Morgunblaðið - 10.03.1962, Side 8

Morgunblaðið - 10.03.1962, Side 8
8 MOPcrnvnr 4 r> i f) Laugarclagur 10. marz 1962 — Viðreisn Framh. af bls. 1 Þá er gert ráð fyrir, að samningar takist við Fram- kvæmdabanka íslands um lækkun vaxta á þeim lánum, sem þégar hafa verið veitt, og loks að í reksturskostnaði' megi spara um eina millj. kr. Gjaldþrota sjóðir í þessu frumvarpi um viðreisn landbúnaðarsjóðanna segir m.a.: „Lagafrumvarp þetta er flutt í samræmi við þá yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að hún myndi vinna að því að tryggja starfsgrundvöll stofnlánasjóða landbúnaðarins. Gerð var á sl. ári ítarleg at- hugun á fjárhag Ræktunarsjóðs íslands og Byggingarsjóðs sveita bæja, sem sannar ótvírætt að sjóðir þessir eru raunverulega gjaldþrota. Án róttækra aðgerða hljóta því stofniánaveitingar í landbúnaði að stöðvast að mestu leyti, því eigið fé sjóðanna er uppurið og þess engin von að nokkur aðili vilji veita sjóðunum lán miðað við núverandi ástand þeirra. Afkoma byggingarsjóðs er svo hörmuleg, að eigi aðeins er ekk- ert fé til útlána heldur var greiðsluhalli á árinu 1961 um 8,2 millj. kr. Voru um síðustu áramót í vanskilum um 5 millj. kr., í gjaldföllnum afborgunum og vöxtum til veðdeildar Lands- bankans og ríkissjóður varð á árinu 1961 að greiða samtals um 7,5 millj. kr. árgjöld af er- lendum lánum sjóðanna, sem þá skorti algjörlega fé til að greiða.“ Þá er þess getið, að miðað við óbreytt ástand mundi greiðslu- haili byggingarsjóðs næstu 14 árin verða 50 millj. kr., án nokk urra nýrra útlána og án þess að uppfylltar yrði þær skuldbind- ingar um lánveitingar, sem sjóð urinn hefur þegar tekið á sig. Hrein eign byggingarsjóðs er nú aðeins um 18 milj. kr., enda þótt ríkissjóður hafi á undan- förnum 30 árum lagt sjóðnum til um 65 millj. kr. í óaftur- kræfum framlögum. Verði ekk- ert að gert mun allur höfuð- stóll sjóðsins eyddur í halla- rekstur árið 1965. Um Ræktunarsjóð segir svo í greinargerðinni: „Enda þótt Ræktunarsjóður hafi á undanförnum 30 árum fengið sem óendurkræf framlög frá ríkissjóði um 67,5 millj. kr., þá er efnahagur sjóðsins svo bágborinn, að hann skuldar nú 52,5 millj. kr. umfram eignir. Að óbreyttu ástandi mundi hag- ur sjóðsins versna enn svo stór- kostlega næstu árin, að 1970 mundi hann skulda 156 millj. kr. umfram eignir." Gjald á framleiðsluvörurnar f 4. gr. frumvarpsins er fjall- að um hina nýju tekjustofna búnaðarsjóðanna og um þá seg- ir m. a. I grg.: f 2. og 3. tölulið er lagt til, að bændastéttin og ríkissjóður leggi fram að jöfnu árlegt tillag til Stofnlánadeildarinnar. Með hliðsjón af því alvarlega vanda- máli, sem hér er við að fást og mikilvægi þess fyrir alla fram- tíðaruppbyggingu landbúnaðar- ins í landinu, er lagt til að leggja 1% gjald á framleiðslu- vörur landbúnaðarins, sem á- kvarðist og innheimtist á sama hátt og það %% gjald til bún- aðarmálasjóðs og %% gjald til byggingar bændahallar, sem nú er innheimt. Erfitt er að áætla nákvæmlega tekjur af þessu gjaldi, en miðað við framleiðslu verðmætið ætti það að geta numið rúmum 8 millj kr. á næsta ári, en ætti svo að fara árlega hækkandi vegna aukinn- ar framleiðslu. Greitt er nú miklu hærra gjald af sjávaraf- urðum til lánastofnana sjávar- útvegsins, enda hefur tekizt að forða Fiskveiðasjóði frá þeim erfiðleikum, sem stofnlánasjóðir landbúnaðarins hafa lent í. — Sanngj arnt þykir, með hliðsjón af öllum aðstæðum, að ríkis- sjóður leggi árlega jafnháa upp- hæð á móti framlagi bændanna. Tekjur af þessum tveimur tekju- stofnum ættu að geta orðið um 16 millj. kr. á næsta ári, en mikil óvissa er um yfirstand- andi ár. Þá er lagt til, að lagt verði gjald á útsöluverð mjólkur og rjóma og á heildsöluverð ailra annarra landbúnaðarvara, er nemi 0.75% af verði til fram- leiðenda samkvæmt verðlags- grundvelli landbúnaðarvara eða samkvæmt áætluðu framleið- endaverði, ef það er ekki í verð- lagsgrundvelli. Gjald þetta skal ekki tekið af verði til framleið- enda, eins og 1% gjald samkv. 2. tölulið, heldur bætist það við verð varanna. Af hagkvæmis- ástæðum er gjaldið miðað við framleiðendaverð, en hins veg- ar bætist það við útsöluverð mjólkur og rjóma og við heild- söluverð annarra landbúnaðar- vara, og eiga seljendur í heild- sölu eða, ef svo ber undir, selj- endur í smásölu (t. d. mjólk seld beint til neytenda), að standa skil á þvi samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Gera má ráð fyrir, að þessi tekjuliður gefi tim 5.5 millj. kr. á næsta ári, miðað við núver- andi afurðaverð. Samtals ættu þessir tekjustofn ar að geta gefið Stofnlánadeild- inni allt að 25—26 millj. kr. tekjur á næsta ári. Loks er gert ráð fyrir því, að með samningum við Fram- kvæmdabanka íslands verði auð- ið að fá svo lækkaða vexti, einnig af þegar veittum lánum, að ekki verði um neinn vaxta- halla að ræða. Hefur þetta mikla þýðingu fyrir efnahag sjóðanna, svo sem tafía um það efni sýnir, enda þótt ráðstöfun- arféð aukist ekki. Láni Veðdeild Búnaðarbankans Gert er ráð fyrir, að lánhæf- ar framkvæmdir verði allar þær sömu og áður, nema að bætt er við framkvæmdum í sambandi við lax- og silungs- eldi. Að öðru leyti eru í frum- varpinu efnisiega óbreytt á- kvæði laganna um landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Dagblaðið TÍMINN ræðst í gær að Ingólfi Jónssyni land- búnaðarráðherra með furðu- lega dólgslegum hætti. Blaðið gefur í skyn, að ráðherrann hafi unnið og vinni að því með „samræmdum aðgerð- um“ að leggja niður bænda- skólann á Hólum í Hjaltadal. Ég minnist þess tæpast að hafa séð á prenti öfgafyllri og heimskulegri skrif en þessi, jafnvel ekki í Tímanum sjálf- um, og seilist þó þetta „blað handa bændum“ oft býsna langt til þess að ná til nú- verandi landbúnaðarráðherra En hér er vindhögg slegið sem ætíð áður. Eða heldur Tíminn að nokkur heilvita maður trúi því, að Ingólfur Jónsson rói að því öllum árum að leggja Hólaskóla niður, á sama tíma og ráðherrann beitir sér fyrir því, að stórfelldar endurbæt- ur eru gerðar á húsum og mannvirkjum á Hólasíað, og fær því framgengt, að á fjár- lögum þessa árs eru veittar 114 milljón króna til þessara endurbóta? Til viðhalds húsa og mann- virkja á Hólum hefur á undan förnum árum verið veitt alltof lítið fé. Hin nauma fjárveit- FRAMKVÆMDIR við bygg- ingu hins nýja kvikmyndahúss Tónlistarfélagsins við Skip- holt ganga nú hratt og ef komið er þar inn, má nú orð- Stofnlánadeildinni er heimilað að kaupa bankavaxtabréf Veð- deildar Búnaðarbankans fyrir allt að 10 millj. kr. á ári, en þess er sérstaklega getið að slík bréfakaup verði auðvitað háð því, að Stofnlánadeildin hafi fé aflögu frá eigin þörfum, en gera megi ráð fyrir, að svo verði innan tiltölulega skamms tíma. í greinargerðinni segir enn- fremur: Fjáröflun sú til stofnlána í landbúnaði, sem lagt er til að lögfesta með þessu frumvarpi, er við það miðuð, að stofnlána- sjóði landbúnaðarins verði inn- an skamms tíma kleift af eigin fé að standa undir eðlilegri fjár- festingarlánaþörf vegna fram- kvæmda í landbúnaði. Svo sem áður er að vikið, er vonlaust með ölíu að velta þessu vanda- máli á undan sér með nýjum lántökum, og eigi er það held- ur viðunandi lausn, þótt geng- ishallanum einum væri létt af sjóðunum. Það hefur jafnanver- ið viðurkennt nauðsynlegt, að stofnlán í landbúnaði væru að verulegu leyti með hagstæðari kjörum en gilda á hinum al- ing leiddi svo til þess, að stað urinn var að niðast niður, svo sem gieggst má sjá af þeirri úttekt hans, sem gjörð var við skólastjóraskiptin s.l. vor. Landbúnaðarráðherra sá, að hjá þessum endurbótum varð ekki komizt, en þegar hann svo beitir sér fyrir þeim, þá heitir það á máli Tímans, að ráðherrann vinni að því leggja Hólaskóla niður. Ég get ekki að því gert, að þótt mér finn- ist að menn, sem þannig tala og skrifa séu naumast með réttu ráði. Og hverju þjónar slíkur málflutningur? Sízt af öllu framtíð Hólastaðar. Það mun flestum kunnugt, að aðsókn að Hólaskóla hef- ur á undanförnum árum verið lítil og skóiinn laust frá því að vera fullsetinn. Orsakir þessarar öfugþróunar ræði ég ekki að sinni, en fastlega trúi ég því, að ofsnemmt sé fyrir Tímann að hlakka yfir því, að Hólaskóli leggist niður, vegna þess að engir sæki þar um skólavist. Ég veit að Ingólfur Jónsson mun ásamt öðrum góðum mönnum vinna að hag og heiðri Hólastaðar. Rógskrif Tímans um ráðherrann mun í þeim efnum engu breyta. Gunnar Gíslason. ið fara að sjá þess merki hvern ig umhorfs verður. f gær þeg- ar Ijósmyndarinn kom þar, var verið að rífa byggingar- pallana innan úr salnum, sem menna lánamarkaði. Eigi því sjóðirnir í senn að gegna því hiutverki að starfa á eðlilegum og raunhæfum fjárhagsgrund- velli, er eina leiðin sú, að sjóð- irnir verði að mestu byggðir upp af eigi.i fé. Með hliðsjón af þessari veigamiklu staðreynd Verður að meta fjáröflunartil- lögurnar. Toqurunum Framh. af bls. 1 •að fyrir liggi yfirlýsing viðskipta banka hlutaðeigandi útgerðarfyr- irtækis, sem tryggi, að kröífuhaf- ar taki við greiðslu í skuldabréf- um.“ Deildum sjóðsins fjölgað. Lagt er til, að deildum sjóðsins . verði fjölgað úr tveimur í fjórar. ' Við bætast sérstök deild togara og svonefnd jöfnunardeild, sem hlaupa á undir bagga með hinum deildunum, þegar sérstaklega stendur á. Hér er um nauðsyn- lega ráðstöfun að ræða. Fram til þess hefur hin almenna þorsk- veiðideild gegnt þessu hlutverki jöfnunardeildar og jafnan þurft að veita lán til síldveiðideildar, þegar á hefur bjátað. Lán þessi hafa numið milljónum króna. Oft hafa orðið miklar tafir á afgreiðslu mála, sökum þess, að þeir aðilar, sem umsagnii áttu að láta í té um tillögur sjóðsstjórnar, hafa sýnt vanrækslu í því efni. Lagt er til, að gerðar verði ráð- stafanir til að flýta afgreiðslu. Þá er ákveðið, að það skuli tal- inn aflabrestur, „ef afli báta er minni en 75% — og afli togar- anna minni en 85% ákveðins með alveiðimagns. Þessi mismunur hefur við þau rök að styðjast, að útgerð báta er að mestu leyti bundin vertíðum og afli þeirra yfirleitt misjafnari, en hjá togur- unum er ú+haldstími allt árið.“ Yfir 50 millj. kr. tekjur. Gert er ráð fyrir að hin al- menna deild bátaflotans og síld- veiðideild taka við eignum og skuldum Hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins. Hér er um all- mikið fé að ræða. Samkvæmt yfirliti frá 31. janúar 1962 var sjóðseign hinnar almennu deildar rúmlega 13 millj. kr. Skuld síld- veiðideildar við alm. deildina var hins vegar um 10 millj. krónur. Telja má að inneign sjóðsins hjá ríkissj óði hafi numið um 20 millj. króna, en fullnaðaruppgjör getur ekki farið fram fyrr en síðar. Gert er ráð fyrir, að ríkissjóður leggi togaradeildinni til stofnfé að upphæð kr. 37 500 000.00, er greiðist á fimmtán árum. Árlegar tekjur sjóðsins verða 1,25% af fob-verði útfluttra sjáv- arafurða (öðrum en þeim, sem koma frá hvalveiðum og selveið- á að taka nærri 500 kvik- myndagesti. Sýningar eru sem kuu» ugt er hættar í gamla { bragganum, Trípolíbíó, og 1 bráðum tekur þetta við. um). Heildartekjur sjóðsins al útflutningi munu því nema um 35 millj. kr. miðað við að heild* arútflútningur gjaldskyldra sjáv arafurða nemi 2.800 millj. króna. Mótframlag ríkissjóðs, sem helm- ingur á móti þessiun tekjum, mun því nema 17,5 millj. króna. Milli deilda sxiptast tekjurnar þann:g: í síldveiðideild 50% af tekjum af útfluttum síidarafurðum. f almennu deild bátaflotans 50% af tekjum af útfluttum þorskafurðum bátaflotans. f almennu deild togaraflotans 50% af tekjum af útfluttum þorskafurðum togaraflotans. í jöfnunuardeild 50% af tekj- um af útfluttum síldarafurðum og 50% af tekjum af útfluttum þorskafurðum báta- og togara- flotans. Skapar sjóðnum verulega vernd. Mikilvægt er, að sjóðstjórninni er heimilað að taka allt að 30 millj. kr. lán með samþykki ríkisstjórnarinnar, bæði fyrir sjóðinn í heild og einstakar deild ir hans. Lán þessi verða á ábyrgð ríkissjóðs. Þá mun það skapa sjóðnum verulega vernd. að gert er ráð fyrir, að skip, sem stunda veiðár skemur en þriðjung bóta- tímabilsins, koma ekki til greina við bótaútreinkning. Enn fremur er gert ráð fyrir, að sjóðs- stjórnin láti fara fram sérstaka rannsókn, ef skip veiða minna en 33% meðalveiðimagns við- komandi flokks í stað 20% áður. Þá þykir og eðlifegt og réttlátt að breyta nokkuð útreikningsregl um og láta bætur fara smáminnk andi allt að 84,5% í stað 74,5% áður. Loks er lagt til, að stjórnar- nefndarmönnum sé fjölgað úr þremur í fimm sökum breyttrar skipunar á málefnum sjóðsins. Umlirbúnings- námskeið tæknifræðinga Tæknifræðingafélag íslands etfn ir til námsikeiðs til undirbúnings fyrir þá, sem hyggjast leggja stund á nám við tækniskóla er- lendis. Námskeiðið verður sett I dag kl. 2 e.h. í Vélskólanum. Sjóslysasöfnunin Skv. frétt frá biskupsskrif- stofu hafa borizt 14.220 kr. til söfnunarinnar vegna sjóslysanna, f sömu frétt segir, að auk þesa hafi borizt gjöf frá forseta Is- lands. — Söfnunarlistinn verður síðar birtur í Dagbók. _^ Séra Gunnar Gíslason, alþm: Hverju þjónar slíkur málflutningur?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.