Morgunblaðið - 20.03.1962, Blaðsíða 16
16
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 20. marz 1962
Singer-saumavél
Rafknúin iðnaðar saumavél Utxð notuð og í góðu
ásigkomulagi til söiu. Verð kr. 5.5000,00. Vélin er til
sýnis á Laugavegi 15. Upplýsingar í Speglabúðinni
sími 19635.
Steypustyrktarjárn
fyrirliggjandi
Helgi IHagnusson & Co.
Hafnarstræti 19 — Sími 13184 og 17227
IMý kjörbúð
Hefi opnað nýja matvörukjörbúð
undir nafninu
Matarkjörið
KJÖRGARÐI — (Laugavegi 59)
1. flokks vöruval
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin
Matarkjörið Kjörgarði
Vélsmiðjur og verkstæði
Höfum til afgreiðsiu nú þegar Gólfborvél, vandaða,
með m. kónus no. 4. Vinnur með 40 mm. bor í mjúkt
stál við 180 snúninga. Vélsög með kælingu og sjálf-
virkri lyftingu. Vélhefill 14“, lítið eitt notaður.
Jafnstraums Rafsuðuvélar 280 og 360 amp, einnig
260 amp. Transarar. Loftpressur 2 kw hentugar fyrir
málara og srnærri verkstæði. — Þá eru væntanlegir
bráðlega, iiinir léttu eftirsótt.u 180 amp. PCH
„Compact“ transarar, er kosta aðeins kr. 7000,00.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Grjótagötu 7 — Reykjavík — Sími 24250
Höfum til sölu
Clark dráffarvagn
yfirbyggðar. — Mjög hagstætt verð
Einkaumboðsmenn fyrir
CLARK EQUH'MENT INTERNATIONAL
C. A. á íslandi.
Elding Trading Company
Hafnarhvoli. — Sími 15820 og 16303
Margrét Sesselja
Gunnlaugsdóttir
ÞANN 28. janúar s.l. andaðist í
sjúkrahúsi eítir ströng veikindi
frú Margrét Sesselja Gunnlaugs-
dóttir, Meðalholti 3. Þar sem mér
er ekki kunnugt, að neitt hafi
verið um hana skrifað, langar
mig að minnast þessarar gagn-
merku konu með nokikrum fá-
tæklegum orðuim.
Margréí var fædd í Múla í
Kirkjuhvammshreppi í Vestur-
Húnavatnssýlu 16. janúar 1894,
Gunnlaugsdóttir bónda þar, svo
á Syðri-Völlum í Miðfirði, f. 3.
júní 1861, Gunnlaugssonar hrepp
stjóra á Efra-Núpi í Miðfirði d.
1889, Gunnlaugssonar prests á
Stað í Hrútafirði 1836—46 Gunn-
laugssonar. Meðal barna Gunn-
laugs hreppstjóra á Efra-Núpi,
en þau voru allmörg, var Þórdís
móðir Gunnlaugs Kristmundsson-
ar sandgræðsfustjóra. Voru þau
Margrét því systkinabörn og
töldu sumir sig sjá sterkt ættar-
mót með þeim-. Kona Gunnlaugs á
Syðri-Völlum og móðir Margrét-
Hús óskast
Ríkisstofnun er kaupandi að steinhúsi, 2ja eða 3ja
hæða ca. 80—100 ferm., helst miðfivæðis í bænum.
Húsið á að nota undir skrifstofur o. fl. — Upplýs-
ingar gefur
EINAR ÁSMUNDSSON hrl.
Austurstræti 12, III. hæð. — Sími 15407
Skrifstofu og
iðnaðarhúsnœði
t
94 ferm. og 87 ferm. í steinhúsi við Miðbæinn til
sölu. — Laust nú þegar.
NÝJA FASTEIGNASALAN
Bankastrxeti 7.
Sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546
Tllboð óskast
í húsið Norðurgata 1 (Sólvangur) Seyðisfirði ásamt
um tvö þúsund ferm. eignarlóð. — Tilboðum, þar
sem greint sé verð og greiðsluskilmálar, sé skilað
til rafmagnsveitna rikisins í Reykjavík fyrir 1. apríl
1962. — Upplýsingar um húsið munu gefnar á sama
stað og einníg hjá Sigurði Leifssyni, Seyðisfirði.
Rafmagnsveitur ríkisins
INIýleg íbúð
Til sölu er næstum ný fullgerð íbúð í tvíbýlishúsi
á bezta stað í Kópavogi. íbúðin er 2 stofur, 3 svefn-
herbergi, eldhús með borðkrók og skáli. Sér inn-
gangur. Vandaðar innréttingar. Gott útsýni. Sér
hiti.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.
Málflutningur — Fasteignasaia
Suðurgötu 4 — Símar; 14314 og 34231.
íbúðir til sölu
í sambýlishúsi við Kleppsveg eru til sölu mjög rúm-
góðar 3ja—4ra herb íbúðir. Eru seldar með full-
gerðri miðstóð, sem ei' komin nú þegar, með tvö-
földu gleri og sameign inni múrhúðaðri. Fullgerð
húsvarðaríbúð fylgír. Hægt er að fá íbúðirnar múr-
húðaðar á sgömmum tíma, ef óskað er. Ibúðirnar
eru í fullgerðu hverfi með verzlunum og öðrum
þægindum. Hitaveita væntanleg. Hagstætt verð, ef
samið er strax.
ÁRNI STEFÁNSSON. hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala
Suðnrgötu 4 — Sími 14314 og 34231.
ar var Björg f. 22. ágúst, 1853
d. 20. rr.arz 1939, Árnadóttir
bónda á Fossi í Vesturhópi Krist-
jánssonar.
Margréti var rík menntaþrá i
blóð borin, og fór hún í kvenna-
skólann á Blönduósi þegar hún
var 19 ára og var þar í tvo vetur.
Síðan varð hún sér úti um frek-
ari menntun til undirbúning3
kennarastarfi, en hún stundaði
barnakennslu noikkur ár, bæði i
Húnavatps- og Árnessýslu. Er ég
viss um að hún hefur rækt það
starf af alúð og skyldurækni eins
og öll önnur störf sína, enda var
hún barngóð og hafði gott lag
á börnum. En hún þráði að læra
meira og sjá sig um í hekninum,
og fór hún til Danmerkur árið
1925 á kennaranámskeið í Askov
Og siðar var hún heimiliskennari
á Jótlandi einn vetur.
Margrét giftist 31. október
1931 eftirlifandi manni sínum,
Ingvari bifreiðaeftirlitsmanni
Kristjánssyni bónda í Grísatungu
í Stafholtstungum Kristjánssonar
og konu hans Þuríðar Helga-
dóttur. Þeim Varð þriggja barna
auðið, en þaU voru, Auður, er
dó á fyrsta ári, Auður Björg, er
nemur læknisfræði í Svíþjóð,
Gunnlaugur Þór kvæntur og bú-
settur í Reykjavík. Litla dóttir
hans, Margrét, var mikið uppá-
hald ömmu sinnar Og alnöfnu
og missti hún sannarlega allt of
fljótt þessa góðu ömmu.
Margrét átti við erfiðan sjúk-
d.óm að stríða hin síðari ár, og á
síðastliðnu hausti varð hún að
fara á sjúkrahús óg dvaldist þar
til hins síðasta, nema um jólin,
er hún naut hjúkrunar og um-
önnunar Auðar dóttur sinnar á
heimili smu.
Margrét heitin var gædd ein-
beitni, kraftj og dugnaði í ríkum.
mæli. Hún var mjög myndarleg
húsmóðir, enda bar heimilið þess
greinilegan vott hver snillingur
hún var í öllum verkum sínum.
Margrét var greind kona og mjög
skemmtilegt að ræða við hana.
Hún var ræði fróð og minnug og
fylgdist einrig vel með því, sem
gerðist á hiverjum tíma. Hún
hafði mikið yndi af ödlu fögru,
skáldskap, myndlist og blómuin.
Sterk trúkona var hún og örugg
í vissu sinn um framhaldslífið.
Engan vissi ég betri að leita til
ef á ráðum og hvatningu þurfti
að halda. Á heimili hennar leið
öllum vei bæði heimilisfólki og
gestum.
Ég kynntist frú Margréti fyrst
fyrir nokkrum árum, er hún var
mjög farin að heilsu. Veikindiit
bar hún vel Og æðraðist aldrei,
en var ætíð full áhuga, hjálp-
fýsi Og dugnaði, þó að hinir lík-
amlegu kraftar væru farnir að
þverra. Eklri vil ég láta ógetið
hve frábærlega vel Ingvar reynd-
ist konu sianj í veikindum henn-
ar, enda var öll -fjölskyldan mjög
samrýmd, og var það Margréti
að sjálfsögðu mikill styrkur.
Vertu sæl Margrét mín, hjart-
ans þöikk fyrir ógleymanlega við-
kynningu. Minar beztu árnaðar-
óskir fylgja þér yfir landamærin.
Ástvinum þínum bið ég allrar
blessunar.
Þín náðin Drottinn nóg mér er
því nýja veröld gafstu mér.
Þótt jarðnesk gæfa glatist öll
ég glaður horfi á lífsins fjöll.
(E. H. Kvaran).
G. A,