Morgunblaðið - 08.11.1962, Qupperneq 14
14
MORCl’NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 8. nóvember 1962
Teak útihurðir
Staerð 90 x 205 cm.
Verð m/karmi kr. 6.900.
fyrirliggjandi.
HJÁJ.MAR ÞORSTEINSSON & CO. H.F.
Klapparstíg 28 — Sími 11956.
Stúlkur óskast
til eldhússtarfa strax.
Uppl. í eldhúsinu frá kl. 3—4 í dag!
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ.
Vefnaðavöruverslun
Til sölu vefnaðarvöruverzlun í eigin húsnæði í út-
hverfi bæjarins. Verzlunin er í fullum gangi.
Lager þarf ekki að fylgja með í káupunum.
SVEINN FINNSSON, HDL.
Málflutningur — fásteignasala
Laugavegi 30 — Sími 23700.
Eftir kL 7 — Símar 10634 og 22234,
Vegna jarðarfarar
verður skrifstofa undirritaðra lokuð í dag.
Málflutningsskrifstofan
EGGERT CLAESSEN
GÚSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Móðir okkar
MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR,
Hvassaleiti 46, Reykjavík
lézt í Landsspítalanum aðfaranótt 7. nóvember.
Börn hinnar látnu.
FRIÐGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu, Skeggjastöðum 19, aðfaranótt
6. þessa mánaðar. Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogs-
kirkju föstudaginn 9. nóvember klukkan 13,30. Jarð-
sett verður að Skarði Landssveit laugardaginn 10 nóv-
ember klukkan 1 eftir hádegi. — Ferð verður frá B.S.Í.
klukkan 9,30 um morguninn.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlega
bent á að láta líknarstofnanir njóta þess.
Þóranna Guðjónsdóttir.
Vinum og vandamönnum nær og fjær, þökkum við af
heilum hug, sýnda vinsemd og virðingu, við andlát og
útför mannsins míns og föður okkar
JÓSEPS JÓHANNSSONAR
frá Ormskoti, Vestur-Eyjafjöllum.
Guðrún Hannesdóttir og börn.
Ynnilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát
og útför
STEINUNNAR WAAGE.
Sigurður Waage,
Svava Þórðardóttir, Vilhjálmur K. Lúðvíksson,
Guðrún Waage, Sigurður S. Waage,
Ellen Waage, Björn Þorláksson,
Hulda Waage, Ágúst Svérrisson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður
JÓNS BJARNASONAR
SelfossL
Jenny Jónsdóttir,
t Guðrún Jónsdóttir,
Baldur Karlsson,
Sigríður Jónsdóttir.
Frystihúsið á Balvík
stækkað
Dalvík, 30. okt.
í LOK síðustu viku var tekin
í notkun viðbótarbygging við
frystihús K.E.A. hér á Dalvík,
sem verið hefur í smíðum und-
anfarin 3 ár. Allur útbúnaður,
sem reyndur hefur verið, virð-
ist í ágætu lagi. 8 frystitæki, þar
af 4 stór, eru nú í húsinu og
flökunarvél fyrir smáfisk. Frysti
geymsla er fyrir 350 smálestir
af fiskflökum.Með fullri afkasta-
getu mun frystihúsið nú geba
tmnið úr 4 smálestum af fiski
á klst. og hafa afköstin þá um
það bil tvöfaldazt.
Yfirsmiður var Jón Sigurðsson.
Vélsmiðjan Oddi hf., Akureyri,
sá um niðursetningu á færibönd
um, frystitækjum og vélum.
Frystiihússtjóri er Tryggvi Jóns
son.
2 ný skip.
Nýlega var keyptur hingað vél
báturinn „Dröfn“ frá Kópa-vogi,
18 smálestir að stærð. Eigendur
hans eru Helgi Jakobsson, skip-
stjóri o. fl. Báturinn mun verða
gerður út á línuveiðar í vetur.
2 skip um 200 smálestir að
stærð, eru nú í smíðum í Noregi
fyrir útgerðarmennina, Egil Júl-
íusson og Aðalstein Loftsson.
Sláturtíð lauk 19. okt. Slátr-
að var 7939 dilkum og var
kroppþungi að meðaltali 13,78
kg., en það mun vera aðeins
hærri meðalþungi en á S.l. ári.
Fullorðið fé var 1432. Þyngsti
dilkurinn, 25,5 kg., var eign
Gunnlaugs Gíslasonar, bónda á
Sökku í Svarfaðadal. 143 stór-
gripum var slátrað.
Aflabrögð.
Snjóa tók nokkrum dögum fyr
ir misseraskipti og má segja, að
nú sé fyrsta stórhríð vetrarins
um garð gengin.
Sjósókn hefur gengið erfið-
lega I haust, sökum ógæfta en
afli verið sæmilegur, þegar ró-
ið hefur verið.
— ks.
- '
Hallsdóttir
Fædd 8. janúar 1887
Dáin 25. september 1962
Kveðja frá sjúklingum
á Elliheimilinu Grund.
Þú vildir hjálpa og hugga sjúka
hrellda að gleðja — lækna und
hressandi og svöl
var hönd þín mjúka
hajrtað svo ríkt — og göfug lund.
Mig dreymdi þig vina —
þú vildir mig finna
um vesælan kofa leiddir mig
þar átti ég eitthvert verk
áð vinna
— ég veit ekki hvað —
en ég skrifa, um þig.
Líknarsystir! — þín löng
var ganga
við lýjandi — og við erfið kjör.
Með lýsandi þolgæði
þerraðir vanga
á þreyttu barni — sem ýtti úr vör
Grátandi léztu Guðs trúna teyga
gaddfreðnar sálir um
veraldar hjarn,
þó heilbrigð viljum
við heiminn eigá
— er hjálparlaus sjúkur
— sem lítið barn.
Þinn óbundni nú svífur andi
yfir á sólarlandsins strönd.
Alt er liðið — leystur vandi
losnuð eru sjúkdóms bönd.
Margur auð og upphefð grætur
en allt er fallvalt heimsins hnosa.
Nú hljóð ég bið í húmi nætur —
heilagi Faðir — líknaðu oss.
Guðrún Jónmundsdóttir.
GeriS þvotfadaginn
að hvíldardegi
Veljið
SfS VELADEILO
Kv: } • v vJ /, WA
.'rfVsvV1
-.-ll'feý >">>?.
.iui •■£ ,r»- r*f-
K -«> ■>.*? ilijwioft
■•-ir- i ■ ■••'«•- i w
■■■-: X£~.ií té ; -Í-I.