Morgunblaðið - 10.03.1962, Side 22

Morgunblaðið - 10.03.1962, Side 22
22 stojtcrnnr amð Lat^ardagur 10. marz 1962 Heimsmethafarnir mæt- ast aö Hálogalandi í dag Það verÖur barizt um heims- metið og þrír hafa mögu- leika á því HEIMSMETHAFINN í hástokki án atrennu, Norðmaðurinn John Evandt kom til Reykjavíkur í gær og í dag og á morgun kepp ir hann á afmælismóti ÍR sem fram fer að Hálogalandi kl. 2:30 í dag og kl. 3 á morgun. Keppni hans hér er næsta nýstárleg, því að á mótinu mætast núverandi og fyrrverandi heimsmethafi í greininni. Einvígi þetta vekur at hygli um öll Norðurlönd. I*eir hafa að undanfömu skipzt á um að eiga heims- metið John Evandt og Vil- hjálmur Einarsson. Evandt hafði átt það um alllangt skeið, þegar Vilhjálmi tókst í vetur að bæta það um 1 cm úr 1.74 í 1.75 m, sem frægt varð að vonum sem fyrsta heimsmet er íslendingur set ur í frjálsum íþróttum. Ekki vakti það minni at- hygli er annar íslendingur, Jón Þ. Ólafsson náði frábær um stökkum. Setti hann ungl ingamet í keppni 1,71 m og stökk siðar á æfingu 1,78 m, sem er hæsta stökk er stokk ið hefur verið í hástökki án atrennu. Fyrir nokkrum dögum hrifs aði John Evandt heimsmet sitt aftur af Vilhjálmi. Stökk Evandt 1.76 m. Það virðist því sýnt að „striðið“ verður hart. Það kann að ske í dag að heimsmet verði sett aið Hálogalandi — eða á morgun. Eitt er vist að þrir koma til greina með að ná metinu. — Vart er hægt að efna til tví sýnni keppnj en hér er á boð stólum. Nýr skíöaskáli I.R. — og afmælismót # Hamragili f DAG verður vigður í Hamra- gili skammt frá Kolviðarhól hinn nýi skíðaskáli ÍR. Hefur bygg- ing hans staðið undanfarin ár en með mestum hraða á s.l. ári og þó einkum nú siðustu mánuð ina. Er hér um glæsilegan skála að ræða, sem rúmar á annað hundrað manns. ÍR-ingar hafa boðið fjölda gesta til vígBlunnar sem verður KL 2 í dag, en að henni loíkinni er skálinn opnaður fyrst og fremst ÍR-inguan og einnig öLlum skíðaunnendum. • Skíðamót Sundfólkið keppir ó Sel- iossi ú morgun HINIR erlendu sundgestir sem hér hafa dvalið á vegum ÍR-inga og gert sundmót þeirra mjög eftirminnilegt munu taka þátt í móti sem haldið verður að Selfossi á morgun sunnudag. Verður þetta í fyrsta sinn sem erl. gestir taka þátt í sundmóti þar eystra, en meðal þátttakenda verða og beztu sundmenn fslendinga t. d. Hörður Finnsson, Guðm. Gíslason og Hrafn- bildur Guðmundsdóttir. I Á Selfossi eru komnar góð ar aðstæður til sundmóts i glæsilegri laug. Er ekki að efa að margt manna þar eystra vill sjá fræknustu sundmenn okkar og gestina í skemintilegri keppni. ÍR-ingar hafa keppt að því að vúgja skólann í sambandi við 55 ára afmæli félagsins, sem er á morgun 11. marz. Þann dag efnir skíðadeildin til fyrsta móts ins við skálann. Verður keppt í þromur flokkum. f karlaflokki eru keppendur 22, 9 í kvenna- fknkki og 15 í drengjaflokki. Er vel til mótsins vandað. — Nánar verður sagt frá skálaruum etftir helgina. • Aðrar greinar r Auk þess sem Jdhn Ervandt kepþir í hástökki keppir hann einnig í dag í lahgstöklki án at- rennu, en þar er hann einnig Frh. á bls. 23. 21:21 UNGLINGALANDSLIÐIÐ, sem í næstu viiku heldur til Danmehk ur til þátttöku í norrænni meist arakeppni unglinga í handlknatt leiik, kvaddi að Hálogalandi í gær. Lék liðið við „unglingalaust landslið“. UnglingaliCið sttóð sig með staíkri prýði. Skildú lið in jöfn, skorðu hvort um sig 21 maitk. — Er þetta hið bezt vega nssti. , Norðurlandamet! íslandsmet Harðar Finnssonar IR i 100 m bringusundi er bezta afrek á Noróurlöndum ÞAÐ ER von að Hörður Finns son sé broshýr á myndinni, sem hér fylgir. Hún var tek in eftir hinn glæsilega sigur hans — og íslandsmet — í 200 m. bringusundi á ÍR-mót- inu í fyrrakvöld. Á miðviku daginn hafði Hörður sigrað í 100 m. bringusundi á nýju ísl. meti og lék nokkur vafi á því hvort um Norðurlandamet væri að ræða. Mbl. sendi fyr irspum gegnum Stockholms- tidingen (stærsta blað Sví- þjóðar) og fékk eftirfarandi svar í gær. „Tími Harðar Finnssonar 1.11,9 er nýtt Norðurlandaniet, ef farið hefur verið að öll- um reglum varðandj met. — Eldra Norðurlandametið á Tommy Lindström og er það 1.12,5 min.“. Hörður B. Finnsson er því orðinn bczti sundmaður er Norðurlönd hafa átt í 100 m bringusundi. Hörður Bjöm heitir hann fullu nafni og er tvítugur að aldri. Hann er son ur Finns Gíslasonar mótorista í Keflavík og Helgu Björns- dóttur. Móðir hans er látin. Hörður er fæddur Keflvíking ur og hefur dvalizt þar ailan sinn aldur að undanteknum skólaárum í Verzlunarskólan um og s.l. tveimur árum er hann hefur verið búsettur í Reykjavík. Hann starfar í heildverzlun Magnúsar Ó. Ólafssonar. Það er glæsileg framtíð, sem blasir við Herði. Hann er sundmaður sem mikils má af vænta. -%r> «%•" Guðmundur Evrópumeistari? — Eg er sannfærður uim það að Guðmundux Gíslason er einn af þreimiur beztu fjór- simdsmiönnuan í Evrópu. Ef hann legði stund á þessa grein, væri hann án efa kandi dat til EvTÓpumeistara og það þegar á þessu ári. Þannig mælti sændki sund- maðurinn Roland Lundin er hann hafði séð Guðmund sigra með yfirburðum í 200 m fjór- sundi einstaklinga á sund- móti ÍR í fyrrakvöld. Og Lundin hél't áfraim: — Eg hef aldrei séð það fyrr hjá nokkurri þjóð sem ég hef heimsótt, hversu fjöl- hæfa sundimenn hún á. í Sví þjóð og annars staðar þar sem ég hef komið, er það nær al- gild regla að menn eiga sina sérgrein — og geti vart synt annað sund í keppni — og meira að segja er það afar óal gengt að menn geti verið í fremstu röð bæði á stuttum vegalengdum og þeim iengrL En það geta ykkar sundmenn ekki sízt Guðmundur. Fjöl- hæfni hans er undraveró. — Hann er jafngóður í öllum sundum. Álíka hissa varð ég að sjá fjölhæfni Hrafnhildar Guðmundsdóttur. Hún hetfur óvenjulega hæfileika — að geta synt allt. Aðspurður um Hörð Finns son og hætfnj hans sagðist Lundin aldrei hafa séð bringu sundsmann sem syndir með slíku „tempoi“ — stuttum en hröðum tökum. Lundin sagði að það væru á Norðurlöndum 4 menn (3 Svíar og Finni), sem syntu 200 m bringusund á 2.38,5 til 2.41. Nú hetfði Hörður bætzt í þann félags- skap og værj sóomi að honum þar. Spáði Lundin honuim mikillar framtíðar. Hörður væri óvenjulegur afreksmað- ur. — En eins er að gæta, bætti Lundin við. Á hinum stóru mótum er keppt aðeins í 50 m laugum. Eg veit ekkj hvern ig Hörður reynist þar. Þegar við athuguðum það hjá Herði, kom í ljós að hanft hafði aldrei synt á tíma í 50 m laug. Jónas Halldórsson þjálfari sagðist ekki efast um að Hörð ur gæti miklu betur og með lítilli breytingu á fótatökum Harðar, kvaðsit Jónas viss um að 2.36,0 mín væru skamimt undan hjá honum. - XXX — Lundin er reyndur sund- garpur. Félag hans í Málmey telur 600 virka sundfélaga og hann er þeirra fremstur. — Hann hefur víða farið og marka má orð hans. Yfirvöld sundsins ættu að getfa því gaum, að á meðal sundimanna okkar í dag eru menn sem geta náð langt á Evrópuimóti, jafnvel eiga möguleika á sigri. En eftir því sem bezt er vitað hefur ekkert verið gert í því að undirbúa þátt- töku íslancls í Evrópumóti í sundi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.