Morgunblaðið - 24.07.1962, Blaðsíða 13
w
Þriðjudagur 24. júlí 1962
MORCTHSTtL 4 Ð1Ð
13
Harðvítugar landamæradeilur
Indlands og Rauða-Kína
Skipzt á skotum í Lacl^kh-
héraði um síðustu helji
SJm 400 orðsendingar Liafa
farið á milli deiluaðilja
ÞAU átta ár, sem Indland
og Rauða-Kína hafa eld-
að grátt silfur yfir landa-
mærum sínum, hafa u.þ.b.
400 orðsendingar gengið á
milli ríkjanna. Fyrst og
fremst hefur deilan því
| verið fólgin í orðum. En
jí stöku sinnum síðustu ár-
in hefur ástandið á landa
mærunum sjálfum verið
mjög ófriðlegt — og er
svo um þessar mu«dir.
Kröfur Kínverja
Aðaldeiluefni Nehrus, for-
sætisráðherra Indlands og
kínversku kommúnistaleið-
toganna er héraðið Ladakh í
austurhluta Kasmír. Hérað
þetta er nálægt 12 þúsund
fermílur að stærð — eða sem
svarar tæpum þriðjungi fs-
lands. Indland hefur löngum
talið hérað þetta til sín, en
á landabréfum, sem kín-
verskir kommúnistar gáfu út
um eða upp úr árinu 1950
er Ladakh talið til Kína. —
Þessu mótmæltu Indverjar
strax, en fóru til að byrja
með vægt í sakirnar. Kín-
verjar svöruðu því til, að
indversk landabréf hefðu ver
ið gerð af „brezkum heims-
veldasinnum“ og væru því
marklaus. ítrekuðu þeir síð-
an tilkall sitt til Ladakh og
árið 1959 var svo komið, að
þeir höfðu sent herlið til
héraðsins, til þess að fylgja
eftir landakröfu sinni. Ind-
verjar létu ekki við svo bú-
ið standa, heldur sendu tim
hæl sveitir úr sínum eigin
her til Ladakh. Alla tíð síðan
hefur legið við að í odda
skærist, og stundum borizt
fregnir af árekstrum her-
flokkanna, yfirleitt þó meir'’.
eða minna óljósar.
Stóryrði á vixl
Stóryrðin hafa gengið á
víxl, látlítið. Og báðir aðil-
ar hafa staðið að baki þeim
gráir fyrir járnum. Svo langt
hefur jafnvel gengið, að kín-
versku kommúnistaleiðtog-
arnir hafa sett Indverjum úr
slitakosti: Að hafa sig þegar
á brott úr tveim tilteknum
varðstöðvum í héraðinu, ella
muni verr hljótast af. En
Indverjar hafa skellt skolla-
eyrum við slíku og hvergi
viljað láta undan síga nema
nauðugir, ef til þess kæmi.
Þannig má segja, að fram til
þessa hafi hvorki gengið né
rekið.
Harka hleypur í málið
f fyrri hluta þessa mánað-
ar hljóp á ný harka í deil-
urnar. Kínverjar sendu Ind-
verjum orðsendingu, þar sem
því var lýst yfir, að ind-
verskar liðssveitir hefðu far
ið 7—8 km inn í Sinkiang-
héraðið, sem liggur að Lad-
akh. Með þessu hefðu þeir
enn einu sinni reynt að
stofna til ófriðar, sagði í orð
sendingunni. Ef ekki hefði
gætt mikillar stillingar í varð
liði Kínverja, myndu bar-
dagar hafa brotizt út. — En
PAKISTAN
Þetta litla kort sýnir með svörtu
landssvæði þau á norðausturmörk-
um Indlands, sem deilan stendur
um við kínverska kommúnista, en
það er aðallega Ladakhéraðið.
Indverjar höfðu líka sína
sögu að segja: Þeir lýstu því
yfir, að 400 manna kínversks
liðs hefði orðið vart í nánd
við indverska herstöð á þess-
um slóðum og væri þetta enn
eitt dæmi um þær „skipu-
lögðu árásaraðgerðir", sem
Kínverjar héldu stöðugt
uppi.
1 annarri orðsendingu
Indverja, rétt fyrir miðj-
an mánuðinn, voru svo
nýjar ásakanir um hernað
aðgerðir og Kínverjum
borið á brýn að þeir
„ykju spennuna og ..._____
kynni það að Ieiða til á-
rekstra, hvenær sem
væri.“
Skipzt á skotum um
síðustu helgi
Um síðustu helgi virtist
Framhald á bls. 19.
r^Tlo/Aon^) Dieselvélaverksmiðjurnar framleiða allar gerðir véla í fiskiskip — léttbyggðar, hrað- (
gengar með „gcar“ eða þungbyggðar, hæggengar með beinni tengingu á skrúfu.
Upplýsingar um verð og tækni-atriði veitir o/ö\o umboðið á íslandi.
Mo.
MASCHiNENFABRIK AUGSBURG-NÖRNBERG A.G.
Hefur um áratugi framleitt Dieselvélar af öllum stærðum frá 20 hö til 30.000 hö. Vélar frá o/ZS^o
hafa hlotið viðuikenningu á heímsmarkaðnum og taldar í fremst-u röð Dieselvéla.
ih.iitiwiwh.iw.
,rr;
rsf J
Hið nýja glæsilega fiskiskip M. B.
JÓN FINNSSON GK. 506, Garði, er
fyrsta íslenzka fiskiskipið í sínum
stærðarflokki, sem knúið er
C£] o/a\o Dieselvél. Aðalvél
skipsins er fimm strokka, ósnarvend,
fjórgengis Cm] o/g\o [jí£] Dieselvél,
465 hö við 428 sn/mín. Vélin er tengd
beint á skiftiskrúfu án „gears“.
ÚLAFUR GÍSLASON & CO. HF.
Jafnarstræti 10—12, Reykjavík — Sími 18370
Sínmefni, ,,JNet“ — Reykjavík.