Morgunblaðið - 08.11.1962, Blaðsíða 1
24 siður
Kennedy ánægður með
úrslit kosninganna
Washington og New York,
7. nóv. — NTB-AP
tr R 'S LIT öldungadeildar-
kosninganna, sem fram fóru
í Bandaríkjunum í gær, urðu
þau, að demókratar bættu við
sig 4 öldungadeildarþing-
mönnum. Höfðu þeir 64 full-
trúa í deildinni, en hafa nú
68. Repúblikanar höfðu 36,
en hafa nú 32. í fulltrúadeild-
arkosningunum voru endan-
leg úrslit ekki kunn, en talið
var að demókratar töpuðu 2
fulltrúum. Þeir höfðu 261, en
repúblikanar höfðu 174.
Af 35 ríkisstjórum, sem
kosið var um, fengu demó-
kratar 21, en repúblikanar 14.
Er það sama tala og báðir
höfðu fyrir kosningar, en
demókratar unnu 6 ríkis-
stjóraembætti af repúblikön-
um og repúblikanar jafn-
mörg af demókrötum.
Demókratar hafa nú stærri
meirihluta á Bandaríkjaþingi,
en nokkru sinni sl. 20 ár. Eru
úrslit kosninganna talinn sig-
ur fyrir demókrata, Kenne-
dy Bandaríkjaforseta og
stefnu hans.
Kennedy lýsti í dag á-
nægju sinni með úrslit kosn-
inganna og sagðist spá því, að
mikill árangur næðist af
starfi þingsins á næsta kjör-
tímabili.
• RIKISSTJÓRAR
I ríkjsstjórakosningunum
unnu repúblikanar í þremur
fjölmennum ríkjum, þar sem
demókratar höfðu áður gegnt
rikisstjóraembættum. Eru þessi
ríki Michigan, þar sem George
Rommey, bílakonungur, sigraði,
en talið er að hann keppi að því,
að verða í framboði við næstu
forsetakosningar, Pennsylvania,
þar sem William Scranton var
kjörinn ríkisstjóri, og Ohio, en
þar var George Rodes kjörinn
ríkisstjóri. Önnirr ríki, sem repú-
blikanar unnu af demókrötum,
eru: Colorado, Oklahoma og
Wyoming. Er þetta í fyrsta
skipti í 55 ár, sem repúblikani
er kjörinn ríkisstjóri í Okla-
homa.
Ríkin, sem demókratar unnu
af repúblikönum eru: Hawaii,
Iowa, Massachusetts, New Hamp
shire, New Mexiko og Vermont.
Vakti mikla athygli, að demó-
kratar skyldu vera kjörnir rikis-
stjórar 1 Vermont og New Hamp
shire, en þar hafa repúblikanar
átt mjög miklu fylgi að fagna
um áraraðir.
• öLiDUNGADEILDIN
í Colorado vann repúblikan-
inn Peter H. Dominic öldunga-
dejldarsæti demókratans Johns
A. Carrol. í Connecticut vann
demókratinn Abraham Ribi-
coff, fyrrv. heilbrigðis- og
kennslumálaráðherra Kennedys,
sæti repúblikanans Prescott
Bush. í Idaho vann demókratinn
Eramhald á bls 23.
Menon biðst lausnar
Edward M Kennedy
Þrir bræður
í voldastöðum
I öldungardeildarkosningun
um i Massachusetts sigraði Ed
ward M. Kennedy, bróðir
Bandaríkjaforseta, glæsilega.
IFrambjóðandi demókrata var
George Cabot Lodge, sonur
Henry Cabot Lodge, fyrrv,
fulltrúa Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum. Eins
og kunnugt er var Kennedy
Bandaríkjaforseti öldunga-
deildarþingmaður fyrir Massa
chusetts áður en hann var
kjörinn forseti.
Edward M. Kennedy er
yngsti bróðir Bandaríkjafor-
seta. Hann er 30 ára, kvænt-
ur og á tvö börn.
Þegar Edward Kennedy hef
ur tekið sæti í öldungadeild-
inni verður það í fyrsta skipti
í sögu Bandaríkjanna, sem
forseti landsins á bróður í
deildinni.
Edward Kennedy hefur
ekki tekið þátt í stjórnmálum
áður, og var það mikið not-
að gegn honum í kosninga-
baráttunni. Einnig héldu
margir því fram, að ekki væri
æskilegt að ein ætt fengi eins
mikil ítök í stjórnmálum
Bandaríkjanna og Kennedy
ættin hefur nú. En eins og
kunnugt er, er Robert Kenne
dy, bróðir Bandaríkjafor-
seta, dómsmállaráðherra lands
Nýju Dehli, 7. nóvember.
(NTB)—
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, tilkynnti í dag, að Krishna
Menon, fyrrv. varnarmálaráð-
herra, hefði sagt af sér embætti
ráðherra, sem fer með fram-
leiðslu varnarvopna. Sagði Nehru
að lausnarbeiðni Menons hefði
verði tekin til greina.
Fréttastofan Nýja Kína skýrði
frá því í dag, að forsætisráð-
harra Kína, Chou En-Lai, hafi
sent Nehru forsætisráðherra bréf
og skorað á hann að hef ja samn
ingaviðræður um landamæradeil
una .
,20 meðlimlr kommúnistaflokks
Indlands hafa verið handtekmr.
Eru þeir sakaðir um að vera á
bandi Kínverja í landamæradeil
unni.
Nehru skýrði frá því að Menon
hefði verið leystur irá emn^iti
á fundi þingflokks Kongress-
flokksins, en 18 af 24 stjórnar-
meðlimum flokksins höfðu kraf-
izt þess, að Menon yrði vikið úr
ríkisstjórninni. Skýrt var frá því
í dag, að Indverjar væru farnir
að nota vopn þau, er Bandaríkja
menn sendu þeim í bardögunum
við Kínverja.
Richard Nixon
Nelson Rockefeller
Nixon faeið Næsti for-
ósigur
Flugvöllurinn við Chusul í
Ladakh héraði er enn á valdi Ind
verja, en gert er ráð fyrir að
Kínverjar ráðist á hann á hverri
stundu.
f ríkisstjórakosningunum i
Kaliforníu urðu úrslitin þau,
að demokratinn Edmund
Brown, núverandi ríkisstjóri
sigraði Richard Nixon, fyrrv.
varaforseta Bandaríkjanna.
Telja stjómmálafréttaritarar
að þessi ósigur muni binda
enda á stjórnmálaferil Nix-
ons, en talið var sennilegt, að
hann yrði frambjóðandi repú
blikana við næstu forseta-
kosningar, ef hann sigraði nú
Sem kunnugt er var Nixon
frambjóðandi repúblikana við
forsetakosningarnair 1960 og
beið ósigur fyrir Kennedy
Bandarikjaforseta m<eð litlum
atkvæðamun.
I»egar talning var komin
það langt í Kaliforníu, að
Nixon sá, að fullvist væri að
hann myndi tapa, sendi hann
Edmund Brown skeyti og
óskaði honum til hamíngju
með sigurinn.
Þá hafði Brown hlotið 250
þús fleiri atkvæði en Nixon.
Framh. á bls. 2.
seti USA?
f RÍKISSTJÓRAKOSNING-
UNUM í New York, sigraði
núverandi ríkisstjóri, repúblik
aninn Nelson Rockefeller, lítt
þekktan demókrata, Robert
Morgenthau. Hlaut Rockefelk
er mikinn meirihluta atkvæða
Er talið, að þetta auki mögu-
leika Rockefellers á því að
verða frambjóðandi repúblík-
ana við næstu forsetakosning
ar. En þegar repúblíkanar
völdu forsetaefni sitt 1960,
var hann skæðasti keppinauf
ur Richard Nixon.
Rockefeller hefur verið rík
isstjóri New York-ríkis frá
1958, en þá sigraði hann fyri
verandi ríkisstjóra ríkisimj
demókratann Averell Harri-
man.
Rockefeller sigraði Harri-
man með 573 þús. atkv. og
spáð var að hann myndi sigra
Morgenthau með 800 þús. til
miUjón atkv., en þegar taln-
ingu var um það bil að ljúka
hafði hann tæpa hálfa milljóa
atkvæða fram yfir Morgent,
hau.
Mandela dæmdur
í fangelsi.
PRETORIA, t. nóv. — NTB —
Einn af leiðtogum þjóðernis-
flokks Afríkumanna í S-Afríku,
Nelson Mandela, sem kallaður
hefur verið „svarta akurliljan“,
var í dag dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir að hafa rekið áróð-
ur gegn ríkisstjórninni.
Flokkur Mandela er bannaður
i S-Afríku, en hann hefur starf-
að leynilega árum saman.
Krúsjeff telur heims-
friðinn ekki í hættu
Segir brottflutning eldflauga
frá Kúbu hafinn
Moskvu,' 7 .nóv. — NTB-AP
• Nikita Krúsjeff, forsæt-
isráðherra Sovétríkjanna,
sagði í dag, hð hann teldi
ekki ástæðu til fundar æðstu
manna austurs og vesturs,
þar sem heimsfriðurinn væri
ekki í hættu.
• Krúsjeff sagði, a?S 40 sov-
ézkar eldflaugar hefðu verið
á Kúbu; lokið væri við að
taka þær niður og væru skip
sennilega lögð af stað með
þær til Sovétríkjanna.
• Hann kvaðst vera sann-
færður um, að Kennedy
Bandaríkjaforseti héldi lof-
orð sitt og léti ekki gera inn-
rás í Kúbu.
• Forsætisráðherrann
sagði, að Rússar myndu hætta
kjarnorkutiiraunum 20. þ. m.,
en hefja þær á ný, ef sam-
komulag næðist ekki um til-
raunabann. — Krúsjeff ræddi
ennfremur Berlínarmálið, en
tiltók ekki hvenær Rússar
ætluðu að gera friðarsamn-
ing við A-Þýzkaland.
Forsætlsráðherrann skýrði
fréttamönnum frá þessu í dag
við móttöku í Kreml í tilefni 45
ára afmælis októberbyltingar-
innar. Krúsjeff lagði áherzlu á
það, að heimurinn hefði ramb-
að á barmi kjarnorkustyrjaldar
fyrir viku. Báðir aðilar laefðu
verið undir það búnir að hefja
slíka styrjöld. Þó að astandið
hafi batnað er það enn allalvaj
legt. — 1 Kúbumálinu sýndui
við viljastyrk og féllumst á sarr
komulag, sagði Krúsjeff, en t
þess að forðast að komast aftu
í slíka aðstöðu, verðum við a
veita meira aðhald. Við vérðui
að uppræta allt, sem getur oi
sakað ósamkomulag. Harka
stjórnmálum borgar sig ekl
alltáf, sagði Krúsjeff og í utar
ríkismálum er sveigjanleiki nau
synlegur.
Krúsjeff sagðist hafa ákveði
að láta flytja sovézku eldflauj
arnar frá Kúbu, eftir að Kenne
dy hafði lofað að tryggja örygj
eyjarinnar. — Kúbubúar sögðu:
ekki treysta Kennedy Bande
ríkjaforseta, en við sögðum:
treysta honum, sagði Krúsjef
— Við sögðum þeim, að þetl
væri eina leiðin til þess að kon
ast hjá styrjöld.
— Ég trúi því að Kenned
gangi ekki á bak orða sinn;
sagði Krúsjeff og bætti við: -
Ég vil trúa því.
Framh. á bls. 23.