Morgunblaðið - 29.06.1962, Page 1

Morgunblaðið - 29.06.1962, Page 1
24 síður 19. Srgangur 145. tbl. — Föstudagur 29. júní 1962 Prentsmiðja Mcrgunblaðsiiu S-Rhodesía fái nýja stjórnarskrá Tillaga Asíu og Afríkuríkja samþykkt hjá S.Þ. Fulltrúi íslands fjarverandi Sir Patrick Dean ytirgat þingsalinn Sameinuðu Þjóðunum, 28. júní — AP — NTB. • f dag fór fram atkvæða- greiðsla á Allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna um tillögu, Bem borin var fram af 38 Asíu- og Afríkuríkjum. Var í tillög- unni kveðið svo á, að Bretar Bkyldu skipa nefnd til þess að semja nýja stjórnarskrá fyrir Suður Rhodesíu. • Tillagan var samþykkt með 73 atkvæðum gegn einu, at- kvæði S-Afríku. 27 ríki sátu hjá_ þar á meðal Norðurlöndin, Dan- mörk, Svíþjóð, Noregur og Finn- land. ísland var eina ríkið, sem ekki var viðstatt atkvæðagreiðsl- una, en fulltrúar Bretlands og Portúgal höfðu tilkynnt áður að þeir myndu ekki taka þátt í henni. Áður en atkvæðagreiðslan hófst létu Bretar í ljós þá skoðun sína, að tillagan væri ótímabær, þar sem S-Rhodesía hefði sjálf ráðið málum sínum í miörg ár og væri þetta verkefni stjórnar landsins en ekki Breta. Neituðu Bretar að taka þátt í atkvæða- greiðslunni og formaður sendi- nefndar þeirra á Allsherjarþing- inu, Sir Patrick Dean, yfirgaf Halvard Lange , Lange til Islands NTB-fréttastofan skýrði frá því í gær, að utanríkisráð- herra Noregs, Halvard Lang og kona hans kæmu í opin- bera heimsókn til íslands 11. júlí n.k. Dveljast hjónin hér á landi til 18. júlí. fundarsalinn meðan á atkvæða- greiðslunni stóð. Aðrir fulltrúar Breta sátu kyrrir. Mál S-Rodesíu var hið síð- asta, sem 16. þing SÞ fjallar um. í þinglokin var U Thant, fram kvæmdastjóri SÞ hylltur af þingnefndum helztu þjóðanna. ósló, 28. júní. (NTB) — Borgarstjóri Vestur-Berlínar, Willy Brandt, er væntanleg- ur til ósló 14. júlí ásamt fjölskyldu sinni. Ætlar borg- arstjórinn að eyða sumar- leyfi sínu í Noregi og dvelj- ast þar til 11. ágúst. Monte Carlo, 28. júní. — (NTB-AP) — SIR Winston Churchill datt í morgun á gólfið í herbergi sínu í gistihúsi í Monte Carlo og lærhrotn- aði. Hann var fluttur í sjúkrahús og gekk þar undir uppskurð, sem sagt er að hafi heppnazt vel. Slysið varð, þegar Cchurc- hill var að fara fram úr rúmi sínu. Þegar hann hafði verið fluttur í sjúkrahús, var tekin röntgen-mynd af Nýr sendiherra U.S.A. í Moskvu Washdngton 28. júní (AP). HABT var eftir áreiðanlegum heimildum í Washington í dag, að Kennedy forseti hefði ákveð- ið að skipa ráðherra þann, sem mest hefur með Evrópumál að gera, Foy Kohler, sendiherra Baiudarikjanna í Moskvu. Llevellyn Tompson, sem að undanförnu hefur gegnt embætt- inu, baðst lausnar fyrir nokkr- um mánuðum. Sagt var, að Tompson muni taka við erubætti Charles E. Bohlen, sem sérlegur ráðgjafi Dean Rusk utanríkisráðherra, um málefni varðandi Sovétríkin. Bohlen mun eiga að taka við em- bætti sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi af James M. Gavin. Frébt þessi hefur ekki fengizt staðfest af bandarísku stjórninni, en talið er að það muni verða gert, þegar Dean Rusk utanríkis- ráðherra kemur heim úr Evrópu för sinni. Rólegt í Alsír Evrópumenn vondaufir Mynd þessi var tekin sl. haust, þegar Sir Winston var studdur út úr flugvél, er hann kom til London frá Monte Carlo. Algeirsborg og Oran, 28. júní — AP — NTB. • Friðvænlegt er nú í Alsír, eftir uppgjöf OAS-manna í Oran. Ekki er enn vitað, hvar Poul Gardy heldur sig, en jafnvel talið, að hann sé kominn til Spán- ar. • Enn er talsímasamband við Oran rofið, en útvarpsfréttir það- an herma, að evrópsku íbúarnir í borginni séu vondaufir og hafi ekki mikla trú á, að friðurinn haldist eftir 1. júlí. í nótt héldu Serkir fagnaðarhátíð, sem í tóku þátt um tíu þúsund manns. Stóð hátíðin sem fór fram með algerri spekt allt til morguns. Síðustu daga hafa hvorki kom- ið flugvélar né skip til Oran eri Churchill lærbrotnar fæti hans og kom þá. í Ijós að lærbeinshálsinn var brot- inn. Churchill kom til Monte Carjo sl. þriðjudag og ætl- aði að dveljast á Miðjarðar- hafsströndinni í nokkrar vik ur sér til hressingar. Kona hans var ekki með honum \ — hún liggur veik í London. Churchill verður fluttur þangað á morgun með brezkri herflugvél, sem lagði af stað frá Englandi í kvöld. Haustið 1960 varð Churc- hill fyrir svipuðu slysi. Datt hann þá á gólfið á heimili sínu í London og braut smá- bein í hryggnum. Var hann ekki nema nokkra mánuði að ná sér eftir það slys. 1 vor hefur Churchill haft slæmt kvef, sem hann hafði þó losnað við áður en hann lagði af stað til Monte Carlo. Churchill verður 88 ára í haust. á föstudag eru væntanleg þangað þrjú skip til þess að sækja fólk af evrópskum stofni, sem óskar eftir að fara til Frakklands. Fréttamaður frönsku fréttastof- unnar AFP í Túnis hefur eftir áreiðanlegum heimildum, að sjálf stæði Alsír verði lýst yfir 3. júlí nk. Segir AFP heimildarmann sinn nákominn serknesku útlaga- stjórninni, sem í dag hafi komið saman til fundar til þess að gera síðustu ráðstafanir áður en hún heldur til Alsír. Ben Yussef Ben Kedda forsætisráðherra útlaga- stjórnarinnar átti í dag samtal við Habib Bourgiba, forseta Tún is. Átta aðrir menn úr stjórninni voru viðstaddir fundinn, þar á meðal Belkacem Krim. Hitt hef- ur vakið athygli að Mohammed Khider, innanríkisráðherra stjórn arinnar, var ekki viðstaddur. Herma freghir að hann hafi óskað eftir að hætta þátttöku í stjórn- inni, en ekki vitað hvort svo er orðið. Eisenhower til Danmerkur Washington, 28. júní (AP) Frá því var skýrt í Washington í dag, að stjórn Danmerkur hefði boðið Dwight D. Eisenhower fyrr verandi Bandaríkjaforseta og frú hans til Danmerkur í ágúst, en þá munu þau heimsækja Eng- land og Norður-Evrópu. Evrópumenn flýja Ruanda- Urundi USUMBURA, Urundi, 28. júní (NTB) — Mikill fjöldi Evrópu- búa yfirgefur daglega Ruanda- Urundi í Afríku, sem fær sjálf- stæði 1. júlí n.k. Þrjár aukaflugferðir eru fam ar daglega fyrir utan venjulegt áætlunarflug frá höfuðborginni Usumbura í Urundi. Farþegarnir eru Evrópumenn, sem óttast að óeirðir og ringulreið fylgi í kjöl far þess að landið fær sjálfstæði, eins og átti sér stað í Kongó. Margir hafa þó látið svo um- mælt, að ekki sé eins mikil á- stæða til að óttast, eins og fólk vill vera láta. I Isl. krdnur má nd selja a' erlendum vettvangi Skref í þá átt að gera krónuna jafngilda gjaldmiðli annarra þjóða S tJ breyting hefur verið gerð á skipan gjaldeyris- mála, að íslendingar,* sem fara til útlanda, mega nú taka með sér allt að 2500 kr. í íslenzkum peningum. Sömu leiðis hefur erlendum ferða- mönnum verið leyft að koma með til landsins allt að 5000 íslenzkum krónum, og taka með sér aftur helming þeirrar upphæðar. Er þetta í fyrsta skipti í nær tvo áratugi, sem slíkt frjálsræði hefur þekkzt hér í gjaldeyrismálum. Er Mbl. hafði í gær tal af dr. Jóhannesi Nordal, banka- stjóra, sagði hann, að hér væri um að ræða fyrsta Framh. á bls; 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.