði. — Sími 4.
hkwtc n
Harðplast
Höfum aftur fengið hið marg eftirspurða
ameríska borðpiast. — Lita úrval.
Kelgi Magnásson & Co.
Hafnarstræti 19 — Sími 13184
Vejle Huslioldningsskole
Vejle — Danmark.. — Ný-
byggður, 1944 með eigin barn-
fóstrudeild. Nýtízku skóli. —
Staðsettur í einum fegursta bæ
Danmerkur 5—6 món. námskeið
hefjast 4. apríl, 4. maí og 4. nóv.
Skólaskýrsla send.
Metha Möller
_____forstöðukona.__________
FéBagslíf
Farfuglar Farfuglar
KVÖLDVAKA
Farfuglar munið kvöldvökuna
að Bræðraborgarstíg 9 í kvöld. Pósthólf724
Nefndin.
ðrugg og fljótleg skrúfufesting
Notið Rawlplugs skrúfufestingar í harðan málm — það eP
eina leiðin til að forðast skemmdir. Borið gat með Rawltool
eða Durium Drill og skrúfið í Rawlplug, sem spennist fast fi
gatið. pá er fengin örugg og endanleg festing. Rawlplug fæst
i stærðunum nr; 3 (1/8 þuml.) til nr. 30 (1 þuml.).
Heimsins stærstu framleiiendur festinga.
THE RAWLPLUG COMPANY, CROMWELL ROAD, LONDON, S.W.7<
Upplýsingíir og sýnishorn hjá umboðmanni fyrir ísland
John Lindsay, Austurstræti 14 — Reykjavík
Sími 15789
B 6*0