Morgunblaðið - 10.03.1962, Blaðsíða 9
Laugardagur 10. marz 1962
VOPC.T’IS RÍ.4Ð7Ð
.9
Fimmtugur í dag:
Þorbjörn Jóhannesson
Þrjár íslenzkar bridgesveitir munu keppa á Norðurlandamóti, sem haldið verður í Kaup-
mannahöfn í júní n.k. IVIyndin hér að ofan er af keppendunum en þeir eru. Sitjandi, talið
frá vinstri: Kristín Þórðardóttir, Laufey Arnalds, Ásgerður Einarsdóttir. Elín Jónsdóttir, Rósa
Þorsteinsdóttir, Ása Jóhannesdóttir. Standandi: Eiríkur Baldvinsson, fararstjóri Hilmar Guð-
mundsson, Lárus Karlsson, Rafn Sigurðsson, Jakob Bjarnason, Jón Björnsson, Jón Arason,
Jóliann Jónsson, Þorgeir Sigurðsson, Símon Símonarson, Brandur Brynjólfsson og Ólafur Þor-
steinsson. Á myndina vantar Sigurð Helgason.
ÞORBJÖRN Jóhannesson, kaup
maður í Kjötbúðinni Borg, er
íimmtugur í dag.
Fáir munu þeir Reykvíkingar,
sem ekki kannast við Þorbjörn
í Borg. Hann hefur af eigin
dugnaði hafizt til álits og góðra
efna, byrjaði bamungur sem
sendisveinn, en hóf þegar sjálf-
stæðan verzlunarrekstur rúm-
lega tvítugur að aldri.
Vegna óvenjulegrar árvekni
og samvizkusemi Þorbjarnar, er
Kjötbúðin Borg nú ein stærsta
verzlun sinnar tegundar hér í
borg og nýtur hylli viðs'kipta-
manna fyrir góðar vörur og
þjónustu.
Þá hefur Þorbjörn verið at-
haínamaður í bygginga- og verk
takastarfsemi sem stjórnarfor-
maður Byggingarfél. Brúar h.f.
um árabil.
Auk þess hefur Þorbjörn ver-
ið áhugasamur þátttakandi í
margs konar félagsstarfsemi,
verið formaður Dýraverndunar-
féiagsins, í sóknarnefnd Háteigs
sóknar, gegnt trúnaðarstörfum
fyrir stétt sína og verið vara-
borgarfulltrúi í Reykjavík um
tveggja kjörtímabila skeið.
Það er lærdómsríkt að vinna
með Þorbirni í Borg og kynn-
ast. áhuga hans og einbeittni,
ósérhlífni í störfum, drenglyndi
hans og dugnaði.
í tilefni fimmtugsafmælisins
vil ég flytja Þorbirni beztu
þakkir fyrir ánægjulegt sam-
starf og senda honum, konu
hans, Sigríði Einarsdóttur, og
fjölskyldu þeirra béztu heilla-
óskir.
Geir Hallgrímsson.
Gáfu 30 þús.
til orgelkaupa
HJÓNIN Gunnar Snjó'lfsson og
Jónína A. Jónsdóttir, í Horna-
firði, börn þeirra og tengdabörn
afhentu í gær, 8. nsarz, gjafabréf
að upphæð 30 þús. kr. til Hafnar
kirkju til kaupa á pípuorgeli
þegar þar að kemur, í tilefni
þess að þá var tuttugasti afmæl-
isdagur Braga Gunnarssonar á
Sunnuhvoli í Höfn. Og er gjöfin
gefin til minningar um hánn og
félaga hans sex, sem fórust mieð
mb. Helga frá Hornafirði á heim
siglingu frá Englandi 15. áept.
1961.
Hafa safnaðarfulltrúi og sókn
arnefnd fyrir hönd Hafnarkinkju
beðið blaðið að færa innilegar
þakkir fyrir þess höfðinglegu
gjöf.
GNiHlhQHMt
&&%%%%% fy'-y QjtQjrQjf
TVÍMENNIN GSKEPPNI Bridge
sambands ísxands lauk nýlega.
Þátttakendur voru 32 pör sem
spiluðu 5 umferðir. Úrslit urðu
þau, að Einar Árnason og Þor-
steinn Þorsteinsson báru sigur
úr býtum, hlutu 120 stig. Röð
16 efstu paranna varð eftirfar-
andi: stig
2. Ásmundur og Hjalti .. 1237
3. Símon og Þorgeir .... 1153
4. Egill og Torfi ..... 1129
5. Jakob og Jón ....... 1125
6. Jóhann og Jón ...... 1121
7. Jón og Tryggvi ..... 1111
8. Bragi og Magnús .... 1108
9. Ásmundur og Benoný 1089
10. Guðjón og ívar ..... 1087
11. Ásta og Steinunn .... 1085
12. Birgir og Hilmar .... 1083
13. Jón og Sigurður .... 1078
14. Karl og Klemens .... 1070
15. Arna rog Þórarinn .. 1070
16. Ólafur og Tryggvi .. 1068
SVEITAKEPPNI meistaraflokks
hjá Bridgefélagi Reykjavíkur
lauk nýlega. Sveit Einars Þor-
finnssonar sigraði með miklum
yfirburðum, hlaut 52 stig af
54 möguiegum. Auk Einars eru
í sveitinni Lárus Karlsson, Krist
inn Bergþórsson, Gunnar Guð-
mund&son, Ásmundur Pálsson
og Hjalti Elíasson. Endanlegröð
sveitanna varð þessi:
•stig
1. Sv. Einar Þorfinnssonar 52
2. — Agnars Jörgensen .. 41
3. —Stefáns Guðjohnsen 40
4. — Eggrúnar Arnórsdóttur 24
5. -7. Sv. Elínar Jónsdóttur 23
5.-7. Sv. Hilmars Guðm. .. 23
5.-7. — Jóhanns Lárussonar 23
8.--9. Brands Brynjólfss. 22
8.-9. — Júlíusar Guðmundss. 22
10. Sv. Þorst. Þorsteinssonar 0
Fjórar neðstu sveitirnar flytj-
ast niður í I. fl. og verða því
sveitir nr. 5.—7. að spila um
hver þeirra feliur niður.
FRÁ ÞVÍ AÐ TÆKI ÞESSI VORU
KYNNT Á VINNUSÝNINGU í
REYKJAVÍK í JÚNÍ S.L., HAFA
MARGAR SAMSTÆÐUR VERIÐ
PANTAÐAR HJÁ OSS, BÆÐI TIL
VINNU í SVEITUM OG
KAUPSTÖÐUM
MASSEY
FERGUSON
VINNUTÆKI, sem eru fullkomlega aðhæfð hvert öðru.
SKURÐGRAFA - DRÁTTARVÉL . MOKSTURSSKÓFLA
REYNSLAN
hefur sýnt, að MF-skurðgröfusamstæðan hefur miklu
hlutverki að gegna, vegna mikiila afkasta við gröft
skurða, livort heldur er í malar. eða moldarjarðvegi,
mokstur á bíla og fleira.
Svo haganlega eru tækin tengd saman, að aðeins tekur
3—5 mínútur fyrir vanan mann að taka gröfuna frá
dráttarvélinni.
Vökvastýri á dráttarvélinni og vökvadæla, sem dælir 15
gallonum á mínútu, tryggja vinnuhraða við hvert verk,
og auðvelda stjórn tækisins.
KYNNIÐ YÐUR ÞÁ
REYNSIxU, SEM FENGIN ER
DRÁTTARVÉLAR H. F.
375 manna
byggðarlag
safnaði 90 þús.
í GÆR fór fram í Hnífsdalskap
ellu jarðaför barnanna tveggja,
er létust í bruna fyrir skemmBtu
þeirra Jónu Stefánsdúttur og
Lárusar Daníels Stefánssonar.
Sóknarpresturinn, sr. Sigurður
Kristjánsson jarðsöng og Marg-
rét Finnbogadóttir söng einsöng
í kirkjunni. Var mikið fjölmenni
í kirkjunni, bæði frá Hnífsdal og
ísafirði. t
Sýnir það vel þá miiklu hlut
tekningu sem foreldrum barn-
anna er sýndur vegna þestsa
hörmulega atburðar, að er haf
in var söfnun þeim til aðstoðar
í Hnífsdal og Skutulsfirði, þessu
375 manna byggðarlagi, þá sötfn
uðust á sama degi 90 þús. kr. En
þau hjónin misstu sem kunnugt
er hvert tangur og tetur er fjöl
skyldan átti. Hafa nú einnig haf
ist samskot í þessu skyni á ísa-
firði.
Víðir fékk 31 lest
í þorskanót
SANDGERÐi, 8. marz. — 21
bátur kom að í gær með 124,7
lestir. Freyja var hæst með 12
lestir, Jón Garðar 11,7 og Guð-
mundur Þórðarson 11,4. Víðir II.
kom inn með 31,5 lestir, sem
hann fékk í þorsknót. Hann kom
heim í gær, annars hefur hann
yfirleitt landað í Vestmannaeyj-
pm. Áður hefur hann komið með
20 lestir.
★
AKRANESI, 8. marz — Heildar-
aflinn hjá bátunum í gær var 70
lestir. Bátarnir voru 12. Allra-
hæstir voru Ásmundur 11,3 lest-
ir, Skipaskagi og Ólafur Magn-
ússon með 8,5 lestir. Þeir voru
með línu. Skagfirðingur fór í
netin í gær, dró ekki nema eina
trossu og fékk í hana 300 kg.
Fiskurin er fiakaður og hrað-
frvstur.